Morgunblaðið - 20.09.2019, Side 36

Morgunblaðið - 20.09.2019, Side 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019 VIÐTAL Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Við vonumst ekki til þess að svipta burt hulunni á milli þess andlega og þess efnislega, á sýningunni erum við raunverulega að svipta henni burt,“ segir Guðrún Vera Hjartardóttir, einn af fjórum sýningarstjórum list- sýningarinnar Fullt af litlu fólki sem var opnuð í Gerðarsafni í gær. Á sýningunni má finna verk heims- þekktra listamanna sem fallnir eru frá, verk Hilmu af Klint, Josephs Beuys og Rudolfs Steiners auk verka Gerðar Helgadóttur og átta sam- tímalistamanna. „Það er ákveðinn hluti af myndlist að finna andann í efninu, að láta efnið tjá sig, að þar kvikni eitthvert líf, myndist einhver tengsl. Góðir lista- menn svipta í sjálfu sér burt þessari hulu,“ segir Jón B.K. Ransu sem fer einnig með sýningarstjórn. Sýningin er innblásin af hugmynd- inni um að andlega reynslu megi tjá á ólíkan máta og birtingarmyndir hennar séu margs konar í menningu samtímans. Kenningar Rudolfs Steiners eru þær sem helst búa að baki sýningunni. Steiner var austurrískur listamað- ur, vísindamaður, bókmenntafræð- ingur og heimspekingur sem meðal annars þróaði mannspeki (antro- posofíu) sem „vísindi andans“, leið einstaklings til andlegs þroska. Guðrún og Sigrún Halldóra Gunn- arsdóttir, þriðji sýningarstjóri sýn- ingarinnar, hafa báðar lengi haft mikinn áhuga á mannspeki Steiners en rannsóknarferlið fyrir sýninguna hófst fyrir tveimur árum með sam- eiginlegum lifandi áhuga þeirra á andlegum vísindum Steiners. Þær eru báðar í Antroposofiska félagi Ís- lands. „Upphafið að þessu er okkar sam- talsferli, stúdía okkar tveggja sem hefur átt sér stað reglulega í gegnum árin,“ segir Sigrún. Eiginmaður Sig- rúnar, Jasper Bock, er fjórði sýning- arstjórinn. „Ég hef lesið fyrirlestra Steiners og hún líka og svo tengjum við það í listina. Þannig gerist þetta. Við tvær förum með þessa löngun að kalla til okkar fólk sem er á svipuðum slóðum og er að spá svipað og tengist list- um,“ segir Guðrún. „Í antroposofíu felst heildræn at- hugun á lífinu og staðhæfingin um að ekkert sé fast. Í antroposofíunni fáum við frelsi. Aðalgrunnurinn að allri antroposofíu sem var mikilvæg- ast fyrir Steiner var frelsi ein- staklingsins. Að vera aldrei nið- urnjörvaður í hans hugmyndum og því sem hann segir heldur finna það, reyna það og upplifa með eigin reynslu,“ segir Sigrún. „Steiner kemur fyrst inn. Okkur langaði að flytja inn töflurnar sem fylgja fyrirlestrum Steiners,“ segir Guðrún. Í ferlinu var þeim svo boðið að sýna einnig verk Klint og Beuys. Ransu, sem er eiginmaður Guðrúnar, hafði þá verið að rannsaka Klint og þótti Guðrúnu því við hæfi að fá hann með í ferlið. „Ég er ekkert sérstaklega mikið inni í Steiner. Mínar pælingar komu miklu frekar frá Hilmu Klint og lista- sögu sem tengist svo sum andlegum pælingum. Svo hef ég auðvitað mik- inn á áhuga á Gerði Helgadóttur og hennar tengslum við Gurdjieff. Hann var dulspekingur og ég hafði stundað hugleiðslur sem voru úr hans smiðju,“ segir Ransu. Bæði Hilma og Beuys tengjast Steiner. Hilma, sem faldi sín merk- ustu verk svo þau voru ekki uppgötv- uð fyrr en eftir andlát hennar, fór á fund Steiners til þess að bera verkin undir hann. Beuys hafði mikinn áhuga á Steiner og er skýr tenging á milli æviverks Beuys, svokallaðs samfélagsskúlptúrs, og heildrænnar samfélagssýnar sem birtist í antro- posofíu Steiners. „Svo þetta gerist allt í einhverju frábæru flæði og það eru einhvern veginn töfrarnir í sýningunni, hvern- ig hún mótar sig sjálf. Hvað verður til í samtali á milli verka, samtali á milli listamanna,“ segir Sigrún. 22 viðburðir á sýningunni Allir listamennirnir eru í antro- posofíska félaginu eða hafa einhvers konar tengingu við andleg vísindi. „Allir listamennirnir eru í sam- bærilegum pælingum um þetta efni,“ segir Ransu. Samt sem áður eru birtingar- myndir listarinnar mjög ólíkar. „Það er líka það sem er mikilvægt. Sýn- ingin er þverskurður af listgreinum. Það er dans, grafísk hönnun, tónlist. Það eru sjónlistamenn og svo eru fræðingar. Og það er mikil dagskrá í kring um sýninguna, það eru 22 við- burðir í tengslum við hana og við telj- um að þeir séu jafngildis verkunum á sýningunni,“ segir Sigrún. Sýningin stendur fram í janúar og munu viðburðirnir dreifast yfir sýn- ingartímann. Guðrún nefnir sér- staklega helgina sem er fram undan þegar hún er spurð út í hápunkta dagskrárinnar. „Um helgina má finna lykla sem dýpka skilning gesta á sýningunni. Þá sérstaklega á málþinginu. Þar tala fræðimenn, til dæmis Walter Kugler sem er sérfræðingur í Stein- er.