Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 1
F I M M T U D A G U R 1 9. S E P T E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 220. tölublað 107. árgangur
ATVINNUBLAÐ
MORGUN-
BLAÐSINS
HAFA
JÓLASIÐIR
BREYST?
ERU SAMRÆMD
PRÓF BESTA
LAUSNIN?
JÓL Í COSTCO 20 SKÓLI FYRIR ALLA 22FINNA VINNU 4 SÍÐUR
Harpa Ólafsdóttir, skrifstofu-
stjóri skrifstofu kjaramála hjá
Reykjavíkurborg, segir í samtali
við Morgunblaðið í dag að allir að-
ilar í kjaraviðræðum vilji finna leið-
ir til að stytta vinnuvikuna, en að
útfærslan sé flókin. Þá sé ekki hægt
að yfirfæra tilraunaverkefni
Reykjavíkurborgar á alla starfs-
menn.
Harpa segir að borgin hafi þegar
lagt fram tilboð sem feli í sér stytt-
ingu vinnuvikunnar um þrjár
klukkustundir á viku. Ýmislegt
þurfi hins vegar að taka með í
reikninginn við útfærslu þess. »4
Morgunblaðið/Hari
Kjaramál Stytting vinnuvikunnar hefur
borist í tal í kjaraviðræðum borgarinnar.
Allir vilja finna leiðir
til að stytta vikuna
Fyrir sjö árum
fann Guðrún
Dóra Þórudóttir
sendibréf frá
árinu 1948 uppi á
háalofti í húsi
sínu. Henni þótti
efni bréfsins,
sem var frá ís-
lenskum manni í
Bandaríkjunum
til bróður síns
hér á landi, áhugavert. Hún hefur
árangurslaust reynt að hafa uppi á
afkomendum bræðranna og leitar
þeirra nú á samfélagsmiðlum. »6
Leitar afkomenda
bræðranna í bréfinu
Bréf Það var
skrifað árið 1948.
Rekstrartekjur Core ehf., sem
meðal annars flytur inn orkudrykk-
inn Nocco og prótínstykki frá Bar-
bells, jukust um 57% á árinu 2018
miðað við árið 2017. Námu tekj-
urnar 1,8 milljörðum króna en voru
1,1 milljarður króna árið 2017 og
440 milljónir árið 2016. Ársæll Þór
Bjarnason, annar eigenda Core,
segir breyttar neysluvenjur skýra
vinsældir Nocco. »34
Ævintýralegur vöxt-
ur orkudrykkjarsala
Stefán Gunnar Sveinsson
Ómar Friðriksson
„Við frestuðum afgreiðslunni á að
ábyrgjast frekara lán, þar til við er-
um að minnsta kosti búnir að fá að
vita hvað fór úrskeiðis þannig að
hægt sé að koma í veg fyrir að þetta
geti gerst aftur,“ segir Magnús Örn
Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar
og formaður bæjarráðs Seltjarnar-
ness. Ráðið ákvað á síðasta fundi sín-
um að það vildi bíða eftir niðurstöðu
úttektar, sem stjórn Sorpu bs. ætlar
að biðja um, um ástæður þess að við-
bótarkostnaður hefur komið fram
við tvö verkefni á vegum byggða-
samlagsins, áður en samþykkt yrði
að bærinn ábyrgðist lán upp á 990
milljónir króna hjá Lánasjóði sveit-
arfélaga. Sú samþykkt er skilyrði
þess að lánveitingin geti gengið eftir,
þar sem öll sveitarfélögin sem eiga
hlut í Sorpu þurfa að samþykkja að
ábyrgjast hana.
Magnús Örn segir að ráðið hafi
ekki verið sátt við þær skýringar
sem það fékk frá forráðamönnum
Sorpu um ástæður þess að lánveit-
inguna þurfti. Segir Magnús að ann-
ars vegar sé um að ræða dæmigerða
framúrkeyrslu fjárfestinga þegar
kemur að opinberum rekstri og hins
vegar að það gleymdist að gera ráð
fyrir kostnaði við allan tækjabúnað í
viðbyggingu. „Og það er ekki ásætt-
anleg skýring án þess að því fylgi
hver beri ábyrgðina,“ segir Magnús.
Hann segir að það gangi ekki upp að
byggðasamlög geti komið aftur til
eigenda sinna með skýringar á borð
við að það hafi „láðst“ að gera ráð
fyrir kostnaði. Þetta sé því eðlilegt
aðhald af hálfu sveitarfélagsins.
Þarf skýra leiðsögn eigenda
Birkir Jón Jónsson, stjórnarfor-
maður Sorpu bs., segir að félagið sé
að vinna að undirbúningi úttektar-
innar og að málið verði lagt fyrir
stjórnina í næstu viku. „En það er
ljóst í ljósi afstöðu Seltjarnarness að
eigendavettvangur þarf að koma
saman til að fara yfir þá stöðu sem
komin er upp, því við þurfum skýra
leiðsögn frá eigendum þess um
næstu skref,“ segir Birkir Jón, en
framkvæmdastjórar sveitarfélag-
anna og stjórn Sorpu eiga sæti í
þeim vettvangi. Birkir á von á því að
sá fundur verði haldinn fljótlega.
Aðspurður hvenær niðurstöðu sé
að vænta úr úttektinni segir Birkir
Jón það fara eftir eðli úttektarinnar.
„Og mér þykir eðlilegt í ljósi forsögu
málsins að við vöndum okkur þegar
kemur til þessarar skoðunar og setj-
um upp raunhæfan tímaramma, og
það er það sem við ætlum að gera.“
Ósátt við skýringar Sorpu
Eigendavettvangur Sorpu hittist á næstunni til þess að ræða stöðuna
MFá ekki Sorpu-lánið nema … »36
Hinar árlegu haustlægðir eru farnar að láta að
sér kveða á ný, og eru viðbrigðin mikil fyrir
marga eftir eitt hlýjasta sumar í manna minnum.
Rok og rigning réðu hins vegar ríkjum í gær og
var því gott að geta beðið eftir strætisvagni í
skjóli, líkt og þessi stúlka gerði.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Beðið eftir
strætó í skjóli