Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Side 15

Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Side 15
frá leikskólum til framhaldsnáms í háskóla án þess að þurfa að borga. Nú er menntun orðin viðskiptavara, jafnvel í ríkisreknum háskólum. Það þarf að hugsa um þessi mál í sam- hengi. Til eru verkefni undir yfir- skriftinni „skólar, ekki fangelsi“. Við höfum orðið vitni að því að skól- um hraki og fari að líkjast fang- elsum og kennarar þurfi frekar að einbeita sér að aga en fræðslu nem- enda. Þessari menningu fangelsa og aga fylgja gríðarleg vandamál.“ Davis segir að í fátækum hverf- um svartra og fólks sem á uppruna að rekja til Rómönsku Ameríku sé beint samhengi á milli skólanna, meðferðar ungra afbrotamanna og fangelsa fyrir fullorðna. „Eftir því sem við sem höfum lengi einbeitt okkur að fangelsis- kerfinu skoðum samhengi hlutanna nánar áttum við okkur betur á því að það er ekki nóg að gera breyt- ingar á einu sviði; þær þurfa að eiga sér stað á mörgum stöðum í einu.“ Davis er á því að gera þurfi um- bætur á réttarkerfinu í Bandaríkj- unum eins og það leggur sig og þótt það sé ekki hægt eins og stendur verði að ýta undir breytingar í þá átt að áherslan verði ekki á refs- ingu, heldur að bæta orðinn skaða. Þriðjungur allra kvenfanga heims er í Bandaríkjunum „Við viljum ekki bara rífa niður byggingarnar sem hýsa fanga, við viljum endurskoða hvað það þýðir að ná fram réttlæti í samfélagi okk- ar og biðjum fólk að ímynda sér hvernig það liti út ef við treystum ekki á fangelsi til að búa til falskt öryggi með því að allt vonda fólkið þurfi að vera bak við lás og slá. Ég held að íhaldsmenn, þar á meðal nú- verandi íbúi Hvíta hússins, hafi nálgast umbætur fangelsa með mjög einfölduðum hætti. Þeir vilja einfaldlega draga úr fjölda fólks í fangelsi. Þessi fjöldi á sér nátt- úrulega engin fordæmi. Í Banda- ríkjunum eru fleiri í fangelsum en annars staðar í heiminum, hvort sem miðað er við hreinan fjölda eða höfðatölu. Þriðjungur allra kvenna sem eru í fangelsum í heiminum sit- ur inni í Bandaríkjunum. Þeir vilja ná þessari tölu niður en eru að hugsa um aðra gerð af prísund. Þar má nefna stofufangelsi og nýja tækni á borð við ökklabönd og jafn- vel lyf. Prísundin er því enn mið- punktur í okkar heimi. Við erum að biðja um endurskoðun á merkingu réttlætis, hvort það verði að snúast um refsingu, hvort það geti ekki fal- ist í að færa saman fólk sem hefur skaðað hvert annað. Þetta er mikið verk en ef við setjum það ekki á verkefnaskrána núna er ekki víst að þetta tækifæri til að breyta heim- inum komi nokkurn tímann aftur.“ Davis vakti at- hygli um allan heim fyrir næst- um hálfri öld og varð kunnuglegt andlit rétt- indabaráttu svartra í Banda- ríkjunum. Hún gekk í Kommún- istaflokk Banda- ríkjanna og var félagi í honum allt til 1991. Varð aðildin til þess að Ronald Reagan reyndi að koma í veg fyrir að hún fengi að kenna í háskólum í Kaliforníu þegar hann var rík- isstjóri þar. 1970 var hún eftirlýst af alríkislögreglunni, FBI, fyrir að hafa keypt vopn sem notuð voru til þess að reyna að frelsa tvo fanga úr réttarsal með valdi. Fjórir létust í tilrauninni. Davis náðist og var sett í varðhald. Mikil herferð hófst til að fá hana lausa. John Lennon og Yoko Ono sömdu lagið Angela henni til stuðnings og það sama gerðu Roll- ing Stones með Sweet Black Angel. Eftir 16 mánuði var hún látin laus gegn tryggingu og skömmu síðar var hún sýknuð í málinu. „Ég byrjaði að láta að mér kveða löngu áður en athygli almennings fór að beinast að mér 1969 og 1970,“ segir Davis. „1969 var ég rekin úr kennarastöðu við Kaliforníuháskóla. 1970 var ég handtekin og ákærð í þremur liðum fyrir aðild að morði. Það sem er mikilvægt í mínum huga varðandi þetta tímabil er að til varð gríðarmikil fjöldahreyfing sem náði til allra heimshorna. Ég var félagi í Kommúnistaflokknum og á þessum tíma voru kommúnistaflokkar í næstum öllum löndum heims. Ég held að við ættum að muna hvað þessi alþjóðlega samstaða var mik- ilvæg. Mál mitt var mikilvæg vís- bending um þá möguleika sem fólgnir eru í alþjóðlegri samstöðu. Ég hef trú á því að ég hefði ekki bú- ið við frelsi síðustu rúmlega fjörutíu ára hefði fólk um allan heim ekki tekið höndum saman og neitað að leyfa ríkinu að taka mig af lífi eða fangelsa mig það sem eftir væri æv- innar. Það var markmið Nix- ons, sem þá var forseti, Reag- ans, sem var ríkisstjóri í Kaliforníu, og J. Edgar Hoover, yfirmanns FBI. Skilaboðin eru þau að taki fólk höndum saman er mögulegt að gera það sem virðist ómögulegt.“ Kommúnisti með litlu kái Eftir málaferlin fór Davis um allan heim, þar á meðal til Kúbu, Sovét- ríkjanna og Austur-Þýskalands. Hún studdi stjórnarfarið í þessum löndum þótt það byggðist á kúgun og var gagnrýnd fyrir að vilja ekki styðja málstað pólitískra fanga í austurblokkinni. „Ég gekk í Kommúnistaflokkinn því að ég taldi að við þyrftum rót- tækar breytingar, ekki bara í Bandaríkjunum heldur í heiminum,“ segir Davis. „Ég trúi því enn að af- nema þurfi kerfi kapítalismans, ég er enn kommúnisti með litlu kái. Ég held ekki að þau vandamál sem komu fram í sósíalískum ríkjum í sambandi við lýðræði og fleira þýði að henda eigi barninu út með bað- vatninu. Ég held að enn séu hliðar á Sovétríkjunum og öðrum sósíal- ískum ríkjum, til dæmis Kúbu, sem skipta máli, til dæmis ókeypis menntun, húsnæði sem kosti aðeins brot af tekjum manna, ókeypis heilsugæsla. Ég held enn í þessar hugsjónir og vona að sá dagur komi að við getum komið á sósíalisma í einhverri mynd í heiminum.“ Mótmælendur fyrir utan réttarsal í Brooklyn 2015 vegna máls gegn lögreglu- manni sem tók svartan mann, Erik Garner, kverkataki þannig að hann lét lífið. Málið var kveikjan að mótmælum undir merkinu #svörtlífskiptamáli. ’Um leið heldur kyn-ferðislegt ofbeldi ogáreitni samt áfram aðvera vandamál á Íslandi. Það ætti að vekja þá til umhugsunar sem halda að náum við jafnrétti kynjanna í efnahagslífinu eða á sviði stjórnmála leysist öll vandamál okkar. AFP Ljósmynd/KK Ottesen 15.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15 Opið virka daga kl. 11-18, laugard. kl. 12-16Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík, sími 551 Fallegt úrval af lömpum LISTHÚSINU

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.