Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 57
Ragna hefur haft áhuga á matargerð og bakstri frá því hún var barn. „Ég ætlaði lengi
vel að verða kokkur eða kondi-
tormeistari en ákvað svo að verða
hjúkrunarfræðingur eftir langa
umhugsun.“ Ragna heldur úti
bloggsíðunni ragna.is þar sem hægt
er að finna hátt í 90 fjölbreyttar
uppskriftir.
Ragna er mikið jólabarn hún
elskar að baka fyrir jólin og var
búin að skreyta húsið að utan
að mestu um miðjan nóvember.
„Ég baka ekki margar sortir, mér
finnst betra að baka fáar sortir
sem klárast en að baka margar og
geyma þær,“ segir hún.
„Mér finnst skemmtilegast að
búa til laufabrauð og smákökur en
svo geri ég líka alltaf parta eins og
amma mín og nafna Ragna gerði
alltaf. Ég baka partana bara rétt
fyrir jól. Ég tók við hlutverkinu
hennar ömmu Rögnu að búa þá til
fyrir ættina.“
Ragna hefur í nógu öðru að snúast
fyrir jólin en að baka. Hún syngur á
fimm mismunandi jólatónleikum
og er því löngu farin að æfa jólalögin
og löngu komin í jólaskap að eigin
sögn. „Ég er í kór Lindakirkju og svo
syng ég með Guðrúnu Árnýju í Víði-
staðakirkju um jólin sem gestasöng-
kona. Ég syng líka á Jóla Bublé tón-
leikunum og fer heim til Víkur með
jólatónleika. Þar fyrir utan syng ég
í jólaboðum og fyrirtækjaveislum
þannig að það er nóg að gera svona
milli vakta, jólaundirbúnings og
almenns heimilislífs. Ég er næstum
alla daga annaðhvort að syngja eða
hjúkra, svo restina af tímanum baka
ég og sinni fjölskyldunni,“ segir
Ragna.
Það eru tvö ár síðan Ragna
bakaði fyrst rúllutertuna sem
hún deilir uppskriftinni að með
lesendum, en hún segist hafa verið
orðin leið á súkkulaði- og kara-
mellukökum. „Þetta þarf ekki
endilega að vera jólakaka en hún
er voða jólaleg með hvítu kremi og
rauðum Bismark brjóstsykri.“
KAKA:
4 egg
50 gr púðursykur
100 gr sykur
150 gr hveiti
15 gr kakó
½ tsk. salt
1 msk. rauður matarlitur
1 tsk. borðedik/hvítvínsedik
2 tsk. vanilludropar/extrakt
2 msk. mjólk
2 msk. matarolía
Þeytið saman egg, púðursykur og
sykur saman þar til mjög létt og
ljóst í hrærivél eða handþeytara.
Sigtið út í blönduna öll þurrefni
og setjið restina af vökvum út
í og hrærið varlega saman á
lágum hraða þar til að deigið er
vel blandað saman. Klæðið stórt
skúffukökuform um 38x25 cm að
stærð (ofnplata er of stór) með
smjörpappír.
Hellið deiginu yfir á smjör-
pappírinn og jafnið út deigið
þannig að það sé alls staðar jafn
þykkt. Bakið í 180°C heitum ofni
í 12 mínútur eða þar til kakan er
svampkennd þegar hún er snert.
Þegar kakan er tekin út úr ofn-
inum er henni hvolft strax ofan
á viskastykki sem búið er að strá
f lórsykri á. Því næst er smjör-
pappírinn tekinn af, f lórsykri
stráð yfir kökuna og henni svo
rúllað upp inn í viskastykkið.
Þannig er hún látin kólna á meðan
kremið er útbúið.
Krem:
450 gr flórsykur
200 gr smjör
2 msk. rjómi
2 tsk. piparmyntudropar
Flórsykri, smjör, rjómi og pipar-
myntudropar er þeytt vel saman
í handþeytarar eða með þeytara-
stykki í hrærivél. Ath. að því
lengur sem kremið er þeytt, því
hvítara verður það.
Kökunni er varlega rúllað í
sundur, kremi smurt innan í og
svo rúllað þétt saman upp aftur.
Kremi er smurt yfir alla kökuna á
platta eða diski og svo skreytt með
brotnum/muldum Bismark brjóst-
sykri/jólasveinastöfum.
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Bakar syngur
og hjúkrar
Hjúkrunarfræðingurinn Ragna Björg Ársælsdóttir
heldur úti matarblogginu ragna.is þar sem hún
deilir girnilegum uppskriftum að gómsætum
kökum og mat. Ragna nýtir frítíma sinn fyrir jólin
í bakstur milli þess sem hún sinni starfi sínu og
syngur á hinum ýmsu tónleikum.
Ragna hefur í nógu að snúast í kringum jólin en gefur sér samt tíma fyrir
bakstur. Þessi rúlluterta er mjög jólaleg FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
- meiri upplifun
Bíókort er
tilvalin jólagjöf fyrir
kvikmyndaunnandann
Bíókortið gildir á allar
kvikmyndir sem sýndar eru í
Smárabíói, Háskólabíói og Borgarbíói
Sjáðu allar þær kvikmyndir
sem þú vilt yfir tímabil kortsins
1, 3, 12
MÁNAÐA KORT
OG LÚXUS
ÁRSKORT
Í BOÐI VERÐ FRÁ
4.990
KR.
Nánari upplýsingar á smarabio.is/biokort
UPPLIFUN Í JÓLAGJÖF
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 936