Morgunblaðið - 20.09.2019, Page 17
17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
Gæsahjón á faraldsfæti Grágæsir eru nú margar á faraldsfæti en hópar þeirra sjást nú víða að búa sig undir far-
flug suður á hlýrri svæði. Hluti þeirra lætur sig þó hafa íslenska vetrarkuldann og hefur vetursetu hér á landi.
Kristinn Magnússon
„Þetta er martröð!“
hrópaði Xavier Bettel,
forsætisráðherra Lúx-
emborgar, síðdegis
mánudaginn 16. sept-
ember. „Ekki er unnt að
taka framtíðina í gísl-
ingu í von um aukið
flokksfylgi,“ sagði hann
einnig við kröftugt lófa-
tak.
Forsætisráðherrann
flutti þennan boðskap þar sem hann
stóð einn á blaðamannafundi fyrir
framan stjórnarbyggingu í höfuðborg
lands síns með autt ræðupúlt við hlið
sér eftir að gestur hans, Boris John-
son, forsætisráðherra Breta, hafði
tekið skyndiákvörðun um að aka á
braut að loknu einkasamtali þeirra
vegna þess að honum mislíkaði and-
brexit-hrópin sem voru gerð að hon-
um.
Bettel var heitt í hamsi þegar hann
ræddi um stöðuna í brexit og sagði að
nú ætti að „taka til hendi í stað þess
að tala“ og áréttaði „við samþykkjum
ekki neinn samning sem stangast á
við sameiginlega markaðinn eða sam-
komulagið [á Írlandi] kennt við föstu-
daginn langa“.
Darren McCaffrey, stjórnmála-
ritstjóri sjónvarpsstöðvarinnar Euro-
news, spurði hvort líkja mætti
ástandinu núna við „leiksýningu svo
að Boris Johnson geti skellt skuldinni
á ESB þegar allt splundrast í októ-
ber?“
Bettel svaraði:
„Nú er reynt að klína sökinni á
okkur af því að ekki er unnt að kom-
ast að samkomulagi. Það var ekki
okkar ákvörðun að fara af stað með
brexit.“
Breskir fréttaskýr-
endur segja að Boris
Johnson hafi verið
leiddur í gildru. Það
hefðu verið saman-
tekin ráð að gera lítið
úr honum. Rétt hand-
an garðsins við stjórn-
arbygginguna stóð
hrópandi fámennur
hópur brottfluttra
Breta, þeim var ætlað,
að sögn skýrenda, að
niðurlægja Johnson
fyrir framan blaðamennina. Hann
hefði séð í hvað stefndi og þess vegna
lagt til að blaðamannafundurinn yrði
innan dyra og gengið á brott þegar
Bettel hafnaði því.
Ekki aðeins í Bretlandi mislíkaði
mönnum framganga Xaviers Bettels.
Kristilegi demókratinn Norbert
Röttgen, formaður utanríkis-
málanefndar þýska þingsins, sagði
málflutning Bettels ekki „þjóna evr-
ópskum málstað“. Bandaríski sendi-
herrann í London, Woody Johnson,
sýndi breska forsætisráðherranum
samstöðu. Hann hefði auðvitað séð
„gildruna“ en enginn þyrfti að kenna
Bretum sem hefðu „stofnað stærsta
heimsveldið“ og „stöðvað nasista“
hvernig þeir ættu að stjórna eigin
landi, ekki einu sinni Brusselmenn.
Juncker og Johnson vongóðir
Upphlaup forsætisráðherra Lúx-
emborgar dró alla athygli frá raun-
verulegu erindi Boris Johnsons sem
var að snæða hádegisverð með Jean-
Claude Juncker, forseta fram-
kvæmdastjórnar ESB, og Michel
Barnier, brexit-samningamanni
ESB. Eftir hádegisverðinn lýsti
Johnson þeirri eindregnu skoðun að
„góðar líkur“ væru á samningi á
næstu vikum. Hann sagði að varnagl-
inn vegna írsku landamæranna yrði
að víkja svo að unnt yrði að semja.
Forystumenn ESB halda fast í þá
skoðun að eina leiðin til sam-
komulags felist í því að Bretar leggi
afdráttarlausar tillögur á borðið um
hvernig losa megi um varnaglann,
það er haga samskiptum ESB og
Breta þannig til frambúðar að þeir
verði ekki saman í tollabandalagi en
samt verði opin landamæri milli
Írska lýðveldisins og Norður-
Írlands. Boris Johnson gerir mun
minna úr vandanum vegna þessa en
Theresa May, forveri hans.
