Morgunblaðið - 19.09.2019, Qupperneq 22
SKÓLI FYRIR ALLA?
Guðrún Hálfdánardóttir
guna@mbl.is
Aðalnámskrá grunnskóla á að vera
rammi um skólastarfið og leiðsögn
um tilgang þess og markmið. Hún er
ætluð stjórnendum skóla, kennurum
og öðru starfsfólki í skólakerfinu.
Einnig veitir hún nemendum og for-
eldrum þeirra upplýsingar um til-
gang og starfsemi skóla. En er aðal-
námskráin ráðgáta miklu frekar en
góður leiðarvísir eða handbók fyrir
skólafólk að fara eftir?
Meyvant Þórólfsson, dósent við
menntavísindasvið Háskóla Íslands
og sennilega helsti sérfræðingur
landsins þegar kemur að námskrár-
fræðum og námsmati, tekur undir
með foreldrum og skólafólki sem
blaðamaður hefur rætt við að und-
anförnu um að erfitt sé að átta sig á
inntaki hennar og að innleiðingin
hafi ekki gengið sem skyldi.
Því verði kannski best lýst sem
einhvers konar „haltu mér – slepptu
mér“ hugsun, segir hann.
„Þetta meinta ráðaleysi kom m.a.
fram í afstöðu eins skólastjórnanda
á málþingi sem við héldum í vor, þ.e.
að námskráin virkaði frekar eins og
ráðgáta heldur en góður leiðarvísir
eða handbók til að fara eftir. Það
skal þó áréttað að um þetta út af fyr-
ir sig eru og hafa alltaf verið skiptar
skoðanir, þ.e. hversu stýrandi nám-
skráin ætti að vera.
Við gildistöku námskránna fyrir
öll skólastig var rík áhersla lögð á
samfellu milli skólastiga. Það er
samt engu líkara en menn hafi átt
erfitt með að gera upp við sig hvað
þessi samfella skyldi fela í sér. Í það
minnsta er erfitt að koma auga á
samfellu eða samræmingu þegar
fyrirkomulag námsmats er skoðað.
Mér sýnist t.d. flestir túlka grunn-
skólanámskrána svo að tölfræði eigi
að koma þar sem minnst við sögu,
helst alls ekki.
Námsmat framhaldsskólans virð-
ist hins vegar byggjast að mestu á
tölfræði þegar kemur að námsmati.
Bókstafaeinkunnir sem nemendur
koma með úr grunnskólum eru jafn-
vel umreiknaðar í tölur og þær not-
aðar sem viðmið við inntöku í fram-
haldsnám. En ég tel hæpið að
treysta umræddum bókstafaein-
kunnum sem áreiðanlegum og rétt-
mætum upplýsingum um náms-
stöðu,“ segir Meyvant.
- En hvað þýðir það fyrir stjórn-
endur framhaldsskóla, unglinga og
foreldra þeirra þegar ekki er sam-
ræmi á milli skóla hvað einkunnagjöf
varðar?
„Að mínu mati mun það virka á
þetta fólk eins og að reyna að kom-
ast leiðar sinnar í ófærð eða þoku.
Vegurinn er ógreinilegur og eins og
skólastjórnandi komst að orði, þá
verður þetta ferðalag óþægileg ráð-
gáta og basl. Ósamræmi þýðir að t.d.
tvö ungmenni sem sækjast eftir
skólagöngu í tilteknum framhalds-
skóla með sömu bókstafseinkunnir í
þeim greinum sem eru metnar, t.d.
A, C+, B, B+ og B+, sitja að öllum
líkindum ekki við sama borð hvað
raunverulega getu snertir.
Ósamræmið gæti þess vegna ríkt
innan sama skóla. Merking einkunn-
arinnar B+ við lok skyldunáms frá
tveimur skólum er nokkuð örugg-
lega ekki sú sama. Sú staðreynd,
sem gerir þennan vanda enn áþreif-
anlegri, er að samfélag okkar er lítið
og skyldleiki og önnur tengsl því
víða. Margir kennarar lenda óhjá-
kvæmilega í því að meta náin skyld-
menni eða börn vina og kunningja,
jafnvel óvina,“ segir Meyvant.
