Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 19.09.2019, Blaðsíða 45
MINNINGAR 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 ✝ Ída Sigurðar-dóttir fæddist 5. ágúst 1934 að Hamraendum í Stafholtstungum. Hún lést 19. ágúst 2019 á Landspít- alanum við Hring- braut. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Gíslason frá Hvammi í Dýrafirði, f. 29. mars 1889, d. 12. mars 1982, og Ólöf Ólafsdóttir frá Kal- manstungu, f. 13. júlí 1894, d. 17. des. 1960. Systkini hennar voru: Sigríð- ur, f. 7. maí 1916, d. 19. apríl 2008, Ólafur, f. 17. feb. 1918, d. 17. feb. 1918, Sesselja, f. 15. maí 1919, d. 1. jan. 2002, Ólöf, f. 8. okt. 1920, d. 3. sept. 2012, Svein- björn Gísli, f. 6. des. 1922, d. 25. feb. 1972, Þórunn, f. 16. júní 1925, d. 18. jan. 1990, Bjarn- fríður, f. 13. nóv. 1929, d. 23. des. sonar er Birgir Berg Birgisson. Eiginmaður Sesselju er Ólafur Hilmarsson. Synir Ólafs og stjúp- synir Sesselju eru: Arnór, Örvar og Jökull Ingi. Ída bjó ásamt fjölskyldunni að Hamraendum fyrstu 13 æviárin og gekk í barnaskóla að Hlöðu- túni, en flutti til Reykjavíkur árið 1947. Að loknu skyldunámi gegndi Ída ýmsum störfum, m.a. sem au pair á Englandi og við Bændaskólann á Hvanneyri. Ída og Jón áttu bjuggu á Pat- reksfirði 1960-1966 en fluttu þá til Borgarness, reistu sér hús og bjuggu þar í rúm 40 ár. Ída var húsmóðir en vann samhliða því ýmis hlutastörf, m.a. við garð- yrkju, ræstingar og umsjón kaffi- stofu á skrifstofum Borg- arbyggðar. Hún söng um árabil í Kirkjukór Borgarneskirkju og var virk í flokksstarfi Sjálfstæð- isflokksins. Eftir að Jón lést 2008 flutti Ída til Reykjavíkur, fyrst í eigið hús- næði í Hjallaseli en síðustu árin dvaldi hún í Seljahlíð. Útför Ídu fór fram 3. sept- ember 2019. 2007, Sigurður, f. 5. des. 1931, d. 17. ágúst 2006. Ída giftist árið 1959 Jóni Þórarni Björnssyni, f. 2. apr- íl 1936, d. 20. júní 2008. Jón var yfir- kennari og org- anisti í Borgarnesi. Börn þeirra: 1) Ólöf Hildur, f. 1959. Börn hennar og Inga Hans Jónssonar eru: Jón Hans, Hanna Sif, Ída María og Ingi Björn. 2) Björn, f. 1961. Börn hans og Önnu Margrétar Kalda- lóns eru: Jón Kaldalóns og Hildur Kaldalóns. Kona Björns er Katr- ín Sveinsdóttir. 3) Anna Guðrún, f. 1966. Synir hennar og Grettis Gunnarssonar eru: Þórarinn Freyr og Gunnar Þór. Eigin- maður Önnu er Birgir Skúlason. Dætur Saga Hlíf og Tindra Gná. 4) Sesselja Þórunn, f. 1972. Sonur hennar og Birgis Rafns Reynis- Kæra frænka, eitt sendibréf að lokum. Ída var vön að senda mér bréf núna síðustu árin varðandi það sem henni bjó í hjarta. Sendi mér góð ráð og kveðjur eins og hennar var von og vísa. Ég hefði getað verið duglegri að skrifa til baka, sendi henni þó alltaf bréf í lengri kantinum á jólunum. Henni þóttu bréfin trúlega betri, þar sem heyrnin hafði brugðist henni. Ég held að ég hafi ekki og muni varla kynnast ættræknari konu en Idu. Ég kynntist föður- systur minni og fjölskyldu hennar fyrst þegar ég flutti í Borgarnes 1981. Hún var svo áhugasöm um fólkið sitt, vildi vita hvað allir voru að bauka. Ættarmót voru drifin upp að frumkvæði hennar og ég og fjölskylda mín tekin með. Hún kynnti mig fyrir föðurfjölskyld- unni og gat þulið upp nokkrar kynslóðir fram