“ Á sunnudaginn klukkan eitt verð- ur sérstök stund sem gestir þurfa að skrá sig í. „Það er teseremónían sem kjarnar núvitund. Það er svona kjarni í henni. Það eru tólf sem geta tekið þátt. Þú átt eftir að skilja margt ef þú ferð þarna inn,“ segir Guðrún. „Þú færð dýpri skilning á sjálfum þér og þar af leiðandi á öllu öðru.“ Áhrifin sem sýningarstjórarnir vilja hafa á áhorfendur eru skýr. „Að þú komist nær kjarna þínum, hver sem hann er,“ eins og Guðrún orðar það. „Þess vegna er viðburðadagskráin líka svo mikilvæg því hún dýpkar og styður við allt annað sem á sér stað,“ segir Sigrún. „En verkin eiga í sjálfu sér líka þetta samtal,“ bætir Guðrún við. „Vegna þess að listamennirnir eru innblásnir af því andlega,“ segir Ransu. „Það væri líka gaman ef einhverjar spurningar myndu vakna. Málþingið er akkúrat fullkomið tækifæri til að spyrja spurninga á,“ segir Sigrún. Ransu segir mikilvægt að skynja sýninguna. „Skilningur á sýningunni fer eftir því hvaðan þú horfir. Grein- irðu þetta eða upplifirðu þetta?“ Guðrún segir að tengsl á milli verkanna séu mikil þrátt fyrir að list- sköpunin sé fjölbreytt. „Mér finnst vera svona sterkt samtal á milli verk- anna og það er alveg nýtt fyrir mig. Það var líka þessi ósk einhvern veg- inn, að okkur langaði í samtal við hina.“ Ransu samsinnir því. „Ef það er ekki samtal á milli verka þá er sam- sýningin ekki að heppnast. Það er lykilatriði þegar margir eru að sýna saman.“ Guðrúnu er sérstaklega annt um barnasvæðið sem staðsett er nálægt verkum hennar. „Við tökum það inn í sýninguna, þetta er ekki bara eitt- hvert barnahorn. Það er annars kon- ar og með áhöldum sem líkjast svolít- ið því sem er notað í Steiners-skólum, þarna verða töflur, ull og fleira.“ Meðan á sýningunni stendur verða sömuleiðis smiðjur fyrir foreldra og börn sem tengjast efni sýning- arinnar. Waldorfs-skólarnir eru byggðir á hugmyndafræði Steiners en Waldorfs-skólarnir áttu einmitt 100 ára afmæli þegar sýningin var opnuð í gær. Titillinn Fullt af litlu fólki vísar í skýringarmynd sem Steiner teiknaði á fyrirlestri sem hann hélt árið 1922. Titillinn fangar hina breiðu sýningu, að mati sýningarstjóranna. Hægt verður að hlusta á fyrirlestra Stein- ers á kaffihúsinu í Gerðarsafni með- an á sýningunni stendur. „Það er ekki auðvelt að hlusta á þetta og skilja þetta eins og við vilj- um skilja þetta í samtímanum. Við viljum harða þekkingu, kalda þekk- ingu. Ég hef lært í gegnum árin hvernig ég eigi að lesa þetta og hvernig ég geti nýtt þetta sem mynd- listarmaður. Fyrir mig virkar þetta bara upp á ímyndunarafl og innsæi. Þetta er svo stór mynd sem hann er inni í þegar hann er að tala.“ Sigrún segir boðskap Steiners mikilvægan í nútímasamfélagi. „Einn fyrirlesturinn sérstaklega. Hann fjallar um næringarfræði, lík- amann og heildræna sýn á manneskj- una. Hann endar á að tala um menntastefnur og allt það sem er að eiga sér stað í menntakerfinu núna, þeir vilja brjóta upp, taka inn meiri sköpun, hann er bara að tala um þetta 1920. Þetta er ekkert nýtt. Það þarf ekki að finna upp hjólið. Það þarf bara að taka inn reynslu, 100 ára reynslu.“ Samtímann skorti þolinmæði Sýning margra listamanna og margra sýningarstjóra krefst þol- inmæði. „Þegar upp hafa komið aðstæður þar sem maður þarf að segja já eða nei er best að segja bara: „skoðum það“. Það hefur virkað rosalega vel í okkar hóp að mínu mati að sleppa jái og sleppa neii og sjá hvað sýningin sýnir okkur,“ segir Sigrún. Allir sýningarstjórarnir sýna einn- ig sín eigin verk á sýningunni. „Þegar upp kemur spurning um að breyta einhverju sem tengist manns eigin verki þarf maður að pína sig í að prófa það og þá kemur alltaf ný sýn, eitthvað sem maður hefði annars ekki séð. Það segir mér að þetta sé aðeins stærra en maður einn með sjálfum sér í sínu. Þetta tekur lengri tíma og ég held að samtíminn þurfi það. Það þarf meiri hlustun og meiri tíma í hlutina. Við förum svolítið hratt,“ segir Guðrún. Að lokum þakka sýningarstjór- arnir Gerðarsafni og starfsfólki safnsins sérstaklega fyrir. „Safnið er náttúrlega búið að vera stórkostlegt og það er magnað að vinna hérna með þessu fólki. Þetta er svo góður hópur og ótrúlega gott að vinna hérna.“ Morgunblaðið/Eggert Sýningarstjórar (F.v.) Guðrún Vera Hjartardóttir, Jón B.K. Ransu, Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir og Jasper Bock. Lifandi áhugi á andlegum vísindum  Kenningar Rudolfs Steiners um mannspeki grundvöllurinn að sýningunni Fullt af litlu fólki  Verk heimsþekktra listamanna sem fallnir eru frá í bland við ný verk íslenskra og erlendra

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.