Fréttablaðið - 25.02.2016, Síða 45
„Vörurnar frá TARAMAR koma
á markað á hárréttum tíma en
fjöldi neytenda sem leitar að
vörum sem innihalda ekki skað-
leg efni hefur aukist hratt und-
anfarin ár,“ segir Elín Þ. Þor-
steinsdóttir, markaðsstjóri
TARAMAR. „Þekking á lífvirkni
hefur einnig aukist og TARAM-
AR gefur neytendum nú kost á að
njóta sýnilegs árangurs lífvirkra
efna í formúlum sem innihalda
engin skaðleg eða ertandi efni.
TARAMAR húðvörulínan sem
kallast „Emerging Beauty“ eða
„Rísandi fegurð“ samanstend-
ur af þremur vörum: Day Treat-
ment, The Serum og Purifying
Treatment en von er á fjórðu
vörunni á markað; Night Treat-
ment innan tveggja vikna. Allar
fjórar vörurnar eiga það sam-
merkt að vera afburða hreinar,
lífvirkar, með lífrænt vottuðum
innihaldsefnum og án nokkurra
innihaldsefna sem geta verið
skaðleg fyrir líkamann,“ upp-
lýsir Elín.
„Við höfum lært gríðarlega
mikið á þessum stutta tíma
sem við höfum verið á markaði.
Meðal annars það að TARAMAR
vörurnar virka mjög vel á þá
sem hafa viðkvæma húð. Við
erum búin að heyra frá stórum
hópi notenda sem hefur upplif-
að nýja tilveru varðandi líðan í
húðinni en við höfðum ekki gert
okkur grein fyrir hversu stór
hluti fólks er í þeirri stöðu að
geta ekki notað neinar húðvörur
og á það jafnt við um konur og
karla,“ segir Elín og tekur fram
að það sé afskaplega gefandi að
fá svona jákvæð viðbrögð.
Vörurnar eru alíslenskar og
þróaðar og framleiddar hér á
landi. Þær byggja á andoxandi
eiginleikum þörunga, íslenskum
lækningajurtum, peptíðum og
ensímum sem draga úr sýnileg-
um áhrifum öldrunar. Vörurnar
eru afrakstur níu ára rannsókna
dr. Guðrúnar Marteinsdóttur,
prófessors og kollega hennar
hérlendis og erlendis.
Útsölustaðir TARAMAR eru í Hag-
kaupum Kringlunni og Smáralind,
Lyf og heilsu, Lyfju, Heilsuhúsinu,
Gló í Fákafeni, Fríhöfninni í Leifs-
stöð og í flugvélum WOW air.
TARAMAR húðvörur draga úr
sýnilegum áhrifum öldrunar
TARAMAR húðvörurnar eru alíslenskar og ryðja sér nú til rúms á íslenskum snyrtivörumarkaði. Þær komu á markað hér á landi fyrir
aðeins fimm mánuðum og hafa fengið ákaflega góðar viðtökur. Mikill áhugi er fyrir þessum vörum en þær eru afburða hreinar og lífvirkar.
Við höfum lært
gríðarlega mikið á þess-
um stutta tíma sem við
höfum verið á markaði.
meðal annars það að
TARAMAR vörurnar
virka mjög vel á þá sem
hafa viðkvæma húð. Við
erum búin að heyra frá
stórum hópi notenda
sem hefur upplifað nýja
tilveru varðandi líðan í
húðinni.
Elín Þ. Þorsteinsdóttir.
The Purifying Treatment
er einstaklega nærandi og mjúk blanda úr
hágæða kaldpressuðum olíum úr þörungum.
Blandan er andoxandi og hefur tvenns konar
virkni. Annars vegar hreinsar hún húðina og
hins vegar þéttir hún hana. Blandan hentar
öllum húðtegundum, sér í lagi viðkvæmri húð.
Varan hentar vel til að hreinsa augnfarða.
Day Treatment
er andoxandi lífvirkt dagkrem sem endurvekur
húðina og gefur henni heilbrigðari blæ. Kremið
hefur létta áferð og gengur fljótt inn í húðina
og hentar mjög vel undir farða. Virku efnin
stuðla að betri efnaskiptum, draga úr bólgum
og styrkja og jafna húðina. Kremið hentar
öllum húðtegundum.
The Serum
er ákaflega lífvirkt serum sem byggir á andox-
andi eiginleikum þörunga og peptíðum sem
styrkja collagen-þræði húðarinnar. Serumið
dregur úr fínum línum og hrukkum og gerir
áferð húðarinnar sléttari og rakameiri. Serumið
myndar filmu sem hleypir súrefni í gegnum sig
um leið og það tryggir viðvarandi virkni.
The Night Treament
sem kemur á markað eftir tvær vikur fullkomnar
TARAMAR húðvörulínuna. Það er hannað með
það að markmiði að endurbyggja, slétta og
styrkja húðina. Kremið inniheldur peptíð og lífvirk
efni úr þörungum sem draga úr línum og hrukkum
og veita vörn gegn oxun og öldrun húðar. Peptíðin
eru tvö og efla collagen búskap húðarinnar.
Taramar-húðvörurnar eru alíslenskar. Þær komu á markað fyrir fimm mánuðum og hafa fengið ákaflega góðar viðtökur.
Kynningarblað HeiLSA OG FeGuRð
25. febrúar 2016 15