Morgunblaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 53
MINNINGAR 53
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
✝ Lilja Kristjáns-dóttir fæddist
12. febrúar 1929 á
Hermundarfelli í
Þistilfirði. Hún lést
á Landakoti 27.
ágúst 2019. For-
eldrar Lilju voru
Kristján Einarsson
frá Garði, f. 6.2.
1875, d. 10.2. 1969,
og Sveinbjörg Pét-
ursdóttir, f. 6.5.
1895, d. 26.3. 1963.
Alsystkini Lilju voru Fjóla, f.
28.11. 1931, d. 23.8. 1975, og
Pálmi, f. 20.6. 1933, d. 17.11.
1997. Hálfsystkini Lilju í móð-
urætt voru Þórhallur, f. 29.1.
1914, d. 9.3. 1986, Friðbjörg, f.
26.2. 1917, d. 1.10. 2009, og
Steinunn, f. 29.3. 1921, d. 25.3.
2007. Faðir þeirra var Steinþór
Pálsson, f. 8.10. 1882, d. 30.3.
1937. Samfeðra Lilju voru Þór-
dís, f. 23.2. 1901, d. 14.12. 1986,
Páll, f. 17.4. 1909, d. 8.1. 1999,
og Einar, f. 26.10. 1911, d. 6.7.
1996. Móðir þeirra var Guðrún
Pálsdóttir frá Hermundarfelli, f.
1.9. 1880, d. 13.5. 1923.
Lilja giftist 19.5. 1953 Má Ár-
sælssyni stærðfræðikennara, f.
6.4. 1929, d. 11.8. 2013. Börn
2012, og Jóhann Bjarni, f. 21.6.
2016. c) Ágúst, f. 29.4. 1989.
4) Þórdís, f. 30.7. 1958,
sjúkraliði. Maki: Aðalsteinn
Stefánsson, flokksstjóri hjá
Reykjavíkurborg. Börn þeirra
eru: a) Hildur, f. 15.11. 1983.
Maki: Eiður Gunnar Bjarnason.
Synir þeirra eru: Bjarni Gunnar,
f. 27.4. 2002, og Emil Fannar, f.
25.9. 2005. b) Valný, f. 2.6. 1985.
Maki: Hannes Olauson. Sonur
þeirra er Aron Hrafn, f. 26.01.
2018. c) Ottó Freyr, f. 14.9. 1989.
d) Aðalheiður, f. 7.3. 1998. Kær-
asti hennar er Steinþór Stef-
ánsson.
5) Ottó, f. 13.1. 1965, heim-
spekingur og bóksali. Synir
hans eru: a) Már, f. 28.1. 1992. b)
Bjarni, f. 23.1. 1996.
Lilja fæddist og ólst upp á
Hermundarfelli fram yfir ferm-
ingu. Hún lauk landsprófi 1947
og fór seinna í öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahlíð
og útskrifaðist 1980. Hún var
útivinnandi í hálfu starfi í um tíu
ár meðfram heimilisstörfunum.
Eftir stúdentspróf fór hún að
vinna hjá Lyfjaverslun ríkisins,
en þar hafði hún unnið áður.
Lilja starfaði í Kvenfélagi
sósíalista og var þar í stjórn um
árabil. Ennfremur var hún full-
trúi félagsins í Víetnamnefnd-
inni þann tíma sem nefndin
starfaði, frá 1972-1975.
Útför Lilju fer fram frá Ás-
kirkju í dag, 5. september 2019,
klukkan 13.
Lilju og Más eru:
1) Áskell, f. 21.11.
1953, tónskáld.
Maki: Sigríður
Búadóttir hjúkr-
unarfræðingur.
Dóttir Áskels er
Margrét, f. 4.11.
1984. Maki: Leifur
Björnsson. Dóttir
þeirra er Sesselía
Úa, f. 25.4. 2010.
2) Ársæll, f.
20.1. 1955, framhaldsskóla-
kennari. Sambýliskona: Mar-
grét Pálsdóttir málfræðingur.
Börn Ársæls eru: a) Lilja, f.
24.6. 1979. Maki: Jón Freyr
Benediktsson. Börn þeirra eru:
Benedikta, f. 9.1. 2006, og
Mikael Karl, f. 1.4. 2013. b)
Teitur, f. 28.2. 1983. c) Bene-
dikta, f. 13.3. 1990. Sambýlis-
maður: Jonathan Baker.
