Morgunblaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Kosið var tilhéraðs-þings í tveimur sam- bandslöndum Þýskalands, Brandenborg og Saxlandi, á sunnudaginn. Vöktu úrslit þeirra kosninga einkum athygli fyrir þá stað- reynd að Alternative für Deutschland, AfD, náði mun fleiri þingsætum í héraðsþing- unum tveimur en hann hefur haft til þessa. Flokkurinn náði þó ekki þeim árangri sem spáð var í skoðanakönnunum fyrir helgina og hafa því einhverjir haft á orði að gömlu valda- flokkarnir, SPD og CDU, hafi unnið varnarsigur. Það var þó lítill fagnaðar- hugur í stuðningsmönnum Angelu Merkel Þýskalands- kanslara. Flokksmenn hennar í kristilegum demókrötum náðu rétt um þriðjungsfylgi í Saxlandi og misstu um 7,5% fylgi frá síðustu kosningum. AfD náði aftur á móti öðru sæt- inu með rúmlega 27% fylgi. Í Brandenburg, sem umlykur höfuðborgina Berlín, hélt Sósíaldemókrataflokkurinn forystu sinni naumlega, en inn- an við þremur prósentustigum munaði á fylgi hans og AfD. Ýmsar ástæður eru sagðar fyrir þessum úrslitum, en með- al annars hefur verið bent á það að bæði sambandslöndin tilheyrðu áður Austur-Þýska- landi. Árangur AfD um helgina megi því að hluta til útskýra með vaxandi óánægju fólks þar með gömlu valdaflokkanna, sem tengist jafnvel vanda- málum í kjölfar sameiningar Þýskalands fyrir þrjátíu árum. Spjótunum hefur einnig ver- ið beint að Merkel sjálfri og eftirmanni hennar í formannsstóli CDU, Annegret Kramp-Karren- bauer, en hin síð- arnefnda við- urkenndi eftir kosningarnar að hún hefði gert nokkrar taktískar skyssur í kosningabaráttunni. Mögu- leikar Kramp-Karrenbauers á að verða arftaki Merkels í kanslaraembættinu hafa enda minnkað við úrslit helgarinnar, en hún hefur til þessa ekki náð að stíga út úr skugga Merkel. Þessar skýringar segja þó fjarri því alla söguna, þar sem þær útskýra ekki hvers vegna óánægja þýskra kjósenda leið- ir til þess að AfD sækir sífellt í sig veðrið, þrátt fyrir að flokk- urinn sé talinn yst á hægri- væng þýskra stjórnmála (sem er út af fyrir sig umdeilanleg skilgreining) og að yfirlýst stefna gömlu flokkanna sé að starfa ekki með honum. Í flestum ríkjum Evrópu, innan sem utan ESB, má nú greina sístækkandi kjósenda- hóp, sem finnst hann hafa verið skilinn útundan þegar brugðist var við vanda í efnahagslífinu, eða sem finnur að gjá hefur myndast milli sín og hinna hefðbundnari stjórnmála- manna sem í auknum mæli fylgja frekar ráðum hins yf- irþjóðlega valds Evrópusam- bandsins en eigin kjósenda. Í stað þess að mæta áhyggj- unum hafa viðbrögð flestra hinna hefðbundnari flokka ver- ið þau að skella við skollaeyr- um og jafnvel að uppnefna þessa kjósendur og tala niður til þeirra. Viðbúið er því að óánægjan magnist enn frekar og finni sér farveg utan hinna hefðbundnu flokka. Enn ein skilaboðin frá evrópskum kjósendum bárust um liðna helgi} Skellt við skollaeyrum Sjálfstæðismenní borgarstjórn lögðu fram tillögu á borgarstjórn- arfundi í vikunni um að bæta um- ferðar- og ljósastýringu í Reykjavík með því að beita nýjustu tækni. Samkvæmt út- tekt og reynslu annars staðar frá er hægt að spara almenn- ingi mikinn biðtíma með slíkri lausn og þar með að spara sam- félaginu háar fjárhæðir sem annars fara í súginn á rauðum ljósum meirihlutans í Reykja- vík. Meirihlutinn átti í megin- atriðum tvo kosti í stöðunni, að samþykkja tillöguna eða að hafna henni, en tók þriðja kost- inn og vísaði henni frá. Þetta var gert með þeim rökum að sífellt væri verið að vinna í að bæta þetta. Þeir sem aka um götur borg- arinnar – eða öllu heldur bíða á götum borgarinnar – vita að þetta er fjarstæða. Ljós eru augljóslega ekki samstillt á