Fréttablaðið - 26.10.2018, Blaðsíða 47
Ástkær bróðir minn, mágur minn
og frændi okkar,
Frímann Árnason
til heimilis að Ástúni 10 í Kópavogi,
lést á Kanaríeyjum þann 16. október sl.
Útför hans fer fram frá Kópavogskirkju
mánudaginn 29. október 2018 kl. 11.
Guðrún Ágústa Árnadóttir Kristmundur Jónasson
Ragna Kristmundsdóttir Bjarni V. Halldórsson
og börn
Árni Jónas Kristmundsson Erla Björg Birgisdóttir
og börn
Snædís Kristmundsdóttir Högni Haraldsson
og börn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi og langafi,
Birgir Pálsson
frá Stóruvöllum í Bárðardal,
fyrrum garðyrkjubóndi í Gufudal
og verkstjóri hjá Hagvirki,
lést föstudaginn 19. október á Landspítalanum í Fossvogi.
Jarðarförin fer fram í Hveragerðiskirkju laugardaginn
3. nóvember klukkan 14.
Guðbjörg S. Birgisdóttir Guðmundur G. Norðdahl
Sævar Birgisson Gerður Sævarsdóttir
Brynja Birgisdóttir Bjarni Kristinsson
Árni Birgisson Ásta Hólm Birgisdóttir
Sigurbjörg Birgisdóttir Þorsteinn Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þessu verki hreifst ég af 12 ára gamall þegar það var frumflutt í Þjóðleikhús-inu 1974. Fór þá einn míns liðs að horfa á óperuna af efstu svölum, stóð svo upp
og ákvað að verða tónlistarmaður,
alveg upptendraður,“ segir Gunnsteinn
Ólafsson sem stjórnar tónlistarflutn-
ingi Þrymskviðu eftir Jón Ásgeirsson í
Norðurljósasal Hörpu í kvöld og annað
kvöld. Þar koma fram átta einsöngvarar,
Háskólakórinn og Sinfóníuhljómsveit
unga fólksins. Leikstjóri er Bjarni Thor
Kristinsson.
Gunnsteinn segir Þrymskviðu nú
flutta í tilefni af níræðisafmæli höf-
undarins Jóns Ásgeirssonar og 100 ára
fullveldisafmæli Íslands. „Tilviljun réð
því að ég varð nemandi Jóns Ásgeirs-
sonar í tónsmíðum þegar ég var 16 ára
gamall og hann hafði gríðarleg áhrif á
mig. Hann hefur líka haft mikið að segja
í okkar tónlistarlífi. Þetta verk hans,
Þrymskviða, er alveg magnað og í því
eru miklar sviptingar, auk þess að vera
skemmtilegt. Jón er þekktur fyrir flottar
laglínur en teygir sig líka langt í tón-
málinu. Ég held að þessi ópera sé dálítið
lykilverk á hans ferli, sú fyrsta íslenska
sem samin var í fullri lengd eftir sam-
keppni sem var haldin í tilefni af 1100
ára afmæli Íslandsbyggðar.“
Jón endurskrifaði óperuna árið 1997
að sögn Gunnsteins, stytti hana, tók
út dansa og bætti inn aríum í staðinn.
„Þetta er í raun frumflutningur þeirrar
útgáfu,“ segir hann. „Lítil hlutverk urðu
stærri, eins og hlutverk Loka og hlutverk
Grímu, það er persóna sem hann býr til
og á að vera systir Þryms jötuns.“
Svona er efninu lýst í fréttatilkynn-
ingu: Þór uppgötvar að hamar hans
Mjölnir er horfinn! Þrymur þursadrott-
inn hefur rænt honum og heimtar Freyju
í lausnargjald. Hún er ófáanleg til þess
að fórna sér fyrir hamarinn svo Þór fer
í kvenmannsgervi til Jötunheima að
endurheimta vopn sitt í fylgd Loka Lauf-
eyjarsonar.
Einsöngvarar eru Guðmundur Karl
Eiríksson barítón sem Þór, Margrét
Hrafnsdóttir sópran í hlutverki Freyju,
Keith Reed bass-barítón syngur Þrym
þursadrottin og Agnes Thorsteins
Hamar Mjölnis er horfinn
Gamanóperan Þrymskviða, fyrsta íslenska óperan sem samin var í fullri lengd, verður
flutt í nýrri útgáfu í Hörpu í kvöld og annað kvöld, undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar.
