Morgunblaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
KRÍT 9. SEPTEMBERÍ 10 NÆTUR
Verð frá kr.
115.195
Verð frá kr.
87.945
Gríska eyjan
Síðustu sætin!
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Flestir nemendur í Hofsstaðaskóla í
Garðabæ komu gangandi eða hjól-
andi í skólann í gærmorgun, en þar
var átakið Göngum í skólann sett.
Því er ætlað að hvetja nemendur og
foreldra til að hjóla, ganga eða nota
annan ferðamáta en bíl til og frá
skóla. Þá er tilgangurinn að hvetja
til aukinnar hreyfingar og fræða
börn um heilsusamlegt líferni. Að
auki er markmiðið að draga úr um-
ferð við skóla og stuðla að betra og
hreinna lofti. Göngum í skólann
mun standa til 2. október og meðan
á átakinu stendur verður leitast við
að auka færni barna til að ganga á
öruggan hátt í skólann og kenna
reglur um öryggi á göngu og hjóli.
Á alþjóðlega vísu er október
helgaður Göngum í skólann og dag-
ur átaksins er 2. október. Vegna
birtuskilyrða og veðuraðstæðna er
verkefnið jafnan haldið hér á landi í
septembermánuði.
Við setningarathöfnina fluttu
þau Hafdís Bára Kristmundsdóttir,
skólastjóri Hofsstaðaskóla, Svandís
Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra,
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Sam-
göngustofu, Sigríður Björk Guð-
jónsdóttir lögreglustjóri, Þráinn
Hafsteinsson, varaforseti ÍSÍ, og
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri
Garðabæjar, ávörp.
Nemendur Hofsstaðaskóla komu
með eitt skópar hver til að setja á
gangstéttirnar að skólanum sem
nokkurs konar gjörning.
Skórnir verða síðan gefnir til
góðgerðarmála.
Allir gangi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Verð á amfetamíni hefur lækkað um
60% á síðustu 19 árum miðað við fast
verðlag í janúar 2019. Þetta segir
Þórarinn Tyrfingsson, fyrrverandi
formaður SÁÁ og yfirlæknir á Vogi.
Hann er einn þeirra sem hafa staðið
fyrir mánaðarlegri könnun á verð-
lagi ólöglegra fíkniefna í um 20 ár
sem lögð er fyrir sjúklinga á sjúkra-
húsinu Vogi. Er þar spurt hve marg-
ir þeirra hafi keypt slík efni og hvað
þeir greiddu fyrir þau.
Segir hann erfitt að segja til um
hvað valdi verðlækkun efnisins en
getur sér til um að auknar vinsældir
kókaíns hafi áhrif á markaðinn en að
hans sögn hefur kókaínneysla stór-
aukist á síðustu árum.
Þórarinn segir að gríðarleg fjölg-
un hafi orðið á síðustu árum í hópi
þeirra sjúklinga á Vogi sem háðir
séu örvandi fíkniefnum.
51% háðir örvandi efnum
„Tölurnar segja okkur að við höf-
um aldrei, hvorki tölu- né hlutfalls-
lega, fengið fleiri fíkla sem háðir eru
örvandi vímuefnum síðan við byrj-
uðum. 51% sjúklinganna greinist
með slíkan vanda,“ segir Þórarinn.
Hann segir að slíkur vandi skilgrein-
ist yfirleitt af því að vera háður am-
fetamíni eða öðrum skyldum efnum,
kókaíni og/eða e-pillum.
Samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ
er birtingarmynd örvandi vímuefna-
fíknar afar alvarleg og batahorfur
slíkra sjúklinga eru verri en kanna-
bis- og áfengissjúklinga. Vandinn
herjar auk þess mest á ungt fólk á
aldrinum 20-39 ára.
Þórarinn segir sérstaka hættu
steðja að ungu fólki sem skemmti sér
um helgar og byrji að nota örvandi
efni með áfengi. Segir hann að margt
bendi til að sá árangur, sem hafi orð-
ið í baráttu sveitarfélaganna gegn
vímuefnanotkun ungs fólks rétt eftir
aldamót, sé í hættu. Það sé algengur
misskilningur að aðeins illa sett börn
eða þau sem séu utangarðs leiti í
vímuefni.
Meðferð mikilvægasta vopnið
„Við eigum engin götubörn. Við
eigum bara vel stadda framhalds-
skólanema sem eru að skemmta sér í
Reykjavík. Það eru þeir sem eru út-
settir fyrir þessi örvandi efni,“ segir
hann. „Þetta eru bara heilbrigðir
krakkar sem eru að skemmta sér og
búa við gott atlæti með nóg af pen-
ingum.“
Þórarinn segir að geðrænir og lík-
amlegir fylgikvillar fíknar í örvandi
fíkniefni séu afar algengir og kalli á
aukinn viðbúnað þegar í meðferð sé
komið. Segir hann jafnframt áber-
andi að neytendur slíkra efna sæki
oft í róandi og verkjadeyfandi lyf til
að slá á aukaverkanir og fylgikvilla
sem fylgi örvandi neyslu, svo sem
svefntruflanir, kvíða og óróleika.
Þórarinn segir að viðbúnaður sem
sé til staðar í meðferð vímuefnasjúk-
linga hafi nánast ekkert aukist frá
aldamótum þrátt fyrir mikla fólks-
fjölgun. Margt bendi til þess að jafn-
vel hafi dregið úr honum vegna
skerðingar á þjónustu ríkisspítal-
anna á síðustu árum.
