Morgunblaðið - 20.09.2019, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 20.09.2019, Qupperneq 12
BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Tone Maren Sakshaug, endurskoð- andi hjá alþjóðlega endurskoðunar- fyrirtækinu EY og einn helsti sér- fræðingur í óhæðis- og siðareglum endurskoðenda hjá EY, sagði á morgunfundi sem EY á Íslandi stóð fyrir í gær að, að endurskoðunar- nefndir í fyrirtækjum fengju aukið hlutverk í nýjum Evrópureglum um endurskoðun, sem tækju gildi hér á landi 1. janúar nk. Hún sagði jafn- framt að hið opinbera þyrfti að setja á stofn eftirlit með endurskoðunar- nefndunum, og geta beitt viðurlög- um ef þurfa þætti. Sakshaug segir hinsvegar í samtali við Morgunblað- ið að ekki sé skilgreint í reglunum hvernig þetta eftirlit eigi að fara fram. „Við erum ekki viss með út- færslu á þessu og ég hef heldur ekki séð neitt um hvað er að gerast í þessum efnum í öðrum löndum,“ segir Sakshaug, en Evrópureglurn- ar tóku gildi í ríkjum ESB sumarið 2016. Eins og kom fram í máli Mar- grétar Pétursdóttur forstjóra EY á fundinum, þá hefur innleiðing regln- anna hér á landi frestast vegna örra breytinga á pólitíska sviðinu und- anfarin ár. Sakshaug segir að hún þekki heldur engin dæmi um að viðurlög- um hafi verið beitt af yfirvöldum vegna starfa endurskoðunarnefnda, þó að þrjú ár séu síðan reglurnar tóku gildi í ESB. Í máli hennar á fundinum kom m.a. fram að aukið hlutverk endur- skoðunarnefnda þýddi meðal annars að nefndin þyrfti að vera mun meira inni í endurskoðun fyrirtækja en áð- ur, og „vera sátt við“ endurskoðun félagsins. Hjá mikilvægum fyrirtækjum Endurskoðunarnefndir eiga sam- kvæmt lögum að vera að störfum hjá öllum einingum tengdum al- mannahagsmunum(e. Public Inter- est Entity ), eins og bönkum og öðr- um lánastofnunum, lífeyrissjóðum, tryggingafélögum, og félögum sem eru með skráð bréf á markaði m.a. Spurð að því hvort nýju reglurnar hafi aukið gæði endurskoðunar á þeim tíma sem liðinn er síðan þær tóku gildi í ESB árið 2016, segir Sakshaug að enn sé erfitt að segja til um það. „Við höfum haft tvö heil reikningsár frá gildistökunni, og því er enn of fljótt að segja til um það. En sum lönd hafa til dæmis þegar sagt að gera þurfi enn betur. Per- sónulega tel ég að það að endur- skoðunarnefndirnar hafi verið styrktar, sé mjög gott í nýju regl- unum.“ Óvíst hvernig eftirlit fer fram  Endurskoðunarnefndir eru settar undir opinbert eftirlit í nýjum Evrópureglum  Reglurnar eiga að auka gæði endurskoðunar og endurheimta traust Fundur Sakshaug segist ánægð með styrkingu endur- skoðunarnefnda. Morgunblaðið/Eggert 12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 ● Eftir nokkra hækkun á verði Ice- landair í fyrradag lækkuðu bréf félags- ins að nýju í gær, eða um 3,25% í 70 milljóna króna viðskiptum. Gengi fé- lagsins er nú 6,54 krónur á hvern hlut. Þónokkur lækkun varð einnig á verði bréfa Heimavalla í öllu minni við- skiptum, eða níu milljóna króna við- skiptum. Skeljungur og Marel lækkuðu einnig lítillega í Kauphöllinni í gær. Það félag sem hækkaði mest í verði var upplýsingatæknifyrirtækið Origo, eða um 1,3% í 13 milljóna króna við- skiptum. Þá hækkaði fasteignafélagið Eik um 1,27% og TM um 1,11%. Icelandair lækkaði aftur í verði í Kauphöllinni STUTT 20. september 2019 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 123.56 124.14 123.85 Sterlingspund 153.96 154.7 154.33 Kanadadalur 93.09 93.63 93.36 Dönsk króna 18.266 18.372 18.319 Norsk króna 13.776 13.858 13.817 Sænsk króna 12.703 12.777 12.74 Svissn. franki 123.97 124.67 124.32 Japanskt jen 1.1414 1.148 1.1447 SDR 169.21 170.21 169.71 Evra 136.42 137.18 136.8 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.0534 Hrávöruverð Gull 1502.2 ($/únsa) Ál 1750.5 ($/tonn) LME Hráolía 64.23 ($/fatið) Brent ● Upplýsingatæknifyrirtækið Origo hef- ur keypt BusTravel IT, sem þróar umsjón- arlausn fyrir ferðaþjónustufyrirtæki. Í til- kynningu frá Origo segir að markmiðið með kaupunum sé að efla enn frekar vöruframboð Origo fyrir ferðaþjónustu- fyrirtæki sem leggja áherslu á dagsferðir og afþreyingu og styrkja lausnir sem hafa verið þróaðar fyrir sama markað. „Lausnin tengir saman ýmis kerfi og þjónustu sem flest ferðaþjónustufyr- irtæki nota í daglegum rekstri, svo sem bókunarkerfi, mannauðskerfi, flotastýr- ingarkerfi og samskiptaþjónustu,“ segir jafnframt í fréttatilkynningu Origo. Origo kaupir BusTravel IT IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Bílar á lager Sími 4 80 80 80 2019 Ford F-350 Platinum Litur: Magma red, svartur að innan. 6,7L Diesel ,450 Hö, 925 ft of torque. FX4 off-road pakki, upphituð/loftkæld sæti, heithúðaður pallur, fjarstart, trappa í hlera, airbag í belti í aftursæti VERÐ 11.390.000 m.vsk 2019 Ram Limited 3500 35” Nýtt útlit 2019! Litur: Granite Crystal Nýr 6,7L Cummins Turbo Diesel, 400 hö, togar 1000 pund! Aisin sjálfskipting, upphitanleg og loftkæld sæti, hiti í stýri, sóllúga, nýr towing technology pakki. 35” dekk. VERÐ 11.395.000 m.vsk 2019 F-350 Limited 35” breyttur Litur: Perluhvítur, “cocoa” að innan. 6,7L Diesel, 450 Hö, 925 ft of torque. Breyttur með 35” dekk, 20” felgur og brettakanta. Með FX4 off-road pakka, top- pljós (ekki á mynd), upphituð/loftkæld sæti, heithúð- aðan pall, fjarstart, auka bakkmyndavél fyrir camper eða trailer, trappa í hlera og airbag í belti í aftursæti. VERÐ 12.490.000 m.vsk 2019 GMC Denali 3500 Litur: Onyx black, svartur að innan. 6.6L Duramax Diesel, 445 HÖ, Vel útbúinn bíll t.d. Z71 offroad pakki, upphitað stýri, sóllúga, BOSE hátalarakerfi, dual alternators, upphituð og loftkæld sæti, heithúðaður pallur og kúla í palli (5th wheel pakki) og fleira. VERÐ 10.930.000 m.vsk fyrir heimilið Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is Fallegar vörur Dökkgrátt tau Verð 39.900 kr. Ljósgrátt tau Verð 34.900 kr Nýjir glæsilegir orðstofustólar eð þægilegri fjöðrun Sendum um land allt b m

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.