Morgunblaðið - 05.09.2019, Page 51

Morgunblaðið - 05.09.2019, Page 51
eða koma með nýja sýn á málið, eitthvað sem „meikaði sens“. Þú varst og verður alltaf frábær fyr- irmynd í öllu sem þú tókst þér fyrir hendur, allt gerðirðu 100% sama hvað gekk á. Þakka þér fyr- ir allt sem þú gafst okkur, þín verður sárt saknað og hugur okk- ar verður alltaf hjá þér. Hvíldu í friði elsku vinur minn. Elías (Elli). Yndislegu sumri virðist lokið og það haustaði skyndilega sunnudaginn 25. ágúst. Það var þann dag sem himnarnir grétu og við mannfólkið líka. Það var þann dag sem vágesturinn vondi lagði góðan vin okkar, Óla Frey, eftir hetjulega baráttu hans allt fram til hinstu stundar. Sú barátta var erfið og ósanngjörn og úrslitin fyrirfram ráðin. Það er barátta sem enginn ætti að þurfa að heyja. Óli Freyr var sterkur hlekkur í keðju samfélagsins í Garðabæ – foreldrasamfélags, vinasamfélags og íþróttasamfélags. Hann var vel liðinn af öllum sem hann umgeng- ust. Undir erfiðum kringumstæð- um sem þeim að kveðja mann í blóma lífsins, þá snúa þessi sam- félög saman bökum – aðstoða eft- ir mætti, sýna samhug, stuðning og halda minningunni á lofti. Kynni okkar við Óla Frey og hans yndislegu fjölskyldu voru fyrst og fremst í gegnum þessi samfélög. Þessi samfélög eru samofin í Garðabæ – allt frá því að við kynntumst sum Óla Frey fyrsta sinni í gegnum leikskóla- göngu dætra okkar til þess að standa saman á hliðarlínunni og hvetja stelpurnar til dáða í leikj- um Stjörnunnar. Alltaf var nær- vera Óla Freys jafn notaleg. Í einu samkvæminu mætti Óli Freyr með bók sína um umboðs- skyldu og gaf viðstöddum. Það var gert á hans hátt. Engar ræður heldur bókin afhent hverjum og einum persónulega. Blik í augum og þétt handaband. Allt innihald kversins, eins og hann vildi kalla það, lýsir höfundinum vel. Þéttur og lipurlega skrifaður texti á að- gengilegu máli fyrir alla. Í for- mála er öllum sem skrifuðu með honum og studdu verkið hampað en höfundur settur í annað sæti. Það var hluti af okkar lífsins láni að fá að kynnast Óla Frey – hvort heldur var í leik, starfi eða í gegnum dætur okkar. Hann var heilsteyptur maður, yfirvegaður, kurteis, bar virðingu fyrir öðrum og bauð af sér einstaklega góðan þokka. Það er undarlegt hvað örlögin geta verið grimm þegar lífsins spilum er úthlutað. Sú var staðan með Óla Frey og Ágústu og fjöl- skyldur þeirra. Örlögin hafa ekki farið um þau mjúkum höndum og á ekki þann veg sem þau hefðu átt skilið. Stórt skarð hefur verið höggvið í foreldrahópinn okkar, en ekkert á við það skarð sem fjölskyldan berst nú við að fylla. Skarðið mun aldrei fyllt, en fallegar minningar munu hins vegar minnka það er fram líða stundir. Af þeim skildi Óli Freyr mikið eftir. Horfið er nú sumarið og sólin, í sálu minni hefur gríma völd. Í æsku léttu ís og myrkur jólin; nú einn ég sit um vetrarkvöld. Eitt sinn verða allir menn að deyja. Eftir bjartan daginn kemur nótt. Ég harma það en samt ég verð að segja, að sumarið líður allt of