Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 22
Mercedes-Benz frumsýndi nýlega nýjan Actros vörubíl sem býður upp á fjölmargar spennandi nýjungar. MYNDIR/DAIMLER
Nýr Actros er talsvert frábrugðinn fyrirrennara sínum. Í stað baksýnisspegla
eru nú tveir 15 tommu skjáir sem eru tengdir við myndavélar.
Nýr Actros hefur fjölmargar nýjungar og margar hverjar eru mikið stökk
fram á við. Þær auka bæði öryggi og þægindi bílstjóra á ýmsan hátt.
Mercedes-Benz Trucks frumsýndi nýja kynslóð af Actros vörubílnum í
byrjun september og fékk hann
enn frekari athygli á IAA atvinnu-
bílasýningunni í Hannover,“ segir
Eiríkur Þór Eiríksson, sölufulltrúi
Mercedes-Benz trukka á Íslandi.
„Nýr Actros er mikið breyttur frá
fyrri kynslóð og er mun tækni-
væddari en áður og með mikið
af nýjum akstursstoðkerfum,“
segir Eiríkur. „Þessi nýja kynslóð
vörubílsins eykur þægindi fyrir
bílstjóra, öryggi hans, sem og
vegfarenda, auk þess sem rekstrar-
hagkvæmni eykst mikið.
Nýr Actros er talsvert frá-
brugðinn fyrirrennara sínum hvað
útlit varðar. Í stað hefðbundinna
baksýnisspegla eru nú komnar
myndavélar sem staðalbúnaður,“
segir Eiríkur. „Myndavélarnar eru
mikil framför hvað varðar loftmót-
stöðu, öryggi og alla meðhöndlun
bílsins. Myndavélarnar auka
verulega á útsýni fyrir ökumann,
en kerfið samanstendur af tveimur
myndavélum sitt hvorum megin
á bílnum. Í innra rými bílsins eru
tveir 15 tommu skjáir sem festast á
gluggapóst hvorum megin.
Athyglisverðasta nýjungin
er Active Drive Assist aksturs-
aðstoðarkerfið sem gerir bílinn
að hluta til sjálfkeyrandi. Þetta er
í fyrsta skipti sem slíkt er í boði
í fjöldaframleiddum vörubíl,“
segir Eiríkur. „Þetta nýja aksturs-
aðstoðarkerfi sér til þess að Actros
geti hemlað, aukið hraðann og
stýrt sjálfstætt. Ólíkt kerfum sem
vinna aðeins á ákveðnum hraða
býður Active Drive Assist upp á að
hluta til sjálfvirkan akstur á öllum
hraða og notast bæði við radar og
myndavélar til að gera aksturinn
sem öruggastan.
Active Drive Assist byggir á
þrautprófuðum skriðstilli með
stopp/start aðgerðum og akreina-
vara frá Mercedes-Benz, auk
rafmagnsstýris sem kemur nú í
Actros í fyrsta sinn, en hefur verið
í boði fyrir Mercedes-Benz Arocs
í nokkur ár,“ segir Eiríkur. „Þótt
ábyrgðin á akstrinum sé áfram hjá
bílstjóranum þá hjálpar þetta nýja
og byltingarkennda kerfi við að
auka öryggi og létta vinnuálagi af
bílstjóranum.
Nýr Actros hefur að geyma
fjölmargar nýjungar frá fyrri gerð.
Alls er um 60 breytingar að ræða
og margar hverjar eru mikið stökk
fram á við,“ segir Eiríkur. „Á IAA
sýningunni árið 2014 sýndi Merc-
edes-Benz Actros framtíðarvörubíl
sem þá þótti mjög framúrstefnu-
legur. Nú aðeins fjórum árum síðar
eru flestar þessara nýjunga, sem þá
voru kynntar, í boði í fjöldafram-
leiddum vörubíl.
Mercedes-Benz Trucks hefur
boðið bremsuaðstoðarkerfi frá
árinu 2006 og kynnir nú nýjustu
kynslóð slíkra kerfa, Active Brake
Assist 5, í nýjum Actros. Þetta
nýja kerfi kemur ekki einungis í
veg fyrir aftanákeyrslur, heldur
skynjar kerfið nú einnig gangandi
vegfarendur,“ segir Eiríkur. „Aukin
samþætting radar- og myndavéla-
kerfa gerir þetta mögulegt og setur
Mercedes-Benz vörubíla í sérflokk
hvað þennan búnað varðar.“
Nýr og hátæknivæddur
Actros vörubíll frá Benz
Mercedes-Benz frumsýndi nýlega nýja kynslóð af Actros vörubílnum sem býður upp á fjölda
nýjunga sem auka þægindi og öryggi. Bíllinn þótti framúrstefnulegur fyrir aðeins fjórum árum.
Active Drive Assist akstursaðstoðarkerfið gerir bílinn að hluta til sjálfkeyr-
andi. Það hefur ekki áður verið í boði í fjöldaframleiddum vörubíl.
KYNNINGARBLAÐ 5 F Ö S T U DAG U R 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR