Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 26
Kristinn Már Emilsson, framkvæmdastjóri atvinnutækjasviðs, við nýja þjónustumiðstöð Veltis við Hádegismóa 8. Veltir þjónustar öll atvinnu- tækjamerki Volvo en eftir því sem best er vitað er hvergi í Skandinavíu hægt að finna einn um- boðsaðila sem er með öll Volvo atvinnutækja- vörumerkin á sinni könnu. Flutningar á Volvo atvinnu-tækjasviði Brimborgar í nýtt glæsilegt sérhannað þjón- ustuhúsnæði fyrir atvinnutæki að Hádegismóum 8 í Árbæ hófust í síðustu viku og starfsemi verk- stæðanna byrjaði í þessari viku. Stefnt er að því að flutningum á allri starfsemi Volvo atvinnu- tækjasviðs verði lokið um næstu mánaðamót. „Starfsemi Volvo atvinnutækjasviðs í nýrri þjónustu- miðstöð að Hádegismóum verður undir nafninu Veltir, en það er gert til þess að skapa skarpari skil á milli fólksbílasölu Brimborgar að Bíldshöfða annars vegar og þunga- deildarinnar í Hádegismóum hins vegar,“ segir Kristinn Már Emilsson, framkvæmdastjóri atvinnutækja- sviðs. Starfsmenn virkir í hönnunarferlinu Nýja húsnæðið er merkilegt fyrir margra hluta sakir. Hönnunarferlið tók langan tíma og var vandað til verka. Starfsmenn atvinnutækja- sviðs höfðu meðal annars tök á því að koma á framfæri sínum skoðunum á fundum í hönnunar- ferlinu. Við hönnun á húsnæðinu var sérstaklega hugað að stað- setningu, aðkomu frá stofnbraut, flæði varahluta innandyra og að tækjabúnaður yrði sem allra bestur. Jafnframt var hugað að því að aðstaða fyrir starfsmenn og okkar viðskiptavini yrði sem best. „Þessi Volvo þjónustumiðstöð er öðruvísi hvað það varðar að við erum að þjónusta öll atvinnutækjamerki Volvo, þ.e. Volvo Trucks vörubif- reiðarnar, Volvo CE vinnuvélarnar, Volvo Bus rútur og strætisvagna og Volvo Penta bátavélarnar auk Renault Trucks vörubifreiða, en eftir því sem ég best veit er hvergi í Skandinavíu hægt að finna einn umboðsaðila sem er með öll Volvo atvinnutækjavörumerkin á sinni könnu eins og við,“ segir Kristinn. Framúrskarandi aðstaða „Til framtíðar er nýju þjónustumið- stöðinni ætlað að styðja við öfluga uppbyggingu atvinnutækjasviðs Brimborgar og gera Velti að einum eftirsóknarverðasta vinnustað á markaðnum með framúrskarandi aðstöðu og athafnarými til að veita okkar traustu viðskiptavinum bestu þjónustu sem völ er á.“ Í vesturhluta húsnæðisins er aðalinngangur Veltis með mót- töku, sölu og söluráðgjöf vara- hluta ásamt verkstæðismóttöku. Á annarri hæð verða söluráðgjafar Veltir – ný þjónustumiðstöð fyrir Volvo atvinnutæki Á nýju þjónustu- verkstæði Veltis verður allur tækjabúnaður eins og best verður á kosið. Jóhann Rúnar Ívarsson, þjón- ustustjóri Veltis, prófar nýjar dekkjavélar hjá Velti Xpress. 26 metra löng gryfja. Ný þjónustumið- stöð Veltis fyrir Volvo atvinnu- tæki opn ar að Hádegismóum 8. Húsnæðið er sérhannað og öll aðstaða til fyrir- myndar. Helgina 17. og 18. nóvem- ber verður opið hús í Velti. fyrir Volvo atvinnutæki stór sem smá,“ lýsir Kristinn. Helgina 17.