Morgunblaðið - 20.09.2019, Page 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 2019
VIÐTAL
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
„Við vonumst ekki til þess að svipta
burt hulunni á milli þess andlega og
þess efnislega, á sýningunni erum við
raunverulega að svipta henni burt,“
segir Guðrún Vera Hjartardóttir,
einn af fjórum sýningarstjórum list-
sýningarinnar Fullt af litlu fólki sem
var opnuð í Gerðarsafni í gær.
Á sýningunni má finna verk heims-
þekktra listamanna sem fallnir eru
frá, verk Hilmu af Klint, Josephs
Beuys og Rudolfs Steiners auk verka
Gerðar Helgadóttur og átta sam-
tímalistamanna.
„Það er ákveðinn hluti af myndlist
að finna andann í efninu, að láta efnið
tjá sig, að þar kvikni eitthvert líf,
myndist einhver tengsl. Góðir lista-
menn svipta í sjálfu sér burt þessari
hulu,“ segir Jón B.K. Ransu sem fer
einnig með sýningarstjórn.
Sýningin er innblásin af hugmynd-
inni um að andlega reynslu megi tjá á
ólíkan máta og birtingarmyndir
hennar séu margs konar í menningu
samtímans. Kenningar Rudolfs
Steiners eru þær sem helst búa að
baki sýningunni.
Steiner var austurrískur listamað-
ur, vísindamaður, bókmenntafræð-
ingur og heimspekingur sem meðal
annars þróaði mannspeki (antro-
posofíu) sem „vísindi andans“, leið
einstaklings til andlegs þroska.
Guðrún og Sigrún Halldóra Gunn-
arsdóttir, þriðji sýningarstjóri sýn-
ingarinnar, hafa báðar lengi haft
mikinn áhuga á mannspeki Steiners
en rannsóknarferlið fyrir sýninguna
hófst fyrir tveimur árum með sam-
eiginlegum lifandi áhuga þeirra á
andlegum vísindum Steiners. Þær
eru báðar í Antroposofiska félagi Ís-
lands.
„Upphafið að þessu er okkar sam-
talsferli, stúdía okkar tveggja sem
hefur átt sér stað reglulega í gegnum
árin,“ segir Sigrún. Eiginmaður Sig-
rúnar, Jasper Bock, er fjórði sýning-
arstjórinn.
„Ég hef lesið fyrirlestra Steiners
og hún líka og svo tengjum við það í
listina. Þannig gerist þetta. Við tvær
förum með þessa löngun að kalla til
okkar fólk sem er á svipuðum slóðum
og er að spá svipað og tengist list-
um,“ segir Guðrún.
„Í antroposofíu felst heildræn at-
hugun á lífinu og staðhæfingin um að
ekkert sé fast. Í antroposofíunni
fáum við frelsi. Aðalgrunnurinn að
allri antroposofíu sem var mikilvæg-
ast fyrir Steiner var frelsi ein-
staklingsins. Að vera aldrei nið-
urnjörvaður í hans hugmyndum og
því sem hann segir heldur finna það,
reyna það og upplifa með eigin
reynslu,“ segir Sigrún.
„Steiner kemur fyrst inn. Okkur
langaði að flytja inn töflurnar sem
fylgja fyrirlestrum Steiners,“ segir
Guðrún. Í ferlinu var þeim svo boðið
að sýna einnig verk Klint og Beuys.
Ransu, sem er eiginmaður Guðrúnar,
hafði þá verið að rannsaka Klint og
þótti Guðrúnu því við hæfi að fá hann
með í ferlið.
„Ég er ekkert sérstaklega mikið
inni í Steiner. Mínar pælingar komu
miklu frekar frá Hilmu Klint og lista-
sögu sem tengist svo sum andlegum
pælingum. Svo hef ég auðvitað mik-
inn á áhuga á Gerði Helgadóttur og
hennar tengslum við Gurdjieff. Hann
var dulspekingur og ég hafði stundað
hugleiðslur sem voru úr hans
smiðju,“ segir Ransu.
