Morgunblaðið - 05.09.2019, Side 62
ÍBV
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Sigurbergur Sveinsson, stórskytta
ÍBV, telur að litlar mannabreytingar
á milli tímabila í Vestmannaeyjum
muni hjálpa liðinu á komandi leiktíð.
Sigurbergur mun þó sjálfur að öllum
líkindum missa af fyrstu fjórtán
deildarleikjum ÍBV, þar sem hann
gekkst undir aðgerð á hné á dög-
unum. ÍBV hefur leik í úrvalsdeild-
inni á sunnudaginn kemur þegar
Stjarnan kemur í heimsókn, en liðið
endaði í fjórða sæti deildarinnar og
féll úr leik í undanúrslitum Íslands-
mótsins gegn Haukum á síðustu
leiktíð. Eyjamönnum er spáð þriðja
sæti af fyrirliðum og þjálfurum
deildarinnar.
„Tímabilið leggst mjög vel í mig
persónulega. Undirbúningstímabilið
hefur gengið mjög vel og hollningin
á liðinu er góð. Menn eru tilbúnir og
klárir í slaginn og það er komin mikil
tilhlökkun í hópinn að byrja þetta.
Ég held að þetta sé bara fínasta spá
og að enda í topp þremur yrði bara
ágætis niðurstaða held ég eins og
staðan á liðinu er í dag þótt við för-
um auðvitað í alla leiki til þess að
vinna þá. Hvort deildin í ár verður
jafnari en oft áður þarf eiginlega
bara að koma í ljós því það hafa verið
einhverjar hræringar á milli liða,
hér og þar, og það verður for-
vitnilegt að sjá hvernig þetta spilast
fyrir áramót.“
Litlar breytingar jákvæðar
Litlar mannabreytingar hafa átt
sér stað í Vestmannaeyjum í sumar,
ólíkt sumrinu 2018, þegar margir
lykilmenn yfirgáfu liðið og nýir
menn voru fengnir inn í staðinn.
„Ég held að það sé bara jákvætt
fyrir liðið hversu litlar breytingar
hafa átt sér stað á milli ára. Hópur-
inn breyttist mikið fyrir síðasta
tímabil og við erum í raun einu ári
ríkari núna ef svo má segja. Menn
eru farnir að þekkja vel inn á hver
annan og þegar allt kemur til alls er
bara fínt að vera ekki ráðast í of
miklar breytingar alltaf á milli ára.
Við fengum nýjan markmann sem
lítur vel út en annars er þetta nánast
bara sami hópur og í fyrra. Ungir
strákur eins og Dagur, Elliði og
Gabríel fengu allir ágætlega stór
hlutverk í fyrra og það mun pottþétt
skila sér á komandi leiktíð. Þeir
fengu allir góðar og mikilvægar mín-
útur og þeir eru bæði orðnir reynd-
ari og skynsamari. Innkoma þeirra
stækkar hópinn okkar til muna, sem
er bara jákvætt fyrir liðið.“
Sigurbergur telur liðið fullfært
um að berjast um alla titla sem í boði
eru í ár, en tímabilið 2017-2018 unnu
Eyjamenn þrefalt.
„Það heltist aðeins úr lestinni hjá
okkur í leikmannahópnum undir
restina á síðasta tímabilinu, sem var
slæmt. Við vorum mjög nálægt því
að fara alla leið, þrátt fyrir þessi
skakkaföll, og það vantaði í raun
bara herslumuninn upp á. Það tekur
alltaf tíma fyrir nýja þjálfara að
koma inn með sínar áherslur og Er-
lingur og Kristinn eru að fara inn í
annað tímabil sitt núna, sem er mjög
jákvætt fyrir liðið. Markmiðið okkar
í ár er fyrst og fremst að vera í bar-
áttunni á öllum vígstöðum og ég tel
okkur vera hópinn og mannskapinn
til þess að gera það,“ sagði Sigur-
bergur í samtali við Morgunblaðið.
Lið sem getur
barist á öllum
vígstöðum
Sigurbergur segir Eyjamenn reynsl-
unni ríkari eftir miklar breytingar 2018
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Skytta Sigurbergur Sveinsson mætir væntanlega til leiks hjá Eyjamönnum
um áramótin en hann verður frá keppni vegna meiðsla fyrri hluta vetrar.
62 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 2019
Mikil gæði eru í leikmannahópnum hjá ÍBV og
flestir lykilmenn eru heilir núna.
Heimavöllurinn og varnarleikur sem veldur
mótherjum vandræðum eru lykilþættir.
Toppbarátta er fram undan hjá ÍBV og jafnvel
titill ef markvarslan verður góð.
