Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 12

Morgunblaðið - 19.09.2019, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Gangur náttúrunnar er meðsama móti, sama hver teg-undin er. Gangmál kúa ogkvíga er 21 dagur, það er kallað að þær beiði. Og þá þarf að svara kalli fljótt og vel,“ segir Eyþór Karl Ingason frjótæknir. Sæðinga- maður er dagleg lýsing á þessu mikilvæga starfi sem fyrir austan fjall er sinnt af átta manna flokki á vegum Búnaðarsambands Suður- lands. Bændur senda á hverjum morgni inn beiðni um að fá sæðara í fjósið, en á bæjum er víða uppi daga- tal þar sem sést staðan á gang- málum gripa. Almanak þetta er grundvallargagn í búskapnum. Plasthanskar og pípa „Jú, auðvitað eru sæðingamenn útsettir fyrir allskonar brandara og grín um starfið. Maður tekur því nú bara létt,“ segir Eyþór sem býr í Bræðratungu í Biskupstungum, Blá- skógabyggð. Þaðan gerir hann út á þjónustusvæði sitt sem er uppsveitir Árnessýslu; Eyþór ekur um 200 kíló- metra á dag og fer á 8 til 10 bæi. Og þegar náttúran kallar þarf sæðinga- maðurinn að vera til taks, en í þess- ari þjónustu er aðeins hlé sex daga á ári. „Þegar ég kem í fjósið byrjar bóndinn á því að vísa mér á gripinn sem sæða skal; kvígur eru eftir fyrsta burð kallaðar kýr. Í tösku er ég með sprautu og í nál hennar er sæðið, sem er á staðnum tekið úr frosti og þýtt upp í vatni. Svo set ég á mig plasthanska og fer svo með pípuna um leggöngin inn í kvíguna og sprauta. Auðvitað er allur gangur á því hvort kýrin eða kvígan heldur fangi eða hvort koma þarf aftur þremur vikum síðar. Yfirleitt tekst þetta þó ágætlega og starfið er ekk- ert annað en æfing, segir búfræðing- urinn Eyþór sem nam sæðingar- fræðin á sínum tíma hjá Þorsteini Ólafssyni dýralækni. Fjórðungi bregður til fósturs segir máltækið og hver skepna ber svip af móður og föður. Meðal bænda í dag er eftirsótt að fá kálfa sem svo verða stórir og háfættir gripir – og kýr sem eru með góð júg- ur og spenastöðu. Með sæði úr 25 tuddum „Yfirleitt erum við með í kútn- um okkar sæði úr um 25 tuddum, og þar hafa þeir Bárður frá Villingadal í Eyjafirði og Sjarmi frá Hrepphólum í Hrunmannahreppi komið sterkir inn að undanförnu. Sæði úr þeim er mikið notað um þessar mundir enda eru þetta góðir gripir til undan- eldis,“ segir Eyþór sem kann starfi sínu afar vel. Það sé gaman að fara um sveitir og spjalla við bændur og búalið. „Svo er líka oft gaman að koma inn í fjósið þegar kvígur kannski fleiri en ein eru þar beiddar. Þá ólg- ar í þeim krafturinn og stundum stökkva þær hver upp á aðra. Alveg ótrúlegt,“ segir sæðingamaðurinn að síðustu. Ólgandi kraftur í kvígum Þegar náttúran kallar mætir sæðingamaðurinn á svæðið. Eyþór Karl Ingason fer vítt um sveitir Suðurlands með töskuna sem í er sæði og sprautur. Bárður frá Villingadal í Eyjafirði og Sjarmi frá Hrepphólum eru vinsælir til undaneldis. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skyldustörf „Jú, auðvitað eru sæðingamenn útsettir fyrir allskonar brandara og grín um starfið,“ segir Eyþór Kú Beiða á þriggja vikna fresti og þá er líf í básnum, eins og nærri má geta. Sextán myndlistarmenn tóku ný- verið saman höndum og opnuðu sýningargallerí við Skólavörðustíg 20 er nefnist einfaldlega Galleríið. Formleg opnun átti sér stað sl. laugardag að viðstöddu fjölmenni. „Markmið Gallerísins er að vera með breitt úrval myndlistarverka frá áhugaverðum sem og reyndum myndlistarmönnum. Við kapp- kostum að myndlistin nái til sem flestra í sem víðastri mynd. Gall- eríið mun jafnframt halda reglu- bundnar kynningar á myndlistar- mönnum Gallerísins sem og standa fyrir öðrum listrænum við- burðum,“ segir í tilkynningu frá Galleríinu. Listamennirnir 16 eru Ása Heiður, blönduð tækni, Gunnella, olíumálverk, Erna Jónsdóttir, skúlptúr og leirlistaverk, Jón Baldur Hlíðberg, vatnslitaverk, Kolbrún Friðriksdóttir, olíu- málverk, Kristjana S. Williams, blönduð tækni, Laufey Jensdóttir, skúlptúr, grafíkverk og blönduð tækni, Margrét Zoponíasdóttir, olíumálverk, Ólöf Einarsdóttir, textílverk og blönduð