Morgunblaðið - 20.09.2019, Síða 35

Morgunblaðið - 20.09.2019, Síða 35
ÍÞRÓTTIR 35 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 Góð heyrn glæðir samskipti ReSound LiNX Quattro eru framúrskarandi heyrnartæki Hlíðasmára 19 • 201 Kópavogur • Sími 534 9600 • heyrn.is Erum flutt í Hlíðasmára 19 Fagleg þjónusta hjá löggiltum heyrnarfræðingi Með þeim færðu notið minnstu smáatriða hljóðs sem berst þér til eyrna. Í þeim er nýr örgjörvi með 100% meiri hraða, tvöfalt stærra minni og eru sérlega sparneytin. Tækin eru heyrnartól fyrir þráðlaust streymi úr síma og öðrum tækjum. Hægt að stjórna allri virkni með appi eða með takka á tækjum. Eru með rafhlöður, sem hlaðast þráðlaust á einfaldan hátt, eða með einnota rafhlöður. „Þetta var sérstakt augnablik fyrir mig og fjölskylduna sem var í stúk- unni. Það var draumur að spila hérna, en ég hefði viljað færa þeim eitt eða þrjú stig,“ sagði Rúnar Már Sigurjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, eftir að hafa leikið á Old Trafford í Evrópudeildinni. Astana, lið Rúnars, mætti þar Manchester United en í aðdrag- anda leiksins kom fram í fjöl- miðlum að Rúnar hefði verið stuðn- ingsmaður enska liðsins um langa hríð. United hafði betur 1:0 en Rúnar lék allan leikinn fyrir Astana. „Þetta spilaðist eins og við reikn- uðum með; þeir voru með boltann og markmaðurinn okkar átti góðan leik. Í stöðunni 0:0 og 1:0 trúðum við alltaf að við gætum skorað eitt mark og fengið stig, en við sköp- uðum ekki nægilega mikið. United notaði unga leikmenn sem vildu sanna sig og við vorum nærri því að ná stigi,“ var ennfremur haft eftir Rúnari hjá UEFA. Íslendingaliðin frá Rússlandi virðast ekki sterk ef marka má þessa fyrstu umferð riðlakeppn- innar en þau töpuðu illa. Hörður Björgvin Magnússon lék allan leik- inn með CSKA Moskvu sem tapaði fyrir Ludogorets í Búlgaríu, 1:5. Arnór Sigurðsson lék ekki með CSKA Moskvu vegna meiðsla. Jón Guðni Fjóluson var á vara- mannabekknum hjá Krasnodar sem tapaði í Sviss fyrir Basel. Knatt- spyrnustjóri Krasnodar hefði lík- lega betur teflt Jóni fram í mið- verðinum því Basel vann 5:0. Arnór Ingvi Traustason lék fyrstu 86 mínúturnar með Malmö þegar liðið tapaði 1:0 fyrir Dynamo Kíev í Úkraínu. Albert Guðmunds- son var á varamannabekk AZ Alkmaar sem gerði vel í að ná í 2:2-jafntefli við Partizan á útivelli, þrátt fyrir að vera manni færri frá 27. mínútu. sport@mbl.is Upplifun fyrir Skagfirðinginn  Rúnar Már lék í 90 mínútur gegn United í gær AFP 1:0 Mason Greenwood fagnar eftir að hafa skorað eina mark leiksins á Old Trafford í gær. Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús lék afar vel á öðr- um hringnum á 1. stigi úrtökumót- anna fyrir Evrópumótaröðina í golfi í Austurríki í gær. Haraldur Franklín lék hringinn á 66 höggum eða á sex höggum undir pari og hann er samanlagt 10 högg- um undir pari eftir hringina tvo. Haraldur fékk sjö fugla á hringn- um í dag og aðeins einn skolla. Har- aldur er í dauðafæri að komast áfram á næsta stig því hann er í 2.-5. sæti eftir 36 holur en 72 verða leiknar. sport@mbl.is Frábærir hringir hjá Haraldi Morgunblaði/Arnþór Birkisson -10 Haraldur er kominn langt niður fyrir parið í Austurríki. Kiel hafði betur gegn Bergischer í Íslendingaslag í þýsku 1. deildinni í handknattleik í gær, 34:29. