Morgunblaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 72
72 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Veldu öryggi
SACHS – demparar
ÞAÐ BORGAR SIG AÐ NOTA ÞAÐ BESTA
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Samfélagsádeila er rauði þráðurinn
í nær öllum sýningum okkar á kom-
andi starfsári,“ segir Friðrik Frið-
riksson, framkvæmdastjóri Tjarnar-
bíós. „Alls verða 14 sýningar settar
upp í Tjarnarbíói í ár auk þess sem
við hýsum innlendar og erlendar
gestasýningar, uppistand, tónleika
og ýmsa aðra viðburði. Einnig erum
við í góðu samstarfi við ýmsar
listahátíðir, sem er mikilvægt fyrir
okkur. Fyrir áramót verða Reykja-
vík Jazz Festival, Reykjavík Dance
Festival og sviðslistahátíðina Lókal
með viðburði hér í Tjarnarbíói,“
segir Friðrik og bendir á að meðal
þess sem sýnt verði á Lókal, sem
hefst 14. september, sé opnunar-
atriði sem Snæfríður Gunnarsdóttir,
nýútskrifaður sviðslistahöfundur,
stýrir, og sýningarnar Saga biðraða
eftir Aðalbjörgu Þóru Árnadóttur og
Ylfu Ösp Áskelsdóttur og Snitsel eft-
ir Janus Braga Jakobsson og Loja
Höskuldsson. „Eftir áramót verða
Reykjavík Dance Festival, Lista-
hátíð í Reykjavík og Assitej Barna-
menningarhátíð með sýningar hér,“
segir Friðrik.
Dansrevía um konuna
Starfsárið í Tjarnarbíói hófst í síð-
asta mánuði með frumsýningu sviðs-
listahópsins Sálufélaga á
Independent Party People. „Höf-
undar og flytjendur eru Davíð Þór
Katrínarson, Jónmundur Grétars-
son, Nína Hjálmarsdóttir og Selma
Reynisdóttir, en leikstjóri er Brogan
Davison. Í sýningunni takast þau á
við málefni líðandi stundar og skoða
markaðssetninguna á Íslandi og við-
horf okkar til fólks með annað litar-
haft en hvítt,“ segir Friðrik og bend-
ir á að næsta sýning verði 13.
september. „Sem helgast af því að
Nína og Selma fluttu stuttu eftir
frumsýningu til útlanda í nám og
koma sérstaklega heim til að sýna.“
Sviðslistahópurinn Íslandsdeild
stofnunar um endurnýttar vænt-
ingar frumsýnir 10. október Endur-
minningar Valkyrju eftir Ásgeir
Helga Magnússon, Cameron Cor-
bett, Sigríði Eyrúnu Friðriksdóttur
og Sigurð H. Starr Guðjónsson.
„Þarna er um að ræða dragfögnuð til
heiðurs kvenhetjunni kynngimögn-
uðu Brynhildi,“ segir Friðrik og vís-
ar þar til Brynhildar Buðladóttur
sem þekkt er úr Völsunga sögu.
„Þetta er dansrevía þar sem birting-
armynd konunnar er skoðuð út frá
draginu.“
Leikið við svínsskrokk
Rocky nefnist verk eftir Tue Bier-
ing í leikstjórn Vignis Rafns Val-
þórssonar sem leikhópurinn Óska-
börn ógæfunnar frumsýnir 17.
október með Svein Ólaf Gunnarsson
í hlutverki. „Hér er um að ræða ein-
leik sem vakti mikla athygli í Dan-
mörku þegar verkið var frumsýnt
haustið 2017, enda felur það í sér
beitta samfélagsádeilu. Biering hlaut
dönsku Reumert-sviðlistaverðlaunin
2018 fyrir leikstjórn sína á verkinu
auk þess sem uppfærslan hlaut sér-
verðlaun ársins,“ segir Friðrik og
tekur fram að hann megi ekki gefa of
mikið uppi um innihald verksins til
að spilla ekki upplifun væntanlegra
leikhúsgesta. „Ég get þó upplýst að
mótleikari Sveins Ólafs verður svíns-
skrokkur sem fær mikla útreið í sýn-
ingunni,“ segir Friðrik og bendir á
að Óskabörn ógæfunnar séu þekkt
fyrir beittar ádeilusýningar og nefn-
ir í því samhengi Illsku og Hans Blæ.