og til baka og stundum var maður var alveg hættur að botna í þessum fjölda og tengingum sem hún kunni upp á hár. Í nokkur ár bjuggum við í sömu götunni í Borgarnesi. Eftir að Jón féll frá árið 2008 sótti að henni einmanaleiki og við áttum þá oft gæðastundir í eldhúsinu hvor hjá annarri, vorum þá meira vinkonur en frænkur. Borgar- fjörðurinn, Kalmanstunga og Húsafell voru henni hjartfólgnir staðir. Hún nefndi líka oft hvað þeim hafði liðið vel á Patreksfirði þau ár sem fjölskyldan bjó þar. Við fórum nokkrum sinnum í bíl- túra hér á árum áður upp í Hvítársíðu frænkurnar og hún fékk alltaf eins og blik í augað af gleði. Eitt af þvi sem var eftir- minnilegt við Idu var hennar mikli garðyrkju áhugi. Hún var á sumrin endalaust að dedúa við garðinn á Böðvarsgötu 19. Oft kom ég við og þá beint út í garð þar sem hún var að hlúa að ein- hverju, planta eða hreinsa beð. Við hjónin keyptum árið 2016 húsið sem Ída og Jón byggðu á Böðvarsgötu 19. Þó að garðurinn hafi þá verið kominn í tölvuverða órækt sáum við hversu mikið hafði verið lagt í gróðursetningu og grjóthleðslur. Ég trúi því að hún væri hæst- ánægð með það hvaða stakka- skiptum húsið og garðurinn hafa tekið hjá okkur á síðustu árum. Hún Ída föðursystir mín var um- hyggjusöm og hlý við sitt fólk, sagði skoðun sína þó umbúðalaust og sagði okkur örlítið til synd- anna ef henni þótti ástæða til. Síðustu árin bjó hún í Reykja- vík, heilsunni tekið að hraka og samskipti okkar síðustu árin ekki mikil nema í formi sendibréfa. Ég vil að leiðarlokum þakka frænku minni ást hennar og um- hyggju fyrir mér og fjölskyldunni frá okkar fyrstu kynnum. Ég vil trúa því að hún sé alsæl í sum- arlandinu núna með Jóni sínum. Börnum hennar Ólöfu Hildi, Birni, Önnu Guðrúnu og Sesselju Þórunni og fjölskyldum þeirra sendum við Gunnar innilegar samúðarkveðjur. Helga Halldórsdóttir. Ída Sigurðardóttir Helgi fæddist 19. ágúst 1932 á Bókhlöðustíg 7 í Reykjavík, sonur hjónanna Sveinsínu Jórunnar Kristjánsdóttur og Sæmundar Helgasonar Briem, póstfulltrúa í Reykjavík. Helgi lauk stúdents- prófi frá Verzlunarskóla Íslands vorið 1952 og hóf þá um haustið Helgi Sigurður Briem Sæmundsson ✝ Helgi SigurðurBriem Sæ- mundsson fæddist 19. ágúst 1932 í Reykjavík. Hann lést 2. september 2019 í Stuttgart. Foreldrar hans voru Sveinsína Jór- unn Kristjánsdóttir og Sæmundur Helgason Briem. Systkini: Elín Rannveig Briem Finborud, f. 13.3. 1937, og Sigurlaug Sæ- mundsdóttir, f. 14.12. 1938. Helgi verður jarðsunginn í Stuttgart í dag, 19. september 2019. nám í lögfræði við Háskóla Íslands. Eftir nokkrar vikur komst hann þó að því að hugur hans hneigðist frekar til raungreina svo hann las stærðfræði í MR einn vetur, var hálft ár í starfsnámi hjá vélsmiðjunni Héðni og sigldi síðan haust- ið 1954 til náms í matvælaverkfræði við tæknihá- skólann í Karlsruhe í Þýskalandi. Að loknu diplómaprófi 1961 stundaði Helgi vísindastörf við há- skólann í Karlsruhe og lauk dokt- orsprófi þaðan 1967. Um þetta leyti flutti hann til Stuttgart, þar sem hann bjó síðan. Á farsælum starfsferli sínum vann Helgi margvísleg stjórnunarstörf á sínu fagsviði, lengst af hjá BASF Pig- ment GmbH í Besigheim í ná- grenni Stuttgart, uns hann settist í helgan