besta máta og stillingar eru ekki til þess fallnar að lág- marka biðtíma. Hvernig má það vera að meirihlutinn standi ekki aðeins gegn mislægum gatnamótum heldur líka bættri stýringu umferðarljósa? Getur einhver önnur skýring verið á því en að meirihlutinn beinlínis vilji valda umferðartöfum? Ekkert má gera í Reykjavík sem bætt getur umferðarflæði} Meirihluti umferðartafanna V itundarvakning söfnunarinnar „Á allra vörum“ sem hleypt var af stokkunum sl. sunnudag hef- ur hreyft við þjóðinni. Málefnið sem sett er í forgrunn átaksins er misnotkun lyfseðilsskyldra lyfja og ótímabær dauði ungmenna vegna þeirra. Safnað er nú fyrir framkvæmd þjóðarátaks í þágu forvarna og fræðslu til grunn- skólanema sem standa mun til ársins 2022. Forvarnarverkefnið verður undir merkjum slagorðsins „VAKNAÐU – þú átt bara eitt líf“ og verður leitt af samtökum sem þegar hafa unnið mikilsvert starf á því sviði, Minningarsjóði Einars Darra Óskarssonar. Einar var einn þeirra 39 sem létust vegna lyfjaneyslu á árinu 2018, þá aðeins 18 ára að aldri. Aðgengi og framboð á lyfjum og vímuefnum, sem mörg eru mjög ávanabindandi, hefur breyst mikið á undanförnum árum og notkun þeirra virðist mun al- mennari en áður. Við þurfum að vera vakandi fyrir afleiðingum þeirrar þróunar því hún snertir okkur öll. Markmið átaksins er að vekja þjóðina til umhugs- unar og tala opinskátt um þessi mál til að koma megi í veg fyrir þann skaða sem þessi efni geta valdið, ekki síst ungu fólki. Tölfræðin sýnir okkur að það er brýnt tilefni til aðgerða. Samkvæmt málaskrárkerfi ríkislögreglustjóra fjölgaði málum þar sem grunur er á brotum á lyfsölulögum um 229% milli ár- anna 2015 og 2018. Dauðsföllum vegna lyfjanotkunar fjölgaði um 56% á árunum 2016-2018. Samkvæmt niðurstöðum könn- unar Rannsókna & greiningar frá 2018 höfðu 8% framhaldsskólanema undir 18 ára aldri notað morfínskyld verkjalyf án lyfseðils oftar en einu sinni um ævina og 12% framhaldsskólanema eldri en 18 ára. Tæp 11% grunnskólanema í 10. bekk höfðu tekið svefntöflur eða róandi lyf án lyfseðils einu sinni eða oftar um ævina sem ekki var ávísað á þau og 1,5% höfðu reynt örv- andi lyf sem ekki voru þeim ætluð. Við Íslendingar náðum eftirtektar- verðum árangri í því að minnka áfengis- og tóbaksneyslu ungmenna en með nýjum tímum koma nýjar áskoranir. Við vitum hvaða aðferðir virka vel, fræðsla og öflugt foreldra- samstarf eru mikilvægir þættir, en einnig virk þátt- taka í íþrótta- og æskulýðsstarfi. Ég er þess fullviss að við munum ná árangri í þessu mikilvæga verkefni með góðri samvinnu heimila, skóla, félagasamtaka og stjórnvalda. Sem ráðherra menntamála fagna ég ein- læglega framtaki „Á allra vörum“ og hvet alla til þess að kynna sér þetta mikilvæga málefni og leggja því lið. Lilja Alfreðsdóttir Pistill Okkar eina líf Höfundur er mennta- og menningarmálaráðherra. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Eitt af stórum viðfangs-efnum sem tekist er áum við samningaborðiðþessa dagana í kjara- viðræðum opinberra starfsmanna við ríkið og sveitarfélögin er ákveðnar grundvallarbreytingar sem gera þarf á ávinnslu orlofsrétt- inda. Lög sem tóku gildi 1. júlí síð- astliðinn banna tengingu orlofsdaga við lífaldur. Ekki má mismuna fólki á vinnumarkaði eftir aldri skv. lög- unum en fjöldi orlofsdaga opinberra starfsmanna hefur hingað til verið tengdur aldri. Þetta hefur engar breytingar í för með sér á almenna vinnumark- aðnum, þar sem launamenn ávinna sér lengra orlof með auknum starfsaldri, en opinberir starfsmenn hafa hins vegar áunnið sér aukinn orlofsrétt með hækkandi lífaldri á undanförnum árum. Því þarf nú að breyta ákvæðum í