Hann segir að „haltu mér –
slepptu mér“ hugsunin birtist skýrt í
því hve samræming virðist vera
heitt átakamál.
„Eins og öllum mun kunnugt
heyra samræmd lokapróf sögunni til
vegna þeirrar trúar margra að þau
samræmist ekki hugmyndafræði
skóla fyrir alla. En þýðir það að við
ættum þar með alfarið að hverfa frá
miðlægri samræmingu? Um þetta
virðast vera skiptar skoðanir, en
rökin óljós. Eins og flestum mun
vera kunnugt er það nú alfarið á
ábyrgð kennara og stjórnenda hvers
skóla að meta námsframvindu og
námsárangur, jafnt á yngri stigum
sem við lok unglingastigs og þar
með við lok skyldunáms. Hæfnivið-
miðum og matsviðmiðum aðalnám-
skrár er beitt á mismunandi hátt.
„Sumir velja úr rúmlega 200 hæfni-
viðmiðum námskrárinnar eftir hent-
ugleika nánast eins og að velja af
hlaðborði, aðrir umskrifa þau og
skrifa jafnvel ný hæfniviðmið sem
þeim þykja við hæfi. Skoði maður
matsviðmiðin fer ekki milli mála að
huglægt og eigindlegt mat er óhjá-
kvæmilegt og þar með afstætt,“ seg-
ir Meyvant.
- Er lausnin að koma á samræmd-
um prófum að nýju í tíunda bekk?
„Í raun er ekki hægt að svara
þessari spurningu beint, já eða nei.
Svarinu verða að fylgja nokkur „ef“.
Ef við viljum halda í það kerfi sem
nú er við lýði við inntöku í fram-
haldsskóla þá verðum við a.m.k. að
brjóta til mergjar þetta vandamál
sem ég nefndi hér á undan. Ég sé
ekki aðra lausn en að innleiða vand-
að samræmt kerfi um inntak í náms-
greinum (þar með beina þekkingu
og kunnáttu ekki síður en t.d. „getu
til aðgerða“) og samræmt mat á ár-
angri, þar sem hugsanlega þarf ekki
að fylgja skylda til að gangast undir
hið samræmda mat. En þegar ég
tala um vandað, samræmt mat, þá á
ég ekki við þann bunugang sem tíðk-
aðist við framkvæmd samræmdra
prófa fyrir og eftir síðustu aldamót,
heldur faglega þróað kerfi sem kost-
ar óhjákvæmilega fjármagn og að-
komu hagsmunaaðila og sérfræð-
inga, ekki einhvers svonefnds
„fagráðs“, sem mér þykir a.m.k. oft
ráðgáta hvernig er skipað,“ segir
Meyvant Þórólfsson.
Greinaflokkurinn birtist í heild á
mbl.is og verða síðustu greinarn-
ar birtar þar á sunnudag.
„Haltu mér – slepptu mér“
Flestir túlka námskrá grunnskólans svo að tölfræði eigi að koma þar sem
minnst við sögu, helst alls ekki, segir dósent á menntavísindasviði Háskóla Íslands
Morgunblaðið/Hari
Skólamál Meyvant Þórólfsson, dósent við Háskóla Íslands, segir að oft sé ekki samræmi í einkunnagjöf skólanna.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
Ekki hægt að velja
börn og hafna þeim
Fáir með eins stundatöflu
Hrósað mikið á
kostnað gagnrýni
Hagræðing með
ömurlegum afleiðingum
Skólaforðun
alvarlegt vandamál
Fann ekki taktinn
í hverfisskólanum
Greining orðin töfraorð
Þyrfti fleira fagfólk
inn í skólana
„Ég hef bara því
miður ekki tíma“
Skóli fyrir alla?
Greinaflokkur á mbl.is
m.
Lítil og létt loftpressa. Kemur með
fjórum stútum sem passa á dekk,
bolta, vindsængur og fleira.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
Verð 16.900 kr. (án rafhlöðu)
M12 Inflator
Alvöru loftpressa
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888