Morgunblaðið - 05.09.2019, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Er stærsti
framleiðandi
sportveiðarfæra
til lax- silungs-
og sjóveiða.
Flugustangir og
fluguhjól í úrvali.
Gott úrval af
fylgihlutum til
veiða stólar, töskur,
pilkar til sjóveiða,
spúnabox margar
stærðir, veiðihnífar
og flattningshnífar.
Abulon nylon
línur.
Gott úrval af kaststanga-
settum, fyrir veiðimenn
á öllum aldri, og úrval af
„Combo“ stöng og hjól til
silungsveiða, lax veiða og
strandveiða. Flugustanga sett
stöng hjól og lína uppsett.
Kaststangir,
flugustangir, kast-
hjól, fluguhjól, gott
úrval á slóðum til
sjóveiða. Lokuð
kasthjól.
Úrval af
flugustöngum,
tvíhendur og hjól.
Balance Lippa, mjög
góður til silungsveiða
„Original“
Fireline ofurlína, gerfi-
maðkur sem hefur reynst
sérstaklega vel,
fjölbreitt gerfibeita
fyrir sjóveiði og
vatnaveiða,
Berkley flattnings-
hnífar í úrvali og
úrval fylgihluta fyrir
veiðimenn.
Flugnanet, regnslár,
tjaldhælar, og úrval af
ferðavörum
Helstu Útsölustaðir eru:
Veiðivon Mörkinni
Vesturröst Laugavegi
Veiðiportið Granda
Veiðiflugur Langholtsvegi
Kaupfélag Borgfirðinga Borgarnesi
Kassinn Ólafsvík
Söluskáli ÓK Ólafsvík
Skipavík Stykkishólmi
Smáalind Patreksfirði
Vélvikinn Bolungarvík
Kaupfélag Steingrímsfjarðar Hólmavík
Kaupfélagi V-Húnvetninga Hvammstanga
Kaupfélag Skagfirðinga Sauðárkróki
SR-Bygginavöruverslun Siglufirði
Útivist og Veiði Hornið Akureyri
Veiðiríkið Akureyri
Hlað Húsavík
Ollasjoppa Vopnafirði
Veiðiflugan Reyðarfirði
Krían Eskifirði
Þjónustustöðvar N1 um allt land.
Axelsbúð Akranesi
Dreifing: I. Guðmundsson ehf.
Nethyl 1, 110 Reykjavík.
Nánari upplýsingar um þessar vörur má fá á eftirfarandi vefsíðum: www.purefishing.com - www.abugarcia.se - www.kuusamonuistin.fl - www.coghlans.com.
Þekktustu veiðivörumerkin eru seld í öllum
„Betri sportvöruverslunum landsins“
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Guðlaugur Þór Þórðarson utanrík-
isráðherra segir heimsókn Mikes
Pence til landsins vera vott um þá
áherslu sem bandarísk stjórnvöld
leggi á að rækta samstarf ríkjanna,
en það hafi verið mjög farsælt að
undanförnu. Segir utanríkisráðherra
að aðaláherslan í þessari heimsókn
hafi verið á viðskiptamálin en að auð-
vitað hafi öryggismál alltaf skipað
ríkan sess í samstarfi ríkjanna.
„Við erum lítið land en mörg okkar
fyrirtækja eru mikilvæg á banda-
rískum markaði, eins og til dæmis
Össur sem er stærsti stoðtækjafram-
leiðandi Bandaríkjahers. Við erum
sammála um að efla viðskiptatengsl-
in okkar á milli,“ segir utanrík-
isráðherra, en hann og Pence sátu
saman ásamt fulltrúum íslenskra og
bandarískra fyrirtækja á Höfða og
fóru þar yfir þau helstu mál sem
vörðuðu viðskipti ríkjanna.
Aukið mikilvægi norðurslóða
Spurður um þá miklu áherslu sem
Pence virtist setja á öryggis- og
varnarmál í ummælum sínum gær
segir Guðlaugur Pence einkum hafa
talað almennt um breytta heims-
mynd sérstaklega á norðurslóðum.
„Hann undirstrikaði að Bandaríkin
stæðu þétt við hliðina á Íslandi sem
samstarfsríki í Atlantshafsbandalag-
inu og vegna varnarsamningsins,“
segir Guðlaugur Þór. Þá hafi Pence
farið nokkrum orðum um aukið mik-
ilvægi norðurslóða, sem og breytta
hegðun annarra stórvelda í þeim
heimshluta.
