Morgunblaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 24
Ljósmynd/Aðsend
Slasaður Þór hefur slasast ótal sinnum frá því hann flutti á sambýlið.
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Fjölskylda Þórs Ólafssonar, 49 ára
þroskahamlaðs og flogaveiks manns
sem hefur búið á sambýli í fjögur ár
er gjörsamlega ráðalaus vegna óvið-
unandi búsetuúrræða sem Þór býr við
og hefur miklar áhyggjur af öryggi
hans.
Þetta segir systir Þórs, Anna
Hulda Ólafsdóttir, lektor í verkfræði
við Háskóla Íslands, í samtali við
Morgunblaðið. Þór sem er með afar
skert jafnvægisskyn notar göngu-
grind daglega sér til stuðnings en að
sögn Önnu er afar erfitt að koma
göngugrindinni upp og niður stigana
að íbúð hans sem er á annarri hæð í
lyftulausu húsnæðinu.
Tvisvar fengið blæðingu á heila
Án göngugrindarinnar á Þór erfitt
með að athafna sig, er gjarn á að detta
og slasast auðveldlega. Það sem af er
ári sjö sinnum lent á spítala vegna
þess að hann hefur dottið illa. Tvisvar
hefur hann þurft innlögn á spítala
vegna blæðingar á heila og síðustu
helgi fótbrotnaði hann illa í stiganum
á sambýlinu. Anna Hulda segir að
enginn öryggishnappur sé í íbúð Þórs
og því sé lítið sem hann geti gert til að
kalla eftir aðstoð lendi hann í óhappi.
Starfsmaður starfar á fyrstu hæð í
sambýlinu á daginn en enginn starfar
þar á næturvöktum sem er nauðsyn-
legt til að tryggja öryggi Þórs að sögn
Önnu Huldu. Baðherbergið er þar að
auki algjörlega óviðunandi og óað-
gengilegt en heilbrigður maður í
kjörþyngd ætti erfitt með að athafna
sig þar að sögn Önnu Huldu.
Þór fékk heilahimnubólgu rétt eftir
fæðingu sem varð til þess að skerðing
varð á þroska hans. Segir hún bróður
sinn vera góðhjartaðan og ótrúlega
duglegan mann sem vill gera allt sem
hann getur sjálfur og kvartar nánast
aldrei.
Hefur margoft fengið synjun
Anna Hulda segir að áður en Þór
hafi fengið þetta húsnæði hafi hann
búið hjá foreldrum þeirra systkina.
Hún segir að mikið hafi breyst eftir
að móðir þeirra lést 2010 en faðir
þeirra sem er hjartveikur átti erfitt
með að veita Þór þá umönnum sem
hann þarfnast. Það var þó ekki fyrr
en faðir þeirra fékk hjartaáfall og
þurfti að fara í uppskurð sem Þór
fékk íbúðina.
Anna Hulda segir húsnæðið upp-
haflega hafa átt að vera tímabundin
lausn. Þór hafi því strax og hann flutti
inn verið settur biðlista eftir nýrri
íbúð sem byði upp á þá þjónustu, að-
gengi og öryggi sem hann þarfnast.
Hann hefur síðan þá fengið ótal synj-
anir úthlutunarnefndar velferðar-
sviðs sem sér um að velja hverjir fái
íbúðir. Umsókn hans var synjað í síð-
ustu viku að sögn Önnu Huldu, rétt
áður en hann fótbrotnaði í stiga sam-
býlisins. Segist Anna Hulda hafa
fengið þá skýringu að hann hafi ekki
komist að á listanum.
„Ég veit ekki hvort það sé af því að
hann er kominn inn á þennan stað að
hann er ekki tekinn inn,“ segir Anna
Hulda.
Starfsfólkið reynir sitt besta
„Hann er með mjög skert jafnvæg-
isskyn sem hefur versnað mjög mikið
frá því hann fór þarna inn. Maður sér
mikinn mun. Það ætti að vera ástæða
til að setja hann ofar á þennan lista,“
segir hún.
Anna Hulda segir starfsfólk sam-
býlisins vera yndislegt og segir að það
reyni eftir bestu getu að aðstoða Þór.
„Hann þarf bara svo miklu meiri
aðstoð. Starfsfólkið er að gera vel
miðað við það sem það hefur en það
fær ekki fjármagn til að gera það sem
þarf fyrir hann,“ segir Anna Hulda og
bætir við að starfsfólkið sé sjálft sam-
mála um að íbúðin og aðgengið sé
ekki ásættanlegt fyrir Þór.
Vöntun á betri úrræðum
„Nú er hann orðinn það gamall og
honum hefur hrakað það mikið að ég
er bara búin að vera að bíða eftir að
hann detti niður þennan stiga. Það er
bara spurning hvort maður þarf að
bíða þar til það verður hans síðasta
fall. Það er komið á það stig,“ segir
Anna Hulda alvarleg. „Ég hef rosa-
lega miklar áhyggjur af honum.
Starfsfólkið þarna er að reyna að gera
sitt besta en hendur þess eru bara
bundnar. Það er alveg sama hvert
maður leitar. Það er eins og það bendi
bara allir hver á annan,“ segir hún.
„Það er ekki bara hann sem er að
berjast við þetta. Þó að það sé fullt
fullt af góðu starfsfólki í kerfinu þá er
eitthvað sem vantar, greinilega tölu-
vert fleiri og betri úrræði. Ég veit að
það er enginn að reyna að vera
eitthvað vondur. Það er bara ekki til
lausn á þessu. Það er greinilega ekki
nægilega ofarlega á forgangslista að
setja fólk sem þarf þessa aðstoð í
viðeigandi húsnæði,“ segir Anna
Hulda.
Sjö sinnum á spítala það sem af er ári
Þroskahamlaður og flogaveikur maður hefur beðið eftir viðeigandi íbúð í fjögur ár „Það er
bara spurning hvort maður þarf að bíða þar til það verður hans síðasta fall,“ segir systir Þórs
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Áhyggjur Anna Hulda hefur áhyggjur af bróður sínum sem hefur fengið ótal synjanir um viðeigandi húsnæði.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
nýskr. 03/2018, ekinn 22 Þ.km, bensín/rafmagn,
sjálfskiptur, leður, glerþak og hellingur af aukahlutum.
Við höfum ekki séð fallegra eintak!
TILBOÐSVERÐ 4.990.000 kr.
Raðnúmer 259690
VWGOLF GTE PREMIUM
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a
595 1000
ge
tur
br
ey
st
fr
ra
. Ævintýri í Marokkó
Ath
.a
ðv
e
ðgg
etu
rb
re
yst
24. október - 9 nætur
Sérferð
- Agadir
- Taroudant
- Foum Zguid
- Sahara eyðimörkin
- Chegaga
- Zagora
- Tamegroute
- Ouarzazate
- Marrakech
- Essaouira
Verð frá kr.
264.995