„Dagana 18.-22. nóvember fer
Reykjavík Dance Festival fram í
Tjarnarbíói, Iðnó og Mengi undir
listrænni stjórn Alexanders Roberts
og Ásgerðar G. Gunnarsdóttur. Á
fyrsta degi hátíðarinnar verður í
Tjarnarbíói frumsýnt Fegurð í
mannlegri sambúð eftir Ásrúnu
Magnúsdóttur, Olgu Sonju Thor-
arensen og Gunni Martinsdóttur
Schlüter. Líkt og í fyrri sýningum
sínum er Ásrún að vinna með hópa
sem ekki hafa verið áberandi á sviðs-
listasenunni áður,“ segir Friðrik og
vísar þar til GRRRRLS og Hlust-
unarpartýs. Segir hann nýju sýn-
inguna vera í formi leiðsöguferðar
um Reykjavík þar sem leiðsögu-
mennirnir eru ungt fólk með fötlun
sem miðli sinni upplifun af lífinu. „Á
lokadegi hátíðarinnar frumsýnir
Rósa Ómarsdóttir sólóverk sitt sem
nefnist Spills og fjallar um náttúruna
og umhverfismál.“
Styttir biðina eftir jólunum
Að sögn Friðriks verður boðið upp
á tvær jólasýningar í desember.
Annars vegar Jólaævintýri Þorra og
Þuru eftir Agnesi Wild og Sigrúnu
Harðardóttur í leikstjórn Söru Marti
Guðmundsdóttur sem leikhópurinn
Miðnætti frumsýnir 1. desember.
Hins vegar Jólasýning Svansins 19.
desember sem spunahópurinn Svan-
urinn stendur að, en hópinn skipa
Adolf Smári Unnarsson, Auðunn
Lúthersson, Guðmundur Einar,
Guðmundur Felixson, Máni Arn-
arson, Ólafur Ásgeirsson og Pálmi
Freyr Hauksson sem allir eru með-
limir í sýningarhópnum Improv
Ísland.
„Ævintýrið um Augastein hefur
verið jólasýning Tjarnarbíóis síðustu
mörg árin, en í fyrra kvaddi Felix
Bergsson sýninguna með formlegum
hætti. Í hans stað koma Þorri og
Þura, sem mörg börn þekkja úr
barnasjónvarpi RÚV. Þau voru í
húsinu í fyrra og mæta nú á staðinn
með glænýja jólasýningu þar sem
þessir yndislegu jólaálfar undirbúa
komu jólanna,“ segir Friðrik og
bendir á að fullorðna fólkið geti stytt
biðina til jóla með því að mæta á
Jólasýningu Svansins. „Það hefur
verið mikil ánægja með sýningar
hópsins síðustu árin og orðinn fastur
liður hjá mörgum í jólaundir-
búningnum að skella sér á Svaninn
og komast í annars konar jólaskap.“
Lotta margfyllir húsið
Fyrsta frumsýningin á nýju ári er
Hans klaufi eftir Snæbjörn Ragn-
arsson í leikstjórn Dóru Jóhanns-
dóttur sem Leikhópurinn Lotta
frumsýnir 11. janúar. „Þetta er
þriðja árið í röð sem Lotta sýnir hjá
okkur nýjar uppfærslur á eldri verk-
um sínum,“ segir Friðrik og bendir á
að Lotta eigi sér stóran aðdáendahóp
enda hafi þau vaxið mikið listrænt á
umliðnum árum. „Þau fylla húsið
tvisvar á dag allar helgar, sem er
mjög ánægjulegt.“
The Brogan Davison Show Extra-
vaganza nefnist sýning eftir Brogan
Davison og Pétur Ármannsson sem
sviðslistahópurinn Dance For Me
frumsýnir 28. febrúar. „Að grunni til
er þetta útskriftarsýning Brogan úr
meistaranámi hennar við DasArts í
Hollandi. Í sýningunni vinnur hún
með reynslu sína af því að fara í
heimahús og vera með uppistand
fyrir fólk þar sem hún fjallar um
sjálfa sig. Hér nýtir hún öll meðöl
leikhússins, þannig að þetta verður
ekki hefðbundin uppistandssýning,
þó að mig gruni að þetta verði mjög
fyndin sýning.“
Dagana 2.-5. apríl standa Tjarnar-
bíó og Reykjavík Dance Festival fyr-
ir Vorblóti, en að sögn Friðriks verð-
ur dagskráin auglýst síðar. „Ég get
þó upplýst að Verk 2.0 eftir Stein-
unni Ketilsdóttur verður frumsýnt á
hátíðinni,“ segir Friðrik og bendir á
að verkið sé það þriðja í röðinni sem
spretti upp af rannsóknarverkefninu
„Expressions: the power and politics
of expectations in dance“ sem Stein-
unn leiðir í samstarfi við hóp lista- og
fræðimanna. „Öll eiga verkin það
sameiginlegt að í þeim er það dans-
verkið sem er viðfangsefnið þar sem
hugmyndir rannsóknarinnar um
virði og vald væntinga innan list-
formsins eru kannaðar.
