Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 59

Morgunblaðið - 19.09.2019, Page 59
ÍÞRÓTTIR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. SEPTEMBER 2019 Í starfi íþróttablaðamannsins þarf því miður oft að ræða við íþróttafólkið um meiðsli sem það hefur orðið fyrir. Þau eru víst fylgifiskur afreksíþróttanna þótt ábyggilega geti þeir sem eru lengra komnir í fræðunum tekist á um hvort forðast megi þau betur en gert er. Bakvörður dagsins minnist þess ekki að hafa fyrr en á þessu ári rætt við íþróttafólk sem hafði glímt við að hælbeinið stækkaði um of. Svo mikið raunar að það var til mikilla vandræða. Á hálfu ári hef ég hins vegar tekið viðtöl við þrjá íþróttamenn sem allir glímdu við afleiðinagar þessa. Körfuknattleiksmanninn Kára Jónsson og knatt- spyrnumennina Sigurð Egil Lár- usson og Emil Pálsson. Fram að því hafði ég varla heyrt á þetta minnst. En afleiðingarnar geta greini- lega verið alvarlegar því beinið getur valdið meiðslum í hásin með tímanum. Kári fór í viða- miklar aðgerðir hjá Barcelona til að koma í veg fyrir hásinarslit síðar á ferlinum. En hann hafði þá spilað kvalinn um hríð. Emil sleit hásin í desember og hælbeinið átti þátt í að veikja hásinina. Sigurður Egill fór í að- gerð í nóvember en komst þá ekki lengur í skó með góðu móti eins og hann tjáði Morg- unblaðinu. Nú veit ég ekki hvort íþrótta- fólk, og þau sem annast það, hafi gefið þessu meiri gaum að undanförnu. Ef til vill er einungis um tilviljun að ræða. Á heildina litið er hins vegar örugglega orð- ið algengara að reynt sé að fyrir- byggja meiðsli. Auk þess horfir íþróttafólkið meira fram í tím- ann í stað þess að þjösnast áfram þrátt fyrir smávægileg meiðsli sem verða þá alvarlegri. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is SUND Kristján Jónsson kris@mbl.is Sundmaðurinn Már Gunnarsson sprakk út með miklum látum á heimsmeistaramóti fatlaðra í Lond- on á dögunum. Már vann til brons- verðlauna á mótinu í S11 (flokki blindra) og setti alls tíu Íslandsmet. Már er aðeins á tuttugasta aldurs- ári og á því sín bestu ár eftir í laug- inni kjósi hann að vera í sundinu af fullum krafti næstu árin. Már er hins vegar ýmsum hæfileikum prýddur og lætur til sín taka á fleiri sviðum. Hver er helsta skýringin á því að Már var í jafn frábæru formi á HM og raun ber vitni? „Nú styttist í Paralympics í Tók- ýó á næsta ári og maður þarf að leggja allt í sölurnar til að komast inn á leikana og hvað þá að ná gull- inu eins og ég stefni að. Ég ætla bara að vera svo háfleygur að setja stefnuna á gullverðlaun og legg allt undir til að ná því. Í sumar gaf ég mig allan í sundið fyrir HM og æfði tólf sinnum í viku. Ég er með flott teymi í kringum mig og held að það skipti mestu máli ásamt því að reyna að gera hlutina eins og vel og hægt er og hafa gaman af,“ sagði Már þegar Morgunblaðið spjallaði við hann. Már fékk bronsverðlaunin í 100 metra baksundi og á þá grein legg- ur hann mesta áherslu og mun gera áfram. „100 metra baksund er al- gerlega mín besta grein. Ég myndi segja að ég eigi mesta möguleika í þeirri grein.“ Tónleikar handan við hornið Már hefur tekið miklum fram- förum síðustu árin og segist á und- anförnum árum hafa verið með Paralympics 2020 í sigtinu. „Tókýó 2020 var þannig séð fjarlægt verk- efni en eitthvað sem ég hugsaði um síðustu þrjú árin eða svo. En nú er svo stutt í þetta. Fljótlega verða komin jól, svo páskar og svo er bara komið að þessu. Þetta er nán- ast að bresta á og tíminn hefur flogið frá mér síðustu mánuði, með- al annars vegna þess að ég hef haft mikið að gera,“ sagði Már sem er hæfileikaríkur og er jafnframt tón- listarmaður en hann leikur á píanó og syngur. Hann gaf út sína fyrstu plötu á