3) Karólína Margrét, f. 17.3.
1956, grunnskólakennari.
Maki: Stefán Jóhannsson,
sérfræðingur við HA. Synir
þeirra eru: a) Baldur Már, f.
30.9. 1982. Sambýliskona: Anna
Marie Lárusdóttir. b) Andri
Snær, f. 18.4. 1986. Maki: Krist-
ín Hanna Bjarnadóttir. Synir
þeirra eru: Sölvi Snær, f. 3.9.
Móðir mín fæddist á Her-
mundarfelli í Þistilfirði. Hún
gekk í Svalbarðsskóla og var
skólagangan fáeinar vikur yfir
sumartímann, í þrjú eða fjögur
ár. Skömmu eftir fermingu fór
hún með strandferðaskipinu
Heklu til Reykjavíkur og fyrir
unga stúlkuna var það mikið æv-
intýri. Þórdís, eldri systir henn-
ar, var þá farin suður og var
vinnukona hjá Sigurði Nordal.
Hún hafði fengið vilyrði fyrir að
litla systir gæti fengið athvarf á
heimilinu. Sigurður sjálfur sá til
þess að hún gengi í skóla og
kenndi henni að rata um stór-
borgina Reykjavík. Mamma tók
svo landspróf 1947 í Gagnfræða-
skóla Reykjavíkur.
Þegar Sigurður Nordal fékk
sendiherrastöðu í Danmörku
vildi Ólöf kona hans fá Lilju með
sér sem stofustúlku þegar þau
flyttu út. Því fór mamma með
Gullfossi til Kaupmannahafnar
1951. Á skipinu kynntist hún
pabba, Má Ársælssyni, sem þá
lærði stærðfræði í Kaupmanna-
höfn. Þau giftu sig 19. maí 1953 í
Danmörku, og fluttu til Íslands
og fóru að búa hjá ömmu og afa,
foreldrum pabba, á Nýlendu-
götu 13. Þaðan fluttu þau á
Sundlaugaveg 28 árið 1957 og
síðan á Rauðalæk 33 sex árum
seinna, þannig að Laugarnes-
hverfið var uppeldismiðstöð
okkar eldri systkinanna. Fjöl-
skyldan flutti svo í Blönduhlíð 5
síðsumars 1970.
Þegar öldungadeild Mennta-
skólans við Hamrahlíð var stofn-
uð opnuðust gáttir fyrir marga
sem fram að þeim tíma höfðu
haft takmörkuð tækifæri til
menntunar. Mamma fór í öld-
ungadeildina og lauk stúdents-
prófi vorið 1980, á sama tíma og
Karólína dóttir hennar. Mamma
hafði verið útivinnandi í áratug
hjá ýmsum aðilum meðfram
heimilisstörfum áður en hún fór
í menntaskólann. Eftir stúd-
entsprófið fór hún að vinna hjá
Lyfjaverslun ríkisins, en þar
hafði hún unnið áður og líkað
vel.
Hugur mömmu hneigðist til
íslenskra fræða. Eitthvað varð
þess þó valdandi að hún fór ekki
í íslenskunám að stúdentsprófi
loknu, eins og hún hafði alltaf
stefnt að.
Ég þykist vita að mamma
hefði gjarnan þegið betri tæki-
færi til náms í því sem hún hafði
mest gaman af. Hún var bók-
hneigð, kunni aragrúa vísna og
fylgdist alla tíð vel með því sem
var að gerast í heiminum, allt
fram undir það síðasta.
Við systkinin eigum henni
mikið að þakka. Hjá henni
kynntumst við sjónarhornum og
lífsviðhorfum sem við búum að
alla ævi.
Ársæll Másson.
Lilja
Kristjánsdóttir
✝ Árný Rósa Að-alsteinsdóttir
fæddist 1. nóv-
ember 1955 á Berg-
staðastræti. Hún
lést á Landspít-
alanum, Hring-
braut, 31. ágúst
2019.
Foreldrar henn-
ar voru Jóhanna
Sigríður Árnadótt-
ir, f. 9. maí 1932, d.
19. janúar 2018, og Aðalsteinn
Björnsson, f. 26. júní 1930, d. 6.
mars 2013. Systkini hennar eru
þau Kristín Björk Aðalsteins-
dóttir, f. 27. júní 1950, d. 28.
mars 2008, og Björn Árni Að-
alsteinsson, f. 3. október 1966.
