Fréttablaðið - 26.10.2018, Side 31
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
Þorkell Ragnarsson hefur um rúmlega 30 ára skeið búið og starfað í Bandaríkjunum
þar sem hann hefur stærstan hluta
starfsferilsins keyrt stóran tankbíl
um Bandaríkin og Kanada. Á
þessu tímabili hefur hann starfað
hjá fimm ólíkum fyrirtækjum og
flutt allt milli himins og jarðar,
t.d. byggingarkrana, jarðvinnslu-
tæki, kælivagna með grænmeti
og dísilolíu. Undanfarin ár hefur
hann starfað hjá fyrirtækinu
Oakley, sem er staðsett í miðju
Flórídaríki, þar sem hann flytur
eingöngu varning sem tengist mat-
vælaiðnaði með einhverjum hætti,
allt frá vatni til viskís. „Hjá Oakley
erum við eingöngu með tanka í
eftirdragi en hver þeirra tekur um
27.300 lítra. Þeir hafa bara eitt hólf
og fyrir vikið er frekar erfitt að
draga þá því innihaldið er alltaf
á hreyfingu. Við flytjum mikið af
matarolíu, þá helst sólblómaolíu,
pálmaolíu, ólífuolíu og hnetuolíu.
Einnig edik, heitt súkkulaðismjör,
heitt súkkulaði og ýmsan ávaxta-
safa auk ýmiss konar áfengis. Sumt
af þessu þarf að flytja heitt og þá
er hitanum haldið við með því að
tengja kælivatnið frá bílnum í hita-
leiðara í tanknum.“
Erfitt fyrir fjölskyldufólk
Þorkell segist elska starf sitt og
það sé einfaldlega skýringin á því
hversu lengi hann hefur tollað í
því. „Á þessum árum hef ég keyrt
yfir þrjá milljónir mílna á þjóðveg-
um Bandaríkjanna og Kanada sem
gera um 4,8 milljónir kílómetra.
Það góða við starfið er að ég fæ
ágætt kaup og svo er ég alltaf að sjá
eitthvað nýtt. Lífið á þjóðvegunum
er ekki svo slæmt ef maður hefur
jákvætt hugarfar og hefur gaman af
starfinu. Þetta er þó erfitt starf fyrir
fjölskyldufólk með mörg börn því
fjarvera frá heimilinu er mikil.“
Prófaði aftur Ísland
Áður en Þorkell hóf störf hjá
Oakley starfaði hann hjá nokkrum
fyrirtækjum. „Fyrsta fyrirtækið
hét General Crane en þar var ég
aðallega að flytja krana og jarð-
vinnslutæki. Næst var það Token
Transport en þar vorum við
eingöngu í þungaflutningum og
notuðumst við Peterbilt bíla. Þá
keypti ég Freightliner bíl og var að
draga kælivagna með grænmeti á
milli Flórída og New York borgar í
nokkur ár. Eftir nokkur ár skipti ég
um bíl og keypti Peterbilt bíl og fór
að draga vagna fyrir fyrirtæki sem
heitir Schnider. Þar flutti ég allt
milli himins og jarðar, ef það bara
komst í tengivagninn. Eitt skiptið
flutti ég t.d. tvö gasgrill frá Flórída
til Kaliforníu á 53ja feta tengivagni.
Næst fór ég að keyra dísilolíu á
olíusvæðunum í Texas og þaðan
lá svo leiðin til Oakley þar sem ég
vinn í dag. Á þessu tímabili tók
ég mér næstum tveggja ára frí frá
keyrslunni og prófaði að flytja
aftur til Íslands en það var erfitt og
gekk ekki upp hjá mér.“
Ekkert annað tækifæri
Fyrir þá sem hafa áhuga á að hitta
fólk af öllum gerðum og þjóð-
ernum þá er þetta einnig flott starf
segir Þorkell. „Eitt sem ég tók eftir
þegar ég byrjaði að keyra hér er
hversu breytileg enskan er milli
landshluta. Einnig sé ég miklar
breytingar gegnum árin hvað varð-
ar kurteisi. Mér finnst hún vera
smátt og smátt að hverfa og yngra
fólkið sem er að koma inn í þessa
vinnu er sumt með enga
þolinmæði fyrir starfi
sínu. Þolinmæðin
er þó undirstaða
þess að gera ekki
mistök í þessari
vinnu því það er
ekkert sem heitir
annað tækifæri í
þessu starfi. Það
er erfitt að horfa
upp á slys sem
maður sér og maður
veit að flest þeirra hefðu
ekki átt sér stað ef bílstjór-
arnir hefðu bara verið með hugann
við keyrsluna.“
Lífið varð gott
Þorkell hefur komið sér vel fyrir
í Bandaríkjunum en hann býr í
Ft. Lauderdale. „Eftir að ég hætti
að miða allt við hvernig hlutirnir
voru gerðir á Íslandi og sætta mig
við aðstæður hér breyttist allt og
lífið varð gott. Hér hef ég verið
síðan 1985, að undanskildu stuttu
tímabili heima á Íslandi, og hér
líður mér vel. Ég sé engar breyt-
ingar fram undan en
get þó ekki neitað því
að hugurinn reikar oft
til Íslands þannig að það er
aldrei að vita hvað ég geri í fram-
tíðinni.“
Utan vinnunnar segist Þorkell
eyða miklum tíma í gönguferðir.
„Ég er svo heppinn að vinnu-
veitandi minn leyfir mér að taka
fríin mín hvar sem ég vil. Því hef
ég tekið mikið af fríum mínum
í Klettafjöllunum og farið þar í
fjallgöngur. Einnig tek ég bílaleigu-
bíla og keyri um og skoða það sem
ég næ ekki að skoða á vinnutíma.
Því eins og ég segi alltaf þá er lífið
ævintýri ef maður notar það rétt.“
Alltaf að sjá eitthvað nýtt
Á síðustu þremur áratugum hefur Þorkell Ragnarsson keyrt um 4,8 milljónir kílómetra starfs síns
vegna á þjóðvegum Bandaríkjanna og Kanada. Hann segir lífið á þjóðvegunum ekki svo slæmt ef
maður hefur bara jákvætt hugarfar og hefur gaman af starfinu og það hefur hann sannarlega.
Bíllinn sem Þorkell Ragnarsson keyrir hjá Oakley er þessi fallegi Volvo vnl 630 árgerð 2017. Hann keyrir sama bílinn í tvö ár og fær svo nýjan.
Hér er Þorkell
að afferma viskí
í Carson í Kali-
forníu.
Þorkell Ragnarsson hefur
um 30 ára skeið starfað
í Bandaríkjunum þar
sem hann keyrir
tankbíl um Banda-
ríkin og Kanada.
Olíumiðstöðvar og ofnar í báta og sumarbústaði
555-8000 : velanaust.is
14 KYNNINGARBLAÐ 2 6 . O K TÓ B E R 2 0 1 8 F Ö S T U DAG U RVÖRUBÍLAR OG VINNUVÉLAR