Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 20.09.2019, Blaðsíða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 Lítum á verkaskipt- ingu karla og kvenna í leikhúsi allra lands- manna – leikhúsinu okkar. Á boðstólum í Þjóð- leikhúsinu eru á kom- andi vetri 27 sviðsverk í fimm sölum hússins og á faraldsfæti. Rúm- ur helmingur, 15 verk, er á vegum Þjóðleik- hússins, önnur eru að- komin en framleidd á vegum ann- arra aðila en njóta húsaskjóls og samstarfs við Þjóðleikhúsið á ýmsa vegu. Athygli vekur hve stór hluti verk- anna er afleiddur, þrjár sýningar byggjast á bandarískum kvikmynd- um, tíu á bókverkum. Höfundar hugverkanna eru flestir karlar, 19 alls, á móti átta ritfærum konum. Höfundar leikgerða sem birtast okkur á sviðinu eru tíu karlar á móti fjórum konum. Jafnvel í þýð- ingum úr erlendum málum er hlut- um misskipt milli kynja: þær ann- ast sjö karlar á móti tveimur konum. Þegar textanum sleppir og athöfnin tekur við þá eru við leikstjórn 15 karlar og sex konur. Einn gesta- hópurinn er með sam- stillta stjórn karla og kvenna. Leikmyndir eru unnar af níu körl- um og fimm konum. Búningar eru skráðir á 14 konur og einn karl. Í nokkuð mörgum leiksýningum er flutt tónlist: tónskáldin eru 15. Karlarnir 12 en konurnar þrjár. Til flutnings tónlistar þarf tónlist- armenn og tónlistarstjóra en þeir eru í átta verkum og allir karlkyns. Öll verk á sviði þurfa lýsingu sem er sérstakt fag sem krefst mennt- unar, reynslu og tækifæris til að láta ljós sín skína. Engri konu er treyst til þess starfs í Þjóðleikhús- inu okkar. Í stórum og flóknum sýningum eru kallaðir til listamenn sem kunna að búa til hreyfimynstur fyr- ir fáa og fjölda. Þar verða að störf- um sjö konur og einn karl á kom- andi leikári. Í leikhúsi okkar daga er rík til- hneiging til að nota gamla tækni ávarps myndar á tjald eða skjá og skapa heimsókn okkar í leikhúsið hljóðheim. Til þeirra starfa er ein- ungis karlmönnum treyst í Þjóð- leikhúsinu. Aftur er förðun og hár kvenna- megin. Það verður að leita áratugi aftur í sögu leikhússins okkar til að finna karlmann við slík störf. Ofangreindar upplýsingar eru fengnar af heimasíðu leikhússins í þessari viku svo langt sem þær ná, en ekki er ráðið í öll störf við sýn- ingar hússins enda leikárið nýhafið. Ekki var svipast um í öðrum leik- hússtofnunum sem njóta styrks af almannafé, ekki litið til þess heldur hver þáttur erlendra manna er í listrænni stjórn sviðsverka á Ís- landi um þessar mundir, hvernig skipulega og vísvitandi er gengið hjá menntuðu fólki sem hér býr og þekkir samfélagið betur en miðl- ungsmenn sem keyptir eru að utan með misjöfnum árangri. Það er efni í aðra grein. Á heimasíðunni má leita að jafn- réttisstefnu leikhússins sem er „í samræmi við gildandi lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla“ eins og segir í reglugerð ráðuneytis um starfsemina, en ekki er hún birt þar. Í ársskýrslu 2013 segir: „Stefnt er markvisst að því að gæta jafnræðis milli kynja í hinu listræna starfi í samræmi við jafn- réttisstefnu.