Sambýlismaður hennar var
Jóhannes Sigurhólm Stef-
ánsson, f. 2. desember 1945.
Eignuðust þau fjögur börn sam-
an, þau eru Hanna Gréta, f. 6.
júlí 1976, Guðný Lára, f. 27. jan-
úar 1979, Aðal-
steina, f. 23. sept-
ember 1983, d. 23.
apríl 1988, og Anna
Stefanía, f. 11. júní
1992.
Barnabörn: börn
Hönnu Grétu eru
Aðalsteina Líf
Kjartansdóttir, f.
30. ágúst 1994, Jó-
hannes Sigurhólm
Kristinsson, f. 14.
janúar 2000, og Ármann Sig-
urhólm Larsen, f. 9. október
2008. Börn Guðnýjar Láru eru
Kristinn Sigurhólm Einarsson,
f. 1. mars 2001, og Valgeir Árni
Einarsson, f. 16. febrúar 2008.
Árný ólst upp í Skerjafirði og
gekk í Hagaskóla. Hún vann ým-
is störf um ævina, meðal annars
við umönnun aldraða.
Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju í dag, 5. sept-
ember 2019, klukkan 15.
Ástkær móðir, sambýliskona,
systir, amma og frænka. Nú ert
þú að kveðja þennan heim eftir
langvarandi veikindi en einungis
stutta baráttu við illvígan sjúk-
dóm sem tók þig frá okkur allt of
snemma.
Elskulegi kletturinn okkar, við
kveðjum þig með miklum söknuði
í hjarta og vitum það að þú ert
komin á betri stað. Er við hugs-
um til þín minnumst við þess
hvað þú varst ávallt til staðar fyr-
ir okkur öll, sama hver það var,
þú tókst opnum örmum á móti
öllum sem heim komu og ávallt til
í að skella í smá kaffistund með
þínum heimsfrægu pönnukökum.
Ef eitthvað bjátaði á gat maður
ávallt leitað til þín og þú með alls
kyns lausnir, enda aldrei úrræða-
laus.
Þú munt ávallt eiga heima í
okkar hjörtum og erum við þakk-
lát fyrir þessi mörgu ár sem við
höfum fengið með þér en nú hef-
ur hún Allý okkar kallað þig til
sín og þarf á þér að halda. Við er-
um sannfærð um að allir aðrir
sem nánir okkur eru og farnir
munu taka mjög vel á móti þér og
að þú vakir yfir okkur sem eftir
stöndum. Hér erum við að skrifa
þessa grein og áttum okkur á því
að þú sást alltaf um þessi mál og
ritunarhæfileikar okkar lágu
einna helst hjá þér. Við munum
minnast þín með hlátri, um-
hyggju og að sjálfsögðu gleði í
hjarta.
Við ætlum nú að kveðja þig og
fagna ævi þinni. Minningar lifa
lengi í hjarta og huga og þær
munu sko hanga á veggjum hjá
okkur.
Við munum hugsa vel um
hvert annað og sjá til þess að
minning þín verði heiðruð. Við
sjáum á eftir þér með sorg í
hjarta og með von um að þú sért
komin á betri stað umvafin hlýj-
um örmum. Að sinni verður þetta
ekki lengra og við munum frekar
ræða málin er við heimsækjum
þig í kirkjugarðinn eða við mat-
arborðið á sunnudögum. Við
munum að sjálfsögðu fagna æv-
inni með því að bjóða ástvinum
þínum og okkar upp á þínar
heimsfrægu pönnukökur og von-
andi mun okkur takast jafn vel til
og þér. Við elskum þig til tungls-
ins og til baka.
Mamma.
Þú ert gull og gersemi, góða besta
mamma mín.
Dyggðir þínar dásami, eilíflega dóttir
þín.
Vandvirkni og vinnusemi væntumþykja
úr augum skín.
Hugrekki og hugulsemi og huggun
þegar hún er brýn.
Þrautseigja og þolinmæði – kostir sem
að prýða þig.
Bjölluhlátur, birtuljómi, barlóm, lætur
eiga sig.
Trygglynd, trú, já algjört æði.
Takk fyrir að eiga mig.
