Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 21
Rétt eftir alda-
mótin 1900 voru
konur sjaldséðir
ökumenn á
vegum úti. Það
vakti því athygli
þegar Alice H.
Ramsey hús-
móðir ók þvert
yfir Bandaríkin
fyrst kvenna.
Þann 9. júní 1909 lagði hin 22 ára gamla Alice Huyler Ramsey af stað í ökuferð
ásamt mágkonum sínum tveimur
og vinkonu. Ferðin átti eftir að
standa yfir í 59 daga og þvera
Norður-Ameríku frá austri til
vesturs, rétt um 5.767 kílómetra.
Ferðin hófst við Hell Gate á Man-
hattan og endaði í San Francisco.
Þar með varð Alice fyrsta konan
í sögunni til þess að aka bíl þvert
yfir Bandaríkin.
Ástæða ferðalagsins var auglýs-
ingabragð fyrir bílaframleiðand-
ann Maxwell-Briscoe. Eiginmaður
Alice hafði nefnilega gefið henni
bíl, Maxwell Runabout, og í fram-
haldinu tók Alice þátt í Montauk
Point kappakstrinum árið 1908,
önnur tveggja kvenna. Alice reynd-
ist hinn prýðilegasti ökumaður og
vann bronsverðlaun í keppninni.
Tveir aðrir ökumenn kepptu á
Maxwell bílum og var Carl Kelsey
annar þeirra. Kelsey þessi annaðist
kynningarmál Maxwell og fóru
aksturshæfileikar Alice ekki fram
hjá honum. Hann stakk því upp á
því að Alice æki þvert yfir Banda-
ríkin á bílnum sínum, í auglýsinga-
skyni, og myndi Maxwell styrkja
ferðina.
Uppátækið myndi vekja athygli
þar sem óvenjulegt var að sjá konu
undir stýri á þessum tíma. Svo
óvenjulegt reyndar að New York
Times sá ástæðu til þess í upphafi
ferðar að fordæma Alice og ferða-
félaga hennar fyrir að „ætla sér að
framkvæma karlmannsverk“.
Alice leit á ferðina sem áskorun
og skemmtilegt ævintýri. Eins og
vera ber var leiðangrinum fylgt
eftir af bíl til aðstoðar. Þar sátu
karlmenn undir stýri en sérstak-
lega var tekið til þess að Alice leysti
úr öllum vandamálum sem upp
komu sjálf og gaf stýrið aldrei eftir
þó hún kæmist í hann krappan.
Ferðin reyndist hið ævintýraleg-
asta ferðalag. Aðeins voru 244 kíló-
metrar af þeim 5.767 kílómetrum
sem Alice og ferðafélagar hennar
fóru yfir lagðir bundnu slitlagi. Á
leiðinni þurfti Alice því að skipta
11 sinnum um dekk. Þá þurfti hún
að hreinsa kertin, gera við brotinn
bremsupedala og sofa í bílnum
þegar hann sat fastur í drullu
leiðinni. Þá lenti hún í árekstri
við Cadillac, varð bensínlaus úti á
víðavangi og ók ofan í skurð.
Annað framhjólið brotnaði
undan bílnum í torfærum og tókst
Alice að græja bráðabirgðaviðgerð
með stálvír að vopni og aka áleiðs á
verkstæði. Þó þær hefðu meðferðis
kort frá The American Automo-
bile Association til að komast rétta
leið eltust þær að mestu leyti við
símastaura og þá staura með fleiri
en einni línu þar sem þeir leiddu
líklega til næsta bæjar.
Á leiðinni óku þær yfir svæði í
Nebraska þar sem morðingi gekk
laus og var hundeltur af lögreglu,
Alice varð útbitin af veggjalús
eftir nótt á hóteli í Wyoming og í
Nevada voru þær umkringdar af
veiðiflokki frumbyggja, vopnuðum
bogum og örvum. Á leiðarenda
komust þær þó á endanum, þrem-
ur vikum eftir áætlaðan komudag,
og í San Francisco fagnaði þeim
mannfjöldi.
Árið 1960 fékk Alice nafnbótina
Woman Motorist of the Century af
The American Automobile Associ-
ation. Árið 1961 gaf Alice út bók
um ferðalagið „Veil, Duster, and
Tire Iron“. Á tímabilinu 1960 til
1975 ók Alice yfir þrjátíu sinnum
þvert yfir Bandaríkin. Hún lést árið
1983.
Ævintýralegur leiðangur Alice
Ökuþórinn Alice H. Ramsey við bíl sinn en hún ók þvert yfir Bandaríkin árið 1909 fyrst kvenna. MYND/WIKIPEDIA.ORG
4 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
landsbankinn.is 410 4000Landsbankinn
Hagstæð
ármögnun
á bílum
og tækjum
Landsbankinn býður fyrirtækjum og ein-
staklingum hagstæða ármögnun á nýjum
og notuðum bifreiðum og atvinnutækjum.