fljótt. (Vilhjálmur Vilhjálmsson) Elsku Ágústa, Vigdís, Kristján og Katrín. Orð fá ekki megnað að sefa þann harm sem að ykkur sækir. Foreldra-, vina- og íþróttasam- félögin standa þétt að baki ykkur og biðja Guð og góða vætti að fylgja ykkur alla tíð. Farðu í friði kæri vinur Óli Freyr. Blessuð sé minning þín. Fyrir hönd foreldra vinkvenna Vigdísar Körlu, Lúðvík Örn Steinarsson. Í dag kveð ég góðan vin. Við unnum saman um árabil en urð- um ekki vinir fyrr en síðar. Dæt- ur okkar leiddu okkur saman þegar við fylgdum þeim í leik- skólann. Kennararnir sögu mér síðar að það væri sjaldgæft að lítil börn yrðu jafn traustir vinir og dætur okkar Óla Freys urðu. Samhliða vináttu dætra okkar treystust bönd okkar í gegnum vinnuna. Sá vinskapur var mér verðmætur. Óli hafði meiri áhuga á skóg- inum en trjánum. Hann skildi mikilvægi þess að fjármálafyrir- tæki legðu áherslu á samfélags- lega ábyrgð og tók forystu í þeim efnum. Hann skrifaði kver sem gefið var út í fallegu og vönduðu bandi. Í ritinu Umboðsskylda fjallaði hann um hvaða skyldur fólk undirgengst þegar það starf- ar fyrir einhvern annan. Hann velti upp spurningum um hvaða skyldum kennarar bera gagnvart börnum og fjölskyldum þeirra. Braut heilann um hvaða skyldur fjármálafyrirtæki eða starfs- menn þess bera gagnvart við- skiptavinum. Boðskapurinn var skýr og fallegur: Fólk verður að treysta en forsenda þess er að menn séu traustsins verðir. Fyrir mér var einstakt að fylgjast með Óla sökkva sér ofan í viðfangs- efnið og brjóta það til mergjar. Brennandi áhugi hans var smit- andi og skrif hans vöktu áhuga margra á samfélagslegri ábyrgð. Bókin hans Óla á erindi við marga og ber skýrri hugsun hans fagurt vitni. Óli var vakinn og sofinn yfir velferð fjölskyldu sinnar fram að kveðjustund. Hann sýndi aðdá- unarvert æðruleysi gagnvart því erfiða verkefni sem hann stóð frammi fyrir. Hann blés á ráð- leggingar mínar um að draga úr vinnu. Hann sagðist njóta þess að vinna enda fengju verkefnin hann til að gleyma veikindum um stund. Við fjölskyldan heimsóttum nýlega rómversk böð í borginni Bath á Englandi. Þar var hægt að kasta peningum í óskabrunn og allar okkar óskir voru tengdar Óla og fjölskyldu hans. Þær óskir munu ekki allar rætast en ég treysti því og trúi að margar þeirra muni gera það. Ég kveð góðan vin minn sem hafði mikla nærveru og hafði mótandi áhrif á mig. Hugur minn er hjá fjöl- skyldu Óla. Minning um góðan dreng mun lifa. Marinó Örn Tryggvason. Orð mega sín lítils þegar ungt fólk í blóma lífsins fellur frá fjöl- skyldu sinni. Samt nagar tilfinn- ingin um að svo margt sé einmitt ósagt og svo margt sé ógert. Óli Freyr heillaði alla sem hann hittu í lífinu með hæglátu fasi, gáfum og hlýju. Það er óskiljanleg rökleysa að jafn vel gerður maður og Óli Freyr fái svo skamman tíma til að láta til sín taka í heiminum, sem einmitt virðist helst vanta fleira fólk eins og hann, sem aldrei virt- ist taka sér eitthvað fyrir hendur nema tilgangurinn væri góður og úthugsaður. Þegar