kjarasamning- unum um ávinnslu orlofsdaga með hærri aldri og miða annaðhvort við starfsaldur líkt og gert er á al- menna vinnumarkaðinum eða finna aðrar leiðir. Að því er unnið en það hefur reynst flókið ef koma á í veg fyrir að einhverjir verði beinlínis fyrir skerðingum vegna þessa að mati fulltrúa stéttarfélaga. Árni Stefán Jónsson, formaður Sameykis, stærsta stéttarfélags opinberra starfsmanna, segir að um sé að ræða viðfangsefni sem ekki sé einfalt að breyta og niðurstaða liggi ekki fyrir. Á árum áður bjuggu opinberir starfsmenn við svipað fyrirkomulag og gilt hefur á al- menna markaðinum, þar sem or- lofsdögum þeirra fjölgar í skrefum með hækkandi starfsaldri. Þessu var breytt í kringum síðustu alda- mót á þann veg að mismunandi or- lofsréttur opinberra starfsmanna hefur síðan þá tekið mið af lífaldri. ,,Það einfaldaði málin og við vorum afar sátt við þetta fyrirkomulag. Flestir komu vel úr út þessu meðal opinberra starfsmanna,“ segir hann og bendir á að opinberir starfsmenn séu að jafnaði eldri en gengur og gerist á almenna vinnumarkaðinum. Vilja að allir fái 30 daga Fólk í fullu starfi nýtur að lág- marki 24 daga orlofs en skv. kjara- samningum geta opinberir starfs- menn áunnið sér fleiri orlofsdaga með hækkandi lífaldri í allt að 30 daga, eða í sex vikur. Bannið við því að tengja orlofsrétt við aldur starfs- manna á sér rætur í lögum sem sett voru í fyrra um jafna meðferð á vinnumarkaði, en með þeim voru lögfestar Evróputilskipanir sem banna mismunun gagnvart starfs- fólki í fjölmörgum tilteknum atrið- um. Var ákveðið að fresta gild- istöku ákvæðisins um bann við mismunun á grundvelli aldurs til 1. júlí sl. Að sögn Árna Stefáns hafa stéttarfélögin bent á að beinast liggi við að bregðast við þessari breytingu með því að veita öllum fullt 30 daga orlof eða 240 tíma en viðsemjendur þeirra hafa ekki vilj- að taka undir það. Hann segir að um 80% félagsmanna séu nú þegar með 30 daga orlofsrétt en komið hafi fram að það yrði dýrari aðgerð hjá Reykjavíkurborg en ríkinu ef allir ættu að fá 30 daga orlofsrétt þar sem þar er töluvert meira um yngra starfsfólk s.s. á tóm- stundasviðinu og í skólunum. Leitað er leiða til að laga fyrir- komulag orlofsréttinda fólks að þessum breytingum, mögulega með einhvers konar sólarlagsákvæði, en að sögn Árna Stefáns verður ekki frá þessu gengið nema tryggt sé að núverandi réttur starfsmanna verði a.m.k. jafn verðmætur eftir breyt- ingarnar og hann er í dag. Fjöldi orlofsdaga má ekki ráðast af lífaldri Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Tómstundir Á almennum markaði er fjöldi orlofsdaga tengdur starfsaldri en lengd orlofs opinberra starfsmanna hefur miðast við lífaldur. Inga Rún Ólafsdóttir, sviðsstjóri kjarasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga og formaður samninganefndar, segir að yfir- standandi viðræður um breyt- ingar á ávinnslu orlofsréttinda vegna nýju laganna séu í sjálfu sér ekki flókið viðfangsefni. „Þetta eru bara breytt lög sem við þurfum að laga okkur að og er ekkert flókið. Við þurfum að ná saman um nýjar leikreglur og það hefur verið rætt,“ segir hún. Ætla má að nálægt 70% starfsmanna hjá sveitarfélög- unum hafi þegar áunnið sér full- an orlofsrétt þ.e. 30 orlofsdaga. Meðalaldur starfsmanna sveit- arfélaganna er 47-48 ár. „Það verður greitt úr þessu,“ segir Inga Rún. Spurð hvort tekið verði upp starfsaldursviðmið eins og á almenna markaðinum segir hún að ekki sé búið að semja um það. Viðsemjendur eigi eftir að komast að sameig- inlegri niðurstöðu um fyrir- komulagið. „Verður greitt úr þessu“ FORMAÐUR SNS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.