Fréttablaðið - 25.02.2016, Side 74
Ég á afmæli sama
dag og við erum að
spila þannig að þetta
verður án efa stærsta
afmælispartíið mitt
hingað til.
C80 M0 Y63 K75
C0 M30 Y100 K0
R34 G70 B53
R234 G185 B12
#224635
#eab90c
PANTONE 560C
PANTONE 130C
www.obi.is
ÖBÍ veitir sérstaka styrki til ýmissa hagnýtra verkefna sem
tengjast hagsmunum fatlaðs fólks og öryrkja í samræmi við
málefni, markmið og/eða stefnu ÖBÍ.
ÖBÍ auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki.
Umsóknarfrestur er til 15. mars næstkomandi.
Upplýsingar um styrkúthlutun liggur fyrir
eigi síðar en 1.maí.
Sótt er um styrk á vef bandalagsins obi.is
Með umsókn skal fylgja fjárhags- og verkefnaáætlun
með tímasetningum.
Nánari upplýsingar veitir starfsfólk á skrifstofu ÖBÍ,
netfang: mottaka@obi.is eða í síma 530 6700.
Sérstakir styrkir
ÖBÍ 2016
Hljómsveitirnar Agent Fresco, Úlfur
Úlfur og rapparinn Emmsjé Gauti
koma fram á Þjóðhátíð 2016 en þetta
eru fyrstu listamennirnir sem kynntir
eru til leiks á þessa Þjóðhátíð sem er
númer 142.
Þetta er í annað sinn sem hljóm-
sveitin Úlfur Úlfur kemur fram
en dúettinn kom fram þar
árið 2012. „Mér líst alveg
heví vel á þetta. Ég hef
reyndar bara einu
sinni áður farið til
Eyja og hef því ekk-
ert ótrúlega mikla
reynslu en mér
finnst þetta geggj-
að,“ segir Arnar
Freyr Frostason
en hann myndar
Úlf Úlf ásamt
Helga Sæmundi
Guðmundssyni.
Arnar Freyr segir
að þeir félagar komi
til með að flytja sína
helstu slagara í bland
við glænýtt efni. „Við
erum að vinna að nýju efni
þessi dagana og höfum eigin-
lega verið að semja síðan síðasta
plata kom út. Við eigum örugglega
eftir að spila lög sem eru ekki einu
sinni orðin hugmynd núna, það er
svo langt í þetta,“ bætir Arnar Freyr
við léttur í lundu.
Rapparinn Gauti Þeyr Másson,
betur þekktur sem Emmsjé Gauti, er
einnig að koma fram í annað sinn á
Þjóðhátíð. „Mér fannst mjög gaman
þarna síðast. Mér fannst reyndar
hræðilegt að þurfa fara í Herjólf,“
segir Gauti en samgöngutæki eru ekki
í miklu uppáhaldi hjá honum. „Ég er
hræddastur við flugvélar, síðan við
báta því ef þú ert ekki hræddur
við sjóinn þá ertu ekki
með gott
ímyndunarafl og svo eru það bílar,
því þetta er allt eitthvað sem kless-
ist á og sekkur og maður hefur enga
stjórn á þessu,“ bætir Gauti við. Hann
er þó fullur tilhlökkunar. „Ég er mjög
spenntur að fara aftur, þetta verður
geggjað.“
Arnór Dan Arnarson, söngvari
Agent Fresco, hlakkar sérlega mikið
til, þar sem hann á afmæli á sama
tíma. „Ég á afmæli sama dag og við
erum að spila þannig að þetta verður
án efa stærsta afmælispartíið mitt
hingað til,“ segir Arnór Dan og hlær.
Agent Fresco hefur einu sinni áður
spilað á Þjóðhátíð og var það árið
2011. „Þar er einhver stemming sem
er hvergi annars staðar. Þetta
verður gott,“ segir Þórarinn
Guðnason, gítarleikari Agent
Fresco.
