Fréttablaðið - 25.02.2016, Page 43

Fréttablaðið - 25.02.2016, Page 43
„Við höfum fengið frábærar reynslusögur frá því við settum fyrstu vöruna á markað fyrir einu og hálfu ári,“ segir Hrönn Margrét Magnúsdóttir, annar stofnenda og framkvæmdastjóri Ankra, en fyrirtækið þróar og markaðssetur fæðubótarefni og húðvörur úr hágæða kollageni, unnu úr íslensku fiskroði. Vörumerki Ankra ber heitið Feel Iceland og eru í dag komn­ ar fjórar vörur á markað frá fyr­ irtækinu og nú nýjast Joint Rew­ ind Joint Therapy bætiefni fyrir liði. Kollagen er ekki bara kollagen „Það er ekki allt kollagen eins en oftast er kollagen unnið úr svín­ um, nautum eða kjúklingum. Rannsóknir hafa sýnt fram á að upptaka líkamans á kollageni sem er unnið úr sjávarafurðum sé hraðari en á kollageni unnu úr öðrum dýraafurðum. Það sem skiptir mjög miklu máli í framleiðslu kollagens er stærð mólekúla. Því stærri sem mólekúlin eru því erfiðara á lík­ aminn með að nýta sér efnið. Feel Iceland kollagenið er með einstaklega smá mólekúl sem stuðlar að betri upptöku í líkam­ anum,“ útskýrir Hrönn. Hreinar vörur án aukaefna „Það skiptir okkur miklu máli að bjóða aðeins upp á hágæða hráefni og við notum engin aukefni í vör­ urnar okkar. Age Rewind Skin Ther­ apy hylkin eru sérstaklega þróuð fyrir húðina og er tilvalið að nota Be Kind Age Rewind andlitsserum­ ið með þeirri vöru. Amino Marine Collagen duftið er frábært út í þeyt­ inga, drykki og heimagerð orku­ stykki. Síðast en ekki síst eru það Joint Rewind hylkin sem eru kjörin fyrir fólk sem þjáist af liðverkjum.“ Danskir húðlæknar hrifnir Feel Icleand vörurnar hafa vakið athygli út fyrir landsteinana. Vör­ urnar eru meðal annars komnar í sölu á danskri húðlæknastöð og lífsstílssblogg leikkonunnar Gwyn­ eth Paltrow bað um sýnishorn af vörunum. „Við höfum fengið fyrir­ spurnir frá flottum aðilum erlend­ Fæðubótarefni og húðvörur sem vinna saman Fyrirtækið Ankra er með nýja nálgun að heilsu og útliti í vörulínunni Feel Iceland en fyrirtækið þróar fæðubótarefni og húðvörur sem vinna saman að bættu útliti og líðan. Vörurnar eru unnar úr íslensku fiskroði og hafa vakið athygli út fyrir landsteinana. Sítrónu-kókos kollagen bitar Hrönn Margrét Magnúsdóttir, annar stofnandi Ankra og framkvæmdastjóri, segir Ankra stefna á útrás. Mynd/Anton brink „Ég fann mikinn mun á húðinni strax á fyrsta degi. Húðin glóði hreinlega, var öll ferskari og mýkri og mér fannst fínar línur hafa minnkað. Ég ber serumið á mig á kvöldin á hreina húð og hef notað það í nokkra daga. Með þessu áframhaldi verð ég orðin eins og fermingarstúlka í vor,“ segir Helga Lind hlæjandi. Verkir í liðum nánast horfið Helga starfar sem einkaþjálfari hjá Sporthúsinu þar sem hún kennir einnig opna tíma og Power pilates. Vegna liðverkja hefur hún tekið inn Amino Marine Collagen frá Ankra með góðum árangri. „Ég hef notað duftið undan­ farinn mánuð og finnst þetta hrein undra vara. Ég hef glímt við vanda­ mál í hnjám og liðum, sem var farið að trufla mig í starfi mínu sem þjálfari. Ég fann fyrir verkjum en þeir hafa nánast