Morgunblaðið - 20.09.2019, Page 11
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ínáttúrufræðum eru nemendur aldreimóttækilegri en þegar hægt er að fylgj-ast með þróuninni; hvernig landið ogumhverfið eru stöðugt að breytast. Mér
fannst því upplagt að fara nýjar leiðir í kennsl-
unni. Í skólanum voru líka góðar undirtektir
við slíku, sem gerðu starfið mögulegt,“ segir
Jón Stefánsson, grunnskólakennari á Hvols-
velli.
Kennsla, rannsóknir og upplifun
Bryddað var upp á ýmsu á Degi íslenskr-
ar náttúru sl. mánudag, 16. september. Þetta
er afmælisdagur Ómars Þ. Ragnarssonar
fréttamanns sem á löngum ferli sínum hefur
sagt frá mörgu athyglisverðu sem talist getur
umhverfismál. Sá fréttaflutningur hefur átt
sinn þátt í því að vekja áhuga almennings á
náttúruvernd og umhverfismálum, sem nú
geta talist mál málanna.
Annar eldhugi í vernd íslenskrar náttúru
var svo Sigríður Tómasdóttir frá Brattholti í
Biskupstungum (1871-1971), konan sem lagði
allt í sölurnar snemma á 20. öldinni svo Gull-
fossi yrði ekki fórnað fyrir virkjun. Sú barátta
skilaði sér – og á Degi íslenskrar náttúru hefur
umhverfisráðhera frá árinu 2010 veitt Nátt-
úruviðurkenningu Sigríðar í Brattholti fólki
sem lagt hefur mikið af mörkum í umhverfis-
málum. Og að þessu sinni komu verðlaunin í
hlut Jóns Stefánssonar sem hefur, eins og seg-
ir í umsögn ráðherra, verið framúrskarandi
„að nýta nærumhverfi barnanna – náttúruna á
heimaslóðum þeirra – til kennslu, rannsókna
og upplifunar“.
Miklar breytingar
„Mér þykir afar vænt um þessa við-
urkenningu,“ segir Jón Stefánsson, sem á
langan kennaraferil að baki. Hann kom til
starfa við Hvolsskóla árið 2008 og var fljótlega
falin verkefnisstjórn í náttúrufræðikennslu.
Svo fór boltinn að rúlla árið 2010 þegar gerður
var út leiðangur með nemendur úr 7. bekk að
Sólheimajökli og hop hans mælt, samkvæmt
vísindalegum aðferðum. Það hefur verið gert á
hverju ári síðan og í mælingum á síðasta ári
reyndist undanhaldið vera 379 metrar á átta
árum.
„Náttúran við jökulinn hefur breyst afar
mikið á þessum tíma. Fyrst þegar við komum
þarna var sléttur sandur framan við skriðjök-
ulinn en nú er þar mikið lón. Þegar við mæld-
um dýpt þess fyrst árið 2014 reyndist það vera
40 metrar en var í fyrra komið í yfir 60 metra,“
segir Jón um framvinduna við Sólheimajökul
sem þykir athygliverð. Frá henni og mæl-
ingum Hvolsskólanema hefur oft verið sagt í
fjölmiðlum – og erlendir þjóðhöfðingjar hafa á
stundum farið austur til að kynna sér stöðu
mála. Má þar nefna François Hollande sem
var á svæðinu haustið 2015, þá sem forseti
Frakklands, og í sumar fylgdu nemendur úr
Hvolsskóla Frank-Walter Steinmeier, forseta
Þýskalands, og Guðna Th. Jóhannessyni, for-
seta Íslands, um svæðið.
Annað nýmæli í náttúrufræðikennslu
Jóns við Hvolsskóla er landgræðsluverkefni
nemenda í 5. bekk, sem hafa farið reglulega
austur í Landeyjar til að kanna áhrif og árang-
ur ólíkra aðferða við landgræðslu. Sömuleiðis
hafa nemendur gróðursett plöntur við Þjófa-
foss í Landsveit, komið svo aftur að tveimur
árum liðnum og séð árangurinn. Jafnframt
hafa nemendur skólans tvívegis verið útnefnd-
ir Varðliðar umhverfisins, í verkefni umhverf-
isráðuneytis, Landverndar og fleiri.
Bæta fyrir útblásturinn
„Bráðnun jökla er afleiðing af loftslags-
hlýnun, en að gróðursetja, draga úr sóun, end-
urnýta og fleira slíkt eru aðgerðir til að bæta
fyrir útblásturinn og afleiðingar hans,“ segir
Jón Stefánsson um náttúrufræðina sem er
sterkur þáttur í öllu starfi Hvolsskóla. Má þar
nefna að skólinn fékk Grænfánann svonefnda
fyrir ellefu árum og samkvæmt því tvinnast
umhverfismál saman við alla kennslu og annað
starf, eins og lýst er hér að framan.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Kennarinn Fannst upplagt að fara nýjar
leiðir í kennslunni, segir Jón Stefánsson.
Jón Stefánsson fór nýjar leiðir í
náttúrufræðikennslu við grunn-
skólann á Hvolsvelli. Jöklar eru
mældir, gróðursett og endurnýtt.
Fékk viðurkenningu á Degi ís-
lenskrar náttúru nú í vikunni.
Ljósmynd/Aðsend
Landkönnun Nemendur úr Hvolsskóla við sporð Sólheimajökuls. Fylgst hefur verið með þróun mála á þarna frá 2010 og breytingin er mikil.
Nýtir nærumhverfi barnanna
„Nemendurnir hafa verið áhugasamir
og sækjast eftir þekkingu um um-
hverfið sem þeir svo miðla áfram,“
segir Jón Stefánsson um áherslur sín-
ar og kennslu. „Jú, auðvitað er mjög
gaman að fara með skólastarfið svona
út í náttúruna og kennarar eru áhuga-
samir, þótt oft hamli tímaskortur. Það
þarf líka að kenna deilingu og lýsing-
arhátt þátíðar og forgangsraða í starf-
inu samkvæmt því. Margir nemenda á
Hvolsvelli eru úr sveitunum í kring og
eru því í nánari tengslum við náttúr-
una en margir jafnaldrar þeirra. Og
smám saman öðlast þeir þá hugsun að
úrgangur sé ekki til og allt megi
endurnýta. Flugferðum eigi að halda í
lágmarki og matarsóun sömuleiðis.“
Jón er nú í veikindaleyfi frá starfi
sínu við Hvolsskóla. Heldur þó áfram
tengslum og ætlar með nemendum
hinn 8. október næstkomandi austur
að Sólheimajökli í mælingaferð. Hvað
hefur jökullinn gefið mikið eftir á einu
ári? Spurningin er áhugaverð og
spennandi verður að fá svarið, enda
munu fjölmiðlamenn frá arabísku
sjónvarpsstöðinni Al Jazeera að þessu
sinni fylgjast með og aðrir frá Sky
news voru hér í vikunni. Jöklarnir eru
að hverfa og starfið í Hvolsskóla vekur
athygli á heimsvísu!
Starfið í Hvolsskóla vekur athygli á heimsvísu
Nemendur úr sveitunum eru í
nánum tengslum við náttúruna
Ljósmynd/Aðsend
Mælingar Vettvangsnám skilur mikið eftir sig í vitund ungra nemenda.
W W W. S I G N . I S
Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is