Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 23
Ekki hefur verið rannsakað sérstaklega hérlendis hvaða kvillar hrjá helst fólk sem
vinnur við akstur en samkvæmt
erlendum heimildum eru mjó-
baksverkir algengustu stoð-
kerfiseinkennin. Önnur einkenni
sem eru algeng eru vöðvabólga,
höfuðverkir, óþægindi frá öxlum
og þreytuóþægindi í fótum. Þetta
eru allt einkenni sem eru algeng
meðal fólks í kyrrstöðuvinnu,“
segir Gunnlaugur en hann hefur
um langt skeið verið sjúkraþjálfari
hjá Vinnuvernd.
Hann bendir á að það sé mjög
fjölbreyttur hópur einstaklinga
sem starfi við akstur og að
hluti þeirra hreyfi sig töluvert í
vinnunni, sér í lagi þeir sem sinni
störfum þar sem þeir taka þátt í
að ferma og afferma bílana. Þar
eru algeng stoðkerfiseinkenni sem
fylgja öðrum líkamlegum störfum
eins og t.d. lagerstörfum.
Lög um hvíldartíma mikilvæg
Þegar Gunnlaugur er spurður hvað
bílstjórar ættu að hafa í huga til að
viðhalda hreysti og góðri heilsu
segir hann mikilvægt að huga
að líkamlegu atgervi, hreyfa sig
reglulega og passa upp á matar-
æðið. „Svefn er einnig lykilatriði.
Atvinnubílstjórar eyða miklum
tíma í umferðinni, sem þarfnast
mikillar einbeitingar. Lög eru í
gildi um hvíldartíma bílstjóra, þau
eru bæði mikilvæg fyrir bílstjórana
sjálfa og til að stuðla að auknu
umferðaröryggi,“ bendir Gunn-
laugur á.
Einnig má líta til þess hvað fyrir-
tækin í þessum geira geta gert til að
ýta undir góða heilsu starfsmanna,
að sögn Gunnlaugs. Hann segir
að í því sambandi sé bæði aðbún-
aður og fræðsla mikilvæg. „Oft
er vöntun á tækjum ekki eini vand-
inn, heldur einnig að þau léttitæki
og búnaður sem er til staðar sé
nýttur til að auðvelda störfin. Sam-
hliða þarf að hafa öfluga fræðslu
og þjálfun fyrir nýliða í notkun
búnaðarins og líkamsbeitingu.“
Gunnlaugur nefnir að mörg
fyrirtæki bjóði starfsmönnum
sínum að fá fagaðila til að mæla
áhættuþætti fyrir t.d. sykursýki
og hjarta- og æðasjúkdóma. „Í því
getur falist ákveðið aðhald fyrir
starfsmenn, auk þess sem mikil-
vægt er að greina þessa sjúkdóma
sem fyrst,“ segir hann.
Teygjur geta hjálpað
Gunnlaugur segir að ekki sé hægt
að svara því með vissu þegar hann
er spurður hvort atvinnubílstjórar
á Íslandi séu í sérstökum áhættu-
hópi hvað snertir hjarta- og æða-
sjúkdóma. „Það er beintengt þeim
lífsstíl sem hver og einn stundar.
Áhættuþættir fyrir hjarta- og
æðasjúkdóma eru reykingar, hár
blóðþrýstingur, sykursýki, hátt
kólesteról og ofþyngd. Ef ein-
staklingur er í ofþyngd eykur það
líkur hans á háum blóðþrýstingi
og sykursýki. Ég hef ekki séð gögn
þess efnis að atvinnubílstjórar séu
með sanni frekar í þessum áhættu-
hópum umfram aðrar starfsstéttir.
Ættarsaga getur einnig haft áhrif,
og aukast líkurnar ef einhver
nákominn hefur fengið kransæða-
sjúkdóm fyrir 65 ára aldur.“
Margir bílstjórar finna af og til
fyrir stífleika í kroppnum vegna
langrar setu við vinnu. Gunnlaugur
segir gott að gera blóðrásarauk-
andi æfingar og teygjur til að liðka
líkamann. „Mikilvægt er að setja
sér hæfileg markmið þegar kemur
að því að skipuleggja hreyfingu
í vinnutíma. Á sama tíma getur
verið gott að tengja hana ákveðn-
um tíma vinnudags til að auka lík-
urnar á að fylgja æfingunum eftir.
Fyrir utan vinnutíma er margt í
boði og þarf hver og einn að finna
hvað hentar sér. Margir hreyfa sig
innan veggja líkamsræktarstöðva
sem bjóða upp á fjölbreytta mögu-
leika, bæði styrkjandi og liðkandi
æfingar, ýmsa hópatíma, jóga og
tækjaþjálfun. Mikilvægt er að hafa
í huga að göngutúrar og útivist
hafa einnig góð áhrif á heilsu okkar
og að hreyfing þarf alls ekki alltaf
að vera undir handleiðslu utan-
aðkomandi aðila, ef við förum
skynsamlega og virðum mörk
eigin getu.“
Áttu góð almenn heilsuráð fyrir
þá sem vinna við akstur?
„Hreyfing, mataræði og svefn
myndi ég telja að væru lykilþættir
sem hver og einn þarf að hafa í
huga. Við erum mörg hver dugleg
að sinna skipulagðri hreyfingu,
en af ýmsum ástæðum erum við
kannski ekki nógu dugleg að
hreyfa okkur í daglegu amstri, án
þess að fara á skipulagðar æfingar.“
Teygjur hjálpa stirðum kroppi
Gunnlaugur Már Briem, sjúkraþjálfari hjá Vinnuvernd, segir reglulega hreyfingu, gott
matar æði og nægan svefn lykilþætti að góðri heilsu þeirra sem vinna kyrrsetustörf.
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
Gunnlaugur segir gott að gera blóðrásaraukandi æfingar og teygjur til að líðka skrokkinn en margir atvinnubílstjórar finna af og til fyrir stífleika í líkamanum
vegna langrar setu við vinnu. Hann segir mikilvægt að setja sér hæfileg markmið þegar kemur að því að skipuleggja hreyfingu á vinnutíma. MYND/ANTON BRINK
Atvinnubílstjórar
eyða miklum tíma í
umferðinni , sem þarfn-
ast mikillar einbeitingar.
Lög um hvíldartíma eru
mikilvæg fyrir bílstjóra.
Gunnlaugur Már Briem
6 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
VIÐGERÐIR
VARAHLUTIR
ÞJÓNUSTA
SÍMI
555-6670
www.velras.is
BIFREIÐA- OG VÉLAVERKSTÆÐI - ÁLHELLU 4, HAFNARFIRÐI