Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 54
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019
DRAUMAEIGN Á SPÁNI
Nánar á www.spanareignir.is
ÞÚ ERT Í ÖRUGGUMHÖNDUMHJÁ OKKUR
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
adalheidur@spanareignir.is
Sími 893 2495
Ármúla 4-6, Reykjavík
Karl Bernburg
Viðskiptafræðingur
karl@spanareignir.is
Sími 777 4277
Ármúla 4-6, Reykjavík
•Glæsilegar íbúðir í lyftuhúsi
• Jarðhæð með sér garði
•Miðhæðir með stórum svölum
•Efsta hæð með sér þaksvölum
og heitum potti
• 3 svefnherbergi – 2 baðherbergi
• Flottur sundlaugargarður
• Líkamsræktaraðstaða
• Leiksvæði fyrir börnin
•Göngufæri á veitingastaði og
í verslanir
• Stutt á strönd og í golf
Verð frá 23.300.000 Ikr.
(169.900 Evrur, gengi 1Evra=137Ikr)
Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001
Villamartin / La Zenia
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hrýtur maki þinn? Nú er kominn
tími til þess að nýta sér það og
freista þess að vinna nýtt rúm og
tilheyrandi að verðmæti yfir
600.000 kr. Í tilefni af stillanlegum
heilsudögum Ergomotion í Vogue
ætlar K100 að gefa eitt stykki still-
anlegt Ergomotion 330-heilsurúm
með öllu. Það sem þú þarft að gera
er að senda okkur upptöku af
hrotu maka, vinar eða ættingja á
hrota@k100.is og besti hrjótarinn
vinnur stillanlegt Ergomotion-
heilsurúm með öllu; sængum,
koddum, sængurverum, lökum og
hlífðarlökum.
Ísland vaknar ætlar svo að
liggja uppi í rúmi, frameftir, í
beinni útsendingu frá Vogue-
búðinni fimmtudaginn 3. október
þar sem vinningshafinn verður
kynntur. Þau Jón, Kristín og Ás-
geir verða öll í Joe Boxer-
náttfötum og munu klæða alla
gesti sem koma upp í rúm með
þeim þennan morgun í náttföt
sömuleiðis. Morgunþátturinn verð-
ur því ansi óvenjulegur þennan
morguninn!
Lukkuhjólið var heitt
í Fjarðarkaupum
K100 lét ekki fyrstu haustlægð-
ina sem gekk yfir höfuðborgar-
svæðið á laugardaginn sl. stoppa
sig í að taka þátt í Heilsudögum í
Fjarðarkaupum og veðrið hafði
sömuleiðis engin áhrif á hlust-
endur K100 og viðskiptavini Fjarð-
arkaupa sem flykktust í búðina til
að nýta sér góð tilboð og snúa
lukkuhjólinu. Fjöldi heilsutengdra
vinninga var gefinn á laugardaginn
og var góð stemning í búðinni. Það
borgar sig svo sannarlega að koma
og snúa lukkuhjóli K100, hvar ætli
það birtist næst?
Hrekkjavaka á Spáni?
K100 lætur sér ekki nægja að
fagna hryllingnum á hrekkjavök-
unni hér heima á Ísland heldur
ætlar stöðin í samstarfi við Heims-
ferðir að standa fyrir hrekkjavöku-
ferð til Spánar, nánar tiltekið til
heimsborgarinnar Palma á Mal-
lorca. Um er að ræða fjögurra
nátta ferð og farið verður hinn 31.
október. Verðinu í ferðina er stillt
í hóf en ferðin, með flugi og hóteli
ásamt morgunverði, kostar 69.995
krónur. Heiðar Austmann verður
með í för og stendur fyrir svoköll-
uðu „chill-out“-partíi í garði fjög-
urra stjörnu hótelsins Hotel Joan
Miro Museum, sem gist verður á,
föstudaginn 1. nóvember.
Palma de Mallorca er nýr
borgaráfangastaður hjá Heims-
ferðum sem spennandi er heim að
sækja og sérlega vel til þess fall-
inn að dvelja yfir langa helgi.
Eyjan Mallorca státar af heillandi
umhverfi, fjölbreyttri náttúrufeg-
urð og fallegum bæjum, hver með
sínum sérstaka karakter og yfir-
bragði. Hér er frábært að lifa og
njóta og þreytist maður aldrei á að
flakka um og upplifa þessa fallegu
Miðjarðarhafseyju.
Höfuðborgin Palma liggur á suð-
vesturhluta eyjarinnar og teygir
sig meðfram strandlengjunni. Þar
býr nánast helmingur eyjarbúa og
er borgin því hjarta eyjarinnar. Í
Palma má finna margar fallegar
byggingar og söguminjar í bland
við nútímann. Dómkirkjan eða La
Seu er eitt af aðalkennileitum
borgarinnar enda gríðarlega falleg
bygging sem hönnuð er í got-
neskum stíl á 13. og 14. öld.
Þetta er kjörið tækifæri til þess
að komast í skemmtilega ódýra
borgarferð og sömuleiðis að ná í
smá sól og hita áður en dimmustu
mánuðirnir ganga í garð hér heima
á Íslandi. Frekari upplýsingar um
ferðina er að finna á heimasíðu
Heimsferða eða K100.is.
Hrotur og hryllingur meðal þess
sem fram undan er á K100
Það er aldrei lognmolla
á K100. Stöðin býður
upp á fjölbreytt efni og
tónlist allan sólarhring-
inn sem og alls kyns
skemmtilega leiki. T.d.
fer fram Íslandsmót í
hrotum á næstu vikum
á vegum stöðvarinnar.
Einnig gefst hlust-
endum tækifæri til að
komast í ódýra borg-
arferð á suðrænar slóð-
ir um hrekkjavökuna en
Spánverjar kunna svo
sannarlega að fagna
henni. Dásemd Heiður himinn, gylltar strendur og sól bíða í Palma De Mallorca. Á þessari mynd sést í dómkirkjuna frægu.
Hrotur Nú er kominn tími til að græða á hrotunum.
Mynd/Skjáskot af Instagram
Lukkuleg Þessi var meðal þeirra
sem nældu sér í vinning í lukkuhjóli
K100 á laugardaginn.