Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Blaðsíða 19
29.9. 2019 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 19 Ég datt eiginlega um þessa íbúð þegarég var nýorðin ólétt að dóttur okkar.Það var ekki endilega planið að flytja og við þekktum hverfið ekki neitt en ákváðum að skoða og fundum það bæði þeg- ar við komum hér inn að þetta væri stað- urinn fyrir okkur. Við heilluðumst af stóru gluggunum í stofunni og því hvað íbúðin er opin og björt. Hverfið hefur komið mjög skemmtilega á óvart og ég kann virkilega vel að meta að hafa svona mikla þjónustu í göngufjarlægð.“ Magnea og Yngvi keyptu íbúðina fyrir ári og fóru í svolitlar framkvæmdir áður en þau fluttu inn. „Við gerðum eldhúsið upp alveg frá grunni. Það var orðið lúið og svo sáum við möguleika á breytingu sem fól í sér að nýta plássið betur og útbúa þvottahús inn af því og erum virkilega ánægð með útkomuna,“ útskýrir Magnea en þau fóru einnig í minni- háttar framkvæmdir á baðherbergi auk þess sem þau létu slípa upp parketið. Spurð segist Magnea eiga svolítið erfitt með að skilgreina stílinn á heimilinu. „Ætli hann sé ekki bara frekar persónulegur. Ég hrífst af því sem er svolítið hrátt eða „ind- ustrial“ og mínimalískt. Svo er ég líka mjög meðvituð um umhverfismál. Þetta fer ágæt- lega saman. Ég kaupi fáa hluti inn á heimilið og reyni að nýta það sem við eigum og það sem fellur til, finnst gaman að fara í fjár- sjóðsleit á flóamörkuðum og tíni blóm og strá á sumrin og skreyti heimilið með þeim.“ Eftirlætishlutir hjónanna á heimilinu eiga það sameiginlegt að vekja góðar tilfinningar eða minningar, t.d. úr ferðalögum erlendis en þau taka gjarnan með hluti til minningar þegar þau ferðast. „Myndlistin sem prýðir veggina er í miklu uppáhaldi og svo þykir mér sérstaklega vænt um ljósmyndina sem ég tók af litlu hjarta á miðri umferðargötu í París sama kvöld og við trúlofuðum okkur,“ útskýrir Magnea. Hjónin leggja ríka áherslu á, við innrétt- ingu heimilisins, að heimilisfólkinu líði vel og vilja skapa rými þar sem fjölskyldan getur notið hversdagsleikans saman. Fjölskyldan er sammála um að borðstofu- borðið sé eftirlætisstaðurinn á heimilinu. „Borðstofuborðið hefur svo mörg hlutverk. Ég nota það sem vinnuborð á daginn og þeg- ar sonur okkar kemur heim úr skólanum breytist það í teikniborðið hans. Um helgar bjóðum við vinum og fjölskyldu í mat eða kaffi og þá sitja allir við borðið, spjalla og borða góðan mat. Mér þykir sérstaklega vænt um þetta borð og stólana vegna þess að ég erfði það eftir ömmu mína og afa. Öll þeirra börn og barnabörn hafa setið við þetta borð, unnið, teiknað og borðað svo í því er mikil saga og karakter sem mér þykir vænt um að fá að viðhalda,“ segir Magnea. Þá seg- ir hún jafnframt eldhúsið einskonar griða- stað fjölskyldunnar á heimilinu. „Við erum miklir matgæðingar og finnst gaman að elda og borða saman. Yngvi er meistarakokkur og við hin njótum góðs af því. Það skipti okkur miklu máli þegar við fluttum að útbúa gott eldhús fyrir fjölskylduna. Þar verða ein- hvern veginn til bestu stundirnar í hvers- dagsleikanum.“ Aðspurð hvar þau versli helst fyrir heim- ilið segir Magnea sér finnast skemmtilegast að finna faldar gersemar á nytjamörkuðum, bæði hér heima og erlendis. „Bæði er það betra fyrir umhverfið að kaupa notað en nýtt og svo finnst mér úrvalið oft einsleitt hérna heima og annar kostur við flóamarkaði er að þar er hægt að finna einstaka hluti. Annars er orðið mjög fjölbreytt úrval af skemmti- legum og öðruvísi verslunum hér og þar um bæinn sem mér finnst gaman að heimsækja, t.d. keramikstúdíóið Ker, kaffihúsið Lúna Flórens, Pastel blómastúdíó og marokkóska verslunin Nús nús svo eitthvað sé nefnt.“ Aðspurð að lokum hvort að það sé eitt- hvert eftirlæti í hverfinu segist Magnea íbúðina nánast í hjarta hverfisins. „Hér erum við með frú Laugu og Brauð & co beint fyrir utan dyrnar og aðeins lengra er meðal ann- ars Laugardalslaugin, Grasagarðurinn og ís- búðin Skúbb. Kaffi Lækur sem er hérna beint á móti okkur er í miklu uppáhaldi og góð tilbreyting í fæðingarorlofinu að hafa getað hoppað þangað yfir hvort sem það er í morgunbolla, á fundi eða í góðan hádeg- ismat.“ Hrátt og mínimalískt í Laugardalnum Hjónin Magnea Einarsdóttir, fata- og textílhönnuður og eigandi fatamerkisins MAGNEA, og Yngvi Eiríksson verk- fræðingur búa ásamt börnum sínum tveimur, Rökkva, 9 ára, og Eddu Fanneyju, sem er að verða eins árs, á gull- fallegu heimili í Laugardalnum. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Magnea er með persónulegan stíl og finnst gaman að fara í fjársjóðsleit á flóamörkuðum. Gráblái liturinn á veggnum tón- ar vel við upprunaleg smáatriði úr tekki. Stofan er einstaklega skemmtilega innréttuð. 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.