Morgunblaðið - Sunnudagur - 15.09.2019, Page 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15.9. 2019
LESBÓK
BÆJARL I ND 14 - 16 20 1 KÓPAVOGUR S ÍM I 553 7 100 L I NAN . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 / l a u g a r d a g a 1 1 - 1 6
S Ó F A D A G A R
DAGANA 5. TIL 21. SEPTEMBER
15%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM
SÓFUM Á LAGER
10%
AFSLÁTTUR AF
SÉRPÖNTUNUM
UPPISTAND Leikarinn og goðsagnakenndi uppistand-
arinn Eddie Murphy hyggst snúa aftur á sviðið á næsta ári.
Eddie gerði garðinn fyrst frægan þegar hann hóf að koma
fram í grínþættinum Saturday Night Live aðeins 19 ára
gamall. Þá naut hann gífurlega vinsælda sem kvikmynda-
leikari á 9. og 10. áratugnum. Þegar leið á ferilinn fór að
halla undan fæti og er Murphy í seinni tíð líklega þekkastur
fyrir að ljá asnanum í Shrek-myndunum rödd sína.
Margir telja þó að Murphy hafi notið sín best í uppistand-
inu og því fögnuðu margir þegar hann staðfesti endurkom-
una í hlaðvarpsþætti á dögunum. Þá mun Murphy einnig
koma fram í Saturday Night Live í fyrsta sinn síðan 1984 í
desember auk þess sem hann leikur í framhaldsmynd af
myndinni Coming to America sem kemur út á næsta ári.
Snýr aftur á sviðið
Eddie Murphy hyggur á endurkomu.
BOND Leikarinn Pierce Brosnan, sem er
hvað þekktastur fyrir leik sinn sem njósnari
hennar hátignar, James Bond, hefur blandað
sér í umræðuna um hver eigi að leika Bond
næst. Daniel Craig mun túlka Bond í hinsta
sinn í 25. myndinni um njósnarann og því
hafa margir velt því fyrir sér hver komi næst
á eftir kappanum. Að mati Brosnan er kom-
inn tími á að kona taki við keflinu. „Við erum
búin að horfa á karla gera þetta síðustu 40
árin. Það er tímabært að þeir víki og það
verði sett kona þarna,“ sagði Brosnan í sam-
tali við Hollywood Reporter. „Ég held að það
væri hressandi. Það væri spennandi.“
Kominn tími á konu sem 007
Brosnan lék Bond frá 1995 til 2002.
AFP
Rihanna er spennt fyrir nýrri plötu.
Nýjar plötur
væntanlegar
TÓNLIST Nýjar plötur eru
væntanlegar frá bæði Rihönnu og
Drake að sögn blaðamanna í Frakk-
landi sem mættu á tónlistar-
ráðstefnu Universal sem haldin var
þar í landi á dögunum. Ef marka
má þessar sögusagnir mun níunda
hljómversplata Rihönnu koma út í
desember en hún hefur áður ýjað
að því að ný plata sé á leiðinni. Fyrr
á árinu sagðist hún ekki geta beðið
eftir því að gefa hana út.
Drake mun sömuleiðis gefa út
plötu áður en árið rennur sitt skeið
á enda og fylgja þar með eftir plötu
sinni Scorpion sem kom út síðasta
sumar.
Fyrir tveimur árum var ég búinað líta mér svolítið mikið nærog átta mig á því að það er ann-
ar hver maður að skilja. Þá fer ég að
velta þessu umhverfi svolítið fyrir
mér,“ segir Kolbrún Pálína Helga-
dóttir, annar umsjónarmanna nýrrar
sjö þátta þáttaraðar sem nefnist Ást
og kemur út á Sjónvarpi Símans
Premium hinn 19. september næst-
komandi.
„Ég hef sjálf stundað mikla mann-
rækt og svo lent í því að skilja. Á
þeim tíma sem ég skil þá upplifi ég að
það eru öll verkfæri hrifsuð af manni
því maður kann þetta ekki. Það er
engum kennt að skilja,“ segir Kol-
brún sem fór þá að líta í kringum sig
og áttaði sig á því að enginn kann í
raun að skilja. Hún komst að því að
lítið sé til af efni á íslensku til að
styðja við fólk á þessum tímamótum.
Kastað út í kosmósið
„Ég kasta svo þessari hugmynd svo-
lítið út í kosmósið og þeim hjá Síman-
um finnst þetta frábært umfjöllunar-
efni því það hafði enginn þorað að
fara út í þetta.“ Kolbrún fer að vinna
að verkefninu í samstarfi við Saga-
film og kemst þá að því að Kristborg
Bóel Steindórsdóttir hafði komið með
sambærilega hugmynd til þeirra.