Hópurinn sem flytur Þrymskviðu á æfingu í Neskirkju í vikunni, Guðmundur Karl, sem leikur Þór, er í forgrunni. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Gunnsteinn sá Þrymskviðu 12 ára gamall. Nú stjórnar hann. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Um Guðmund Karl sem leikur Þór
Barítónsöngvarinn Guðmundur Karl
Eiríksson kemur austan frá Flúðum í
Hrunamannahreppi og er langafabarn
Sigurðar Ágústssonar tónskálds og
organista í Birtingarholti. Hann hefur
stundað söngnám hjá Garðari Thór
Cortes, Kristjáni Jóhannssyni og Renato
Bruson. Þeim síðastnefnda í heimabæ
Verdis, Busseto á Ítalíu, og þar söng
hann með hljómsveit á galatónleikum í
Theatre of Verdi. Einnig var hann í hlut-
verki Schaunard í óperunni La bohème
á Rimini. Nú starfar Guðmundur Karl
sem sölumaður hjá SS en ætlar að
halda stóra jólatónleika í heimabæ
sínum Flúðum og fá til liðs við sig virta
einsöngvara, meðal annars einn af læri-
feðrunum, Kristján Jóhannsson.
mezzósópran er Gríma, systir Þryms.
Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór er
Heimdallur og Eyjólfur Eyjólfsson tenór
syngur Loka.
Gunnsteinn hælir söngvurunum
á hvert reipi, þeir eru flestir ungir og
hann segir íslenska framtíð bjarta hvað
söngvara varði. En verða bara þessar
tvær sýningar? „Já, þær eru í Norður-
ljósasalnum og eru settar upp á svolítið
óvenjulegan hátt, sviðið verður eins og
rampur fram í salinn þannig að áhorf-
endur sitja umhverfis það. Svo er engin
gryfja þannig að hljómsveitin er á sama
gólfi og áheyrendur. Það komast samt
um 400 manns á hvora sýningu og við
vonum að bekkurinn verði þéttsetinn.“
gun@frettabladi.dis
Hallgrímskirkja í Reykjavík var vígð þennan
mánaðardag árið 1986, eftir 41 árs byggingar-
sögu því smíði hennar hófst árið 1945. Arkitekt
að henni var Guðjón Samúelsson.
Við vígsluna gengu 2.000 kirkjugestir til alt-
aris og var það meiri fjöldi en áður hafði sést í
kirkjusögu Íslands.
Hallgrímskirkja er 74,5 metra há og stendur
á Skólavörðuholti, eins og margir vita. Hún
sést því víða að og er afar þekkt kennileiti
í Reykjavík. Hún er minningarkirkja um
Hallgrím Pétursson og pílagrímsstaður
ferðafólks. Flesta daga ársins koma
þúsundir í kirkjuna, heimafólk og
erlendir gestir.
Í kirkjunni er 5.275 pípna orgel
sem byggt var árið 1992. Það er
15 metrar á hæð og vegur um
25 tonn.
Hallgrímskirkja þjónar
nærumhverfi sínu sem sóknar-
kirkja og er einnig þjóðar-
helgidómur.
Þ ETTA G E R Ð I ST : 2 6 . O KTÓ B E R 1 9 8 6
Hallgrímskirkja í
Reykjavík var vígð
2 6 . O K T Ó B E R 2 0 1 8 F Ö S T U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
Merkisatburðir
1927 Gagnfræðaskólinn á Akureyri fær heimild til að
útskrifa stúdenta og við það verður hann Menntaskólinn á
Akureyri.
1961 Allmikið hraungos hefst í Öskju.
1965 Reykjanesbraut eða Keflavíkurvegurinn, fyrsti þjóð-
vegur á Íslandi utan þéttbýlis, sem lagður er bundnu slitlagi,
er formlega opnuð eftir fimm ára framkvæmdir. Sett er á
veggjald sem innheimt er í tollskýli við Straumsvík, þrátt
fyrir mikla óánægju bílstjóra.
1995 Snjóflóð fellur á Flateyri með þeim afleiðingum að
tuttugu farast.