Bæði Hilma og Beuys tengjast
Steiner. Hilma, sem faldi sín merk-
ustu verk svo þau voru ekki uppgötv-
uð fyrr en eftir andlát hennar, fór á
fund Steiners til þess að bera verkin
undir hann. Beuys hafði mikinn
áhuga á Steiner og er skýr tenging á
milli æviverks Beuys, svokallaðs
samfélagsskúlptúrs, og heildrænnar
samfélagssýnar sem birtist í antro-
posofíu Steiners.
„Svo þetta gerist allt í einhverju
frábæru flæði og það eru einhvern
veginn töfrarnir í sýningunni, hvern-
ig hún mótar sig sjálf. Hvað verður
til í samtali á milli verka, samtali á
milli listamanna,“ segir Sigrún.
22 viðburðir á sýningunni
Allir listamennirnir eru í antro-
posofíska félaginu eða hafa einhvers
konar tengingu við andleg vísindi.
„Allir listamennirnir eru í sam-
bærilegum pælingum um þetta efni,“
segir Ransu.
Samt sem áður eru birtingar-
myndir listarinnar mjög ólíkar. „Það
er líka það sem er mikilvægt. Sýn-
ingin er þverskurður af listgreinum.
Það er dans, grafísk hönnun, tónlist.
Það eru sjónlistamenn og svo eru
fræðingar. Og það er mikil dagskrá í
kring um sýninguna, það eru 22 við-
burðir í tengslum við hana og við telj-
um að þeir séu jafngildis verkunum á
sýningunni,“ segir Sigrún.
Sýningin stendur fram í janúar og
munu viðburðirnir dreifast yfir sýn-
ingartímann. Guðrún nefnir sér-
staklega helgina sem er fram undan
þegar hún er spurð út í hápunkta
dagskrárinnar.
„Um helgina má finna lykla sem
dýpka skilning gesta á sýningunni.
Þá sérstaklega á málþinginu. Þar
tala fræðimenn, til dæmis Walter
Kugler sem er sérfræðingur í Stein-
er.“
Á sunnudaginn klukkan eitt verð-
ur sérstök stund sem gestir þurfa að
skrá sig í. „Það er teseremónían sem
kjarnar núvitund. Það er svona
kjarni í henni. Það eru tólf sem geta
tekið þátt. Þú átt eftir að skilja margt
ef þú ferð þarna inn,“ segir Guðrún.
„Þú færð dýpri skilning á sjálfum þér
og þar af leiðandi á öllu öðru.“
Áhrifin sem sýningarstjórarnir
vilja hafa á áhorfendur eru skýr. „Að
þú komist nær kjarna þínum, hver
sem hann er,“ eins og Guðrún orðar
það.
„Þess vegna er viðburðadagskráin
líka svo mikilvæg því hún dýpkar og
styður við allt annað sem á sér stað,“
segir Sigrún.
„En verkin eiga í sjálfu sér líka
þetta samtal,“ bætir Guðrún við.
„Vegna þess að listamennirnir eru
innblásnir af því andlega,“ segir
Ransu.
„Það væri líka gaman ef einhverjar
spurningar myndu vakna. Málþingið
er akkúrat fullkomið tækifæri til að
spyrja spurninga á,“ segir Sigrún.
Ransu segir mikilvægt að skynja
sýninguna. „Skilningur á sýningunni
fer eftir því hvaðan þú horfir. Grein-
irðu þetta eða upplifirðu þetta?“
Guðrún segir að tengsl á milli
verkanna séu mikil þrátt fyrir að list-
sköpunin sé fjölbreytt. „Mér finnst
vera svona sterkt samtal á milli verk-
anna og það er alveg nýtt fyrir mig.
