Morgunblaðið - 05.09.2019, Síða 60
60 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
50 ára Ingibjörg er
Reykvíkingur, hún er fé-
lagsfræðingur frá HÍ og
er í doktorsnámi í um-
hverfis- og auðlinda-
fræði. Hún er í skólaráði
Háaleitisskóla og slysa-
varnaráði og samráðs-
hópi áfallahjálpar höfuðborgarsvæðisins
fyrir hönd Reykjavíkurdeildar Rauða kross-
ins.
Maki: Gunnar Alexander Ólafsson, f. 1969,
sérfræðingur hjá Umhverfisstofnum.
Börn: Hekla Bjarnadóttir, f. 1994, Hákon
Gunnarsson, f. 2002, og Hinrik Dagur
Gunnarsson, f. 2007.
Foreldrar: Ómar Óskarsson, f. 1949, ljós-
myndari, og Ólafía Kristín Sigur-
garðsdóttir, f. 1948, fyrrverandi aðal-
féhirðir hjá Lögreglunni í Reykjavík.
Ingibjörg Lilja
Ómarsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Reyndu að forðast rifrildi um sam-
eiginlegar eigur og fasteignir. Leggðu þitt
af mörkum með því að sýna skilning og
umburðarlyndi.
20. apríl - 20. maí
Naut Þig þyrstir í tilbreytingu en getur
með engu móti gert upp á milli þeirra
möguleika sem fyrir hendi eru.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Ræddu fjárhagsáætlanir og við-
skiptahugmyndir við félaga. Talaðu við alla
og reyndu að tengja almennilega, það gef-
ur þér meira en þig grunar.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Til að slá í gegn á einni nóttu þarf
margra ára undirbúning, ekki bara nokkrar
klukkustundir. Nú sérðu hvort gjörðir þínar
færa þér árangur eður eigi.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú setur þér markmið að nýju en það
krefst einbeitingar, forgangsröðunar og
áætlana. Sumir halda dagbók yfir drauma
sína og þú ættir að velta þeim möguleika
fyrir þér.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Annríki er lykilorð dagsins. Hlutirnir
munu að öllum líkindum fara á allt annan
veg en þú gerir ráð fyrir.
23. sept. - 22. okt.
Vog Forðastu þá sem eru stöðugt að etja
mönnum saman til þess að skapa sam-
keppni á vinnustað. Forðastu að ræða
mikilvæg málefni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Fylgdu þínum innri manni til
að koma betra skipulagi á líf þitt. Þú átt
svo auðvelt með að fara þínu fram að þú
þarft að gæta þess að ganga ekki of nærri
öðrum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vinur þinn mun ekki bregðast
eins við og þú býst við af honum. Finndu út
úr því hverju eða hverjum er um að kenna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Nú er góður tími til þess að
leggja síðustu hönd á rannsóknir sem þú
hefur lagt stund á að undanförnu.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Vertu óspar á að sýna öðrum
hæfileika þína því það þjónar þínum til-
gangi best. Vinir þínir dá þig og dýrka, og
elska að vera með þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Óvænt tækifæri mun bjóðast þér
og það ríður á miklu að þú kunnir að
bregðast rétt við. Ekki þrasa um það
hvernig á að deila einhverju niður.
ólíkir, en goðið mitt sem hefur keypt
úr hér er Ian Anderson úr Jethro
Tull. Hann hefur keypt þau nokkur
og hefur sent helling af fólki í búðina
fékk gefins úr frá Vinum Tíbets á Ís-
landi. Svo var gaman að hitta Viggo
Mortensen leikara og Quentin Tar-
antino, þeir eru mjög sérstakir en
G
ilbert Ólafur Guðjónsson
er fæddur 5. september
1949 í Reykjavík. Hann
bjó fyrstu æviárin í
Eskihlíð í Hlíðunum en
fluttist síðar á Dunhaga og gekk í
Melaskóla til 12 ára aldurs. Hann
fluttist síðar í Stóragerði í Reykjavík
og stundaði þá nám í Réttarholts-
skóla.
Eftir grunnskólanám fór Gilbert í
úrsmíðanám í Iðnskólanum í Reykja-
vík. Í verklega hluta námsins gerðist
hann, 16 ára gamall, nemi í úrsmíði
hjá Hermanni Jónssyni úr-
smíðameistara á Lækjargötu 2. Gil-
bert lauk úrsmíðanámi frá Iðnskól-
anum árið 1966 og var síðasti neminn
til að útskrifast sem úrsmiður frá
Iðnskólanum í Reykjavík, þar sem
námið var síðan lagt niður hérlendis.