Það vakti nokkra athygli að Pence
gaf sig á tal við erlenda fjölmiðla að
loknum fundahöldunum í Höfða og
lýsti þar yfir sérstakri ánægju sinni
með að íslensk stjórnvöld hefðu
hafnað þátttöku í „Belti og braut-
ar“-átaki (e. Belt and Road Initia-
tive) Kínverja. Guðlaugur segir hins
vegar að það sé ofsagt hjá Pence,
þar sem engin endanleg afstaða hafi
verið tekin til þess máls. „Þetta mál
hefur verið til skoðunar um nokkra
hríð af hálfu íslenskra stjórnvalda
og hið sama gildir um flest okkar ná-
grannaríkja. Engin endanleg af-
staða hefur verið tekin til málsins en
við höfum lagt áherslu á að núver-
andi samningar sem við höfum við
Kínverja, til að mynda fríversl-
unarsamningur, komi að fullu til
framkvæmda. Okkur hefur raunar
orðið nokkuð ágengt í þeim efnum,
eins og menn þekkja,“ segir Guð-
laugur Þór.
Vill bæta viðskiptatengslin
Pence og Guðlaugur funduðu sem
fyrr sagði með fulltrúum íslensks
viðskiptalífs og var sá fundur mjög
góður að sögn þeirra sem hann sátu.
Var Pence að sögn Guðlaugs mjög
áhugasamur um það sem íslensk
fyrirtæki eru að gera og að það hafi
komið honum kannski á óvart
hversu umfangsmikil starfsemi fyr-
irtækja eins og Marel og Kerecis er.
„Ég undirstrikaði á fundinum hvað
viðskipti eru almennt mikilvæg fyrir
samskipti þjóða og stuðla að auknu
öryggi og mér virðist varaforsetinn
staðráðinn í því að bæta til muna við-
skiptatengsl milli Íslands og Banda-
ríkjanna,“ segir Guðlaugur Þór. Hafi
Pence lagt áherslu á að öflug við-
skiptatengsl ríkjanna skiptu jafn-
miklu máli og öflug varnarsamvinna.
„Hann tók fram að efnahagssamráð
sem ég og Mike Pompeo ýttum úr
vör gæti verið undanfari fyrir frí-
verslunarviðræður og benti á í því
samhengi að efnahagssamráð við
Japan sem hefði byrjað fyrir fáein-
um árum hefði leitt til fríversl-
unarsamnings.“ Þá væri Pence mjög
áhugasamur um að draga úr þeim
hindrunum sem stæðu í vegi við-
skipta.
Ósamræmi í nálgun ríkjanna
Ekki voru allir á því að heimsókn
Pence hefði verið einkum ætluð til
að ræða viðskipti ríkjanna. Silja
Bára Ómarsdóttir stjórnmálafræð-
ingur segir áhugavert hversu mikla
áherslu utanríkisráðuneyti Íslands
hafi lagt á að fundurinn snerist um
viðskiptamál, þegar augljóst sé að
forgangsröðun Bandaríkjamanna
hefði verið í þágu öryggis- og varn-
armála. „Það gefur til kynna að
ráðuneytið eða utanríkismálaráð-
herra séu ekki tilbúin að taka upp þá
umræðu og ég myndi halda að utan-
ríkismálanefnd [Alþingis] ætti að
kalla eftir frekari upplýsingum um
málið.“
Aðspurð hvort að þessi nálgun ut-
anríkismálaráðuneytisins geti að
einhverju leyti skýrst af núverandi
stjórnarmynstri segir Silja Bára að
það sé þá mjög yfirborðskennt ef svo
sé.
„Vegna þess að það hefur legið
ljóst fyrir frá því að Bandaríkja-
menn gáfu út bakgrunnsskýringar á
ásetningi Bandaríkjanna fyrir heim-
sókninni að hún var gerólík þeirri
sem utanríkisráðherra Íslands hefur
sett fram, og mér finnst mjög und-
arlegt að ráðuneytið og ráðherra þá
sérstaklega leggi sig fram við að
setja fram skýringar sem eru í
ósamræmi við það sem kemur frá
Bandaríkjunum.“
Vottur um velvilja Bandaríkjanna
Utanríkisráðherra segir samstarfið við Bandaríkin farsælt Pence áhugasamur um umsvif ís-
lenskra fyrirtækja Stjórnmálafræðingur segir misræmi hafa ríkt um tilgang heimsóknarinnar
Morgunblaðið/Hari
Varaforsetinn Mike Pence skoðaði meðal annars aðstöðu Atlantshafsbandalagsins í Keflavík.
Heimsókn varaforseta Bandaríkjanna til Íslands