“ Um allt samfélagið er rík meðvit- und um mikilvægi jafnréttis í öllu starfi: samtök launafólks, samtök listamanna, stjórnvöld og stjórnir fyrirtækja hafa sett sér markmið í þeim efnum og fylgja þeim eftir. Ekki veitir af. Sú framtíð bíður dætra okkar að þær búi við skarðari hlut í launum og tækifær- um en synirnir. Nýlega fékk leikhússtjóri breska þjóðleikhússins á sig áskorun skáld- kvenna þar í landi þar sem hann var minntur á gefin fyrirheit um að hlutur þeirra á verkefnaskrám leik- hússins, sem er þar eins og Þjóð- leikhúsið okkar sú stofnun sem nýt- ur mestra styrkja, yrði helmingur þeirra verka sem á sviðið kæmust. Nú má búast við því að stjórn Þjóðleikhússins skjóti sér á bak við tölur frá fyrri árum: það var skárra þá. Tvö ár eru liðin frá því upphófst í kvikmynda- og leikheiminum and- ófsbylgja kvenna gegn misbeitingu valds karla að tjaldabaki. Að baki henni lá dulin ásökun um misrétti í tækifærum til starfa, ábyrgðar og tjáningar á hinu listræna sviði – okkur öllum til tjóns. Konur hafa sitt að segja. Í vinnu úthlutunar opinberra styrkja til sviðslistanna hefur leik- listarráð skipulega litið til jafnræðis með tegunda verkefna, landfræði- legrar stöðu og samsetningar hóp- anna sem um sækja. Enda er það í samræmi við áherslur ríkisstjórnar um jafnrétti kynjanna og almennan vilja landsmanna um jafnan aflahlut karla og kvenna. En á sjötíu ára afmælisári Þjóð- leikhússins okkar er boðið upp á mikla karlaveislu eins og tölurnar sýna. Heyrast raddir utansviðs Eftir Pál Baldvin Baldvinsson »Dulin ásökun um misrétti í tækifær- um til starfa, ábyrgðar og tjáningar á hinu listræna sviði – okkur öllum til tjóns. Konur hafa sitt að segja. Páll Baldvin Baldvinsson Höfundur er fráfarandi formaður Félags leikstjóra á Íslandi og sat í þjóðleikhúsráði, en er nýskipaður formaður leiklistarráðs. pallbaldvinsson@gmail.com Fyrir um 30 árum vöknuðu þjóðir heims upp við vondan draum; hættulegar loftslagsbreytingar voru um það bil að eyðileggja lífsskil- yrðin á heimili okkar, jörðinni. Í skyndi voru gerðir alþjóðlegir samningar um hvað bæri að gera. En svo gerðist lítið meira, og alls ekki nóg. Líka á Ís- landi þar sem losun gróðurhúsa- lofttegunda hefur vaxið um liðlega 30% frá árinu 1990. Þessa dagana má lesa í fréttum um mat OECD á stöðu íslensks efna- hagslífs og til hvaða aðgerða er þörf að grípa, til að tryggja velsæld Ís- lendinga á næstu árum. Þar er litla sem enga leiðsögn að finna um það hvernig stýra má efnahagslífinu á sjálfbæra braut svo lífsskilyrðum komandi kynslóða verði ekki spillt. Það hlýtur að vera tímaskekkja eða mistök hjá OECD! Allt virðist eiga að vera eins og í gær þótt aðalritari Sameinuðu þjóðanna hafi boðað til leiðtogafundar um loftslagsbreyt- ingar 23. september nk. undir fyr- irsögninni: „Baráttan við loftslags- breytingar er kapphlaup sem mann- kynið getur unnið og verður að vinna.“ Glæpur gegn mannkyni „Unga fólkið er framtíðin“ heyrist oft sagt í hátíðarræðum. En það er ekki björt framtíð sem við bjóðum unga fólkinu ef við sem fullorðin er- um getum ekki snúið óheillaþróun hamfarahlýnunar til betri vegar. Við vitum að víðtæk alþjóðleg sam- staða er forsenda árangurs í aðgerð- um gegn hamfarahlýnun. Það sem við gerum á Íslandi, eða jafnvel allri Evrópu, leysir ekki loftslagsvand- ann. En það þjónar ekki sem afsök- un. Aðgerðaleysi heimsins, ófullnægj- andi aðgerðir og sýndarmennska er glæpur gegn mankyninu; komandi kynslóðum, börnum og barnabörn- um. Það er því ekki valkostur. Af- staða forystu hins öfluga ríkis Bandaríkjanna til aðgerða gegn hamfarahlýnun er óviðunandi, stór- hættuleg og má líkja við