Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2019, Blaðsíða 22
Ársbyrjun 1969 var lítill gleði-tími hjá Bítlunum. Árið áðurhöfðu þeir rifist svo mikið
við gerð hins svokallaða hvíta al-
búms að hljóðversstjóri þeirra, Ge-
off Emerick, gekk út í miðjum upp-
tökum. Því ákváðu fjórmenningarnir
að þjappa sér betur saman og leita
aftur í ræturnar. Var hugmyndin að
platan myndi heita Get Back og var
til að mynda tekin mynd af þeim á
sama stað og sjónarhorni í EMI-
húsinu og sú sem prýddi fyrstu plötu
þeirra, Please Please Me. Plötunni
var skotið á frest. Ljósmyndin var
hins vegar síðar notuð á „bláa um-
slaginu“ á safnplötunni 1967-1970
sem á áttunda áratugnum var sú
plata sem margt ungt fólk á þeim
tíma kynntist Bítlunum í gegnum.
Þess í stað var ákveðið að hljóð-
rita plötu þar sem vandað yrði til
verksins. Paul McCartney grátbað
Geoff Emerick að snúa aftur til
starfa og hann lét til leiðast gegn því
að Bítlarnir myndu rífast minna. Þó
svo að andinn væri skárri þá gekk
ekki allt sem skyldi. John Lennon og
Yoko komu ekki fyrr en tveimur vik-
um eftir að upptökur hófust, en þau
lentu fyrr um sumarið í bílslysi. Á
fyrsta degi lét John setja rúm í
hljóðverið og þar var Yoko öllum
stundum, hinum Bítlunum til tölu-
verðrar armæðu.
Umslagið
Þegar hljóðupptökur voru vel á veg
komnar var farið að íhuga titil
verksins. Fyrsta hugmyndin var
Everest. Þetta var ákveðinn orða-
leikur, sem vísaði í Mount Everest
en Bítlarnir, sem höfðu gaman af
alls kyns orðaleikjum, voru samt
aðallega að hugsa til Everest-
sígarretta sem Geoff Emerick
reykti í gríð og erg. Ekki var þó
hægt að hafa umslagið með síg-
arrettupakka og þeim leist illa á að
fara alla leið til Everest til að láta
taka mynd af umslaginu þar. Þeir
ræddu þessa hugmynd fram og til
baka. Ringo varð leiður á þessum
umræðum og blótaði, í framhaldinu
af því stakk hann upp á að rölta
bara út á götu fyrir utan hljóðverið,
taka ljósmyndina þar og kalla plöt-
una Abbey Road. Hugmyndin var
nú ekki dýpri en þetta.
Margir hafa túlkað þetta með þeim
hætti að Bítlarnir hafi dáð hljóðverið
svo að þeir hafi skírt plötuna í höfuðið
á því, en í raun þoldu þeir það ekki og
voru uppteknir við að byggja annað
hljóðver á sama tíma. Hljóðverið hét
ekki einu sinni Abbey Road Studios
heldur einfaldlega EMI Studios á
þeim tíma, en eigendur hljóðversins
voru sniðugir og breyttu nafni þess
ári síðar til þess að tengja það betur
við heiti plötunnar.
Skömmu síðar, nánar tiltekið 8.
ágúst 1969, var ákveðið að taka ljós-
myndina. Paul McCartney fékk hug-
myndina að því að þeir færu yfir
gangbrautina og var búinn að rissa
upp skissu af þeim í því hlutverki.
Bítlarnir mættu snemma þann dag-
inn á þeirra mælikvarða, eða rúm-
lega 10 að morgni.
Ein ástæðan var sú að aðdáendur
þeirra voru iðulega að þvælast um á
Abbey Road fyrir framan hljóðverið
þegar þeir voru að taka upp plötur
en það var alkunna að þeir létu ekki
sjá sig fyrr en eftir hádegi. Þannig
næðu þeir að taka ljósmyndina í
friði fyrir trylltum aðdáendum.
Önnur góð ástæða fyrir þessari
tímasetningu er að upp úr 11 skín
Örtröð á Abbey Road
Það er ávallt erill ferðamanna fyrir utan stúdíóið við Abbey Road þar sem
Bítlarnir tóku upp samnefnda plötu. Við sérstök tilefni fjölmenna aðdá-
endur og allt fyllist af fólki. Már Wolfgang Mixa var á Abbey Road á 50
ára afmæli myndatökunnar fyrir albúm plötunnar Abbey Road.
Greinarhöfundur ásamt Momo, sem ́brá sér í gervi Bítilsins George Harrison.
Ljósmyndir/Már Mixa
Félagar úr Bítlaeftirhermu-
hljómsveitinni Fab Gear birt-
ust á Abbey Road 8. ágúst
þegar 50 ár voru liðin frá því
að myndin af Bítlunum fyrir
albúmið á plötunni Abbey
Road var tekin og stilltu sér
upp á hinni frægu gangbraut.
AFP
Lögregla virtist hafa vanreiknað hvað
margir myndu mæta á Abbey Road.
Stöðumælavörðurinn Rita, sem Bítl-
arnir sungu um í laginu Lovely Rita.
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29.9. 2019
LÍFSSTÍLL
Gs import ehf | S. 892 6975 | www.gsimport.is
Mikið úrval
Borðbúnaður
fyrir veitingahús og hótel