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði síð- asta mark leiksins fyrir Kiel. Arnór Þór Gunnarsson og Ragnar Jó- hannsson skoruðu þrjú hvor fyrir Bergischer. Elvar Ásgeirsson skor- aði þrjú mörk fyrir Stuttgart sem tapaði fyrir toppliði Hannover- Burgdorf á heimavelli 23:28 en Oddur Gretarsson komst ekki á blað hjá Balingen sem tapaði naum- lega á heimavelli gegn Wetzlar, 33:34. sport@mbl.is Hannover-Burg- dorf á toppnum Morgunblaðið/Kristinn Magnúss Tap Arnór Þór Gunnarsson skoraði 3 mörk á móti Kiel. Jón Þór Hauksson, þjálfari kvenna- landsliðsins í knattspyrnu, hefur valið hópinn fyrir leikina gegn Frakklandi og Lettlandi í október. Ísland mætir Frakklandi í vin- áttuleik 4. október og fer leikurinn fram í Nimes. Fjórum dögum síðar mætir Ísland liði Lettlands á úti- velli í undankeppni EM. Frá sigurleikjunum á móti Ung- verjum og Slóvökum sem fram fóru á Laugardalsvelli um mánaðamótin eru tvær breytingar á landsliðs- hópnum. Rakel Hönnudóttir (Read- ing) og Sandra María Jessen (Bayer Leverkusen) koma inn fyrir Blik- ana Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur og Áslaugu Mundu Gunnlaugs- dóttur. Rakel lék síðast með landsliðinu í vináttuleik gegn Suður-Kóreu í apríl en Sandra lék síðast í vináttu- leik á móti Finnum í júní. „Þetta er í takti við það sem við höfum verið að gera. Þær Karólína og Áslaug Munda munu spila með 19 ára liðinu hér heima í undan- keppni og fá þar mikilvæga lands- leiki og munu styrkja það lið. Það er mikilvægt fyrir okkur að 19 ára liðið komist upp úr riðlinum með þann draum að komast í loka- keppnina sem myndi gefa okkur gríðarlega reynslu upp á fram- haldið og nýtast A-landsliðinu seinna meir. Rakel fær tækifæri aftur. Hún hefur gríðarlega reynslu og er frá- bær leikmaður. Hvað Söndru Maríu varðar þá hefur hún verið óheppin með meiðsli en hún er komin vel af stað með Leverkusen og ég er mjög spenntur að fá þær tvær inn,“ sagði Jón Þór m.a. í gær. Hópinn er að finna á mbl.is/sport. Tvær breytingar fyrir næstu leiki Morgunblaðið/Eggert Valin Rakel Hönnudóttir er þraut- reynd landsliðskona.  Ólympíufarinn Irina Sazonova er mætt aftur til keppni eftir barnsburð, en hún eignaðist frumburð sinn fyrir rúmum sjö mánuðum. Hún verður með á N-Evrópumótinu í áhaldafimleikum í Kópavoginum um helgina. Er þetta hennar fyrsta mót eftir barneignarfríið og freistar hún þess að vinna sér inn keppnisrétt á HM í Stuttgart.  Körfuboltakonan Sigrún Sjöfn Ámundadóttir verður áfram í röðum Skallagríms. Sigrún er þrítug og upp- alin í Borgarnesi. Hún er fyrirliði liðs- ins og lykilmaður þess síðustu ár.  Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari kvennaliðs Selfoss í knattspyrnu, skrifaði í vikunni undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Sel- foss en félagið greindi frá þessu í gær.  Í blaðinu í gær var sagt frá afreki Hermanns Gunnarssonar þegar hann skoraði þrennur í tveimur leikjum í röð á Íslandsmótinu árið 1973. Hins vegar gleymdist að geta þess að Andri Sig- þórsson gerði annað eins og gott bet- ur fyrir KR árið 1997. Hann skoraði þá fimm mörk fyrir KR í 6:2 sigri á Skalla- grími og í næsta deildaleik KR-inga, gegn Val, skoraði Andri þrennu í 6:1 sigri. Í millitíðinni lék hann tvo Evrópu- leiki með KR. Liðu því 22 ár þar til leik- maður skoraði þrennu í tveimur leikj- um í röð eða þar til Morten Beck Guldsmed gerði það fyrir FH. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.