Jean-Claude Juncker sagði „vin-
gjarnlegt“ andrúmsloft hafa ríkt í
málsverði þeirra Johnsons og við-
ræðum yrði „haldið áfram á miklum
hraða“. Talsmaður breska forsætis-
ráðherrans ítrekaði að „herða“ yrði á
samtölum næstu daga. Brátt yrðu
daglegir fundir viðræðuaðila. Þá
mundu Barnier og brexit-ráðherrann
hittast og einnig Juncker og John-
son, þætti þess þörf.
Þegar Johnson fór frá veitinga-
staðnum voru blaðamenn aðgangs-
harðir við hann. Þeir vildu vita hvort
honum hefði tekist að fá vilyrði fyrir
endurskoðun á viðskilnaðarsamningi
Breta og ESB. Breski forsætisráð-
herrann vonar að ný útgáfa af við-
skilnaðarsamningnum liggi fyrir eft-
ir leiðtogaráðsfund ESB-ríkjanna 17.
og 18. október. Hann geti síðan
kynnt hann og fengið samþykktan á
breska þinginu þegar það kemur
saman 19. október.
Skömmu eftir fund Johnsons og
Junckers birti framkvæmdastjórn
ESB tilkynningu um að það væri á
„ábyrgð“ Breta að leggja fram „laga-
lega færar lausnir sem samrýmist
viðskilnaðarsamningnum“ til að ein-
hverju miði vegna varnaglans. Þá
sagði „engar slíkar tillögur hafa enn
borist“.
Ekki allt sem sýnist
Tvær andstæður birtast í þessum
fréttum frá Lúxemborg. Annars veg-
ar er neikvætt upphlaup forsætisráð-
herrans Bettels og hins vegar vilji
Junckers til að hraða viðræðum við
Breta næstu vikur fram að leiðtog-
aráðsfundi ESB eftir mánuð.
Hvort er rétt? Er Boris Johnson á
valdi blekkinga þegar hann lýsir
bjartsýni um að sér takist að knýja
fram nýja viðunandi niðurstöðu? Vill
hann á þennan hátt réttlæta ákvörð-
un sína um að senda breska þingið
heim?
Þeir sem telja sig þekkja klæki
Brusselmanna segja að „gildran“
sem lögð var fyrir Boris Johnson í
Lúxemborg hafi verið lúmskari en
ætla mætti við fyrstu sýn. Bettel hafi
verið „vondi karlinn“ en Juncker sá
góði og vingjarnlegri til að villa um
fyrir Johnson. Telja honum trú um
að eitthvað hafi áunnist svo að síðar
mætti vega að trúverðugleika hans
og segja hann fávísan.
Ekki er þó unnt að útiloka að öll
brotin falli þannig saman að lokum
að við blasi ný mynd sem sé meiri-
hluta þingmanna í neðri málstofu
breska þingsins að skapi. Johnson
þótti ganga of langt þegar hann rak
21 þingmann úr flokknum vegna
þess að þeir studdu ekki stjórnar-
stefnuna í atkvæðagreiðslu. Í hópn-
um voru nokkrir elstu og virðuleg-
ustu þingmenn flokksins. Hefur
Johnson verið hvattur til að friðmæl-
ast við þá.
Ákvörðunin um að reka þingið
heim í fimm vikur leiddi til málaferla
og þriðjudaginn 17. september tók
breski hæstirétturinn málið fyrir
með 11 dómurunum. Lögmaður
sækjanda sagði að undanfarin 50 ár
hefði enginn forsætisráðherra gripið
til sambærilegrar misbeitingar á
valdi. Lafði Hale, forseti hæsta-
réttar, tók fram að niðurstaða í
þessu máli mundi ekki ráða því
hvernig Bretar færu úr Evrópusam-
bandinu. Af hálfu ríkisstjórnarinnar
er sagt að þetta sé mál sem ljúka eigi
á stjórnmálavettvangi en ekki fyrir
dómi.
