Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 36

Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 36
Sala á fólksbílum dróst saman um 45% í ágústmánuði. Nam fjöldi seldra bíla í mánuðinum 804 miðað við 1.465 í fyrra. Ágústmánuður í fyrra og árið 2017 voru aftur á móti með stærri bílasölumánuðum frá upphafi, að því er fram kemur í upp- lýsingum frá Bílgreinasambandinu. Það sem af er ári, eða frá janúar til ágústmánaðar, hefur sala á fólksbíl- um dregist saman um 39,3%. Nemur fjöldi seldra bíla á tímabilinu í ár 9.123 miðað við 15.033 í fyrra. Salan nam 17.035 á þessu tímabili árið 2017, 14.898 árið 2016, 10.793 árið 2015 og 7.617 árið 2014. Sá samdráttur sem sést hefur í bílasölu á árinu hófst í september- mánuði í fyrra. Þá seldust 935 bílar. Hugsanlegt er að samanburður við árið í fyrra verði því ekki eins mikill í næsta mánuði og á fyrstu átta mán- uðum ársins 2019. Met í nýskráningum rafbíla Met var aftur á móti sett í ný- skráningu rafbíla í ágústmánuði. Ný- skráðir rafbílar voru 146, sem er 14,2% af öllum nýskráningum í ágúst. Bensínbíllinn var aftur á móti enn vinsælastur með 37% í ágúst. Það sem af er ári nemur hlutfall ný- skráðra rafbíla af heildarnýskrán- ingum 7,3%. Morgunblaðið/Árni Sæberg Bílar Sala á fólksbílum hefur dreg- ist saman um 39,3% á milli ára. 45% samdráttur í sölu á fólksbílum í ágústmánuði  Hlutfall nýskráðra rafbíla aldrei verið hærra en í ágúst 36 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019 BAKSVIÐ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Dregið hefur verulega úr hagvexti hér á landi og er orsökin meðal ann- ars rakin til samdráttar í einka- neyslu. Þetta var meðal þess sem kom fram í ræðu Þórarins G. Péturs- sonar, aðalhagfræðings Seðlabanka Íslands, á morgunfundi Félags at- vinnurekenda í gær. Þá sagði hann einnig að sam- dráttur hefði ver- ið í fjárfestingum og útflutningi, sérstaklega vegna loðnu- brests. Hins veg- ar eru áframhald- andi jákvæður viðskiptajöfnuður við útlönd sem dregur úr sam- drættinum. Utanríkisviðskiptin haldast já- kvæð meðal annars vegna þess að dregið hefur úr innflutningi tækja og búnaðar til atvinnureksturs eins og til að mynda flugvéla og annarra stórra fjárfestingarliða fyrirtækja. Jafnframt hefur dregið úr innfluttri þjónustu, að sögn Þórarins. Benti hann á að aukin eftirspurn eftir inn- lendri framleiðslu og þjónustu hefði vegið á móti samdrætti í útflutningi. „Heimilin og fyrirtækin eru frekar að beina eftirspurn inn í landið og það dregur úr samdrætti.“ Þá kom einnig fram í ræðu aðal- hagfræðingsins að krónunni hefði tekist betur að sinna hlutverki sínu með því að hækka í verði til þess að halda aftur af uppsveiflu í hagkerf- inu og að lækka til þess að mæta nið- ursveiflu. Sagði þetta meðal annars markvissri peningastefnu að þakka. „Vextir hafa lækkað og enn færi á að lækka meira ef þess er þörf,“ sagði Þórarinn og benti á að til sam- anburðar er sumum seðlabönkum erlendis ófært að lækka vexti meira til þess að mæta samdrætti þar sem þær væru orðin svo lágir fyrir. Einn- ig væri orðið ljóst að smærri vaxta- ákvarðanir þarf til að mæta verð- bólgu en áður. „Það bendir til þess að við séum með betri tök á málun- um.“ Háð utanríkisviðskiptum Spurður hvort efnahagsvöxtur í Bandaríkjunum hafi dregið úr nei- kvæðum áhrifum af samdrætti í Evr- ópu, segir Þórarinn svo vera. „Bandaríkin hafa verið aflvélin í hag- vextinum í hinum vestræna heimi undanfarið, en það sem er áhyggju- efni er að það er farið að fjara undan hagvextinum þar.“ Þá hafi hagvöxturinn vestanhafs verið drifinn áfram af skattalækkun- um og mikilli útgjaldaaukningu rík- isins. „Nú eru þau áhrif að fjara út.