Fréttablaðið - 25.02.2016, Blaðsíða 46
Að sögn Ólu Kallýjar Magnúsdótt-
ur næringarfræðings er svarið við
spurningunni „Hvað er gott mat-
aræði?“ einfalt. „Það er fjölbreytt
mataræði. Það er að minnsta kost-
ið stutta svarið við spurningunni.
Við þurfum að borða mat úr öllum
fæðuflokkum til að uppfylla nær-
ingarþörfina. Fæðan þarf að koma
úr öllum flokkum en mismikið þó
úr hverjum. Það má vera mikið
úr jurtaríkinu, grænmeti, ávext-
ir, baunir og fleira, en við þurfum
líka kjöt, mjólk og allt hitt. Það þarf
að vera fjölbreytni.“
Meira grænmeti og fiskur
Ef fólk velur að vera á ákveðnum
kúrum eða að taka ákveðna fæðu-
flokka út úr mataræðinu segir Óla
Kallý að það þurfi þá að vera með-
vitaðra um það sem það lætur ofan
í sig. „Í slíkum kúrum þarf að gera
ráð fyrir að mögulega gæti við-
komandi misst einhver næringar-
efni út og þarf hann þá að bæta sér
það upp á einhvern annan hátt,“
segir hún og bætir við að það sé
einstaklingsbundið hvað fólk ætti
að borða en að almennt ættu Ís-
lendingar að auka grænmetis,
ávaxta- og fiskneyslu.
Þegar fólk langar til að gera
breytingu á mataræði sínu, hvort
sem ástæðan er til að létta sig eða
einhver önnur, er mikilvægt að
horfa á stóru myndina. „Fólk ætti
ekki að vera of ýkt í breytingum og
ekki festa sig í smáatriðum. Fyrir
venjulegt fólk sem þarf kannski
að léttast er best að byrja á stóru
hlutunum og gera breytingarnar
hægt og rólega. Þegar farið er af
stað með trukki þá endist það síður.
Þegar margt er bannað langar fólk
yfirleitt meira í það en nokkurn
tíma áður og svo þegar það er veikt
fyrir, slappt eða þreytt og freistast
til að fá sér eitthvað á bannlistan-
um þá er allt ónýtt að þess mati og
fólk leyfir sér að gúffa í sig að vild.
Með því að gera þetta hægt og ró-
lega áttar fólk sig á að það er ekki
allt ónýtt og enginn heimsendir þó
það fái sér einn súkkulaðimola,“
lýsir Óla Kallý.
Fyrir þá sem eru komnir með
aðal atriðin á hreint er í lagi að fara
í smáatriðin og fínpússa mataræð-
ið. Til dæmis ættu þeir sem vilja
hætta að borða hvítan sykur fyrst
að huga að því hvar sykurinn er
að mestu leyti að koma inn. „Sam-
kvæmt Landskönnun koma 77 pró-
sent af þeim sykri sem fólk borð-
ar úr sælgæti, kexi, kökum, gosi
og ís. Það er því sniðugt að byrja á
að taka fyrst út þessi stóru atriði.
Þegar þau eru komin á hreint getur
fólk farið að fínpússa mataræðið og
farið að spá í sykurinn í tómatsós-
unni og þess háttar.“
Engar skyndilausnir til
Ofurfæða hefur undanfarið verið í
umræðunni og segir Óla Kallý þær
fæðutegundir sem falla undir þann
flokk vera yfirleitt mjög næring-
arríkar og gott ef fólk borðar þær.
„Það er skemmtilegt þegar koma
nýjar og hollar og næringarríkar
vörur en það er engin ein fæðuteg-
und sem uppfyllir þörfina fyrir öll
næringarefni. Mataræðið þarf allt-
af að vera fjölbreytt.“
Á léttu nótunum segir hún nær-
ingarfræðinga alltaf gefa sama leið-
inlega svarið þegar kemur að heil-
brigðum lífsstíl og réttu mataræði.
„Það eru engar skyndilausnir. Það
er ekki til neitt sem getur kallast
lausnin með stórum stöfum.“
Skipulagning kemst upp í vana
Hún segir nokkur ráð duga fyrir
hinn almenna Íslending sem lang-
ar til að vera heilbrigður. „Það er
fyrst og fremst að huga að fjöl-
breytninni, að borða trefjaríka
fæðu; ávexti, grænmeti, heil-
korn og reyna að koma reglu og
skipulagi á matartíma. Skipulag
er mikilvægt svo ekki sé hlaupið
eftir einhverjum skyndihugdett-
um þegar fólk verður svangt og
fer í næstu sjoppu. Það er gott að
plana mataræðið með dags fyrir-
vara. Skipulagningin er oft erfið í
byrjun en hún kemst upp í vana.
Það þarf líka að hugsa um hver
tilgangurinn með breytingunni á
mataræðinu er, á að komast í kjól-
inn fyrir jólin eða á breytingin að
vera til langframa. Þegar verið er
að hugsa um heilsuna og ætlun-
in er að breyta um líferni verður
þetta að vera eitthvað sem fólk er
til í að gera. Það er til dæmis erf-
itt að segja þeim sem finnst græn-
meti ekki gott að borða það samt.