lítið barn kemur í heim- inn er oft talað um að ævi þess sé óskrifað blað, ævin verði svo not- uð til að skrifa söguna. Þegar maður horfir yfir lífshlaup Óla Freys er sárt að sjá að engu er líkara en honum hafi verið kippt frá ókláruðu verki. Þó ber einnig að fagna því að allt það sem skráð var á síðurnar í lífi Óla Freys er fallegt og innihaldsríkt. Minningar um góðan mann, vin og liðsfélaga streyma fram. Við félagar Óla Freys úr Garða- bænum og blakliði Stjörnunnar þökkum fyrir að hafa fengið að verja tíma og gleðistundum með honum. Ágústu eiginkonu hans, börn- um og öðrum aðstandendum sendum við okkar dýpstu samúð- arkveðjur. Hannes Ingi, Ingvar og Róbert Karl. MINNINGAR 51 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019 ✝ Sigurd SteinarFarestveit fæddist 5. maí 1935 á Hvammstanga. Hann lést 6. ágúst 2019 á heimili fyrir parkinsons-sjúk- linga í Stokkhólmi. Steinar var elsta barn hjónanna Ein- ars Farestveit for- stj., f. 9.4. 1911, d. 4.8. 1994, sem ætt- aður var frá Modalen í Hörða- landi í Noregi, og Guðrúnar Sig- urðardóttur Farestveit hús- freyju,f. 7.12. 1913, d. 11.12. 1996, frá Æsustöðum í Langa- dal, A-Hún. Systkin Steinars: andvana fædd stúlka 1939; Arth- ur Knut framkvstj., f. 13.7. 1941, kvæntur Dröfn H. Farestveit hússtj.kennara, f. 27.6. 1941; Edda snyrtisérfr., f. 31.8. 1947, d. 22.3. 2012, gift Gunnsteini Gíslasyni myndl.manni, f. 13.9. 1947; Gerda sérkennari, f. 6.3. 1949, gift Þórði G. Guðmunds- syni raforkuverkfr., f. 2.10. 1949; Hákon Einar framkv.stj., f. 20.9. 1957, kvæntur Guðrúnu A. Farestveit sölufulltr., f. 13.7. 1953. Steinar kvæntist 29.3. 1958 Karin Bersås, f. 4.4. 1938 í Þrándheimi. Þau slitu sam- vistum. Börn Steinars og Karinar eru: fræðideild. Um haustið hóf hann nám við Norges tekniske høg- skole í Þrándheimi. Þaðan lauk hann verkfræðinámi (MSc) 1959 með vega- og mannvirkjahönn- un sem sérgrein. Eftir útskrift réðst hann sem sérfræðingur til vegahönnunardeildar Stokk- hólmsborgar. Fljótt veitti hann þeirri deild forstöðu og annaðist jafnframt um hönnun á neðan- jarðarlestarkerfi borgarinnar. Árið 1964 réð Steinar sig til verkfræðistofunnar AB Samu- elsson og Bonnier til að hafa yf- irumsjón með gerð flókinna gatnamannvirkja. Árið 1967 hvarf hann aftur til starfa hjá gatna og vegamálad. Stokk- hólms og hafði þá yfirumsjón með uppbyggingu neðanjarð- arlestarkerfisins. Árið 1990 var Steinar skipaður yfirverkfræð- ingur mannvirkjadeildar Stokk- hólmsborgar ásamt hönnun neð- anjarðarlestarkerfisins. Árið 1992 var þessari deild breytt í einkahlutafélagið Stockholm Konsult AB og varð þá Steinar yfirmaður mannvirkjadeild- arinnar. Þegar Steinar komst á eftirlaun stofnaði hann verk- fræðistofu og starfaði lengi sem ráðgjafi fyrir Stokkhólmsborg varðandi hönnun og útboð á stærri mannvirkjum borgarinn- ar. Steinar bjó lengst af á Ekerö í Stokkhólmi og verður útför hans gerð frá Ekerö-kirkju í dag, 5. september 2019, klukkan 11. Stefan, f. 28.2. 