Þínar dætur
Hanna Gréta, Guðný Lára
og Anna Stefanía.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem)
Jóhannes, Björn Árni, Anna
Stefanía, Hanna Gréta,
Guðný Lára, Aðalsteina Líf,
Jóhannes Sigurhólm, Ár-
mann Sigurhólm, Kristinn
Sigurhólm og Valgeir Árni.
Árný Rósa
Aðalsteinsdóttir
✝ Steinn Guð-mundsson frá
Mykjunesi í Holtum
í Rangárvallasýslu,
lengst af búsettur í
Goðheimum 19 í
Reykjavík, fæddist
19. júní 1921. Hann
lést 22. ágúst 2019.
Foreldrar hans
voru Guðmundur
Tómasson bóndi, f.
í Miðkrika í Hvol-
hreppi 11. maí 1884, d. 2. desem-
ber 1963, og Gróa Einarsdóttir
húsfreyja, f. í Reykjavík 22.
september 1890, d. 24. mars
1988. Systkini hans eru Einar, f.
22. júlí 1910, d. 29. júlí 1910,
Magnús, f. 16. janúar 1918, d.
15. ágúst 1995, og Kristín, f. 1.
maí 1924.
Steinn giftist 12. maí 1951
brún, f. 23. júlí 1956, sem gift er
Jóni Elvari Björgvinssyni, f. 11.
júní 1948, og eru börn þeirra
Trausti Elvar, f. 13. maí 1977,
Davíð Arnar, f. 18. desember
1984, og Arnfríður Ósk, f. 8.
mars 1993; Guðmundur, f. 10.
júlí 1961, og stjúpsonur hans er
Daníel Freyr Gunnlaugsson, f.
16. febrúar 1979, og dætur
Svava Dögg, f. 7. maí 1988, og
Sóley, f. 23. desember 1994,
móðir þeirra: Ásta Einarsdóttir,
f. 7. október 1957; og Berglind,
f. 29. október 1965. Barnabarna-
börn Steins og Svövu eru sex.
Steinn vann öll algeng störf
til sjós og lands sem ungur mað-
ur og þar á meðal um skeið hjá
breska hernum eftir að hann
kom til landsins á stríðsárunum.
Hann lærði rafvirkjun og vann
síðan sem rafvirki og rafvirkja-
meistari með eigið fyrirtæki.
Eftir að hann seldi fyrirtækið
varð hann yfirdyravörður í
Glæsibæ.
Útför Steins fer fram frá
Fossvogskapellu í dag, 5. sept-
ember 2019, klukkan 13.
Svövu Daníels-
dóttur frá Gutt-
ormshaga í Holtum
í Rangárvallasýslu,
f. 31. desember
1927, d. 13. janúar
2018. Foreldrar
hennar voru Daníel
Daníelsson bóndi, f.
í Kaldárholti í Holt-
um 8. nóvember
1880, d. 10. apríl
1932, og Guðrún
Sigríður Guðmundsdóttir hús-
freyja, f. í Miðkrika í Hvolhreppi
12. september 1885, d. 2. sept-
ember 1977.
Börn þeirra eru Trausti, f. 2.
júlí 1950, og börn hans eru
Adam Freyr, f. 20. janúar 2000,
og Salka María, f. 11. september
2001, móðir þeirra: Maria Anna
Maríudóttir, f. 26. júlí 1966; Kol-
Pabbi var ekki maður margra
orða, svona oftast nær, en þau
sem hann las og lærði lagði
hann á minnið. Á það reyndi hin
síðari ár þegar hann var mikið
búinn að missa heyrn og lá
löngum stundum fyrir án þess
að vilja lesa eða horfa á sjón-
varp. Heilu ljóðabálkarnir
runnu upp úr honum fyrirhafn-
arlaust sem og söguþræðir Ís-
lendingasagna sem hann hafði
ekki lesið áratugum saman.
Minni hans almennt var líka
óbrigðult fram á síðasta dag og
alltaf vissi hann um það helsta í
þjóðmálunum.
Ein lífseigasta æskuminning
okkar systra er frá laugardög-
unum þegar við borðuðum salt-
fisk í hádeginu og spiluðum svo
vist með Gróu ömmu á vöktum
til miðnættis. Glúrnari spila-
maður en pabbi er vandfundinn
og ef hægt var að fella í hálfri
gerði hann það. Spilamennska
reyndist okkur líka drjúg af-
þreying síðustu árin hans.