Þó allt sé ekki gert hundrað pró-
sent er hvert skref sem tekið er í
rétta átt til hins góða.“
Fjölbreytt fæðuval er mikilvægast
Hvert skref sem tekið er í átt að bættu mataræði er til góðs, segir næringarfræðingurinn Óla Kallý Magnúsdóttir. Þegar ætlunin er að
breyta mataræðinu ætti að horfa á stóru myndina en ekki rýna í smáatriðin. Mikilvægt er að skipuleggja mataræðið fram í tímann.
Við þurfum að borða mat úr öllum fæðu-
flokkum til að uppfylla næringarþörfina.
Fæðan þarf að koma úr öllum flokkum en mismikið
þó úr hverjum. Það má vera mikið úr jurtaríkinu,
grænmeti, ávexti, baunir og fleira, en við þurfum líka
kjöt, mjólk og allt hitt. Það þarf að vera fjölbreytni.
Óla Kallý Magnúsdóttir
Óla Kallý segir engar skyndilausnir duga þegar bæta á mataræði og lífsstíl. „Það er
ekki til neitt sem getur kallast lausnin með stórum stöfum.“ MYND/PJETUR
„Við erum allt-
af að leita leiða
til að koma til
móts við þarfir
neytenda eins
vel og mögulegt
er,“ segir Signý
Skúladóttir,
markaðsstjóri
Hei lsu, sem
stendur að baki
framleiðslunni.
„Vítamín og
steinefni eru
lífsnauðsynleg
en margir gæta
þess ekki nógu vel að fá þau í rétt-
um hlutföllum úr matnum. Þau
eru okkur mjög mikilvæg og þá
sér í lagi til að viðhalda almennu
heilbrigði en að sjálfsögðu skipt-
ir líka máli að gæta að hollu mat-
aræði, hreyfingu og jákvæðu við-
horfi til lífsins,“ bætir hún við.
Að sögn Signýjar er Q10, hár-
kúr og íslensku þaratöflurnar
hin fullkomna fegurðarþrenna.
„Margir þekkja vel til Q10 en
Q10 er kóensím sem hefur þá ein-
stöku eiginleika að vera oxunar-
vari. Við vitum hvaða áhrif súr-
efni hefur á epli sem búið er að
skera. Það oxast, verður brúnt
og skorpið. Af þeim sökum er
Q10 svo vinsælt í baráttunni við
ótímabæra öldrun. Það viðheldur
liðleika frumuhimnunnar, gefur
orku og heldur okkur ungum í lík-
ama og sál. Q10 frá Gula miðan-
um inniheldur að auki sólblóma-
olíu sem tryggir hámarksupptöku
á efninu,“ upplýsir Signý.
Þá segir hún marga kann-
ast við „bad hairday“ en flesta
dreymir um heilbrigt og líf-
legt hár. Ef hárið er í lagi er það
merki um að svo margt annað sé
í lagi. Hárkúrinn frá Gula mið-
anum er í hylkjum sem innihalda
steinefni sem eru nauðsynleg
fyrir heilbrigt hár. Að auki inni-
heldur Hárkúr amínósýrur, lesi-
tín og kólín fyrir hárvöxtinn. Þá
mælum við með því að fólk taki
íslensku þaratöflurnar með og þá
sérstaklega ef það þarf að örva
hárvöxtinn mikið.
Íslensku þaratöflurnar virka
mjög vel fyrir húð, hár og negl-
ur en þær auka joðinntöku og
innihalda mikið af góðum stein-
efnum og vítamínum. Að auki
virka þaratöflurnar einstaklega
hreinsandi og hjálpa líkamanum
að losna við óæskileg eiturefni.
Guli miðinn fæst í apótekum,
heilsuvörubúðum og öllum helstu
matvöruverslunum.
Hin fullkomna fegurðarþrenna
Fjörutíu tegundir vítamína og fæðubótarefna tilheyra Gula miðanum, en vörulínan er öll þróuð með íslenskar aðstæður í
huga. Þróun línunnar hófst hér á landi fyrir 25 árum og hefur haldið áfram allar götur síðan með allnokkrum viðbótum.
Hárkúr
Hárkúr í Gula miðanum er fjöl
vítamínblanda sem er sérstak
lega samsett fyrir hárið.
Vöulínan hefur verið þróuð fyrir íslenskar aðstæður í 25 ár.
Þaratöflur
Þaratöflur í gula miðanum eru
unnar úr íslenskum þara sem er
tekinn úr hreinum sjó á Vestfjörð
um.
Q-10
Q10 ubiquinol í Gula miðanum er
virkara form af Q10. Það er allt að
40 prósentum virkara en venju
legt Q10.
Signý Skúladóttir,
markaðsstjóri
Heilsu
Vítamín og steinefni
eru lífsnauðsynleg en
margir gæta þess ekki
nógu vel að fá þau í
réttum hlutföllum úr
matnum. Þau eru okkur
mikilvæg og þá sér í lagi
til að viðhalda almennu
heilbrigði en að sjálf-
sögðu skiptir líka máli að
gæta að hollu mataræði
og lífsstíl.
Signý Skúladóttir,
HEilSa oG FEGURð Kynningarblað
25. febrúar 201616