1962, brunav., barnsmóðir Ann- ette Mannersstedt, dóttir Emely; Tómas, f. 4.8. 1966, tæknifr., kvæntur Margarete Söder- lund, f. 24.12. 1971. Dætur Fanny og Sofia; Jessica, f. 22.1. 1971, kírópraktor, gift Petter Paulin, börn Bianca og Joseph; Hanna, f. 2.12. 1976, hárgreiðslum., gift Frederik Hallbrink, f. 15.10. 1970, börn Tyra og Disa; Conny Lavin upp- eldissonur, f. 14.8. 1968, mat- reiðslum, kvæntur Lenu, f. 21.2. 1966, dóttir Annette. Sam- býliskona Steinars var Cecilia Wenner. Steinar fæddist og ólst upp á Hvammstanga í húsi afa síns Sigurðar Pálmasonar og ömmu Steinvarar Benónýsdóttur. Ein- ar faðir Steinars starfaði í Reykjavík þar til foreldrar hans fengu íbúð árið 1943 á Hringbraut. Unglingsárin hans voru hins vegar á Hraunteigi 30 en þangað fluttist fjölskyldan 1947. Steinar var í Laugarnes- skóla, tók landspróf frá Ingi- marsskóla og útskrifaðist frá MR 1955 sem dúx úr stærð- Haustið 1933 stendur ungur maður á hafnarbakkanum í Bergen. Hann hefur ráðið sig til að koma nokkrum silfurref- um til bóndans á Ósi í V-Hún. Eftir tveggja vikna ferðalag með ms. Lyru og flutningabíl til Hvammstanga er kominn bullandi vetur. Unga mannin- um er bent á Sigurð Pálmason kaupmann sem tali norsku. Hann fær leigt herbergi hjá Sigurði því ein dóttirin er í Flensborgarskóla yfir vetur- inn. Refirnir fá inni í hesthúsi til vorsins. Á náttborðinu í herberginu hans er mynd af bráðfallegri ungri stúlku. Hann horfir á hana allan veturinn. Um vorið birtist hún svo og um sumarið trúlofast þau. Í október gifta þau sig og 5. maí fæðist þeim sonur, skírður Sigurd Steinar. Þetta er engillinn hennar ömmu sinnar. Sumarið 1943 flyst Steinar með foreldrum sínum og bróður til Reykjavik- ur. Skólagangan hefst í Mið- bæjarskólanum. Mamman er að þvo drengnum um andlitið. Steinar! hvað er að sjá eyrun á þér? Þau eru alsett stungum. Ekkert, mamma, segir dreng- urinn. Ekkert? Jú, sko kennslukonan stingur blýant- inum í eyrun á mér ef ég er ekki þægur. Það er svo vont. Það er skipt um bekk. Árið 1947 er svo flutt á Hraunteig 30 og hann sest í Skeggjabekk í Laugarnesskólanum. Þar verður hann ásamt fjórum drengjum uppáhaldsnemandi. Þá tók við landspóf í Ingi- marsskólanum. Pabbi, ég ætla í Sjómannaskólann segir hann og ræður sig í verksmiðjuna í Djúpuvík. Í júlí hringir hann í föður sinn. Pabbi skráðu mig í MR. Nú, ætlarðu ekki í sjómanna- skólann? Nei, MR, ég er allur stunginn og bólginn, ég vil í MR. Sumarvinnan var svo hjá Aðalverktökum á Keflavíkur- flugvelli. Árið 1955 útskrifast Steinar úr MR og upplifir ljúfa nýstúdentalífið sumar- langt. Steinar innritaðist um haustið í NTH í Þrándheimi, fær inni á stúdentagörðum. Þar kynnist hann indælis hjón- um, Sigurjóni Sveinssyni arki- tekt síðar byggingafulltrúa Reykjavíkur, og konu hans. Hún annaðist Steinar fyrstu árin eins og móðir, þar til hann fann sér kærustu, Karinu, sem var að læra ung- barnaumönnun. Þau giftu sig. Hann lýkur námi 1959 og ræð- ur sig til verkfræðistofu Stokkhólmsborgar. Hjónin leigðu sér