Morgunblaðið - 20.09.2019, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 20.09.2019, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Ínáttúrufræðum eru nemendur aldreimóttækilegri en þegar hægt er að fylgj-ast með þróuninni; hvernig landið ogumhverfið eru stöðugt að breytast. Mér fannst því upplagt að fara nýjar leiðir í kennsl- unni. Í skólanum voru líka góðar undirtektir við slíku, sem gerðu starfið mögulegt,“ segir Jón Stefánsson, grunnskólakennari á Hvols- velli. Kennsla, rannsóknir og upplifun Bryddað var upp á ýmsu á Degi íslenskr- ar náttúru sl. mánudag, 16. september. Þetta er afmælisdagur Ómars Þ. Ragnarssonar fréttamanns sem á löngum ferli sínum hefur sagt frá mörgu athyglisverðu sem talist getur umhverfismál. Sá fréttaflutningur hefur átt sinn þátt í því að vekja áhuga almennings á náttúruvernd og umhverfismálum, sem nú geta talist mál málanna. Annar eldhugi í vernd íslenskrar náttúru var svo Sigríður Tómasdóttir frá Brattholti í Biskupstungum (1871-1971), konan sem lagði allt í sölurnar snemma á 20. öldinni svo Gull- fossi yrði ekki fórnað fyrir virkjun. Sú barátta skilaði sér – og á Degi íslenskrar náttúru hefur umhverfisráðhera frá árinu 2010 veitt Nátt- úruviðurkenningu Sigríðar í Brattholti fólki sem lagt hefur mikið af mörkum í umhverfis- málum. Og að þessu sinni komu verðlaunin í hlut Jóns Stefánssonar sem hefur, eins og seg- ir í umsögn ráðherra, verið framúrskarandi „að nýta nærumhverfi barnanna – náttúruna á heimaslóðum þeirra – til kennslu, rannsókna og upplifunar“. Miklar breytingar „Mér þykir afar vænt um þessa við- urkenningu,“ segir Jón Stefánsson, sem á langan kennaraferil að baki. Hann kom til starfa við Hvolsskóla árið 2008 og var fljótlega falin verkefnisstjórn í náttúrufræðikennslu. Svo fór boltinn að rúlla árið 2010 þegar gerður var út leiðangur með nemendur úr 7. bekk að Sólheimajökli og hop hans mælt, samkvæmt vísindalegum aðferðum. Það hefur verið gert á hverju ári síðan og í mælingum á síðasta ári reyndist undanhaldið vera 379 metrar á átta árum. „Náttúran við jökulinn hefur breyst afar mikið á þessum tíma. Fyrst þegar við komum þarna var sléttur sandur framan við skriðjök- ulinn en nú er þar mikið lón. Þegar við mæld- um dýpt þess fyrst árið 2014 reyndist það vera 40 metrar en var í fyrra komið í yfir 60 metra,“ segir Jón um framvinduna við Sólheimajökul sem þykir athygliverð. Frá henni og mæl- ingum Hvolsskólanema hefur oft verið sagt í fjölmiðlum – og erlendir þjóðhöfðingjar hafa á stundum farið austur til að kynna sér stöðu mála. Má þar nefna François Hollande sem var á svæðinu haustið 2015, þá sem forseti Frakklands, og í sumar fylgdu nemendur úr Hvolsskóla Frank-Walter Steinmeier, forseta Þýskalands, og Guðna Th. Jóhannessyni, for- seta Íslands, um svæðið. Annað nýmæli í náttúrufræðikennslu Jóns við Hvolsskóla er landgræðsluverkefni nemenda í 5. bekk, sem hafa farið reglulega austur í Landeyjar til að kanna áhrif og árang- ur ólíkra aðferða við landgræðslu. Sömuleiðis hafa nemendur gróðursett plöntur við Þjófa- foss í Landsveit, komið svo aftur að tveimur árum liðnum og séð árangurinn. Jafnframt hafa nemendur skólans tvívegis verið útnefnd- ir Varðliðar umhverfisins, í verkefni umhverf- isráðuneytis, Landverndar og fleiri. Bæta fyrir útblásturinn „Bráðnun jökla er afleiðing af loftslags- hlýnun, en að gróðursetja, draga úr sóun, end- urnýta og fleira slíkt eru aðgerðir til að bæta fyrir útblásturinn og afleiðingar hans,“ segir Jón Stefánsson um náttúrufræðina sem er sterkur þáttur í öllu starfi Hvolsskóla. Má þar nefna að skólinn fékk Grænfánann svonefnda fyrir ellefu árum og samkvæmt því tvinnast umhverfismál saman við alla kennslu og annað starf, eins og lýst er hér að framan. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Kennarinn Fannst upplagt að fara nýjar leiðir í kennslunni, segir Jón Stefánsson. Jón Stefánsson fór nýjar leiðir í náttúrufræðikennslu við grunn- skólann á Hvolsvelli. Jöklar eru mældir, gróðursett og endurnýtt. Fékk viðurkenningu á Degi ís- lenskrar náttúru nú í vikunni. Ljósmynd/Aðsend Landkönnun Nemendur úr Hvolsskóla við sporð Sólheimajökuls. Fylgst hefur verið með þróun mála á þarna frá 2010 og breytingin er mikil. Nýtir nærumhverfi barnanna „Nemendurnir hafa verið áhugasamir og sækjast eftir þekkingu um um- hverfið sem þeir svo miðla áfram,“ segir Jón Stefánsson um áherslur sín- ar og kennslu. „Jú, auðvitað er mjög gaman að fara með skólastarfið svona út í náttúruna og kennarar eru áhuga- samir, þótt oft hamli tímaskortur. Það þarf líka að kenna deilingu og lýsing- arhátt þátíðar og forgangsraða í starf- inu samkvæmt því. Margir nemenda á Hvolsvelli eru úr sveitunum í kring og eru því í nánari tengslum við náttúr- una en margir jafnaldrar þeirra. Og smám saman öðlast þeir þá hugsun að úrgangur sé ekki til og allt megi endurnýta. Flugferðum eigi að halda í lágmarki og matarsóun sömuleiðis.“ Jón er nú í veikindaleyfi frá starfi sínu við Hvolsskóla. Heldur þó áfram tengslum og ætlar með nemendum hinn 8. október næstkomandi austur að Sólheimajökli í mælingaferð. Hvað hefur jökullinn gefið mikið eftir á einu ári? Spurningin er áhugaverð og spennandi verður að fá svarið, enda munu fjölmiðlamenn frá arabísku sjónvarpsstöðinni Al Jazeera að þessu sinni fylgjast með og aðrir frá Sky news voru hér í vikunni. Jöklarnir eru að hverfa og starfið í Hvolsskóla vekur athygli á heimsvísu! Starfið í Hvolsskóla vekur athygli á heimsvísu Nemendur úr sveitunum eru í nánum tengslum við náttúruna Ljósmynd/Aðsend Mælingar Vettvangsnám skilur mikið eftir sig í vitund ungra nemenda. W W W. S I G N . I S Fornubúðir 12, 220 Hafnarfjörður │ S: 555 0800 │sign@sign.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.