Að undanförnu hafa þeir
Agent Fresco-piltar Þórarinn,
Hrafnkell Örn Guðjónsson trommu-
leikari og Vignir Rafn Hilmarsson
bassaleikari leikið með bæði Úlfi Úlfi
og Gauta á tónleikum. En koma þeir
til með að spila með röppurunum í
Eyjum? „Það er bara aldrei að vita,“
segir Þórarinn.
Tilkynnt var á dögunum að Frið-
rik Dór og Sverrir Bergmann komi til
með að syngja Þjóðhátíðarlagið í ár
en Fjallabróðirinn Halldór Gunnar
Pálsson semur lagið.
Fleiri listamenn og hljómsveitir
verða tilkynntar á næstunni en for-
sala miða á Þjóðhátíð hefst í dag á
dalurinn.is. gunnarleo@frettabladid.is
agent fresco, emmsjé
gauti og Úlfur Úlfur
á þjóðhátíð 2016
Fyrstu listamennirnir hafa verið tilkynntir á hátíðina. Þeir hlakka
mikið til en Gauti kvíðir þó fyrir að fara í Herjólf.
Agent Fresco, Emmsjé Gauti og Úlfur Úlfur ætla að trylla lýðinn á Þjóðhátíð í Vestamannaeyjum. Mikil tilhlökkun er í lista-
mönnunum. FréttAblAðið/Ernir
Fyrir fjóra til sex
800 g nautahakk
5 stórar tortillur
1 meðalstór rauðlaukur, smátt
saxaður
1 rauð paprika, smátt söxuð
1 gul paprika, smátt söxuð
8 – 10 sveppir, smátt saxaðir
1/4 rautt chili, fræhreinsað og smátt
saxað
2 – 3 msk. kóríander, smátt saxað
Mexíkósk kryddblanda, taco sea-
soning mix í pakka
1 dós gular baunir
1 dós niðursoðnir tómatar
350 g salsasósa
4 msk. hreinn rjómaostur
Rifinn ostur
Nachosflögur, saltaðar
Salt og pipar
Aðferð: Skolið grænmetið og
skerið það smátt niður. Hitið
olíu í potti við vægan hita, setjið
grænmetið í pottinn og steikið þar
til mjúkt. Brúnið nautahakkið á
pönnu og bætið kryddblöndunni
saman við samkvæmt leið-
beiningum á pakkanum. Blandið
því næst hakkblöndunni saman
við grænmetið í pottinum. Bætið
gulu baununum, niðursoðnum
tómötum, salsasósunni, og rjóma-
ostinum saman við. Hrærið vel í.
Kryddið til með salti og pipar. Að
lokum saxið þið ferskan kóríander
smátt niður og bætið við, leyfið
þessu að malla við vægan hita
í nokkrar mínútur. Munið að
smakka ykkur til með salti og
pipar.
Leggið tortillaköku í botninn á
eldföstu móti, setjið hakkblöndu
þar ofan á og dreifið rifnum osti
yfir hakkblönduna. Leggið síðan
aðra tortilluköku ofan á og endur-
takið þar til hakkblandan er komin
yfir fimmtu tortillukökuna. Dreifið
vel af rifnum osti yfir og saxið
ferskt kóríander, um það bil msk.
og sáldrið yfir réttinn.
Stingið nokkrum nachosflögum
í réttinn. Setjið réttinn inn í ofn og
bakið við 180°C í 25 – 30 mínútur.
Gott er að bera lasagnað fram
með fersku salati, sýrðum rjóma og
gvakamóle.
Uppskrift fengin af Evalaufeykjaran.com
mexíkóskt lasagna
Arór Dan Arnarson,
söngvari Agent
Fresco
2 5 . f e b r ú a r 2 0 1 6 f I M M T U D a G U r42 L í f I ð ∙ f r É T T a b L a ð I ð
Lífið