Þegar Gilbert er inntur eftir því
hvaða störfum hann hafi gegnt öðr-
um en úrsmíði minnist hann þess
þegar hann starfaði sem ungur
drengur í fiskbúðinni hjá Dóra fisk-
sala á Grímsstaðaholti í Vestur-
bænum í Reykjavík. Að því starfi
slepptu hefur hann starfað sem úr-
smiður alla sína starfsævi og segist
hafa hlakkað til hvers vinnudags,
starfið sé einfaldlega svo skemmti-
legt.
Hann hóf starfsferillinn sem úr-
smiður í verslun á Laugavegi 3 hjá
Ásgeiri Bolla Kristinssyni versl-
unarmanni en opnaði síðan sína eigin
verslun árið 1974 að Austurstræti 3.
Gilbert færði síðan verslun sína árið
1980 upp á Laugaveg 62, þar sem
hann hefur rekið verslun sína og
verkstæði allar götur síðan.
Verslun Gilberts hlaut Njarðar-
skjöldinn árið 2013 fyrir framúrskar-
andi verslunarhætti, en verslunin var
talin hafa skapað sér ákveðna sér-
stöðu hvað varðar sölu til erlendra
ferðamanna á helsta vörumerki fyrir-
tækisins, JS Watch co. Reykjavík.
„Sumir eru úrasafnarar og koma sér-
staklega til landsins til að kaupa úr
hjá mér. Við bjóðum upp á að fylgjast
með því hvernig úrin eru búin til.“
Margt frægðarmennið hefur komið
við hjá Gilberti til að kaupa sér úr.
„Ætli aðalpersónan sem hingað hef-
ur komið sé ekki Dalai Lama, sem
til mín. Hann gaf mér flautu sem
hann notaði á tónleikaferðum og
plötum 1976-1977 og áritaði nafn
mitt á flautuna, sem ég er með í
búðinni.“
Armbandsúrin byggja á íslensku
hugviti og hönnun sem er innblásin
af íslenskri náttúru og eru sett sam-
an af honum sjálfum og syni hans
Sigurði Birni, en þeir feðgar hafa
starfað saman allt frá árinu 1991,
þegar Sigurður gerðist úrsmíðanemi
hjá föður sínum. Það er gaman að
segja frá því að nú hefur Gilbert Arn-
ar, sonur Sigurðar og barnabarn Gil-
berts, nýlega hafið verknám á verk-
stæðinu hjá afa sínum.
Þrátt fyrir að úrsmíðin sé eitt
helsta hugðarefni og ástríða Gilberts
stundar hann áhugamál sín af kappi í
frístundum. Gilbert gerðist með-
limur í Sjóstangveiðifélagi Reykja-
víkur árið 2000 og er mjög virkur
þátttakandi í öllum þeim sjóstang-
veiðimótum sem haldin eru á ári
hverju í helstu sjávarplássum á Ís-
landi. Hann hefur unnið til ýmissa
Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmíðameistari – 70 ára
Úrsmíðameistarinn „Það skemmtilegasta við úrsmíðina er að ég hef aldrei þurft að vinna, þetta hefur alltaf verið
hobbí hjá mér og ég kem oft hingað niður í bæ á sunnudögum til að gera við úr,“ segir Gilbert.
Dalai Lama á úr frá Gilberti
Nýlegur viðskiptavinur Ed Sheeran keypti úr handa móður sinni en með
honum og Gilberti á myndinni eru vinstra megin Grímkell Sigurþórsson,
hönnuður fyrirtækisins, og Sigurður Björn, sonur Gilberts, hægra megin.
30 ára Albert er Reyk-
víkingur og er mennt-
aður tónsmiður frá
Listaháskóla Íslands
og er með MPM gráðu
í verkefnastjórnun frá
HR. Hann er
hugbúnaðarhönnuður
hjá Meniga.
Maki: Sigrún Erla Ólafsdóttir, f. 1987,
kennari að mennt með meistaragráðu í
sálfræði uppeldis og menntunar og er
deildarstjóri verkefna hjá Álfhólsskóla.
Börn: Guðmundur Kári Albertsson, f.
2012, Elísabet Anna Albertsdóttir, f. 2013,
og Margrét María Albertsdóttir, f. 2017.
Foreldrar: Haukur Oddsson, f. 1959, fv.
forstjóri Borgunar, og Margrét Gunnars-
dóttir, f. 1957, hjúkrunarfræðingur og fast-
eignasali, bús. í Reykjavík.
Albert
Hauksson
Til hamingju með daginn
Ólafsvík Heiða Dís fæddist á Akranesi
hinn 27. desember 2018. Hún vó 3.322
g og var 49 cm löng. Foreldrar hennar
eru Sigurbjörg Sandra Pétursdóttir
og Grímur Sveinn Erlendsson.
Nýr borgari