Morgunblaðið - 01.10.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 2019
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Ég byrjaði á Morgunblaðinu 1. apríl 1984 og
þegar ritstjórinn kynnti mig til sögunnar á rit-
stjórninni sagðist einn blaðamaðurinn vona að
þetta væri aprílgabb,“ sagði Agnes Bragadóttir
blaðamaður og hló. Þetta reyndist ekkert gabb
og í gær var síðasti vinnudagur Agnesar eftir 35
ára og hálfs árs starf á Morgunblaðinu upp á
dag. „Ég varð 67 ára hinn 19. september og
hafði lengi verið að gæla við hugsunina um
starfslok. Þetta eru fín tímamót til að láta af
störfum.“ Agnes hefur löngum verið einn öfl-
ugasti blaðamaður Morgunblaðsins og var einn-
ig um tíma fréttastjóri, stýrði umfjöllun um við-
skipti, menningarmál og almennri
fréttaumfjöllun.
Heillaðist af blaðamennskunni
Hún lauk kennaraprófi og íþróttakenn-
araprófi og starfaði um tíma sem gagnfræða-
skólakennari, íþróttakennari og menntaskóla-
kennari á Ísafirði auk þess sem hún þjálfaði
meistaraflokk karlaliðs ÍBÍ í handbolta. Agnes
hóf síðan nám við Háskóla Íslands, en tók sér
tímabundin hlé frá námi til að vinna fyrir vest-
an. Einnig var hún lausamaður í blaðamennsku
á sumrin.
„Ég varð svo heilluð af blaðamennskunni að
það kom eiginlega aldrei neitt annað starf til
greina eftir það,“ sagði Agnes. „Ég byrjaði sem
blaðamaður á Tímanum haustið 1980 um leið og
ég útskrifaðist með próf í ensku og þýsku úr
Háskóla Íslands. Ég sótti fyrst um á Moggan-
um en þá vildi hann mig ekki svo ég fór á Tím-
ann og var þar í þrjú og hálft ár.“ Blaða-
mennskuferill Agnesar er því orðinn heil 39 ár.
En hvað er svona heillandi við blaðamennsk-
una?
„Það er fjölbreytileikinn. Allaf að gera eitt-
hvað nýtt. Kynnast nýju fólki og hugmyndum
fyrir utan að mér finnst yfirgengilega gaman
enn þann dag í dag að „skúbba“! Að vera fyrst
með fréttina. Það hefur aldrei hætt að vera
skemmtilegt að ná fréttinni og að vera fyrsti
fjölmiðillinn með hana,“ sagði Agnes. Hún hefur
ósjaldan „skúbbað“ eins og lesendur Morgun-
blaðsins þekkja vel.
Agnes rifjaði upp að þegar betur áraði á árum
áður gátu ritstjórar Morgunblaðsins gefið
blaðamönnum góðan tíma, jafnvel vikur og
mánuði, til að rannsaka stór og flókin mál og
birta síðan vandaða greinaflokka sem vöktu
gríðarmikila athygli. Agnes sagði að sér hefði
þótt það vera mjög gefandi vinna. Því miður hafi
slík blaðamennska verið aflögð vegna versnandi
stöðu fjölmiðlanna. En næddi ekki stundum um
hana?
Stundum var næðingur
„Jú, það gerði það eins og þegar ég skrifaði
um endalok Sambandsins,“ sagði Agnes. „Það
var kært til Rannsóknarlögreglu ríkisins og
endaði í dómsal þar sem þess var krafist að ég
veitti upplýsingar um heimildarmenn mína. Ég
var með mikið af trúnaðargögnum innan úr
Landsbankanum sem ég gat byggt greinaflokk
minn á. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstarétt-
arlögmaður var verjandi minn. Málið tapaðist í
héraðsdómi en við unnum fyrir Hæstarétti. Við
höfðum sigur að lokum!“
Við starfslok þakkar Morgunblaðið Agnesi
fyrir vel unnin störf og óskar henni velfarnaðar.
Morgunblaðið/Hari
Kveðjuhóf Davíð Oddsson ritstjóri ávarpaði Agnesi í kveðjuhófi sem var haldið henni til heið-
urs í Hádegismóum í gær. Þar voru núverandi og fyrrverandi samstarfsmenn á blaðinu.
Yfirgengilega gam-
an að „skúbba“
Agnes Bragadóttir blaðamaður lét af störfum í gær
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er áhugavert tækifæri. Þarna
er stór og spennandi markaður að
opnast. Við munum skoða mögu-
leikana,“ segir Jens Garðar Helgason,
framkvæmdastjóri Laxa fiskeldis á
Eskifirði. Hann er spurður að því
hvort fyrirtækið hyggist reyna fyrir
sér með útflutning á laxi til Kína nú
þegar þar hefur opnast tollfrjáls
markaður fyrir lax frá Íslandi.
