Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 33
ingarými og er áformað að opna ham-
borgarastaðinn Yuzu í haust.
Pálmar segir íbúðirnar á Brynju-
reitnum henta fjölbreyttum hópi. Þær
henti meðal annars fyrstu kaup-
endum, fólki úti á landi sem þarf íbúð
fyrir börnin meðan þau eru í námi, og
Íslendingum sem búa erlendis en vilja
eiga íbúð í miðborginni. Hann geri ráð
fyrir að margar íbúðanna, einkum þær
minnstu, skipti um eigendur á nokk-
urra ára fresti. Nábýli og stórir stiga-
gangar í Hverfisgötuhúsunum muni
skapa lifandi hverfisstemningu. Í
hverjum stigagangi í þeim húsum séu
þannig allt að 12 íbúðir.
Allar íbúðirnar 72 á Brynjureitnum
afhendast fullbúnar með eldhús-
tækjum og gólfefnum.
Pálmar segir mikið lagt í efnisval.
Til dæmis séu dýrar klæðningar sem
tryggja muni lítið viðhald.
„Ég vil meina að þessar íbúðir séu
ekki að fara í beina samkeppni við
aðrar nýjar íbúðir á svæðinu. Þær eru
bæði minni og ódýrari og svo er hönn-
unin einstök,“ segir Pálmar sem telur
að eftirspurnin verði mikil. Þingvang-
ur hafi selt allar 11 íbúðirnar á
Klapparstíg 30 á skömmum tíma en
þær kostuðu 35-40 milljónir. Hann
telji ekki að verð nýrra íbúða í mið-
borginni muni lækka vegna framboðs
og samkeppni. Þvert á móti muni
framboð minnka hratt næstu mánuði.
Þingvangur keypti Brynjureitinn,
Hljómalindarreitinn og Vatnsstígs-
reitinn á sama tíma. Félagið seldi síð-
an Vatnsstígsreitinn til Blómaþings
sem byggir Frakkastígsreit.
Í miðborginni Horft frá svölum einnar þakíbúðarinnar við Hverfisgötu. Verslunarrými Á jarðhæð Brynjureits verður atvinnustarfsemi.
Kasthúsastígur Horft frá göngubrú á Hverfisgötu 40-44 að Laugavegi.Horft inn í portið Þétt byggðin mun skapa nálægð við nágranna.
Morgunblaðið/Eggert
FRÉTTIR 33Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena
undirfataverslun • Næg bílastæði
Ný sending
af sundbolum
frá Lascana