Fréttablaðið - 26.11.2019, Page 43
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Þeir sem fylgjast með Alfreð vita að hann er snillingur þegar kemur að því að grilla
alls kyns góðgæti. Hann grillar
nánast allt frá pitsum upp í pott
rétti, steikur og eftirrétti. Hann
segist aldrei hafa grillað jólamat
inn en hann prófaði þó einu sinni
að grilla hamborgarhrygg. Í forrétt
var hann með grafið lambafille
sem hann gróf sjálfur.
„Ég gróf lambafilleið sex dögum
áður en ég matreiddi það og kald
reykti það svo í 10 tíma með beyki
spónum. Ég bar það svo fram með
klettasalati, sultuðum rauðlauk og
balsamicgljáa,“ segir Alfreð.
„Við hamborgarhrygginn gerði
ég ekkert nema skera tígla í hann.
Svo var hann grillaður á snúnings
teini við 180 gráður og ég sprautaði
malti á hann á 10 mínútna fresti.
Þegar 15 mínútur voru eftir
kynti ég grillið í botn og penslaði
hrygginn með gljáanum. Lyktin á
pallinum var unaðsleg, alveg eins
og það væru komin jól.“
GRAFIÐ LAMBAFILLE
700 g lambafille
Gróft salt
Kryddblanda:
6 msk. salt
2 msk. sinnepsfræ
2 msk. fennelfræ
2 msk. kóríanderfræ
3 tsk. rósapipar
2 tsk. svartur pipar
2 msk. oregano
2 tsk. rósmarín
2 tsk. timían
1 tsk. sykur
Klettasalat
Sultaður rauðlaukur
Balsamic-gljái
Lambafilletið saltað vel og látið
liggja í salti í 3 tíma, svo er saltið
skolað af. Kryddinu er blandað
Prófaði að grilla hamborgarhrygg
Alfreð Fannar Björnsson hefur mikla ástríðu fyrir að grilla og heldur úti síðu á Instagram undir nafninu BBQkongurinn en
fylgjendur hans þar eru hátt í 4.000 talsins. Yfirleitt stendur hann ekki við grillið um jólin en hver veit nema breyting verði þar á í ár
Alfreð Fannar Björnsson er snill-
ingur þegar kemur að því að grilla.
Forrétturinn var grafið lambafille á salatbeð.
Kryddinu var
nuddað vel á
lambakjötið
sem síðan var
vakúmpakk-
að og geymt í
nokkra daga.
Hamborgarhryggnum var skellt á snúningsstein og malti sprautað yfir hann reglulega. Síðustu mínúturnar var hitinn hækkaður í botn til að fá þessa fallegu grilláferð.
saman og kryddblöndunni nuddað
vel á kjötið og það svo vakúm
pakkað og geymt þannig í 4 daga.
Að því loknu er kjötið reykt í reyk
ofni í 10 tíma.
Áður en kjötið er borið fram er það
skorið í þunnar sneiðar og lagt ofan
á beð af klettasalati og sultuðum
rauðlauk. Að lokum er balsamic
gljáa dreift yfir.
GRILLAÐUR
HAMBORGARHRYGGUR
Einn hamborgarhryggur
Malt
Gljái:
Púðursykur
Tómatsósa
Sætt sinnep
Púðursykri, tómatsósu og sætu
sinnepi blandað saman til að búa
til gljáa. Tíglar skornir í hrygginn
og hann settur á snúningsstein.
Grillið er stillt á miðlungshita og
grillað þar til kjarnhitinn er 58
gráður. Á 15 mínútna fresti er malti
sprautað yfir hrygginn. Þegar
kjarnhitinn er orðinn 58 gráður
er hryggurinn penslaður með
gljáanum og grillið stillt á hæsta
hita. Þegar kjarnhitinn hefur náð
62 gráðum er kjötið tekið af grillinu
og hryggurinn látinn standa smá
stund.
Hallveigarstíg 10a, • 101 Reykjavík • s. 551 2112
Fæst hjá Ungfrúnni
Gallabuxur
kr. 12.900-14.500
Stuttermabolir kr. 4.900
Húfa kr. 7.500
Hanskar kr. 4.900
www.ungfruingoda.is
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 922