tækni, Ósk- ar Thorarensen, vatnslitaverk, Sara Vilbergsdóttir, akrílmálverk og skúlptúr, Sigrún Einarsdóttir í Bergvík, glerverk og skúlptúr, Sigurður Sævar Magnúsarson, olíumálverk, Thomas Flecken- stein, ljósmyndaverk, Vilborg Gunnlaugsdóttir, vatnslitaverk, og Þorgrímur Andri Einarsson, sem er með olíumálverk. Galleríið er opið alla daga frá kl. 10 til 18. Sextán myndlistarmenn opnuðu Galleríið við Skólavörðustíg Breitt úrval myndlistarverka Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Myndlistarmaður Gunnella, Guðrún Ólafsdóttir, er meðal forsprakka Gallerísins við Skólavörðustíg 20, sem 16 listamenn opnuðu nýverið. Ljósmynd/Galleríið Skólavörðustígur Galleríið var formlega opnað um síðustu helgi með viðhöfn. Öryggismiðstöðin hefur sett svo- nefndan snjallhnapp á markað; nýja lausn fyrir eldri borgara, fatlaða og aðra þá sem þurfa aðstæðna sinna vegna að njóta öryggis heima við og geta kallað eftir aðstoð án tafar. Leysir snjallhnappurinn af hólmi hefðbundna öryggishnappa sem hafa verið á markaðnum um árabil. Í til- kynningu frá Öryggismiðstöðinni segir m.a. að hnappurinn veiti meira öryggi en eldra kerfi. Gefur hann stöðu á viðkomandi einstaklingi, fylgist með og lætur vita ef eitthvað bregður út af vana, t.d. ef fólk skilar sér ekki inn í eldhús í hádeginu eða er óvanalega lengi á salerninu. Býður kerfið upp á að setja upp nokkra skynjara á heimili fólks. Geta aðstandendur fengið app í símann sem gefur þeim upplýsingar um vel- ferð og heilsu þess sem er með hnappinn. Öryggi Snjallhnappur er sagður fylgj- ast betur með fólki en áður þekkist. Fylgist vel með fólki Snjallhnappur á markað Um þessar mundir eru liðin 100 ár frá því fyrsti Waldorfskólinn í heiminum hóf starfsemi sína, en þeir eru byggð- ir á kenningum sem Rudolf Steiner, austurrískur heimspekingur og fræðimaður, setti fram. Af því tilefni munu börn sem stunda nám við Waldorfskólann í Lækjarbotnum ofan við Reykjavík, starfsfólk og foreldrar koma saman á Klambratúni klukkan átta á fimmtu- dagsmorgun. Þar mun heyrast söng- ur og ýmsar verur úr Mikjálsævintýr- inu mæta á staðinn á hátíð sem stendur í stutta stund – eða þar til skólarútan leggur af stað um klukkan hálfníu í Lækjarbotna. Waldorfskól- arnir í heila öld Samkoma á Klambratúni Við bjóðum uppá glæsilegar borgir allt árið í A-Evrópu. Tilvalið fyrir hópa, fyrirtæki og einstaklinga. Veldu tímann og farðu þegar þú vilt 2, 3, 4 daga eða lengur. Verðlag er hagstætt bæði í mat og drykk. Þá er hægt að gera góð kaup í hinum ýmsu verslunum og mörkuðum. Við bjóðum upp á skoðunarferðir fyrir hópa og fyrirtæki, svo og kvöldverði/veislur í höllum, köstulum eða húsum frá miðöldum. www.transatlantic.is Sími 588 8900 GLÆSILEGARMIÐALDA BORGIR Í A-EVRÓPU Wrocalaw er ein mesta ferðamannaborg Póllands. Wroclaw var kosin menningarborg Evrópu 2016. Wroclaw hefur svo mikið uppá að bjóða. Borgin er ægifögur menningarborg með svo margt fyrir ferðamanninn sem gerir hana svona vinsæla. Gamli bærinn er augna- yndi með fagrann arkitektur frá fyrri tímum, mikið er af söfnum og menningarviðburðir í borginni hafa ætíð verið fjölbreyttir. Miðaldaborg frá 12. öld. Gamli og nýji tíminn mætast í borg sem ekki á sinn líka. Gamli bærinn er frá árinu 1201 og er vernd- aður af Unesco. Þar ber hæst kastalinn í Riga, kirkja Sankti Péturs og Dómkirkjan. Gamli bærinn í Riga er virkilegt augnayndi hvert sem litið er og setur borgina á stall með fallegri borgum Evrópu. RIGA Í LETTLANDI WROCLAW TALLINN EISTLANDI NOKKUR DÆMI UM BORGIR SEM VIÐ BJÓÐUM UPPÁ Vilnius, Budapest, Prag Gdansk, Krakow, Varsjá, Bratislava Vínarborg og Brugge Tallinn er ein allra fallegasta borg Evrópu og er gamli bæjarhlutinn sá hluti borga- rinnar sem mesta aðdráttaraflið hefur á ferðamenn. Þar eru götur steini lagðar, byggingar frá 11. öld sem hefur tekist að varðveita ótrúlega vel. Þú ferð úr 21. öldinni beint aftur í miðaldir. Þar sem Tallinn er best varðveitta miðaldaborg N-Evrópu hefur henni verið bætt við á heimslista UNESCO.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.