Það var líka þessi ósk einhvern veg-
inn, að okkur langaði í samtal við
hina.“
Ransu samsinnir því. „Ef það er
ekki samtal á milli verka þá er sam-
sýningin ekki að heppnast. Það er
lykilatriði þegar margir eru að sýna
saman.“
Guðrúnu er sérstaklega annt um
barnasvæðið sem staðsett er nálægt
verkum hennar. „Við tökum það inn í
sýninguna, þetta er ekki bara eitt-
hvert barnahorn. Það er annars kon-
ar og með áhöldum sem líkjast svolít-
ið því sem er notað í
Steiners-skólum, þarna verða töflur,
ull og fleira.“
Meðan á sýningunni stendur verða
sömuleiðis smiðjur fyrir foreldra og
börn sem tengjast efni sýning-
arinnar. Waldorfs-skólarnir eru
byggðir á hugmyndafræði Steiners
en Waldorfs-skólarnir áttu einmitt
100 ára afmæli þegar sýningin var
opnuð í gær.
Titillinn Fullt af litlu fólki vísar í
skýringarmynd sem Steiner teiknaði
á fyrirlestri sem hann hélt árið 1922.
Titillinn fangar hina breiðu sýningu,
að mati sýningarstjóranna. Hægt
verður að hlusta á fyrirlestra Stein-
ers á kaffihúsinu í Gerðarsafni með-
an á sýningunni stendur.
„Það er ekki auðvelt að hlusta á
þetta og skilja þetta eins og við vilj-
um skilja þetta í samtímanum. Við
viljum harða þekkingu, kalda þekk-
ingu. Ég hef lært í gegnum árin
hvernig ég eigi að lesa þetta og
hvernig ég geti nýtt þetta sem mynd-
listarmaður. Fyrir mig virkar þetta
bara upp á ímyndunarafl og innsæi.
Þetta er svo stór mynd sem hann er
inni í þegar hann er að tala.“
Sigrún segir boðskap Steiners
mikilvægan í nútímasamfélagi.
„Einn fyrirlesturinn sérstaklega.
Hann fjallar um næringarfræði, lík-
amann og heildræna sýn á manneskj-
una. Hann endar á að tala um
menntastefnur og allt það sem er að
eiga sér stað í menntakerfinu núna,
þeir vilja brjóta upp, taka inn meiri
sköpun, hann er bara að tala um
þetta 1920. Þetta er ekkert nýtt. Það
þarf ekki að finna upp hjólið. Það
þarf bara að taka inn reynslu, 100 ára
reynslu.“
Samtímann skorti þolinmæði
Sýning margra listamanna og
margra sýningarstjóra krefst þol-
inmæði.
„Þegar upp hafa komið aðstæður
þar sem maður þarf að segja já eða
nei er best að segja bara: „skoðum
það“. Það hefur virkað rosalega vel í
okkar hóp að mínu mati að sleppa jái
og sleppa neii og sjá hvað sýningin
sýnir okkur,“ segir Sigrún.
Allir sýningarstjórarnir sýna einn-
ig sín eigin verk á sýningunni.
„Þegar upp kemur spurning um að
breyta einhverju sem tengist manns
eigin verki þarf maður að pína sig í
að prófa það og þá kemur alltaf ný
sýn, eitthvað sem maður hefði annars
ekki séð. Það segir mér að þetta sé
aðeins stærra en maður einn með
sjálfum sér í sínu. Þetta tekur lengri
tíma og ég held að samtíminn þurfi
það. Það þarf meiri hlustun og meiri
tíma í hlutina. Við förum svolítið
hratt,“ segir Guðrún.
Að lokum þakka sýningarstjór-
arnir Gerðarsafni og starfsfólki
safnsins sérstaklega fyrir.
„Safnið er náttúrlega búið að vera
stórkostlegt og það er magnað að
vinna hérna með þessu fólki. Þetta er
svo góður hópur og ótrúlega gott að
vinna hérna.“
Morgunblaðið/Eggert
Sýningarstjórar (F.v.) Guðrún Vera Hjartardóttir, Jón B.K. Ransu, Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir og Jasper Bock.
Lifandi áhugi á andlegum vísindum
Kenningar Rudolfs Steiners um mannspeki grundvöllurinn að sýningunni Fullt af litlu fólki
Verk heimsþekktra listamanna sem fallnir eru frá í bland við ný verk íslenskra og erlendra