Spiladísin virtist alltaf vera í
hans liði, hvort sem við spil-
uðum vist, sjöu eða ólsen ólsen.
Þaðan tökum við margar dýr-
mætar minningar inn í framtíð-
ina, nú þegar hann er farinn í
græna landið til mömmu. Þau
sigldu sinn úfna sæ í hjóna-
bandi í 66 ár og átta mánuði,
saman í 70 ár, og undanfarið
eitt og hálft ár hefur aðskiln-
aður þeirra verið honum þung-
bær.
Pabbi sagðist stundum vera
„bara rafvirki“ en okkur finnst
ekkert bara við það að vera raf-
virki og laghentur við allt. Í
geymslunni átti hann flest sem
mann vanhagaði um, hvort sem
um var að ræða smæstu skrúfu
eða tengla, dósir og snúrur, og
alltaf mætti hann með upp-
brettar ermar ef maður þurfti.
Hann rak rafvirkjaþjónustu í
nokkra áratugi og við höfum
lesið bréf frá viðskiptavinum
hans sem bera vott um vand-
virkni hans, fagmennsku og líka
sanngirni í bæði verðlagningu
og innheimtu. En aldrei hreykti
hann sér af verkum sínum.
Hann hafði góða menn í vinnu
enda er sagt að líkur sæki líkan
heim. Hann var alinn upp í
nægjusemi og honum var eig-
inlegt að fara vel með. Fyrstu
árin sem rafvirki fór hann hjól-
andi í allar vitjanir með verk-
færakassann á bögglaberanum.
Pabbi sinnti af natni öllu við-
haldi á Goðheimunum meðan
þau bjuggu þar, málaði húsið –
og þakið líka sem við vorum
ekkert of hressar með þegar
hann var kominn yfir áttrætt –
sló grasið og gróðursetti tré.
Hann var mikill verkmaður en
kunni líka að hvíla sig og tók
ekki mikinn þátt í inniverkun-
um fyrr en hann fór að sjá um
mat handa þeim mömmu þegar
hann var kominn undir áttrætt.
Hann var mikill glímukappi á
sínum yngri árum en alltaf hóg-
vær yfir afrekum sínum. Við
þurfum að skoða verðlaunapen-
ingana sem hann varðveitti eins
og sjáöldur augna sinna til að
átta okkur á hversu mikill af-
reksmaður hann var.
Þótt pabbi hafi verið orðinn
98 ára er kveðjustundin sárs-
aukafull. Við munum æðruleysi
hans. Hann var hraustur maður
en þegar fór að halla undan fæti
á ævikvöldinu kvartaði hann
ekki heldur þakkaði fyrir að
vera verkjalaus og gerði allt til
að halda sjálfstæði sínu. Þegar
maður hefur átt foreldra sína
lengi eru viðbrigðin mikil og við
eigum eftir að sakna pabba sárt
eins og við söknum mömmu.
Þínar elskandi dætur,
Berglind og Kolbrún.
Steinn
Guðmundsson
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MARGRÉTAR SVEINSDÓTTUR
áður Baldursgötu 26.
Innilegar þakkir til starfsfólks Hrafnistu
Laugarási fyrir umhyggju og umönnun.
Gunnar V. Guðmundsson Pétrína Ó. Þorsteinsdóttir
Karl B. Guðmundsson Guðrún Vilhjálmsdóttir
Björgvin G. Guðmundsson Hildur Pálmadóttir
Þórir B. Guðmundsson Hafdís Ingimundardóttir
barnabörn og langömmubörn
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru vin-
samlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Smellt á
Morgunblaðslógóið í hægra
horninu efst og viðeigandi liður,
„Senda inn minningargrein,“
valinn úr felliglugganum. Einn-
ig er hægt að slá inn slóðina
www.mbl.is/sendagrein
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðju-
degi).
Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar
sem birtast í Morgunblaðinu
séu ekki lengri en 3.000 slög.
Ekki er unnt að senda lengri
grein. Lengri greinar eru ein-
göngu birtar á vefnum. Hægt
er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 lín-
ur. Ekki er unnt að tengja við-
hengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu að-
standendur senda inn. Þar
koma fram upplýsingar um
hvar og hvenær sá sem fjallað
er um fæddist, hvar og hvenær
hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram.
Þar mega einnig koma fram
upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn. Ætlast
er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er
feitletraður, en ekki í
minningargreinunum.
Minningargreinar