Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 17
Hér koma þrjár uppskriftir úr ólíkum fisktegundum sem eiga það sameiginlegt að vera frekar einfaldar og innihalda hóflega mikið af hráefni. Boðið er upp á fylltan smokkfisk með tún- fiski og capers, heimagerða laxa- borgara með fetaosti, spínati og lárperusósu og að lokum ótrúlega einfaldan rétt úr þorskhnökkum, borinn fram með sítrónusmjör- sósu. Fylltur smokkfiskur með túnfiski og capers Fyrir 4-6 12 smokkfiskar (fást frosnir víða) 2 dósir túnfiskur í olíu 2 góðar msk. capers 4 msk. majónes 2 msk. parmesanostur 2 msk. ólífuolía 2 hvítlauksgeirar, pressaðir 3-4 vorlaukar, smátt saxaðir Sósan: ½ bolli hvítvín 2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir 2 msk. smjör 1 msk. sítrónusafi 1 msk. capers Fersk steinselja Salt og pipar Marinering: Olía Sítrónusafi Salt og pipar Skolið og hreinsið smokkfiskinn og þerrið vel. Látið marinerast í skál í 30 mín. með smá sítrónusafa, ólífu- olíu og salti og pipar. Hitið ofn í 220 gráður. Blandið Ljúffengir fiskréttir í helgarfríinu Af einhverjum ástæðum eru margir Íslendingar lítt hrifnir af því að borða fisk um helgar heldur kjósa ýmislegt kjötmeti til að gera vel við sig og sína. Fiskur er hins vegar frábært hráefni sem hægt er að elda á ótal vegu þannig að úr verði sannkölluð veislumáltíð á afar hóflegu verði. Laxaborgari með fetaosti og spínati rennur ljúft niður. Vel kryddaðir þorskhnakkar með sítrónusmjörsósu Fyrir 4 700 gr þorskhnakkar 5 hvítlauksrif, pressuð ¼ bolli steinselja, söxuð ⅓ bolli hveiti 1 tsk. kóríander duft ¾ tsk. chili duft ¾ tsk. cummin ¾ tsk. salt ½ tsk svartur pipar Sósan: 5 msk sítrónusafi 5 msk. extra virgin ólífuolía 2 msk. brætt smjör Hitið ofninn í 200 gráður. Blandið saman í skál sítrónusafa, olíu og bræddu smjöri. Setjið í aðra skál hveitið, kryddin, salt og pipar. Þerrið fiskbitana og dýfið fyrst í sítrónusmjörið og svo í hveiti- blönduna. Hristið aukahveitið af. Setjið 2 msk. af olíu á pönnu á miðlungshita og steikið í 1-2 mín. á hvorri hlið. Fiskurinn á ekki að fulleldast á þessu stigi. Setjið fisk- bitana í lítið eldfast mót. Bætið kramda hvítlauknum við afganginn af sítrónusmjörinu, hrærið vel og hellið yfir fiskbitana. Bakið í ofninum í um tíu mínútur eða þar til fiskurinn er tilbúinn. Stráið saxaðri steinselju yfir áður en borið er fram. Berið fram með t.d. grjónum og góðu grísku salati. Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is Fylltur smokk- fiskurinn lítur girnilega út. Sítrónan og hvítlaukurinn leika stórt hlut- verk í þessum einfalda rétti. Hitið olíu á pönnu og steikið smokkfiskinn þar til hann fær fal- legan lit. Þegar allur smokkfiskurinn er steiktur er honum raðað í ofnfast mót (ekki of stórt). Bætið við á pönnuna hvítvíninu, hvítlauknum, capers, sítrónusafanum og smjörinu. Smakkið til með salti og pipar. Þegar sósan er til er henni hellt í fatið. Þekjið með álpappír og bakið í ofni í um 20 mín. Berið fram með sítrónu- bátum, steinselju og góðu salati. Laxaborgari með fetaosti og spínati og lárperusósu 6 stk. laxaborgarar ½ kg laxaflak 1 bolli saxað spínat 1 bolli mulinn fetaostur 1 ½ msk. sítrónusafi Svartur pipar 3 hamborgarabrauð eða annað gott brauð. Sósan: ½ lárpera 4 msk. sýrður rjómi 4 tsk. sítrónusafi 1 hvítlauksgeiri, pressaður Beinhreinsið, roðflettið og snyrtið flakið. Skerið fiskinn í um 2 cm teninga. Setjið laxinn og spínatið í matvinnsluvél og hakkið vel saman, þó ekki of mikið. Setjið farsið í skál og bætið út í fetaostinum, sítrónu- safanum og ágætlega af pipar. Blandið vel saman og skiptið svo í sex hluta og búið til laxaborgara úr hverjum. Steikið þá á pönnu eða grilli í um 3 mín. á hvorri hlið eða þar til steiktir í gegn. Á meðan þeir steikjast er lárperan stöppuð í skál. Bætið út í sýrða rjómanum, sítrónusafanum og hvítlauknum. Ristið eða hitið brauðið. Smyrjið sósunni á hvora hlið og setjið laxaborgarann á milli. Tilvalið er að setja einnig gott salat á milli, grillaðan ferskan aspas eða tómat- sneiðar. Nýsteiktar franskar kart- öflur passa líka ljómandi vel með. saman túnfisknum, majónesinu og olíunni. Bætið út í hvítlauknum, svörtum pipar, vorlauknum, capers og parmesanostinum. Hrærið vandlega þar til líkist farsi og engir stórir túnfiskbitar sjást. Fyllið hvern smokkfisk upp að ⅔ og lokið með tannstönglum. Frábær hóptilboð Sjáðu öll tilboðin okkar á www.kinahofid.is Opið alla daga vikunnar frá kl. 11:00 - 22:00 Kínahofið veitingahús l Nýbýlavegi 20 l 200 Kópavogi www.kinahofid.is l Sími 554 5022 TILBOÐ 4 réttir + súpa dagsins aðeins 1.790 kr.* NAUTAKJÖT Í OSTRUSÓSU KJÚKLINGUR Í KARRÝSÓSU DJÚPSTEIKTAR RÆKJUR MEÐ SÚR/SÆTRI SÓSU NÚÐLUR MEÐ GRÆNMETI *tekið með heim – 2.100 kr. ef borðað er á staðnum. 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.