“ „Það sem bætist við eru áhrifin af þessu viðskiptastríði sem er að hafa mjög neikvæð áhrif í Bandaríkjun- um, fyrirtæki þar eru mun svart- sýnni en þau voru áður. Horfurnar hafa klárlega versnað þar,“ útskýrir hann. „Miðað við spár eru þeir að óbreyttu að fara niður í hagvöxt sem sést annars staðar í hinum vestræna heimi.“ „Já, við erum mjög undirsett af því hvernig öðrum löndum gengur,“ svarar Þórarinn er hann er spurður hvort samdráttur í Bandaríkjunum samhliða samdrættinum í Evrópu mun auka samdráttinn hér á landi. „Við erum lítið opið útflutningsdrifið land. Þannig að það skiptir okkur verulegu máli að það sé góð staða í okkar viðskiptalöndum og það verð- ur ekki komist hjá því að evrusvæðið er okkar langstærsti útflutnings- markaður.“ Vaxtaþróun Aðspurður vildi Þórarinn ekki spá mikið um þróun stýrivaxta Seðla- banka Íslands. „Við höfum sagt að næstu skref ráðast einfaldlega af því hvað gögnin eru að segja okkur og ef þau eru að segja okkur að efnahags- horfur séu verri en við reiknum með á sama tíma og verðbólga og verð- bólguvæntingar haldast í skefjum og þær gætu orðið verri vegna þess að ytri aðstæður eru að versna – alþjóð- legur hagvöxtur verri eða eitthvað slíkt – þá verður svigrúm til þess að lækka vexti.“ Krónunni tekist að sinna hlutverki sínu betur  Smærri vaxtaákvarðanir ná að mæta verðbólgu en áður Innflutningur Heimili og fyrirtæki beina eftirspurn frekar inn í landið sem vegur á móti samdrætti í hagkerfinu. Morgunblaðið/Ómar Þórarinn G. Pétursson 5. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 127.39 127.99 127.69 Sterlingspund 152.97 153.71 153.34 Kanadadalur 95.27 95.83 95.55 Dönsk króna 18.667 18.777 18.722 Norsk króna 13.899 13.981 13.94 Sænsk króna 12.871 12.947 12.909 Svissn. franki 128.52 129.24 128.88 Japanskt jen 1.2001 1.2071 1.2036 SDR 173.45 174.49 173.97 Evra 139.21 139.99 139.6 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.9897 Hrávöruverð Gull 1532.45 ($/únsa) Ál 1716.0 ($/tonn) LME Hráolía 58.54 ($/fatið) Brent STUTT ● Ferðaskrifstofan Heimsferðir tapaði 768 milljónum króna á síðasta ári, samkvæmt tilkynningu frá félaginu. Þar segir að undirliggjandi starfsemi hafi gengið vel en neikvæð niðurstaða skýrist af töpuðum kröfum vegna gjaldþrots Primera Air og Primera Travel Group. Arion banki tók yfir rekstur Heims- ferða í júní á þessu ári með það að markmiði að tryggja áframhaldandi starfsemi félagsins. Heimsferðir töpuðu 768 milljónum króna Rauðagerði 25 · 108 Reykjavík · Sími 440 1800 · www.kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Varmadælur Hagkvæmur kostur til upphitunar Verð frá aðeins kr. 145.000 m.vsk Midea KMB-E09 Max 3,4 kW 2,65 kW við -7° úti og 20° inni hita (COP 2,85) f. íbúð ca 40m2. • Kyndir húsið á veturna og kælir á sumrin • Fyrir norðlægar slóðir • Fjarstýring fylgir • Hægt að fá WiFi sendi svo hægt sé að stjórna dælunni úr GSM síma Uppsetningaaðilar og umboðsmenn um allt land Mission Extreme Umhverfisvænn kælimiðill Halal ehf., félagið sem rekur sýr- lenska veitinga- staðinn Mandi, skilaði 23 milljóna króna hagnaði á síðasta ári. Dregst hagnaður- inn saman um 44% á milli ára. Rekstrartekjur námu samtals 247 milljónum króna miðað við 208 millj- ónir króna árið 2017. Í þeirri tölu eru húsaleigutekjur upp á 11 milljónir og 33 milljóna hagnaður af sölu rekstrarfjármuna.Tekjur vegna seldra vara og þjónustu námu 203 milljónum króna miðað við 208 millj- ónir króna árið 2017. Eignir fyrir- tækisins námu samtals 567 milljónum króna og aukast um rúm 205% en eignirnar námu 186 milljónum króna í lok árs 2017. Virði fasteigna félags- ins nam 532 milljónum króna í lok árs 2018 en 122 milljónum árið 2017. Heildarskuldir fyrirtækisins nema 418 milljónum króna. Mandi hefur verið í töluverðri sókn að undanförnu, en í sumar opnuðu rekstraraðilar staðarins nýjan stað í Skeifunni. 23 milljóna hagnaður hjá Mandi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.