Lögmaður Johns Majors, fyrrver-
andi forsætisráðherra, ávarpaði
dómarana skömmu fyrir lok mál-
flutningsins í gær og mótmælti þing-
hlénu. Minnt er á að Major sendi
þingið heim fyrir kosningar 1997 til
að komast hjá því að birt yrði skýrsla
um að þingmönnum væri borgað fyr-
ir að leggja spurningar fyrir ráð-
herra.
Frá því að Boris Johnson myndaði
stjórn sína hefur hann búið sig undir
þingkosningar samhliða tilraunum
til nýrra samninga við ESB. Snilld-
arbragðið er að nýtt ESB-sam-
komulag í þinghléi verði lagt fram á
þingi fyrir 31. október. Boða síðan til
kosninga hvort sem brexit verður
með eða án samnings.
Eftir Björn
Bjarnason »Upphlaup forsætis-
ráðherra Lúxem-
borgar dró alla athygli
frá raunverulegu
erindi Boris Johnsons
til landsins.
Björn Bjarnason
Höfundur er fv. ráðherra.
Brexit-martröð eða snilldarbragð
Síðastliðið vor var
samþykkt breyting á
lögum og þingsályktun
er varðar innflutning á
hráu kjöti og mat-
vælum. Í henni var
samþykktur rammi
sem á að sjá til þess að
ekki verði flutt inn kjöt
og landbúnaðarafurðir
til landsins sem ekki
standast sömu kröfur
og hér á landi. Sam-
hliða hélt ríkisstjórnin blaðamanna-
fund þar sem tilkynnt var að Ísland
yrði fyrsta landið í heiminum til þess
að banna dreifingu á vörum á mark-
aði sem innihalda ákveðnar tegundir
sýklalyfjaónæmra baktería.
Samþykkt þessi er mikilvæg, ekki
bara bændum og framleiðendum hér
á landi vegna sérstöðu búfjárstofna
og sjúkdómastöðu heldur ekki síður
fyrir neytendur.
Neytendur hafa kallað eftir því að
vörur á markaði séu framleiddar við
skilyrði sem innifela góða meðferð
búfjár, hreinleika afurða og varan
innihaldi ekki bakteríur eða veirur
sem geta valdið sjúkdómum í fólki og
dýrum.
Neytendur eiga rétt á því að ís-
lenskur markaður verði verndaður
fyrir sérhagsmunum heildsala og
verslunarinnar þegar
kemur að þessum þátt-
um.
Bann og bakteríur
Ljóst var að vinna við
fullgildingu lagabreyt-
inganna og aðgerða í
þingsályktun myndi
taka tíma enda taka lög-
in ekki gildi fyrr en um
áramót. Þeirri vinnu
stýrir ráðherra land-
búnaðarmála. Hefur
undirritaður fulla trú á
því að hann klári málið
með stæl. Hins vegar hefur lítið
heyrst af málinu síðan í vor. Því spyr
undirritaður hér: Hvað er að frétta af
þessu máli, hæstvirtur landbún-
aðarráðherra? Hvernig miðar vinnu
við undirbúning banns við innflutn-
ingi á vörum sem innihalda ákveðnar
tegundir sýklalyfjaónæmra bakt-
ería? Þessir hlutir þurfa að vera á
hreinu á réttum tíma til að vernda ís-
lenska hagsmuni.
Samstarf um sátt
Þær breytingar sem gerðar voru á
málinu í meðförum þingsins frá því
að málið kom frá ráðherra voru til
þess fallnar að mynda sátt milli
bænda, neytenda og ríkisvaldsins í
þessu erfiða máli.
Mikilvægt er að vinna málið áfram
í sátt við bændur og neytendur til
þess að fullnusta samþykkt þingsins.
Sáttin þarf að ná alla leið á eldhús-
borð neytenda og standa þarf við allt
það sem samþykkt var í téðri þings-
ályktun og lagabreytingu.
Mun undirritaður ekki liggja á liði
sínu í þeirri baráttu landi og þjóð til
heilla.
Eftir Þórarin Inga
Pétursson
Þórarinn Ingi
Pétursson
»Hvernig miðar vinnu
við undirbúning
banns við innflutningi á
vörum sem innihalda
ákveðnar tegundir
sýklalyfjaónæmra
baktería?
Höfundur er varaþingmaður
Norðausturkjördæmis og situr
nú á Alþingi.
thorarinnp@althingi.is
Hvað er að frétta,
hæstvirtur land-
búnaðarráðherra?