stein 2004, þá kominn á áttræðisaldur. Strax frá upphafi dvalar sinnar var Helgi iðinn við ýmis fé- lagsstörf. Þannig stofnaði hann, skömmu eftir komu sína Félag Ís- lendinga í Karlsruhe, sem nú, hart- nær 60 árum síðar, er enn við lýði þótt mjög hafi fækkað í stúdenta- hópnum í Karlsruhe. Félagið hélt uppi margs kyns starfsemi, svo sem hátíðahöldum í tilefni þjóðhá- tíðardaganna 17. júní og 1. desem- ber, auk þess að halda þorrablót og treysta sambönd við önnur Íslend- ingafélög í Þýskalandi sem og félög annarra norrænna námsmanna, sérstaklega Norðmanna, sem voru fjölmennir í hópi verkfræðinema í Þýskalandi á þessum árum. Einnig í Stuttgart tók Helgi virkan þátt í félagslífi Íslendinga en hugur hans stefndi hærra því hann vildi einnig efla kynningu Ís- lands og íslenskrar menningar fyr- ir Þjóðverjum. Í því skyni stofnaði hann, ásamt nokkrum þýskum Ís- landsvinum, árið 1990 félagið „Deutsch-Isländisches Kulturfor- um Stuttgart“ (DIS), sem starfaði til ársins 2018. Helgi stýrði félag- inu til 2004 og lét sér eftir það mjög umhugað um velfarnað þess. Fé- lagið stóð á tæplega þrjátíu ára ferli sínum fyrir fjölda viðburða á sviði bókmennta, tónlistar og al- mennrar landkynningar, ekki síst í tilefni þess að Ísland var heiðurs- gestur bókahátíðarinnar í Frank- furt 2011. Væri of langt mál að rekja hér, þó ekki væri nema það sem hæst stæði á þessari við- burðaskrá, en þeir munu fáir nú- lifandi rithöfundar íslenskir, sem ekki hafa lesið úr verkum sínum á vegum DIS. Auk framangreindra opinberra félagsstarfa í þágu Íslands og Ís- lendinga má nefna að margir fyrr- verandi námsmenn í Karlsruhe og Stuttgart eiga Helga þakkarskuld að gjalda vegna margs kyns að- stoðar sem hann veitti þeim af al- kunnri alúð sinni. Á heimili hans og lífsförunautar hans, Sotirios Michou, prófessors við listahá- skólann í Stuttgart, sem lést árið 2010, var Íslendingum ávallt tekið opnum örmum. Helgi Sæmundsson lést eftir langvinna baráttu við krabbamein aðfaranótt mánudagsins 2. sept- ember. Við munum minnast hans með vinsemd og virðingu. Fyrir hönd Íslendinga í Stutt- gart og Karlsruhe, Jórunn Ragnarsdóttir, Ágúst Lúðvíksson. Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GYLFA ÞÓRS ÓLAFSSONAR, Kirkjuvegi 1, Keflavík. Hjartans þakkir til starfsfólks blóðrannsókna, heimahjúkrunar og D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja. Með kærleikskveðju, Kristín Gestsdóttir Dóra Magda Gylfadóttir Steindór Einarsson Ólafur Þór Gylfason Guðmunda Sigurðardóttir Gestur Arnar Gylfason Siv Mari Sunde Svandís Gylfadóttir Friðrik P. Ragnarsson Guðjón Helgi Gylfason Anna Hulda Einarsdóttir afa- og langafabörn Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við fráfall okkar ástkæra ARNAR HELGASONAR prófessors emeritus. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeilar LSH og hjúkrunarfræðinga Heru fyrir alúðlega umönnun. Bjarney Kristjánsdóttir Ívar Örn Arnarson Guðný Ævarsdóttir Hörður Hinrik Arnarson Emelía Victorsdóttir Lúðvík Arnarson Nína Sigurðardóttir Eftir andlát og útför okkar yndislegu GUNNHILDAR VÖLU HANNESDÓTTUR læknis vill fjölskyldan þakka fyrir stuðning, samkennd og hlýhug sem okkur hefur verið sýndur á erfiðum tímum. Arnar Jan Jónsson Ragnheiður Elín Þorgerður Anna Elín J. Oddsdóttir Hannes Þorsteinsson Sigrún Harðardóttir Valgerður Anna Hannesd. Agnes Nína Hannesdóttir Oddur Krummi Magnússon Jan Ólafsson Sveinbjörg Guðmundsdóttir Innilegar þakkir fyrir hlýhug og hjálpsemi vegna andláts og við útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGURGESTS INGVARSSONAR múrarameistara, Sævangi 14. sem lést sunnudaginn 1. september. Sigrún Erlendsdóttir Þórdís B. Sigurgestsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson Áslaug Sigurgestsdóttir Dagbjartur Jónsson Frosti Sigurgestsson Sigurlín Hrund Kjartansdóttir og barnabörn Við þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, KRISTÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Sléttuvegi 23. Innilegar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunardeildar aldraðra á Akranesi fyrir einstaka umönnun og væntumþykju. Jóhann Guðmundsson Guðrún G. Kristinsdóttir Helga Guðmundsd. Sördal Bjarnfríður Guðmundsdóttir Guðmundur Ingi Haraldsson Ófeigur Guðmundsson Friðgerður María Friðriksd. barnabörn og barnabarnabörn Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför föður, tengdaföður, afa og langafa okkar, ÁSGEIRS KARLSSONAR húsasmíðameistara. Sérstakar þakkir til Dýrfinnu Hansdóttur sjúkraliða á Hrafnistu Reykjavík ásamt hjúkrunar- og starfsfólki fyrir hlýja og góða umönnun. Edith Randý Ásgeirsdóttir Jón Sigurðsson Guðbrandur Ívar Ásgeirsson Rut Bech Ásgeirsdóttir Arnar Geirdal Guðmundsson Hjördís Bech Ásgeirsdóttir Guðni Birgir Sigurðsson Þórdís Ásgeirsdóttir Steinar Helgason Karl Þórhalli Ásgeirsson Sigríður Bech Ásgeirsdóttir Jóhanna Bech Ásgeirsdóttir Ásgeir Magnús Ásgeirsson Jóhanna Harðardóttir afa- og langafabörn Við minnumst afa fyrst þegar við bjugg- um á Kjalarnesinu og hann bjó hjá okkur fyrst eftir hjartaaðgerðina á meðan hann var að jafna sig. Afi var oftast frekar þögull og fundum við lítið fyrir honum dags- daglega. Stundum sat hann í sóf- anum inni í stofu og spjallaði við okkur. Við minnumst afa alltaf sem ró- legs og frekar þöguls manns, stundum brosti hann út í annað eða hló. Afi heimsótti okkur oft í Ásgeir Karlsson ✝ Ásgeir Karls-son fæddist 2. mars 1934. Hann varð bráðkvaddur 6. september 2019. Útför Ásgeirs fór fram 13. sept- ember 2019. Álfaborgirnar þegar við bjuggum þar og svo á Tunguveginn og Engjaselið, alltaf á leigubílnum og allt- af að vinna. Hann kom stundum með súkkulaðikúlur eða útlenskan konfekt- poka handa okkur. Afi átti alltaf til súkkulaðikúlur, þær voru í uppáhaldi hjá honum. Afi gaf okkur stundum sinn þúsundkallinn hvoru og sagði okkur alltaf að setja hann í bauk- inn, þannig gætum við eignast mikið af peningum. Yfirleitt þegar afi kom þá borðaði hann með okk- ur kvöldmat eða kom í kaffi. Síðan, þegar afi flutti á Dvalar- heimilið Fell og var hættur að keyra leigubíl fækkaði heimsókn- um hans til okkar verulega. Síðan fluttum við til Noregs og þá heyrðum við af afa símleiðis í gegnum mömmu. Afi flutti á Hrafnistu í Reykjavík fyrir tveim- ur og hálfu ári. Honum leið mjög vel þar. Hvíl í friði afi. Páll Lúthersson, Edith Bech, Stella Sif, Rakel Ösp, Benjamín Aron.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.