hús á Ekerö og fljótlega byggja þau sér sitt eigið. Karin fór að taka veg- laus börn í fóstur fyrir félags- málayfirvöld á staðnum ásamt uppeldi eigin barna. Heimilið verður því oft eins og félags- málastofnun. Starfið á hug Steinars allan. Metnaðarfyllsta verkefni hans sem yfirverkfræðings Stokkhólmsborgar var að lyfta neðanjarðarbrautarstöðinni Slussen, sem var að sökkva, upp úr jörðinni. Stöðin var byggð á gömlum ruslahaug rétt við konungshöllina. Um stöðina fóru 60 þúsund manns á sólarhring. Verkfræðilausnin gekk út á að saga stöðina frá umhverfi sínu, reka niður á fast 3.000 70 metra langa steinstólpa og tékka hana síð- an upp ásamt byggingum með vökvatjökkum. Verkið tók fjögur ár. Þegar börnin fóru af heimilinu slitu Steinar og Kar- in samvistum í vinsemd. Börn Steinars og Karinar hafa reynst Steinari frábærlega í veikindum hans síðustu tvö ár- in Að lokum kveðjum við þig, kæri bróðir, með besta þakk- læti fyrir einstaka vinsemd. Guð blessi þig Dröfn og Arthur Farestveit. Árið 1989 tókumst við unga parið á við miklar breytingar í lífi okkar þegar við fluttumst til Svíþjóðar til náms, en valið var Svíþjóð þar sem Steinar föðurbróðir minn bjó með sinni fjölskyldu. Steinar var okkur unga fólkinu innan handar með því að taka á móti okkur og veita okkur leiðsögn um borgina. Það var mjög framandi að koma í stóra borg sem Stokkhólmur var fyrir okkur og ekki með reynslu af slíku. Steinar þekkti borgina mjög vel og kenndi okkur á leiða- kerfi borgarinnar ofan- og neðanjarðar enda var hann yf- irverkfræðingur gatnamála- deildar Stokkhólmsborgar og þekkti gatnakerfið mjög vel. Steinar kenndi okkur fljótt hvernig ætti að snúa sér í borg eins og Stokkhólmi og hvað bæri að varast og hvað væri gaman að gera. Hann var ávallt tilbúinn að leiðbeina okkur og gott var að leita til hans ef á þufti að halda eða eitthvað kom upp á. Mikið ör- yggi var að hafa hann innan handar fyrstu mánuðina þar sem við höfðum ekki fullt vald á tungumálinu. Við fundum einnig að Steinari fannst gam- an að geta talað íslenskuna við okkur enda gafst honum sjald- an tækifæri til þess að tala móðurmál sitt. Við kynntumst Steinari vel á þeim tæpu fimm árum sem við bjuggum í Svíþjóð. Skemmtilegasta upplifunin var þegar hann bauð okkur í Osc- artheatern á „Phantom of the Opera“ en það var gríðarlega falleg bygging í miðri Stokk- hólmsborg. Eitt af þeim stóru verkefn- um sem Steinar tók að sér sem yfirmaður gatnakerfis Stokk- hólmsborgar var að leysa risa- stórt vandamál sem kom upp í Gamla Stan í Stokkhólmi þar sem miðstöð neðanjarðarlest- arinnar og almenningsvagn- anna hafði tekið að síga. Hann fékk það hlutverk að stoppa og leiðrétta sig lestarstöðvarinn- ar. Engin lausn var í sjónmáli en undir hans leiðsögn var far- ið í það að tjakka upp mjög stórt svæði og er því enn hald- ið í þeirri stöðu með því að tjakka það upp með reglulegu millibili. Leystist þetta gríð- arlega stóra verkefni af mikilli snilld. Hann fór með okkur í skoðunarferð um svæðið