Spennandi ferðalag út í geim
Í vor verða frumsýndar tvær
barnasýningar. Annars vegar
Bunraku-brúðusýningin Geim-mér-
ei sem Miðnætti frumsýnir 2. maí í
leikstjórn Agnesar Wild og hins veg-
ar Tréð eftir Söru Marti Guðmunds-
dóttur og Agnesi Wild sem frumsýnt
verður á Listahátíð í Reykjavík. Eins
og titillinn gefur til kynna býður
Geim-mér-ei upp á spennandi ferða-
lag út í geim,“ segir Friðrik og bend-
ir á að í Á eigin fótum, síðustu sýn-
ingu Miðnættis í Tjarnarbíói, hafi
ferðalagið legið aftur í tímann en nú
sé farið inn í framtíðina.
„Tréð fjallar á myndrænan hátt
um veruleika og stöðu flóttabarna,“
segir Friðrik og bendir á að þar sé á
ferðinni enn ein sýningin á leikárinu
sem takist á við áríðandi málefni líð-
andi stundar. „Loks verður að nefna
að verðlaunasýningin Lífið, sem
frumsýnd var í Tjarnarbíói 2015,
verður tekin aftur til sýningar 14.
september. Hún hefur farið sigurför
um heiminn og því ánægjuefni að fá
hana aftur í hús.“
Áskoranir fylgja auknum vexti
Aðspurður segir Friðrik rekstrar-
stöðu Tjarnarbíós vera góða. „Við
höfum vaxið hratt undanfarin ár og
áhorfendum fjölgað eftir því. Á síð-
asta ári vorum við með 24 þúsund
áhorfendur,“ segir Friðrik og bendir
á að þriggja ára samstarfssamningur
Tjarnarbíós við Reykjavíkurborg
renni út um áramótin.
„Það verður spennandi að sjá
hvort borgin heldur áfram að gera
eins vel við okkur og hún hefur gert
og jafnvel betur. Það er löngu búið
að sýna og sanna að þörfin fyrir
Tjarnarbíó er mjög mikil, enda húsið
mikið nýtt undir liststarfsemi, bæði
sem æfinga- og sýningarhúsnæði frá
kl. 9 á morgnana til kl. 23 á kvöldin.
Húsið er orðið eina athvarf
sviðslistahópa í borginni og nánast
eina athvarf dansins. Önnur rými eru
í einkaeigu, kosta mikið og henta
ekki fyrir sviðslistir. Meðan staðan
er sú má borgin una sátt við allt það
góða starf sem unnið er í Tjarnar-
bíói. Sýningum hefur fjölgað, enda
erum við með yfir 240 sýningarkvöld
á ári. En auknum vexti fylgja fleiri
áskoranir. Þannig væri mjög ákjós-
anlegt að geta verið hér með starfs-
fólk í fullu starfi í stað hlutastarfa.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eftirspurn „Við erum með yfir 240 sýningarkvöld á ári,“ segir Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Tjarnarbíós.
„Samfélagsádeila rauði þráðurinn“
14 sýningar og sviðslistahátíðir mynda formlegt starfsár Tjarnarbíós sem þegar er hafið
„Húsið orðið eina athvarf sviðslistahópa í borginni,“ segir Friðrik Friðriksson framkvæmdastjóri