Fréttablaðið - 26.11.2019, Síða 113
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Já, ég er svolítið jólabarn, hljómar kannski eins og klisja en ég elska að kveikja á kertum,
jólaseríum og jólamyndum og
hafa um leið svolítið huggulegt
heima hjá mér í desember,“ svarar
Hanna Lind þegar hún er spurð
hvort hún sé mikið jólabarn.
Bakað af kærleik
Hanna hefur um árabil leitast við
að gefa ástvinum gjafir sem eru
bæði gagnlegar og umhverf-
isvænar. „Ég byrjaði að gefa
vinum og vandamönnum
eitthvað ætt í jólagjöf
þegar ég flutti heim frá
Bandaríkjunum. Var að
reyna að sporna við svona
neyslupælingum og gefa
fólki eitthvað sem hverfur
(ofan í munninn á þeim) en ekki
upp í hillu eða skáp.“
Með móðurhlutverkinu
eignaðist Hanna svo
samstarfsfélaga og
eiga þau mæðgin núna
gæðastundir saman við
baksturinn. „Svo eignast
ég Emil og hann er þessi
mikli áhugamaður um allt
sem gerist í eldhúsinu svo það
gerðist bara náttúrulega að hann
væri síðan með mér í þessu þegar
hann fór að hafa vit til.“
Hanna og Emil bjuggu til girni-
legar smákökur sem þau kalla
einfaldlega „skjaldbökur“. Upp-
skriftin hefur fylgt Hönnu
á milli heimsálfa en
hefur þó undanfarið
tekið smávægilegum
breytingum. „Upp-
skriftinni kynntist ég
þegar ég bjó úti í New
York en þar er bakkelsi
svo rosalega djúsí, það
er ekkert hálfkák þegar
kemur að sykri og smjöri. En
ég hef síðan aðeins breytt henni til
Gæðastund við
skjaldbökubakstur
Hanna Lind Jónsdóttir býr ásamt manni og tveimur sonum í Laugarnesinu.
Hanna, sem er listmeðferðarfræðingur, nýtur þess að baka með syni sínum,
Emil Snorra, í aðdraganda jólanna og er jólabaksturinn nú orðinn að hefð.
Hanna Lind og Emil Snorri njóta þess að baka saman. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Skjaldbökurnar eru mikið lostæti og tilvalið að baka þær fyrir jólin ásamt börnunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
að friða samviskubitið, nota
pálmasykur og spelt og
eitthvað í staðinn.“
Hanna ráðleggur fólki
að slaka á og reyna að
njóta sín við jólabakstur-
inn. „Mín helstu ráð þegar
kemur að jólabakstri er að
gera þetta í rólegheitunum
með góða tónlist á og eitthvað
gott að drekka, þannig að þetta sé
skemmtilegt en ekki stressandi.“
SMÁKÖKUSKJALDBÖKUR
HÖNNU OG EMILS
1 bolli fínmalað spelt
⅓ bolli kakóduft
¼ tsk. salt
120 g smjör
⅔ bolli pálmasykur
1 stórt egg
2 msk. hafrarjómi
(eða kúamjólk)
1 tsk. vanilludropar
1 bolli pekanhnetur
Karamellan
12-14 rjómatöggur (fer eftir því
hve mikla karamellu fólk vill á
kökurnar) og ½ tsk. vatn.
Aðferð
Þeytið saman sykur og
smjör þar til það er létt
og leikandi, þegar það
er klárt setjið eggja-
rauðuna, hafra rjómann
(eða mjólkina) og vanillu-
dropana saman við líka.
Blandið svo saman hveiti, kakói
og salti í aðra skál og bætið
við smjörblönduna hægt
og rólega þar til deigið er
orðið þétt.
Kælið deigið í 1-2 tíma í
ísskáp (kælingin er mikil-
væg svo auðveldara sé að
móta kökurnar og gerir þær
líka seigari).
Þeytið svo eggjahvítuna þar til hún
freyðir aðeins, setjið smátt saxaðar
pekanhneturnar í grunna skál,
takið deigið út og rúllið í litlar kúlur
notið svo kúptu hliðina á minnstu
mæliskeiðinni til að gera dæld í
kúluna, dýfið þeim svo
fyrst í eggjahvítuna og
svo pekanhneturnar
áður en þið raðið
þeim á smurða plötu
eða smjörpappír.
Kökurnar bakast
á 175 gráðum í
10-12 mínútur. Varist
of bakstur þar sem þær
harðna líka þegar þær kólna.
Bræðið karamellurnar með vatn-
inu við mjög lágan hita á meðan
kökurnar bakast og þegar þær hafa
aðeins kólnað fyllið þá miðjuna á
kökunum með karamellubráðinni.
Að lokum má skvetta hvítu og
dökku súkkulaði ásamt sjávarsalti
yfir allt saman til að gera þær enn
þá fallegri og gómsætari.
Þú velur þá upphæð sem þú vilt á gjafakort
Salarins og getur svo bætt við árskorti fyrir
tvo á Gerðarsafn fyrir aðeins 3.000 kr.
Salurinn GerðarsafnGjafakortin eru seld í Salnum og á Gerðarsafni í Kópavogi.
Gefðu
hughrif
Gjafakort í Salinn og Gerðarsafn er
sönn upplifun fyrir unga sem aldna
JÓL 2019 2 6 . N Ó V E M B E R 2 0 1 992