Áhugavert: Munu Kristján Örn (Donni) og Dag-
ur ná öðru skrefi upp á við?
Sebastian Alexandersson
um Eyjamenn
MARKVERÐIR:
Björn Viðar Björnsson
Haukur Jónsson
Petar Jokanovic
HORNAMENN:
Friðrik Hólm Jónsson
Gabríel Martínez
Grétar Þór Eyþórsson
Hákon Daði Styrmisson
Theódór Sigurbjörnsson
LÍNUMENN:
Elliði Snær Viðarsson
Kári Kristján Kristjánsson
Örn Bjarni Halldórsson
ÚTISPILARAR:
Arnór Viðarsson
Dagur Arnarsson
Fannar Friðgeirsson
Ívar Logi Styrmisson
Kristján Örn Kristjánsson
Magnús Karl Magnússon
Magnús Stefánsson
Róbert Sigurðsson
Sigurbergur Sveinsson
Þjálfarar: Erlingur Birgir Rich-
ardsson og Kristinn Guðmunds-
son.
Árangur 2018-19: 5. sæti og
undanúrslit.
Íslandsmeistari: 2014, 2018.
Bikarmeistari: 1991, 2015, 2018.
ÍBV fær Stjörnuna í heimsókn í
fyrsta leik deildarinnar á sunnu-
daginn klukkan 16.
Lið ÍBV 2019-20
KOMNIR
Magnús Karl Magnússon frá Víkingi
Petar Jokanovic frá Red Boys
Differdange (Lúxemborg)
Örn Bjarni Halldórsson frá Lemvig
(Danmörku)
FARNIR
Daníel Örn Griffin í KA
Breytingar hjá Eyjamönnum
Þýskaland
Melsungen – Lemgo ............................ 26:23
Bjarki Már Elísson skoraði 10 mörk fyr-
ir Lemgo.
Hannover-Burgdorf – Balingen ........ 31:23
Oddur Gretarsson skoraði eitt mark fyr-
ir Balingen.
Magdeburg – Nordhorn ..................... 39:27
Geir Sveinsson þjálfar Nordhorn.
Füchse Berlín – Minden ...................... 25:29
Staðan: Magdeburg 6, Hannover-Burg-
dorf 6, Leipzig 6, Flensburg 5, Kiel 4, RN
Löwen 4, Wetzlar 3, Bergischer 3, Melsun-
gen 3, Erlangen 2, Füchse Berlín 2, Minden
2, Lemgo 2, Balingen 2, Stuttgart 0, Göpp-
ingen 0, Ludwigshafen 0, Nordhorn 0.
Spánn
Meistarakeppni Spánar:
Cuenca – Barcelona ............................ 22:33
Aron Pálmarsson skoraði 3 mörk fyrir
Barcelona.
Danmörk
Esbjerg – Nyköbing ............................ 27:21
Rut Jónsdóttir skoraði 2 mörk fyrir Es-
bjerg.
Frakkland
Istres – París SG.................................. 25:35
Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 2 mörk
fyrir PSG.
Noregur
Halden – Elverum ............................... 27:28
Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 3
mörk fyrir Elverum.
Meistarakeppni karla
Selfoss – FH................................. (frl.) 33:35
HANDBOLTI
HM karla í Kína
A-RIÐILL:
Fílabeinsströndin – Pólland ................ 63:80
Venesúela – Kína.................................. 72:59
Lokastaðan: Pólland 6, Venesúela 5,
Kína 4, Fílabeinsströndin 3.
B-RIÐILL:
Suður-Kórea – Nígería ...................... 66:108
Rússland – Argentína .......................... 61:69
Lokastaðan: Argentína 6, Rússland 5,
Nígería 4, Suður-Kórea 3.
Í milliriðli I leika Pólland, Venesúela,
Argentína og Rússland.
C-RIÐILL:
Púertóríkó – Túnis ............................... 67:64
Spánn – Íran ......................................... 73:65
Lokastaðan: Spánn 6, Púertóríkó 5, Tún-
is 4, Íran 3.
D-RIÐILL:
Angóla – Filippseyjar.................. (frl.) 84:81
Ítalía – Serbía ....................................... 77:92
Lokastaðan: Serbía 6, Ítalía 5, Angóla 4,
Filippseyjar 3.
Í milliriðli J leika Spánn, Púertóríkó,
Serbía og Ítalía.
KÖRFUBOLTI
TUDOR rafgeymar
TUDOR TUDOR
Er fjórhjólið tilbúið fyrir
fyrir fjallaferðina?
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónusta
Veldu
öruggt
start með
TUDOR
NÝTT NÝTT,
Lithium rafgeymar fyrir mótorhjól