Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 5 3 . T Ö L U B L A Ð 1 8 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
SKOÐUN Þórlindur Kjartansson
fjallar um almenning á þingi. 9
SPORT Nýliðar KR eru komnir
með háleitari markmið eftir
góða byrjun í deildinni. 12
TÍMAMÓT Gamanóperan Þryms-
kviða sýnd í Hörpu í kvöld. 14
PLÚS 2 SÉRBLÖÐ ● FÓLK
● VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
Vörubílar & vinnuvélar
FÖ ST U DAG U R 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8
Kynningar: Sleggjan, Askja, Veltir, Kraftur
FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Nýtt naf
KYNNINGARBLAÐ
A F S L ÁT T U R
25-70%
EKKI MISSA AF ÞESSU
R ÝM I N G A R S A L A
FAXAFENI 5
Reykjavík s: 588 8477
RÝMUM FYRIR
NÝJUM VÖRUM
Seljum í stuttan tíma eldri
gerðir af rúmum og öðrum
vörum með veglegum afslætti
í verslun okkar í Faxafeni.
ORKUVEITAN Á reglubundnum fundi
stjórnenda innan Orkuveitu Reykja-
víkur (OR) í gær var tekið undir
gagnrýni á skipuleggjendur Kvenna-
frídagsins vegna ræðu Áslaugar
Thelmu Einarsdóttur á Arnarhóli
við tilefnið. Á fundinum kom sam-
kvæmt heimildum fram afdráttar-
laus stuðningur við starfsmanna-
stjóra fyrirtækisins, sem sætti harðri
gagnrýni í ræðunni umtöluðu. Líkt
og fram hef ur komið var Áslaugu
sagt upp störf um hjá Orku nátt úr-
unn ar (ON), dótt ur fyr ir tæki OR,
í sept em ber, en hún gagnrýndi
fyrr ver andi fram kvæmda-
stjóra ON, Bjarna Má Júlí us-
son, fyr ir óviðeig andi hegð-
un gagn vart starfs fólki.
Áslaug segir jafnframt að
starfsmannastjórinn hafi
vitað af málinu en ekkert
aðhafst.
Meðal þeirra sem
tóku undir gagn-
rýnina á ræðu
Áslaugar var
H e l g a Jó n s -
dóttir, starf-
andi forstjóri
OR. Skipu-
l e g g j e n d u r
Kv e n n a f r í -
dagsins hafa
sætt gagnrýni
fyrir að hafa veitt Áslaugu vettvang
til að ráðast í ræðu á aðra konu, Sól-
rúnu Kristjánsdóttur, starfsmanna-
stjóra OR. Hafa skipuleggjendur
verið krafðir um afsökunarbeiðni
en þeir segjast standa við ákvörð-
unina um að leyfa Áslaugu að flytja
erindi á kvennafrídaginn.
Á fundi stjórnenda OR í gær bar
málefni starfsmannastjóra OR og
ádeilu á ræðu Áslaugar Thelmu
á góma en meðal viðstaddra var
starfsmannastjórinn sjálfur.
E i n hv e r j u m f u n d a r -
manna kom á óvart hversu
afdráttarlaus stuðningur
við gagnrýnina á ræðuna
og við starfsmanna-
stjórann var á fund-
inum. Í ljósi þess að
nú stendur yfir úttekt
á vinnustaðarmenn-
ingu og málefnum til-
tekinna starfsmanna
OR og dótturfélaga litu
sumir svo á að starf-
andi forstjóri hefði
sérstaklega átt að
gæta hlutleysis.
„Ég hef ekki
annað um það að
segja heldur en að
ég tel mikilvægt að ég tjái mig ekki
um þau mál fyrr en úttekt liggur
fyrir. En ég legg áherslu á að ég er
forstjóri í fyrirtækinu, ég er ekki
að vinna þessa úttekt. Það sem ég
var að segja var að ég var afskap-
lega stolt, þegar ég stóð á Arnar-
hóli sem fulltrúi fyrirtækis sem
hefur tekist það sem nú er búið að
stefna að frá 1975, að útrýma kyn-
bundnum launamun, það hefur
tekist hjá Orkuveitunni, og að mér
fyndist að fólk sem þar hefur staðið
í stafni ætti að fá þakkir fyrir,“ segir
Helga og vísar til þess að sem starfs-
mannastjóri hafi Sólrún gegnt lykil-
hlutverki í átaki gegn kynbundnum
launamun innan OR. Hörð gagn-
rýni á hana í ræðunni hafi því verið
ómakleg.
Sólrún vildi ekki svara ræðu
Áslaugar í samtali við blaðið. – smj
Stjórnendur Orkuveitu
deildu á ræðu Áslaugar
Stuðningur við starfsmannastjóra OR á fundi stjórnenda í gær. Tekið undir gagn-
rýni á ræðu Áslaugar Thelmu á kvennafrídaginn. Starfandi forstjóri telur sig ekki
þurfa að gæta sérstaks hlutleysis í ljósi yfirstandandi úttektar innan fyrirtækisins.
Áslaug Thelma
Einarsdóttir.
En ég legg áherslu á
að ég er forstjóri í
fyrirtækinu, ég er ekki að
vinna þessa
úttekt.
Helga Jóns-
dóttir, starfandi
forstjóri OR
LÖGREGLUMÁL 23 konur hafa nú
leitað til lögfræðings vegna með-
höndlarans svokallaða sem Frétta-
blaðið greindi frá í síðustu viku.
Konurnar telja sig allar hafa orðið
fyrir kynferðislegu broti af hálfu
mannsins. Maðurinn meðhöndlar
fólk með stoðkerfisvanda. Konurnar
segja manninn hafa meðhöndlað sig
í gegnum leggöng og endaþarm.
Lögmaður mannsins, Steinbergur
Finnbogason, segir málið múgsefj-
un. Lögmaður kvennanna, Sigrún
Jóhannsdóttir, tekur ekki undir þau
orð. „Ég fæ nýja konu til mín nánast
daglega. Konurnar koma úr öllum
áttum og nokkuð ljóst að hér er ekki
um neina múgsefjun að ræða.“ – gj
23 konur leitað
til lögfræðings
Þessir ungu Hondúrar héngu aftan á trukki í Mapastepec í Mexíkó í gær. Þeir tilheyra svokallaðri flóttamannalest sem fer nú norður í átt að Bandaríkjunum, að mestu fótgangandi. Í lestinni eru
þúsundir Mið-Ameríkumanna. Í gær sagði James Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að hann hygðist senda 800 hermenn að landamærunum til þess að stöðva lestina. NORDICPHOTOS/AFP
LÍFIÐ Glamour tekur stöðuna á vetr-
artískunni og mælir með prjóna-
peysum og gallabuxum nú í vetur,
þegar kuldinn verður sem mest-
ur. „Það er þægilegt að grípa í þessar
flíkur þegar maður hefur ekki hug-
my n d u m í
hverju maður
á að vera, og
sérstaklega í
þykka peysu
á köldustu
dögunum,"
segir tísku-
r i t s t j ó r i
Glamour.
Sjá síðu
20
Prjónapeysur
eru málið í vetur