Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 83

Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 83
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Ásta Kristrún og Valgeir byrjuðu á þjóðmenningar-stundum á heimili sínu í Reykjavík en eftir að þau fluttu til Eyrarbakka hafa þau gengið alla leið í því að rifja upp kynjaverur og vætti úr íslenskum þjóðsögum. „Þegar við Valgeir hófum að bjóða árstíðartengdar menningar- stundir eins og rökkur-aðventu og nýársdagskrár varð bók Árna Björnssonar, Saga daganna, eins konar biblía fyrir okkur. Þegar við tölum um hefðir á þessum árstíma sem tengjast aðventunni og nýju ári leika rökkrið og kuldinn stór hlutverk,“ upplýsir Ásta. „Árstíðirnar búa allar yfir sér- tækum siðum og venjum sem byggja að stórum hluta á nátt- úrunni og gangi himintunglanna. Við getum til dæmis farið langt aftur í aldir til að forvitnast og fræðast um jólahefðir, jafnt í öðrum heimsálfum sem hér heima á Íslandi. Áhrif trúarbragða bæði í öðrum löndum og hjá okkur á tímum heiðni og ásatrúar er fróð- legur kafli að skyggnast inn í,“ bætir Ásta við en þau hjónin hafa unnið með Húsinu, Byggðasafni Árnesinga, Eyrarbakkakirkju og Rauða húsinu. Þau fá hópa í heim- sókn, jafnt Íslendinga sem erlenda ferðamenn. Elsta jólatréð „Undirbúningur og gerð þessara stunda hafa skilað sér í aukinni þekkingu á þjóðfræði. Við vissum til að mynda ekki að hugsanlega megi rekja tilurð jólatrjáa til Skiln- ingstrésins úr Biblíunni og að hið sígræna eðli barrtrjáa framkall- aði dulúð sem leiddi til ákveðins heilagleika þeirra. Við vissum heldur ekki hvað jólatréshefðin er samt ung. Til að byrja með var það aðeins fyrirfólk í útlöndum sem kom slíkum djásnum fyrir á heimilum sínum. Á Íslandi var fátt um barrtré og þegar hefðin hófst í þéttbýli voru það gervitré sem hófu innreið sína inn á heimilin. Til sveita var erfitt um vik að kaupa slíkan munað og þá hófst jólatrjáasmíðin. Upphár lurkur var þá jafnan tálgaður og í hann gerð göt sem prik eða greinar voru sett í og þar sem lyng var að finna var það tekið til að auka á trjástemm- inguna,“ útskýrir Ásta en árlega er haldin jólatréssýning Hússins á Eyrarbakka þar sem er jólatré sem talið er vera það elsta á landinu. Jólasveinarnir hafa líka verið þeim hjónum hugleikin. Sérstak- lega eftir að þau áttuðu sig á því að þeir væru mun fleiri en talið var. Þeir voru eitt sinn jólasveinar einn og átta en síðan þrettán þegar við teljum fram til jóla. Árni Björns- son telur hæglega eina sjötíu og þá er ljóst að þeir sem eru hvað mest hrollvekjandi hafa lotið í lægra haldi í þjóðarsáttinni um hina þrettán sem við meðtökum sem haldbæra fulltrúa. Lungna- slettir er einna óhugnanlegastur af þeim sem voru látnir víkja og svo er Faldafeykir auðvitað engan veginn við hæfi á tímum MeToo- byltingarinnar,“ segir Ásta. Fangar í jólasveinavinnu Svo skemmtilega vill til að með stuðningi Árborgar ætla Eyrbekk- ingar að lífga við 15-20 jólasveina eða vætti með því að birta nöfn þeirra á jafnmörgum ljósastaurum í þorpinu. „Fangelsið verður okkar jólasveinaverkstæði og þar verða trjáskilti smíðuð og í þau greipt nöfn sem verða fyrir valinu í fyrstu umferð. Sveinkana munum við setja á heimasíður samstarfsaðila Bakkastofu í þorpinu og segja frá hvaða hlutverkum þessir skelfandi jólasveinar gegndu til að hafa hemil á landanum í myrkri fyrr á tímum,“ segir Ásta en verkefnið er afar áhugavert og ætti að draga Íslendinga í bíltúr til að skoða djásnin. Álfar og huldufólk Ásta og Valgeir eru með rökkur- og aðventudagskrá í Bakkastofu og ætla að halda áfram yfir nýárið þegar álfar og huldufólkið taka við. „Þá erum við ekki að tala um einhverja búra heldur verur sem líkjast fríðu og tígulegu mann- fólki og býr í klettum, hólum og steinum. Birtingarmynd og hegðan þeirra er önnur en okkar. Til dæmis eru þessar verur ekki sýnilegar nema sumum eða þegar þær kjósa að láta sjá sig. Öll þjóðtrú býr þó yfir markmiðum því eins og við þekkjum þá reynast álfar og huldufólk vel þeim sem veita þeim aðstoð en vinna mein þeim sem híbýlum þeirra raska. Búseta þeirra er sjálf náttúran og til varnar henni er okkur innrætt að skaða hana ekki því ella getum við kallað yfir okkur alls kyns ógæfu. Hér er því skýrt náttúru- verndarsjónarmið fólgið í trú okkar á álfa- og huldufólk,“ segir Ásta en nánar má skoða dagskrá á heimasíðu Bakkastofu. Jólavættir allt um kring Ásta Kristrún Ragnarsdóttir og Valgeir Guðjónsson tónlistarmaður hafa fallið fyrir þjóðmenningarsögu Íslendinga og tengja hana ýmsum vættum, siðum og venjum. Þessa dagana leggjast þau yfir gamla jólasiði með gestum sínum. Valgeir og Ásta taka á móti aðventunni með mikilli gleði. Hún klæðist kjól frá ömmu sinni og hann er með biskupstrefil um hálsinn. Þau lifa sig inn í þjóðsögurnar með gestum sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Jólaskrautið er gamalt og virðulegt. Hér er mynd af Ólöfu Árnadóttur sem nú er látin að virða fyrir sér jólatré frá æskuheimili sínu, Odd- geirshólum í Flóa. Myndin er tekin í Hrunakirkju en móðir Ólafar, Elín Briem Stein- dórsdóttir húsfreyja, gaf safninu tréð. Þessi fallegi gripur sem Ásta sýnir hér á sér sögu. „Þetta er rússnesk timbur- kirkja á tveimur hæðum sem hvor um sig snýst í hringi þegar kveikt er á kertunum því þá fara spaðarnir á turninum að snúast. Á efri hæðinni eru hirðingjarnir með dýrin sín en á þeirri neðri Jesú barnið, María og Jósef og vitr- ingarnir mynda þar hring í kring um þau með gjafir sínar. Ég var svo lánsöm fyrir um 25 árum að heimsækja rússneskt klaustur og heillaðist þá af því sem munkarnir ýmist bjuggu til eða seldu í rússneskum anda. Kirkjuna fann ég reyndar hér heima skömmu eftir heim- komuna en tengi hana þó alltaf við klaustrið góða og viðheldur minningu og sögum því tengdu.“ Holtasmára 1 201 Kópavogur (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5464 NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS SMART JÓLAFÖT, FYRIR SMART KONUR JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 962
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.