árinu og mun á næstunni fylgja henni eftir með tónleikum í Póllandi. „Verða það mínir fyrstu stór- tónleikar á erlendri grund. Í raun eru þetta lokatónleikar áður en platan verður öll aðgengileg á net- inu. Ég fer út í næstu viku og þessa dagana er ég í smá fríi frá sundinu. Þegar ég kem heim frá Póllandi mun ég fara aftur á fullt í sundæf- ingunum,“ sagði Már en platan var öll tekin upp í Póllandi. Upp- tökustjórinn er pólskur og á meðal ýmissa gestasöngvara er pólska söngkonan Natalia Przybysz. Árið hefur því verið viðburðaríkt hjá Má á ýmsum sviðum. Hann hefur auk þess lagt drög að stúdentsprófi í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Ég er nánast búinn með FS en fæ ekki stúdentshúfuna fyrr en ég lýk mið- stigi í píanóleik sem verður ann- aðhvort í haust eða næsta vor.“ Var erlendis í grunnskólanámi Augnbotnahrörnun gerði það að verkum að Már hefur alfarið misst sjónina á síðustu árum en hún var ekki mikil áður. „Ég hef alltaf verið lögblindur en ég fæddist með um 8% sjón. Á því stigi skiptir hver einasta komma máli en þetta kallast augnbotna- hrörnun. Nú er sjónin komin niður í hálft prósent eða varla það. Því miður,“ útskýrði Már en hann fór til útlanda 6 ára til að geta menntað sig við góðar aðstæður. „Ég bjó í Lúxemborg í sex ár vegna þess að mér bauðst ekki sú aðstoð sem ég þurfti í skólum á Ís- landi. Þekkingin var ekki til staðar til að mennta mig. Ég þurfti því að fara til útlanda til að fá kennslu við hæfi en ég fór út í 1. bekk í grunn- skóla. Síðustu sjö árin hef ég búið í Keflavík,“ sagði Már og þar æfir hann sund undir handleiðslu þjálf- aranna Steindórs Gunnarssonar og Davíðs Hildibergs Aðalsteinssonar. Már gæti hugsað sér að sinna sundinu og tónlistinni jöfnum hönd- um í náinni framtíð en segist taka stöðuna hvað sundið varðar eftir Paralympics næsta sumar. „Næsta árið fer aðalpúðrið í undirbúning fyrir leikana í Tókýó. Mögulega mun ég halda einhverja tónleika í millitíðinni og mun halda áfram að semja lög. Reyndar er ég einnig að vinna í því að skrifa skáldsögu. Eftir leikana í Tókýó mun ég skoða hvernig landið liggur. Hvort ég muni þá leggja meiri áherslu á sundið, tónlistina eða eitt- hvað annað verður að koma í ljós. Ég mun gera það sem stendur hjarta mínu næst en á ekki von á öðru en að vera íþróttamiðaður í framtíðinni,“ sagði Már Gunnarsson ennfremur. Verðlaunahafi frá HM með mörg járn í eldinum  Már Gunnarsson setur stefnuna á gullverðlaun í Tókýó á næsta ári Á verðlaunapalli Már Gunnarsson veitir bronsverðlaunum sínum á HM í London viðtöku með bros á vör. Ljósmynd/ÍF EKKI GLEYMA AÐ SKRIFA UNDIR Á FINNUMLAUSNIR.IS Ingi Þór Einarsson er landsliðs- þjálfari í sundi hjá Íþrótta- sambandi fatlaðra og var því á HM í London. Morgunblaðið spurði hann út í árangurs Más. „Þetta er langsterkasta HM sem við höfum séð í sundi hjá fötluðum og ég hef verið í þessu síðan 2000. Okkur fannst mikil breyting hafa orðið á Paralympics í Peking 2008 en það var ekki sterkt mót miðað við þetta,“ sagði Ingi en hann kenndi Má tökin þegar Már byrjaði að æfa. Ingi segir að Már geti enn bætt sig töluvert því hann hafi ekki æft mjög lengi og sé ein- ungis tvítugur. „Hann er bæði tiltölulega ungur að árum og einnig ungur sem íþróttamaður. Ég sá strax að hann væri efnilegt eintak. Fyrstu árin vorum við í kapphlaupi við tímann þegar við reyndum að kenna hon- um sem mest á meðan hann hafði einhverja sjón. Hann átti frábært mót í London og tókst að ná öllu sínu fram. En hann á nóg inni,“ sagði Ingi og benti á að verðlaun Más væru þau einu sem Norður- landabúar fengu. Langsterkasta HM til þessa MÁR VAR EINI NORÐURLANDABÚINN SEM NÁÐI Í VERÐLAUN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.