Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 52

Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 52
Matgæðingur Kolbrún Pálína er mikill sælkeri og veit fátt skemmtilegra en að elda fyrir vini og vandamenn. Þóra Kolbrá Sigurðardóttir thora@mbl.is ÁST er ný þáttaröð í umsjón þeirra Kol- brúnar Pálínu Helgadóttur og Krist- borgar Bóelar Steindórsdóttur sem fjalla um allt sem viðkemur ástinni, ástarsorg, skilnuðum og fleira. Þættirnir, sem Kol- brún segir afar mannbætandi fyrir margra hluta sakir, eru framleiddir hjá Saga Film af þeim Hauki Björgvinssyni og Helga Jóhannssyni. Kolbrún segir vegferðina hafa verið mjög lærdómsríka enda búin að vera á kafi í að rannsaka allt sem viðkemur málefninu núna í á annað ár. „Það er mjög sérstök tilfinning að sjá hugmyndina sína verða að veru- leika eftir svona langa leið. Hún hefur breyst og þróast mikið á leiðinni enda unnin af geggjuðu teymi. Með aðstoð hugrakkra viðmælenda og hæfileikaríks fólk er útkoman dásamlega heiðarlegt og einlægt sjónvarp.“ Kolbrún skellti í stórskemmtilega takó- pönnu sem hentar fyrir alla fjölskylduna. Rétturinn er þess eðlis að það má leika sér í allar áttir með að blanda saman hrá- efnum eftir smekk og nota það sem til er í ísskápnum. „Ég geri hana í mildara lagi þegar ég elda hana fyrir litla fólkið en gef svo aðeins í með chili og hvítlauk þegar um stærra fólkið er að ræða.“ Hinn fullkomni takófimmtudagur Einstaklega fljótleg og fjölskylduvæn takópanna Olía 1 pakki hakk 1 pakki takókrydd frá Old El Paso hvítlaukur chili 1 dós hakkaðir tómatar ½-1 dós nýrnabaunir maísbaunir eftir smekk ostur Aðferð: Steikið hvítlauk og chili upp úr olíu á pönnu. Bætið því næst hakkinu við og steik- ið vel og kryddið með takókryddi. Hellið tómötum og baunum út í hakkið og leyfið því að malla aðeins. Að endingu er rifinn ostur settur yfir hakk- blönduna og honum leyft að bráðna aðeins. Ef pannan er falleg er skemmtilegt að bera blönduna fram í henni, nú eða í fallegu fati. Að þessi sinni notaðist ég við fajitas-pönnukökur en einnig er skemmtilegt að nota takóskeljar með þessum rétti. Tómatsalsa 1 box kirsuberjatómatar 1 hvítlauksrif chili eftir smekk fetaostur salt og pipar kóríander Aðferð: Skerið tómatana í grófa bita. Skerið hvítlauk og chili smátt. Blandið þessu saman og stappið svolítinn fetaost saman við. Salt, pipar og kóríander eftir smekk. Gvakamóle Þrjú vel þroskuð avókadó límóna olía salt og pipar Aðferð: Stappið avókadó með gaffli og kreistið safann vel úr límónunni yfir. Salt og pipar eftir smekk. Allt það meðlæti sem hug- urinn girnist eða leynist inni í ís- skáp; rúkóla, mangó, paprika, gúrka, ananas eða annað ferskt og gott. Sýrður rjómi er nauðsynlegur með þessum mat sem og góð takósósa. Og að sjálfsögðu nachos- -flögur. Fyrir þá allra hressustu má svo bæta við sri- racha-piparsósu. Matarást Kolbrúnar Pálínu Fyrsti þátturinn af ÁST verður frumsýndur í Sjónvarpi Símans í kvöld og af því tilefni leitaði matarvef- urinn til fagurkerans og sælkerans Kolbrúnar Pálínu Helgadóttur, annars umsjónarmanns þáttanna og verkefnastýru hjá Árvakri, eftir hugmynd að fullkomnum mat þetta fimmtudagskvöldið yfir sjónvarpinu. Fullkominn fimmtudagur Takó er frábær fimmtudags- matur enda bæði bragðgott og auðvelt í matreiðslu. MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 NÝTT! Óðals Havarti krydd og Cheddar í smærri pakkningum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.