alvarlega stríðsglæpi. Ráðamenn þjóðarinnar þurfa að segja það hátt og skýrt þeg- ar tækifæri gefst. Grípa þarf til aðgerða í dag, en jafnframt skipuleggja aðgerðir til lengri tíma litið. Við þurfum sam- tímis að leggja upp í kapphlaup og langhlaup. Á Íslandi hefur ríkisstjórnin sett fram og að einhverju leyti fjármagn- aða áætlanir um aðgerðir. Við vitum hins vegar ekki enn hvaða árangri þeim er ætlað að skila. Þær eru hugs- anlega í mesta lagi góð byrjun. En þær eru ófullnægjandi framlag Ís- lands til lausnar þeim stóra vanda sem við blasir. Ertu með? Þess vegna er frekari aðgerða þörf og ríkari áherslu þarf að leggja á þetta mál frá öllum hliðum. Það þarf að koma skýrt fram í fjárlögum og öllum áætlunum um innviða- uppbyggingu. Með sanngjörnum grænum gjöldum, sköttum og styrkj- um sem hvetja til breytinga. Með uppgræðslu og verndun jarðvegs. Með fræðsluátaki, kynningu og orð- ræðu leiðtoga þjóðarinnar og emb- ættismanna bæði innanlands og hvar sem færi gefst á alþjóðavettvangi. Hvert og eitt okkar þarf einnig að taka til í eigin ranni og skipuleggja daglegt líf og frístundir svo kolefn- issporið fari minnkandi. Kolefnishlutleysi er raunhæft markmið þar sem þjóðin býr yfir tækni, þekkingu og auðlegð til að ná því marki. Raunverulegur vilji og víðtæk samstaða er það sem skortir. Af þessum ástæðum hvetur Land- vernd til þess að við sem styðjum kröfu unga fólksins mætum til þess fundar sem það hefur boðað nú á föstudaginn 20. september nk. Sýn- um þar raunverulegan vilja og sam- stöðu í verki! Allir, líka þeir sem ekki geta mætt á þann fund, geta skrifað undir kröfu til stjórnvalda landsins um frekari og raunhæfar aðgerðir sem skili mælanlegum árangri. Þú getur skrifað undir þessa kröfu með því að fara á heimasíðu Land- verndar. Þitt framlag skiptir máli fyrir þau lífsskilyrði sem við ætlum kynslóðum framtíðarinnar. Eftir Tryggva Felixson og Þórhildi Fjólu Kristjánsdóttur » Þjóðin býr yfir tækni, þekkingu og auðlegð til að ná mark- miðinu um kolefnishlut- leysi. Sterkan vilja og víðtæka samstöðu skort- ir. Breytum því! Tryggvi er formaður Landverndar. Þórhildur Fjóla er varaformaður og leiðir loftslagshóp Landverndar. tryggvi@landvernd.is Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir Baráttan gegn hamfarahlýnun er kapphlaup og langhlaup Tryggvi Felixson Komist hafa í frétt- irnar ótímabærar yf- irlýsingar Sigurðar Inga Jóhannssonar samgönguráðherra um að vinna við gerð Fjarðarheiðarganga taki sjö ár. Til þess er of mörgum spurn- ingum ósvarað á með- an ekkert er vitað um jarðfræðilegar að- stæður undir Fjarðar- heiði og hvort þar geti opnast enn fleiri vatnsæðar en undir Vaðla- heiði. Vatnsrennslið sem enginn sá fyrir í Vaðlaheiðargöngum vekur spurningar um hvort vinna við Fjarðarheiðargöng ein og sér taki meira en áratug, fari svo að óhjá- kvæmilegt verði samkvæmt hert- um öryggiskröfum að grafa beggja vegna ganganna flóttaleiðir með eldvarnarhurðum. Án þeirra yrði vonlaust fyrir vegfarendur, sem neyðast til að yfirgefa ökutækin sín, að forða sér út ef árekstur tveggja flutninga- bifreiða með bilaðan öryggisbúnað veldur eldsvoða í göngunum með ófyrirséðum af- leiðingum. Slík tilfelli koma oft upp í norsk- um jarðgöngum og nú síðast í Mont Blanc- göngunum árið 1999. Þar misstu slökkvi- liðsmennirnir stjórn á eldsvoðanum sem breiddist