Segist hann telja að meðferðarúr-
ræði sé mikilvægasta vopnið gegn
vímuefnafíkn enda sé sjúkdómurinn
„smitandi“. Forvarnir segir hann að
fylgi þar fast á eftir en slíkar aðgerð-
ir skorti oft skýr markmið.
„Það sem líklega borgar sig er að
meðhöndla þá sem eru verst staddir í
vímuefnaneyslu og eru tannhjólin í
vímuefnamarkaðnum. Það er fólkið
sem er mjög veikt og þarf að selja
ungum neytendum sem eru að
skemmta sér vímuefni til þess að
geta haldið áfram að lifa sínu lífi og
taka sín vímuefni,“ segir Þórarinn.
51% sjúklinga á Vogi
háð örvandi efnum
Verð á amfetamíni hefur lækkað um 60% á 19 árum
Verð og notkun ólöglegra fíkniefna og lyfja
Samkvæmt könnun meðal innritaðra sjúklinga á sjúkrahúsinu Vogi
Verð á amfetamíni 2000-2019
Á verðlagi í janúar 2019 miðað
við vísitölu neysluverðs*
Kr./gramm
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
42% 41% 37%
28%
’00 ’01 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18 ’19
Verð á amfetamíni hefur lækkað
um 60% síðan árið 2000 ef
miðað er við vísitölu neysluverðs
853 sjúklingar sem neyttu
örvandi vímuefna
komu á Vog árið 2018
Meira en helmingur
sjúklinga á Vogi greinist
með vanda tengdan
örvandi vímuefnum,
þ.e. amfetamíni,
kókaíni eða e-töfl um
Vandinn herjar
mest á ungt fólk á
aldrinum 20-39 ára
51%
-60%
62% höfðu keypt
ólögleg fíkniefni
eða lyf*
62%
Tæp 53% höfðu
keypt örvandi
vímuefni*
53%
*Skv. könnun sem gerð var frá mars-júní 2019
Kókaín
og/eða
amfetamín
Kanna-
bisefni
(aðallega
gras)
Lyfseðils-
skyld lyf á
svörtum
markaði
Notuðu
kanna-
bisefni í
rafrettur
Algengustu fíkniefni sem aðspurðir
höfðu keypt/notað skv. könnun sem
gerð var frá mars-júní 2019
8.963 kr./g
3.448 kr./g
*Skv. könnun meðal innritaðra sjúklinga
á sjúkrahúsinu Vogi. Heimild: SÁÁ.
Stjórnendur Landspítalans og
fulltrúar úr heilbrigðisráðuneytinu
komu á fund fjárlaganefndar í gær
til að fara yfir hallarekstur spít-
alans. Willum Þór Þórsson, for-
maður fjárlaganefndar, segir að
fengist hafi skýrari mynd af þeim
kostnaðarfrávikum sem hafa átt
sér stað í rekstrinum. Hann segir
ljóst að meginuppistaða þessa
vanda sé launaliðurinn. „Uppsafn-
aður halli í þessum tölum frá fyrra
ári er upp á 1,3 milljarða og síðan
má segja að meginuppistaða þess
sem bætist við er launaliður og
dýrar vaktir á tilteknum sviðum
Landspítalans,“ segir Willum Þór.
Þá er talin þörf á ákveðnum
launabótum til spítalans sem
byggjast á samningum sem eruu
nú til umræðu á milli ráðuneyta
heilbrigðis og fjármála. Willum
segir að menn
verði að sjá hvað
út úr því kemur
en vandi spítal-
ans verður
áfram til mikillar
umfjöllunar í
fjárlaganefnd á
næstunni til að
fá sem gleggsta
mynd. Stjórnendur hans fóru yfir
boðaðar hagræðingaraðgerðir á
fundinum.
Stærðarumfang spítalans er
mikið og breytingar á einstökum
sviðum geta hlaupið á tugum eða
hundruðum milljóna kr. Meðal
þess sem kom fram er að samn-
ingur sem gerður var við Microsoft
um breytta skráningu í hverri
tölvu spítalans gæti kostað um 200
milljónir.
Launin meginuppi-
staða vanda spítalans
Microsoft-samningur kostar 200 millj.
Maðurinn sem lést í köfunarslysi í
Eyjafirði í gær var bandarískur
ferðamaður, 63 ára að aldri. Hann
lætur eftir sig eiginkonu.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Norðurlandi eystra
var maðurinn vanur kafari. Átti
slysið sér stað þegar verið var að
ljúka köfun að hverastrýtum sem
finna má í Eyjafirði. Maðurinn var
úrskurðaður látinn á sjúkrahúsinu
á Akureyri.
Ekki fengust í gær nánari upp-
lýsingar um tildrög slyssins en
það mun enn vera í rannsókn hjá
lögreglu. Í fyrradag unnu björg-
unaraðilar að því að endurheimta
köfunarbúnað mannsins. Er það
liður í rannsókn lögreglu á slys-
inu.
Hinn látni tilheyrði hópi fólks
sem var við köfun á svæðinu. Fjöl-
mennt lið björgunarmanna var
kallað út eftir að tilkynnt var um
slysið, meðal annars varðskip sem
þá var í nágrenninu.
Var með
hópi að kafa