Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 113

Fréttablaðið - 26.11.2019, Side 113
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Já, ég er svolítið jólabarn, hljómar kannski eins og klisja en ég elska að kveikja á kertum, jólaseríum og jólamyndum og hafa um leið svolítið huggulegt heima hjá mér í desember,“ svarar Hanna Lind þegar hún er spurð hvort hún sé mikið jólabarn. Bakað af kærleik Hanna hefur um árabil leitast við að gefa ástvinum gjafir sem eru bæði gagnlegar og umhverf- isvænar. „Ég byrjaði að gefa vinum og vandamönnum eitthvað ætt í jólagjöf þegar ég flutti heim frá Bandaríkjunum. Var að reyna að sporna við svona neyslupælingum og gefa fólki eitthvað sem hverfur (ofan í munninn á þeim) en ekki upp í hillu eða skáp.“ Með móðurhlutverkinu eignaðist Hanna svo samstarfsfélaga og eiga þau mæðgin núna gæðastundir saman við baksturinn. „Svo eignast ég Emil og hann er þessi mikli áhugamaður um allt sem gerist í eldhúsinu svo það gerðist bara náttúrulega að hann væri síðan með mér í þessu þegar hann fór að hafa vit til.“ Hanna og Emil bjuggu til girni- legar smákökur sem þau kalla einfaldlega „skjaldbökur“. Upp- skriftin hefur fylgt Hönnu á milli heimsálfa en hefur þó undanfarið tekið smávægilegum breytingum. „Upp- skriftinni kynntist ég þegar ég bjó úti í New York en þar er bakkelsi svo rosalega djúsí, það er ekkert hálfkák þegar kemur að sykri og smjöri. En ég hef síðan aðeins breytt henni til Gæðastund við skjaldbökubakstur Hanna Lind Jónsdóttir býr ásamt manni og tveimur sonum í Laugarnesinu. Hanna, sem er listmeðferðarfræðingur, nýtur þess að baka með syni sínum, Emil Snorra, í aðdraganda jólanna og er jólabaksturinn nú orðinn að hefð. Hanna Lind og Emil Snorri njóta þess að baka saman. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Skjaldbökurnar eru mikið lostæti og tilvalið að baka þær fyrir jólin ásamt börnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR að friða samviskubitið, nota pálmasykur og spelt og eitthvað í staðinn.“ Hanna ráðleggur fólki að slaka á og reyna að njóta sín við jólabakstur- inn. „Mín helstu ráð þegar kemur að jólabakstri er að gera þetta í rólegheitunum með góða tónlist á og eitthvað gott að drekka, þannig að þetta sé skemmtilegt en ekki stressandi.“ SMÁKÖKUSKJALDBÖKUR HÖNNU OG EMILS 1 bolli fínmalað spelt ⅓ bolli kakóduft ¼ tsk. salt 120 g smjör ⅔ bolli pálmasykur 1 stórt egg 2 msk. hafrarjómi (eða kúamjólk) 1 tsk. vanilludropar 1 bolli pekanhnetur Karamellan 12-14 rjómatöggur (fer eftir því hve mikla karamellu fólk vill á kökurnar) og ½ tsk. vatn. Aðferð Þeytið saman sykur og smjör þar til það er létt og leikandi, þegar það er klárt setjið eggja- rauðuna, hafra rjómann (eða mjólkina) og vanillu- dropana saman við líka. Blandið svo saman hveiti, kakói og salti í aðra skál og bætið við smjörblönduna hægt og rólega þar til deigið er orðið þétt. Kælið deigið í 1-2 tíma í ísskáp (kælingin er mikil- væg svo auðveldara sé að móta kökurnar og gerir þær líka seigari). Þeytið svo eggjahvítuna þar til hún freyðir aðeins, setjið smátt saxaðar pekanhneturnar í grunna skál, takið deigið út og rúllið í litlar kúlur notið svo kúptu hliðina á minnstu mæliskeiðinni til að gera dæld í kúluna, dýfið þeim svo fyrst í eggjahvítuna og svo pekanhneturnar áður en þið raðið þeim á smurða plötu eða smjörpappír. Kökurnar bakast á 175 gráðum í 10-12 mínútur. Varist of bakstur þar sem þær harðna líka þegar þær kólna. Bræðið karamellurnar með vatn- inu við mjög lágan hita á meðan kökurnar bakast og þegar þær hafa aðeins kólnað fyllið þá miðjuna á kökunum með karamellubráðinni. Að lokum má skvetta hvítu og dökku súkkulaði ásamt sjávarsalti yfir allt saman til að gera þær enn þá fallegri og gómsætari. Þú velur þá upphæð sem þú vilt á gjafakort Salarins og getur svo bætt við árskorti fyrir tvo á Gerðarsafn fyrir aðeins 3.000 kr. Salurinn GerðarsafnGjafakortin eru seld í Salnum og á Gerðarsafni í Kópavogi. Gefðu hughrif Gjafakort í Salinn og Gerðarsafn er sönn upplifun fyrir unga sem aldna JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 992
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.