-18. nóvember verður opið hús að Hádegismóum 8 og sýning á Volvo atvinnutækjum og því sem Veltir hefur upp á að bjóða. Best útbúna atvinnutækja- verkstæðið Á nýju þjónustuverkstæði Veltis verður allur tækjabúnaður eins og best verður á kosið og segir Kristinn að verkstæðið verði án efa eitt flottasta og best útbúna atvinnutækjaverkstæði landsins og þó víðar væri leitað. „Sem dæmi um tækjabúnað á verkstæðinu hjá Velti þá eru tjakkalyftur í gólfi í tveimur stæðum, 26 metra löng gryfja með áföstum bremsu- prófunar búnaði auk öflugra hristi platna sem gerir okkar bif- vélavirkjum fært að greina betur slit í fóðringum og hjólabúnaði. Þá er 10 tonna brúarkrani sem nær yfir helming húsnæðisins sem auðveldar okkur að lyfta þungum hlutum og verður meðal annars fjárfest í búnaði sem hægt er að nota með brúarkrana sem auðveldar okkur framrúðuskipti. Búið er að fjárfesta í háþró- uðum hjólastillingarbúnaði fyrir vörubifreiðar, en rétt hjólastillt vörubifreið ásamt vagni minnkar hráolíueyðslu auk þess sem dekk- jaslit minnkar til muna.“ Í vöruhúsi Veltis er öflugur 11 metra hár vöruturn sem kemur til með bæta enn frekar hraða og flæði varahluta til viðskiptavina og verkstæða auk þess sem utan- umhald varahlutalagers verður öruggara og enn betra. Veltir Xpress hraðþjónusta Veltir Xpress er heitið á nýrri hraðþjónustu sem er í boði fyrir vörubifreiðar, tæki og vagna að Hádegismóum 8. Þar eru unnin verkefni sem ekki taka of langan tíma, svo sem smurþjónusta, minni viðgerðir á eftirvögnum, bremsu- viðgerðir og dekkjaþjónusta. Í aðstöðunni hjá Velti Xpress er 26 metra löng gryfja auk fjögurra pósta tjakkalyftu í gólfi sem gerir það að verkum að hægt verður að lyfta bæði bíl og vagni í passlega vinnu- hæð fyrir starfsmenn. Hugsunin er sú að viðskiptavinir geti mætt án þess að panta tíma og farið í röðina með sitt atvinnutæki. Í austurenda Hádegismóa 8 er Frumherji með sérhæfða skoð unar- stöð fyrir atvinnutæki. Heildar- stærð húsnæðis að Hádegismóum 8 er samtals rúmlega 4.000 m2 og lóðin er 14.000 m2. Kristinn vill koma á framfæri þökkum til viðskiptavina fyrir þol- inmæði vegna plássleysis að Bílds- höfða 6 og segir hann starfsmenn Veltis hlakka til að taka á móti þeim á nýjum stað að Hádegismóum 8. Að lokum er áhugasömum fagmönnum í greininni sem hafa áhuga á því að vinna með Velti bent á að skoða laus störf hjá Brimborg á heimasíðu Brimborgar, www. brimborg.is Frekari upplýsingar um starfsemi Volvo atvinnutækjasviðs má finna á heimasíðum Volvo atvinnutækja volvotrucks.is, volvoce.is, volvo- bus.is og volvopenta.is. Auk þess er hægt að fylgjast með fréttum og afhendingu tækja á Facebook- síðunni Volvo atvinnutæki. Nýtt símanúmer hjá Velti er 510 9100. Volvo atvinnutækja staðsettir ásamt fundaraðstöðu, kennslu- rými og mötuneyti fyrir starfs- menn. „Úr mötuneyti starfsmanna á annarri hæð er hægt að ganga út á stórar svalir með frábæru útsýni til norðurs yfir Grafarholts- völl, en þar verður hægt að gera eitthvað skemmtilegt saman á góðviðrisdögum. Hægt er að opna stóra hurð frá rými í anddyrinu inn á verkstæðið og nýta þannig verkstæðið sem sýningar aðstöðu KYNNINGARBLAÐ 9 F Ö S T U DAG U R 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 VÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.