Laxar fiskeldi eru nú að slátra laxi
úr sjókvíum í Reyðarfirði. Segir Jens
Garðar að fyrirtækið hafi lax í hæsta
gæðaflokki og alla burði til að fara inn
á þennan markað. Kínamarkaður sé
stór og gefi gott verð. „Hann verður
vonandi þriðja stoðin undir starfsem-
inni,“ segir Jens Garðar, til viðbótar
mörkuðum fyrirtækisins í Evrópu og
Ameríku.
Norðmenn öflugir í Kína
Arctic Fish á Vestfjörðum hóf út-
flutning til Kína í byrjun síðustu viku,
strax og síðustu hindrunum fyrir gild-
istöku fríverslunarsamnings þjóðanna
varðandi laxaafurðir hafði verið rutt úr
vegi. Útflutningur fyrirtækisins þang-
að hefur gengið vel og fer vaxandi.
Laxaafurðir hafa ekki áður verið
fluttar héðan til Kína. Norðmenn hafa
selt þangað lax en tollur hefur verið
greiddur af þeim viðskiptum enda
Norðmenn ekki með fríversl-
unarsamning við Kínverja. Hefur
gengið á ýmsu í þeim viðskipum.
Vegna óánægju stjórnvalda í Kína
með val á Liu Xiaobo, kínverskum
baráttumanni fyrir mannréttindum,
sem friðarverðlaunahafa Nóbels árið
2010 dró mjög úr útflutningi á laxi en
eftir að samband þjóðanna komst í
lag á árinu 2017 hefur útflutningur
Norðmanna á laxi til Kína aukist á ný.
Fyrstu sjö mánuði þessa árs hafa 20
þúsund tonn af norskum laxi farið til
Kína. Neysla á laxi hefur aukist mjög í
Kína á síðustu árum og búist er við
áframhaldandi aukningu. Ætla Norð-
menn sér stóran hluta af henni.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Slátrun Starfsmenn Laxa fiskeldis draga saman nót með laxi.
Stór og spennandi
markaður opnast
Fríverslun
» Stjórnvöld á Íslandi og í
Kína gerðu með sér
fríverslunarsamning árið 2013
sem tók gildi árið 2014.
» Unnið hefur verið að skrán-
ingum svo hægt sé að flytja
út hinar ýmsu afurðir.
» Útflutningur á laxi án tolla
til Kína hófst í síðustu viku
eftir að frágangi formsatriða
lauk.
Hæstiréttur felldi í gær úr gildi dóm
Landsréttar yfir verktakafyrirtæki
sem Landsréttur hafði talið að brotið
hefði á kjörum erlends starfsmanns.
Taldi Hæstiréttur ósannað að starfs-
manninum hefði ekki verið unnt að
skipuleggja vinnu sína og aðstoðar-
manns þannig að ekki færi í bága við
ákvæði um hvíldartíma.
Áður hafði Héraðsdómur dæmt
verktakafyrirtækinu í vil en Lands-
réttur sneri þeim dómi við.
Starfsmaðurinn er lærður mat-
reiðslumaður frá Tékklandi. Hann
starfaði á árunum 2013 til 2016 sem
matráður og stjórnandi í mötuneyti
starfsmanna verktakafyrirtækisins
sem vann þá að Norðfjarðargöngum.
Á starfsmanninum hvíldi skylda til
að reiða fram „morgunmat klukkan
sex, morgunkaffi klukkan tíu, hádeg-
ismat klukkan tólf, síðdegiskaffi milli
klukkan þrjú og fjögur og kvöldmat
klukkan sex. Honum var í sjálfsvald
sett hvernig hann skipulagði viðveru
sína á vinnustað“, segir í dómnum.
Starfsmaðurinn hafði krafist þess
að verktakafyrirtækið greiddi honum
3.358.902 krónur auk dráttarvaxta
vegna þess að hann taldi að verktaka-
fyrirtækið hefði ekki virt ákvæði
kjarasamnings um lágmarkshvíld og
frítökurétt.
Máli sínu til stuðnings vísaði starfs-
maðurinn í lög um aðbúnað, hollustu-
hætti og öryggi á vinnustöðum. Þar er
mælt fyrir um að vinnu skuli hagað
þannig að á hverjum 24 klukkustund-
um fái starfsmenn að minnsta kosti 11
klukkustunda samfellda hvíld. Verk-
takafyrirtækið beitti því fyrir sig að
þessi lög ættu ekki við um æðstu
stjórnendur eða aðra þá sem ráða
vinnutíma sínum sjálfir.
Ólafur Börkur Þorvaldsson skilaði
sératkvæði í dómnum. Hann var mót-
fallinn því að dómi Landsréttar yrði
breytt, m.a. vegna þess að starfsmað-
urinn hefði í raun ekki getað ráðið
vinnutíma sínum sjálfur vegna þeirr-
ar skyldu sem á honum hvíldi.
ragnhildur@mbl.is
Hæstiréttur snýr
dómi Landsréttar
Telur brot á starfsmanni ósannað
Morgunblaðið/Golli
Hæstiréttur Dómstigin eru nokkuð
ósammála um úrlasun málsins.