horfið eftir að ég fór að taka kolla­ genið daglega. Ég set kollagenið út í rauð­ Húðin ljómar og fínar línur hverfa Helga Lind Björgvinsdóttir, einkaþjálfari og Power pilates kennari í Sporthúsinu, hefur notað Amino Marine Collagen duftið og andlitsserumið Be Kind Age Rewind frá Feel Iceland með góðum árangri. Verkir í liðum hafa minnkað mikið og húðin ljómar. Andlitsserumið be kind Age rewind frá Feel iceland er tilvalið að nota með Age rewind Skin therapy. Helga Lind björgvinsdóttir er einkaþjálfari og Power pilates kennari í Sporthúsinu. Hún hefur notað Amino Marine Collagen duftið og andlitsserumið be kind Age rewind frá Feel iceland með góðum árangri. Mynd/ernir rófusafa á morgnana og skelli í mig beint á fastandi maga áður en ég fæ mér hafragrautinn,“ segir Helga. „Auðvitað þarf alltaf að hugsa vel um heilsuna og hvað maður lætur ofan í sig en sérstaklega ef lífsstíll­ inn er krefjandi líkam lega. Þá hefur kollagenið einn­ ig haft áhrif á hár og negl­ ur. Hárgreiðslukonan mín hafði orð á því við mig að það væri mikill munur á hárinu á mér,“ segir Helga. Joint rewind Joint ther- apy bætiefni fyrir liði er nýjasta vara Ankra. Auðvitað þarf alltaf að hugsa vel um heilsuna og hvað maður lætur ofan í sig en sérstaklega þegar lífsstíllinn er krefjandi líkamlega. Helga Lind Björgvinsdóttir Ace rewind Skin ther- apy hylkin vinna að bættu útliti innan frá. Amino Marine Collagen hefur vakið athygli út fyrir landsteinana. is, meðal annars síð­ unni Goop.com sem haldið er úti af Gwy­ neth Paltrow. Þá hefur verið fjallað um vörurnar í erlendum tímaritum, blogg­ um og á Instagram. Danskir húð­ læknar prófuðu vörurnar okkar og urðu það hrifnir að þeir ákváðu að taka þær í sölu hjá sér á húðlækna­ stöð í Danmörku. Okkur fannst það mikill gæðastimpill á Feel Iceland vörurnar. Framundan er svo frekari útrás hjá okkur,“ segir Hrönn. Vörur Ankra eru til sölu í öllum helstu apótekum og heilsuvöruversl- unum. Andlitserumið er selt í Gló, Systraseli, Fríhöfninni og á vefsíðu Ankra, feeliceland.com. KóKos-Kollagenbitar 5 msk. Amino Marine Kollagenduft ¾ bollar kókossmjör 1 ½ msk. hunang 2 msk. kókosolía 1∕8 tsk. vanilluduft Börkur af einni sítrónu Sjávarsalt Blandið vel saman kollagendufti og kókossmjöri. Kókossmjörið á að vera nógu mjúkt svo hægt sé að hræra í því. Setjið í heitt vatnsbað til að mýkja ef þarf. Næst blandast hunang og kókos olía og síðast vanillu- duft, rifinn börk- ur af sítrónu og örlítið af sjávarsalti. Hægt er að blanda þessu saman með sleif eða nota hrærivél. l Setjið bökunarpappír í fer- kantað form og þrýstið blönd- unni ofan í formið og kælið í ísskáp. l Best er að geyma bitana inni í ísskáp í loftþéttu boxi. l Kókossmjör fæst í helstu heilsuvöruverslunum – einn- ig er hægt að búa til sitt eigið kókossmjör með því að setja kókosmjöl í matvinnsluvél og hræra þangað til kókos- mjölið breytist í smjör. Stundum getur þurft að bæta smá kókos olíu út í kókos mjölið. kynningarblað HeiLSA oG FeGurð 25. febrúar 2016 13

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.