„Við ákveðum að sameina krafta okk-
ar,“ segir Kolbrún en í kjölfarið hefst
margra mánaða hugmyndavinna.
Ást er fyrsta sjónvarpsþáttaröð
þeirra Kolbrúnar og Kristborgar en
báðar hafa þær hrærst í fjölmiðlaum-
hverfinu um árabil; Kolbrún ritstýrði
blöðunum Nýtt líf og Lífinu í Frétta-
blaðinu á sínum tíma og Kristborg
hefur starfað sem blaðamaður auk
þess að skrifa bókina 261 dagur, sem
fjallar einmitt um sambandsslit.
Þeim Kolbrúnu og Kristborgu
fannst ekki spennandi að gera heila
þáttaröð um skilnaði svo ákveðið var
að byrja á byrjuninni, ástinni, og fara
svo í gegnum allt ferlið að baki lang-
tímasamböndum. Þær stöllur fóru í
mikla og langa rannsóknarvinnu og
útkoman er þáttaröðin sem Kolbrún
segir nokkurs konar leiðarvísi um
ástina, sambönd og skilnaði; hvað
eigi að gera og hvað ekki. Haukur
Björgvinsson tók að sér leikstjórn
þáttaraðarinnar og Helgi Jóhanns-
son sér um handrit og framleiðslu
hennar og er Kolbrún mjög ánægð
með störf þeirra.
Vona að fólk staldri við
Í þáttaröðinni er rætt við sérfræð-
inga í ástarmálum. „Við erum með
viðtöl við margt af fagfólki landsins í
þessum fræðum; hjónabands-
ráðgjafa, fjölskylduráðgjafa, kynlífs-
ráðgjafa, sálfræðinga og geðlækna.
Þeir útskýra hvað gerist þegar fólk
verður ástfangið, lendir í ástarsorg
og skilur, svo við stiklum á öllum
þessum helstu viðfangsefnum,“ segir
Kolbrún.
Þáttaröðin kannar einnig sögu
sambanda og hvað sé að breytast í
þeim og samskiptum kynjanna.
„Manni líður svolítið eins og maður
sé að koma frá sér mastersritgerð og
við vonum að þetta hafi einhver áhrif
á samfélagið. Bæði að fólk hugsi sig
betur um áður en það gerir eitthvað
sem það sér eftir og beri meiri virð-
ingu fyrir samböndum,“ segir Kol-
brún. „Við vonumst til að fá fólk til að
staldra aðeins við og velta fyrir sér
hlutunum, til dæmis af hverju það er
í sambandi,“ bætir hún við.
„Við skoðum einnig símana, netið,
öll lætin á bak við það og kröfurnar
og veltum því fyrir okkur hvort við
séum að tapa fyrir okkur sjálfum í
öllum þessum látum.“
Þverskurður samfélagsins
Ekki er bara spjallað við fagfólk
heldur léði fjöldi fólks þættinum rödd
sína og sagði frá reynslusögum sín-
um í sambandi við ástina. Kolbrún
segir að um alla flóru para sé að
ræða. Til dæmis pör sem hafa verið
gift í 50 ár, ung pör og samkynhneigð
pör. „Við fengum einnig ótrúlega
hugrökk börn fráskilinna foreldra til
að ræða við okkur. Við fáum í raun
þverskurðinn þegar kemur að ást-
arsamböndum og skilnuðum.“
Rúsínan í pylsuendanum eru svo
leikin atriði þar sem leikararnir Dóra
Jóhannsdóttir og Máni Arnarson,
ásamt fleirum, sýna hvernig gera eigi
hluti og hvernig ekki. „Við fengum
ráðgjafa til að setja þessi atriði upp
með okkur þar sem við erum svolítið
að kenna fólki hvernig eigi að gera
hlutina betur. Þetta getur til dæmis
verið fólk sem er komið með bland-
aðar fjölskyldur,“ segir Kolbrún og á
þar við fólk sem hefur sambúð, bæði
með börn úr fyrra sambandi. „Það er
Allir hafa
misst „kúlið“
Ný þáttaröð, Ást, kemur út í heild sinni á Sjón-
varpi Símans Premium næstkomandi fimmtudag.
Þar er farið yfir allt sem viðkemur ástarsam-
böndum, allt frá fyrstu kynnum til skilnaðar.
Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is