og sagði okkur frá í smáatriðum hvað hefði þurft að gera. Steinar var hávaxinn og spengilegur eins og afi Einar var ávallt. Hann var rólegur og ekkert sérstaklega málgef- inn en við lögðum við hlustir þegar hann sagði eitthvað. Þegar rætt var um Ísland sáum við að Steinari var mjög hlýtt til heimahaganna en hann hafði búið meirihluta ævi sinnar í Svíþjóð fyrir utan námsárin sín í Noregi. Hann var stoltur af börnunum sínum og bauð okkur heim til sín á Östermalm ásamt því að okkur var boðið á Yxland þar sem hann var með fallegt, gamalt sumarhús sem hann undi sér vel í. Við minnumst Steinars með hlýju og alúð og vottum Ce- cilia, börnum hans og fjöl- skyldu innilega samúð. Ólöf Ásta og Þráinn Farestveit. Fyrstu raunverulegu kynni mín af Steinari Farestveit urðu þegar ég og kona mín Edda, systir Steinars, fluttum til Stokkhólms með fjögurra ára dóttur okkar til námsdval- ar haustið 1972. Árin þar á undan bjuggum við í Skotlandi og ég hafði aðeins hitt Steinar og fjölskyldu hans í stuttri jólaheimsókn þeirra til Íslands nokkru áður. Í Stokkhólmi fundum við strax hvað fjölskyldutengsl skipta miklu máli í ókunnu landi. Steinar og Karen kona hans hjálpuðust að við að greiða götu okkar strax frá fyrstu stundu með gistingu og uppihaldi á meðan við leituð- um að húsnæði á stúdenta- garði og með ófáum ferðum á stjórnsýslustofnanir sem fylgja því að koma sér fyrir í nýju landi. Heimili Steinars var barn- margt því fyrir utan eigin börn dvöldu hjá þeim hjónum allmörg fósturbörn í lengri eða skemmri tíma. Steinar hafði sterkar skoðanir á samfélags- málum og eyddum við ófáum tímum í að ræða mál líðandi stundar um samfélagsleg og pólitísk málefni en þar vorum við ekki alltaf sammála. Á þessum árum einkenndist sænskt samfélag af uppgangi jafnaðarmanna. Þar var fé- lagslegur stuðningur við al- menning verulegur á öllum sviðum. Áhrif ’68-kynslóðar- innar voru enn áberandi í sænsku háskólum og Svíþjóð kom fram sem samviska þjóð- anna í alþjóðlegri pólitík. Kjarnafjölskyldan var í fyrsta sæti hjá Steinari og Karen og hann var óþreytandi að fræða okkur um uppeldi og gildi hreyfingar og útivistar en sjálfur stundaði hann dagleg hlaup á skógarstígum að lok- inni vinnu. Á dvalartíma okkar í Stokk- hólmi urðum við fyrir þeirri erfiðu reynslu að missa barn stuttu eftir fæðingu. Ómetan- legur stuðningur Steinars og Karenar hjálpaði okkur að takast á við sorgina, eins tóku þau þátt í gleði okkar þegar við eignuðumst dóttur einu og hálfu ári síðar. Steinar heim- sótti reglulega gröf dóttur okkar eftir að við fluttum til Íslands og eftir dauða konu minnar hringdi hann oft til mín til að sýna samhygð og stuðning sem ég mun ávallt meta. Gunnsteinn Gíslason. Steinar Farestveit Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, EINAR GRÉTAR SVEINBJÖRNSSON fiðluleikari, sem andaðist 6. ágúst, verður jarðsettur frá kirkjunni í Bara, Svíþjóð, föstudaginn 6. september klukkan 11. Börnin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.