út á örfáum sekúndum eftir harð- an árekstur flutninga- bifreiðanna, sem skullu saman á mikilli ferð. Í eldsvoðanum, sem kostaði nærri 40 mannslíf, eyðilögðust 34 ökutæki þegar litlir fólksbílar lentu á milli stóru ökutækjanna. Það vekur spurningar um hvort vegfarendum takist að forða sér tímanlega út vegna of mikils hita án flóttaleiða með eldvarn- arhurðum sem skipta miklu máli beggja vegna Fjarðarheiðarganga, örfáum mínútum áður en spreng- ingar yrðu með stuttu millibili í göngunum. Spurningin er hvort Eftir Guðmund Karl Jónsson » Fjarðarheiðargöng skal ekki ákveða án flóttaleiða með eld- varnarhurðum, sem tryggja strax öryggi vegfarenda. Guðmundur Karl Jónsson Höfundur er farandverkamaður. það geti þá tekið vegfarendur of langan tíma að komast út. Ókostir við löng göng Víða um land neita sveit- arstjórnirnar og margir landsbyggðarþingmenn að við- urkenna þá staðreynd að 13-14 km gangalengd hefur marga ókosti í för með sér ef bílstjórinn missir stóra ökutækið vegna bilunar í ör- yggisbúnaði yfir á vitlausan veg- arhelming á 70-80 km hraða í göngunum og lendir fljótlega fram- an á öðrum flutningabíl, sem kem- ur á móti á svipuðum hraða. Fjarðarheiðargöng skal ekki ákveða án flóttaleiða með eldvarn- arhurðum sem tryggja strax ör- yggi vegfarenda ef slökkviliðið á Mið-Austurlandi er illa í stakk bú- ið til að ráða við þann eldsvoða sem harður árekstur flutninga- bifreiða í jarðgöngum getur valdið. Talað er um að bjóða út á sama tíma minnst þrenn jarðgöng á Mið- Austurlandi, sem tryggja Egils- staða- og Héraðsbúum enn betra aðgengi að stóra Fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaupstað. Til þess þurfa Seyðfirðingar tvenn göng inn í Mjóafjörð. Ólíklegt er að ráð- ist verði í framkvæmdir við öll þessi jarðgöng árið 2024-2028. Til þess er of mörgum spurningum enn ósvarað. Vegna þungaflutning- anna sem aukast alltof mikið á hringveginum, skulu framkvæmdir við tvíbreiðar brýr hafa forgang sem mega ekki tefjast meir en orð- ið er. Hugmynd samgönguráðherra um að innheimta veggjald og blönduð fjármögnun standi undir áætluðum heildarkostnaði við þrenn jarðgöng á Mið-Austurlandi er á skjön við raunveruleikann. Samanlagt getur vinna við öll þessi jarðgöng á Mið-Austurlandi tekið vel á annan áratug eða meira ef Fjarðarheiðargöng lenda á stórum vatnsæðum sem geta opnast, Seyð- firðingum til mikillar hrellingar. Hitt liggur ljóst fyrir að þau verða ekki ókeypis, þegar í ljós kemur hvað öll þessi samgöngu- mannvirki kosta, sem talið er að verði samanlagt 64 milljarðar króna. Enn sem komið er sér eng- inn fyrir hvort vinna við Fjarðar- heiðargöng taki samanlagt 14-15 ár, fari svo að þessi gangagerð lendi á enn fleiri og stærri vatnsæðum en Vaðlaheiðargöng. Kostir og gallar Erfitt er að meta nákvæmlega þann sparnað sem hlýst af því að bjóða út saman nokkur göng sem unnin yrðu samfellt hver á eftir öðrum eða jafnvel samhliða. Sparnaðurinn felst aðallega í betri nýtingu og þar af leiðandi minni kostnaði við mannahald, tækjakost, ýmsan búnað og aðstöðu verktaka. Stórum útboðum geta einnig fylgt ókostir. Það gerðist þegar allar til- raunir til að ráðast í framkvæmdir við Almannaskarð, Fáskrúðs- fjarðar- og Héðinsfjarðargöng vor- ið 2003 runnu út í sandinn. Engin Fjarðarheiðargöng án flóttaleiða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.