Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
LAND ROVER HESTHÁLSI 6-8, 110 REYKJAVÍK, SÍMI: 525 6500
Range Rover Sport HSE PHEV
Verð frá: 13.690.000 kr.
Range Rover Sport HSE P400e tengitvinnbíll setur ný viðmið. Einstök hönnun,
framúrskarandi aksturseiginleikar og 404 hestöfl gera þennan sportlega
lúxusjeppa að hagkvæmum og umhverfisvænum kosti.
Verið velkomin í reynsluakstur!
RAFMAGNIÐ ER KOMIÐ
Í RANGE ROVER
www.landrover.is
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
5
5
8
9
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Svona vandamál byrja heima fyrir. Það er á
kristaltæru. Foreldrar þurfa að vera vakandi
fyrir samfélagsmiðlanotkun barnanna sinna,“
segir Guðmunda Áróra Pálsdóttir, móðir sem
lenti í því að sérstök síða var stofnuð á sam-
skiptamiðlinum TikTok í þeim tilgangi að lítils-
virða tíu ára gamla dóttur hennar.
Þar var móðgandi ummælum dreift ásamt
myndum af dóttur Guðmundu sem var hvött til
að skaða sig.
„Á þriðjudagskvöld lét foreldri vinkonu dótt-
ur minnar mig vita af síðunni. Hún vildi segja
mér frá því að þetta væri í gangi svo ég gæti
unnið úr því vegna þess að hún hefði viljað fá að
vita af því sjálf ef svona væri gert við dóttur
hennar,“ segir Guðmunda.
Dóttir Guðmundu vissi af síðunni en hafði
ekki þorað að láta foreldra sína vita. Hún sá
síðuna þegar síðan byrjaði að elta (e. follow)
hennar eigin TikTok-síðu.
„Mann órar ekki fyrir þessu og maður veit
ekki hvað börnin eru búin að ganga lengi með
þetta og hvort börnin fari að skaða sig eitthvað
út frá svona einelti. Þetta er hrikalegt og mað-
ur verður einfaldlega reiður við tilhugsunina
um að það séu fleiri dæmi til.“
TikTok er samfélagsmiðill þar sem fólk deil-
ir myndskeiðum og er hann vinsæll á meðal
barna á grunnskólaaldri. Hver sem er getur
skoðað miðilinn og búið sér til aðgang nafn-
laust. Aðgangsnöfn sem hefjast á „hötum“ og
enda á nafni þess einstaklings sem hatrið bein-
ist að eru orðin mjög algeng á TikTok að sögn
Guðmundu.
„Dóttir mín er því ekki sú eina sem er að
ganga í gegnum þetta. Hún er bara dropi í haf-
ið af börnum sem eru að lenda í neteinelti.
Þetta á ekki að líðast.“
Dóttir Guðmundu hefur áður lent í einelti.
„Hún hefur tekist á við mótlæti af og til sem
maður hefur alltaf getað tekist á við því það
hefur ekki verið í gegnum netið. Þá hefur mað-
ur alltaf getað rætt við foreldra og unnið úr því
en núna er það ekki hægt. Það er ekkert hægt
að gera og maður er orðinn voðalega ber-
skjaldaður gagnvart þessu. Krakkar eru ber-
skjaldaðir gagnvart netinu og gera sér ekki
grein fyrir því hvað þetta er alvarlegt.“
Dóttirin „dropi í hafið“
Dóttir Guðmundu er í sjötta bekk. Guð-
munda bendir á að börn á þeim aldri séu ekki
óvitar lengur og ættu að vita að svona hegðun
hafi afleiðingar.
„Það eru svo margir sem benda á að hafa
samband við skólayfirvöld og við höfum auðvit-
að gert það. Þau eru boðin og búin til þess að
hjálpa en það er mikilvægast að foreldrar séu
vakandi fyrir þessu. Dóttir mín er bara dropi í
hafið af krökkum sem eru að lenda í svona ein-
elti.“
Guðmunda setti inn færslu á Facebook um
málið. Þar setti fjöldinn allur af ungmennum
sig í samband við hana og sagði frá svipaðri
reynslu.
„Það er ofboðslega sorglegt hversu margir
hafa lent í þessu. Við eigum að geta rætt við
börnin okkar og börnin okkar eiga að geta rætt
við okkur, ef ekki við okkur þá við einhvern
annan.“
Börn berskjölduð gagnvart netinu
Fjölmargar hatursfullar síður sem beinast að börnum settar upp á samfélagsmiðlinum TikTok
Móðir sem uppgötvaði slíka síðu sem beinist gegn dóttur hennar telur nauðsynlegt að ræða vandann
Meiðandi Skjáskot af síðunni sem beindist gegn
dóttur Guðmundu, en andlit hennar er skyggt á
myndinni. Ummælin eru mjög særandi.
TikTok
» Á TikTok hafa hatursfull ummæli
fengið að grassera á síðustu árum.
» Meðal annars hafa þar viðgengist ras-
ísk ummæli, hatursorðræða, einelti og
kvenfyrirlitning.
» Miðillinn er vinsæll á meðal ungs
fólks, helst á meðal þeirra sem fæddust
í byrjun aldarinnar.
Síða Á mörgum síðnanna eru börn hvött til
sjálfsskaða. Guðmunda segir það mjög alvar-
legt, erfitt sé að vita hvaða áhrif slíkt hafi.