Morgunblaðið - 05.09.2019, Qupperneq 56
Alvöru djöflaterta með besta
súkkulaðikreminu
1 ¾ dl bragðlaus olía
3 egg
2 ¼ dl súrmjólk
4 dl sykur
1 ¾ dl Cadbury kakó
4 ¾ dl hveiti
1 ½ tsk. matarsódi
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. salt
1 ¼ dl mjög sterkt kaffi við stofuhita
Besta súkkulaðikremið
400 g smjör
200 g Philadelphia rjómaostur
600 g flórsykur
100 g kakó
2 tsk. vanilludropar
1 dl mjög sterkt kaffi við stofuhita
Aðferð:
Kveikið á ofninum og stillið á
175°C.
Hrærið saman olíu, egg og súrmjólk.
Í aðra skál blandið saman sykri,
kakó, hveiti, matarsóda, lyftidufti og
salti, bætið því svo saman við eggja-
blönduna.
Bætið því næst kaffinu saman við
og hrærið öllu þar til blandað sam-
an.
Smyrjið tvö 18 cm form og skiptið
deiginu á milli formanna. Bakið í
u.þ.b. 30 mín. eða þar til kökurnar
eru bakaðar í gegn.
Kælið botnana og skerið kúfaða
toppinn af botnunum þannig þeir
verði flatir.
Til að gera kremið hrærið smjörið
þar til það er létt og loftmikið. Bætið
rjómaostinum saman við og því næst
flórsykrinum, kakóinu og kaffinu,
hrærið þar til létt og loftmikið.
Setjið neðri kökubotninn á köku-
disk og u.þ.b. ¼ af kreminu á botn-
inn, setjið því næst seinni botninn og
hjúpið kökuna með kreminu. Takið
svo skeið og búið til áferð með bak-
inu á skeiðinni með því að þrýsta
henni í kremið og toga út.
Ljósmynd/Linda Ben
Djöflatertan með
besta súkku-
laðikreminu
Til eru kökur sem eru svo gómsætar að um þær
er talað lengi á eftir. Þær eru bakaðar á tyllidög-
um og eru þess megnugar að geta gert allt betra.
Þessi djöflaterta er í þeim flokki enda óheyrilega
girnileg og gómsæt á að líta. Höfundur hennar er
engin önnur en Linda Ben.
Drottning á fæti Þessi djöflaterta er sannkölluð
drottningarterta enda sérlega virðuleg og vönduð.
Þóra Kolbrá Sigurðardóttir
thora@mbl.is
Það kemur kannski fáum á óvart enda Flóni
þekktur fyrir allt annað en að vera fyrirsjáanlegur.
Að sögn Jóns Gunnars Geirdal á Blackbox var að-
dragandinn að samstarfinu skemmtilegur. „Við
spilum mikið íslenskt hipphopp á staðnum og Flóni
er fastagestur hjá okkur. Við tókum öðruvísi nálg-
un á samstarfið en Hamborgarafabrikkan gerir en
í stað þess að skíra í höfuðið á listamanninum fékk
sköpunarverkið nafnið O.M.G. sem er nokkuð lýs-
andi fyrir þessa frábæru pítsu.“ Á pítsunni er með-
al annars að finna ostablöndu og Óðals Búra, Sri-
racha, chorizo, rauðlauk, döðlur, sveppi, piparost
og hvítlauk. „Pítsan er að skora virkilega hátt,“
segir Jón Gunnar en hún er fer formlega á matseð-
ilinn á morgun. Má búast við miklu fjöri á Black-
box í tilefni dagsins en Flóni mun taka nokkur lög í
hádeginu í Borgartúninu og heldur svo tónleika á
Blackbox í Mosfellsbæ sem hefjast kl. 19.30.
Flóni mættur á matseðilinn
OMG Pítsan hans Flóna ber hinn magn-
þrungna titil OMG eftir samnefndu lagi.
Uppáhaldspítsa Flóna er nú mætt á matseðilinn hjá Blackbox og verður
samsetningin að teljast einstaklega útpæld og metnaðarfull.
Veit hvað hann vill Hinn eini sanni Flóni
setti saman virkilega spennandi pítsu.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
ÚTSÖLUDAGAR
Rökkva.isFrí heimsending
Höfðabakki 9 (Edda heildverslun) • Sími 561 9200 • rokkva@rokkva.is
Allt að
40%
afsláttur